Morgunblaðið - 04.12.1957, Page 2
2
MORCUKBl 4 Ð1Ð
Miðvikudagur 4. des. 1957
•r
Mæirostyrksneind heítir jólo-
söinnn síno í þessori viku
Nefndin heitir á fóik að ieggja fáfæklingum iió
MÆÐRASTYRKSNEFND hefur
á undanförnum árum margoft
leitað hjálpar bæjarbúa til styrkt
ar fátækum mæSrum og börn-
um þeirra fyrir jólin. Hefur
þetta starf nefndarinnar farið ört
vaxandi og mætt mikilli góðvild.
Á síðastliðnu ári nuiu milli 700
og 800 f jölskyldur og einstakling-
ar góðs af úthlutun Mæðrastyrks
nefndarinnar. Meðal annars út-
hlutaði nefndin þá miklu af fatn-
aði, sem ævinlega er vel þeginn
á barnmörgum heimilum.
Enn leitað tU Reykvíkinga
Nú leitar Mæðrastyrksnefnd
einu sinni ennþá til Reykvíkinga
í þeirri von, að hún mæti sömu
gjafmildi og skilningi sem fyrr.
Munu konur í Mæðrastyrksnefnd
reyna af mætti að halda sam-
bandi við heimilin og fólkið,
svo að trúin á glaðning nefndar-
innar bregðist ekki og gjafirnar
komi þar sem þeirra er mest
þörf og sem fæstir verði út-
undan.
Söfnunin að hefjast
Mæðastyrksnefndin hefur nú
opnað skrifstofu sína á Laufás-
vegi 3 frá kl. 1.30—6 síðd., alla
virka daga frá 6. þessa mánaðar.
Þar er tekið á móti gjöfum og
fólk beðið að sækja um hjálp sem
allra fyrst, helzt ekki síðar en um
10. til 12. þessa mánaðar. Vegna
margs konar breytinga frá ári
til árs er æskilegt að fólk gefi
sig fram sem allra fyrst. Fataút-
hlutun verður í Iðnskólanum,
gengið inn frá Vitastíg. Opnar
fataúthlutunin einnig föstudaginn
6. þessa mánaðar og verður op-
in frá kl. 2—5,30 síðd. alla virka
daga..Það eru vinsamleg tilmæli
nefndarinnar, til þeirra sem ætla
að gefa föt, að þeir sendi þau sem
allra fyrst. Sérstaklega vantar
barnafötáalla aldursflokka, bæði
á drengi og stúlkur. Listar hafa
verið sendir til margra fyrir-
tækja í bænum og væntir nefnd-
in góðrar móttöku á þeim og
fljótrar afgreiðslu, svo sem verið
hefir áður.
Flytur gefendum beztu þakkir
Mæðrastyrksnefnd hefur beðið
blaðið að flytja beztu þakkir for-
ráðamönnum og vinum nefndar-
innar innan hinna mörgu fyrir-
tækja sem lagt hafa á sig vinnu
við að safna á lista nefndarinn-
ar, hver á sínum stað. Nú er það
von Mæðrastyrksnefndar, að
margir bætist í þennan hóp, því
oft er þörf en nú er nauðsyn,
því lítið fæst fyrir hverja krón-
una nú í dýrtíðinni.
Enginn má verða fyrir
vonbrigðum
Nú þegar nefndin hefur starf-
semi sina á þessu ári flytur hún
öllum gefenduin fyrri ára innileg
ar þakkir allra þeirra sem notið
hafa gjafanna svo og nefndar-
kvenna sem hafa haft þá ánægju
að útbýta þessum jólaglaðningi
til þeirra sem mikla þörf hafa
haft fyrir hjálp eg samúð. Nefnd-
in treystir því bæjarbúum til að
stuðla að því að þetta fólk verði
ekki fyrir vonbrigðum þessi jól.
Skákþing
Suðurnesja
11. UMFERB Skákþings Suður-
nesja var tefld s.l. mánudag í
Keflavík. — Efstir eru: Ragnar
Karlsson 9% sinning og 1 bið-
skák, Páll G. Jónsson 9 vinninga
og 1 biðskák, Borgþór H. Jóns-
son 9 vinninga, Óli Karlsson 8
vinninga og 2 biðskákir, Iíaukur
Magnússon 7 vinninga og 1 bið-
skák, G. Páll Jónsson 7 vinninga.
í öðrum flokki eru 14 keppend-
ur. Eístur er Helgi Ólafsson, sem
hefir unnið allar sinar skákir.
B. Þ.
Hneykslaði
í Canues - dáin
í Lundánum
LUNDÚNUM, 3. des. — Leik-
konan Simone Silva hefur fund-
izt látin í rúmi sínu. Banamein
hennar var hjartaslag. Hún var
aðeins 25 ára gömul. — Simone
vakti geysimikla athygli fyrir
nokkrum árum, þegar hún á kvik
myndahátíð í Cannes lét mynda
Simone Silva
sig nakta að ofan með Robert
Mitchum. — Bústin vel og síbros-
andi var hún oft og tíðum for-
síðuefni stórblaða. Hún var fædd
í Egyptalandi, af fransk-ítölsku
foreldri, en gift brezkum manni.
Húnvetninyar mestlr fjúrbœndur
Árnesingnr nnutpipnræktarmenn
Sagf frá búfjáreign landsmanna 1956
I NYJUM Hagtíðindum er birt
yfirlit yfir tölu búfjár miðað við
árslok 1956. Segir þar að sauðfé
hafi fjölgað í öllum sýslum lands-
ins, nema Dalasýslu og Stranda-
sýslu, en í þeim sýslum var fram-
kvæmdur niðurskurður vegna
mæðiveiki er þar gerði vart við
sig í nokkrum hreppum. Einnig
segja Hagtíðindi að sauðfjáreign
í kaupstöðum hafi aukizt.
Um nautgripaeignina segir að
hún hafi aukizt í þeim sýslum
öllum, þar sem mjólk er fram-
leidd til sölu í verulegum mæli,
eins og t.d. í Árnessýslu og Rang-
árvallasýslu, en þar varð fjölgun
nautgripanna mest, en einnig
hafði hún orðið veruleg í Borga-
fjarðarsýslu og Mýrasýslu. í þess-
um sýslum tveim hafði nautgrip-
um fækkað árið 1955 sem var af-
leiðing hins mikla óþurrkasum-
ars.
Sauðfjáreign landsmanna var
Kona hreppti happ-
drœttisíbúð DAS í gœr
I GÆRKVOLDI var dregið í 8. fl.
happdrættis D.A.S. Að venju eru
vinningarnir 10 taisins og að
þessu sinni er fullgerð 3ja her-
bergja íbúð Álfheimum 72 stærsti
vinningurinn og hana hreppti frú
Þórdís Helgadóttir, Stórholti 29
hér í bæ á miða númer 49,673,
sem er í umboði Sigríðar Helga-
dóttur Miðtúni 15 Annar vinn-
ingur, Pobedabill, kom á miða
61173 sem er í umboðinu í Vestur
veri. Þá er 4 manna plastbíll
austur-þýzkur sem kom á miða
nr. 6311 og eigandmn er Hjördís
Jónsdóttir, Hólmgarði 16 og var
miðinn í umboðinu í Verzl. Rétt-
arholt. Þá eru húsgögn eftir eig-
in vali fyrir kr. 25,000 og komu
á miða 25675. Eigandinn er
Hörður Sveinsson, Barmahlíð 19,
sem er að Ijúka giftingarundir-
búningi!! Þessi miði er í Vestur-
veri. Pianó Hornung & Möller
var 5. vinningurinn og kom á
miða 26,087. Eigandinn er Torf-
hildur Guðbrandsdóttir Hring-
braut 95 í Keflavík og miðinn í
umboðinu þar syðra. Annað
pianó, Zimmermann kom á miða
56481 og eigandinn er Carl Ryden
verksmiðjueigandi og miðinn
seldur í Vesturversumboði.
Vespubifhjól kom á miða 5220 og
er í Vesturveri. Heimilistæki eftir
eigin vali fyrir 15,000 komu á
miða 25,358 og eigandinn er Ás-
geir Ásgeirsson háseti, á m.s.
Heklu, Hátúni 19. Húsgögn fyrir
15,000 kr. eftir frjálsu vali komu
á miða 55810 í Vesturversumboði.
10. vinningurinn var svo heimi-
listæki fyrir 12,000 kr. og kom á
miða nr. 5648 í Keflavíkurum-
boði. Eigandinn hafði látið undir
höfuð leggjast að endurnýja
miðann og missti þarna af veru-
legum „jólaglaðningi".
við síðustu áramót 706.291, en
hún hafði árið áður verið 657.294.
Tala nautgripa var alls 47.509, en
hafði árið 1955 verið 45.499.
Af nautgripum eru kýr og kefld-
ar kvígur taldar vera 34.068.
Enn eru rúmlega 100 geitur l
landinu, 746 svín, 93.489 hænsni,
208 endur, 220 gæsir og refir og
önnur loðdýr eru talin 10.
Mesta sauðfjárræktasýsla lands
ins 1956 var Húnavatnssýsla
með 76.909 fjár, þá kemur Þing-
eyjasýsla 74.410, þar næst N-Múla
sýsla 60.350, Árnessýsla með
60.147, Skagafjarðarsýsla 54.211.
Fjárminnstu sýslur landsins eru
Gullbringu og Kjósarsýsla 12.029,
Strandasýsla 15.022, en þar fór
fram niðurskurður í nokkrum
hreppum og A-Skaftafellssýsla
17.582.
í kaupstöðum landsins er sauð-
fjáreigin mest á Akureyri 3292,
Reykjavík 2721, Ólafsfirði 2400
og Húsavík 2364. — í Keflavík
eru sauðkindurnar 31 talsins.
Mesta nautgriparæktarsýsla
landsins er Árnessýsla með 8299
gripi, Rangárvallas. 6405, Eyja-
fjarðars. 5082 og Þingeyjarsýsla
3530. Fæstir nautgripir eru í
Strandasýslu 586, A-Skaftafells-
sýslu 646 og Barðastrandarsýslu
771. í kaupstöðum eru flestir
nautgripir á Akureyri 528,
Reykjavík 455 og Vestmannaeyj-
um 241.
1.
SAUÐÁRKRÓKI, 3. des. — 1.
desember var minnzt hér að
venju með veglegri samkomu sem
Iðnaðarmannafélagið hér á Sauð-
árkróki hélt. H. J. Hólmjárn,
flutti ræðu dagsins. Sigurbjörn
Frímannsson hermdi eftir íslenzk
um söngvurum og Gunnar Einars
son á Bergsskála las frumort ljóð.
Sýndur var gamanleikur. Kynnir
var Adolf Björnsson. Að lokum
var stiginn dans. Á fimmta hundr
að manns sótti samkomuna.
— jón.
Croft Baker viðurkennir um síðir:
Málstaður Breta í land-
helgisdeilunni var veikur
í brezka vikublaðinu ’John Bull'
birtist nýlega grein um togara-
veiðar Breta og um landhelgis-
mál íslands. Höfundur hennar
nefnist Keith Ellis.
í grein þessari er lýst gangi
landhelgisdeilunnar og löndunar
banninu. Er frásögnin í heild
hliðholl brezku togaraeigendun-
um.
Eitt hlýtur þó að vekja nokkra
athygli í grein þessari og það er,
að höfundurinn hefur það eftir
sjálfum Croft Baker, sem þá var
formaður togaraeigendafélagsins
að málstaður Breta í landhelgis-
deilunni hafi verið veikur.
Það, sem haft er eftir Croft
Baker er þetta:
— Málsstaður okkar var ekki
sterkur. Ég hefði ekki verið
sérlega ánægður ef málið hefði
komizt fyrir alþjóðadómstól-
inn Haag.
Síðan bætir Croft Baker því
við, að löndunarbannið hafi ver-
ið mjög harðýðgisleg ráðstöfun,
Akureyríngar fengu
væga inflúenzu
AKUREYRI, 3. des. — Inflúenzu-
faraldurinn er nú í rénun hér í
bænum. En tiltölulega nýlega hef
ur veikin tekið að berast út í
nærsveitir. Mun enn líða nokk-
ur tími þar til hún hefur
gengið yfir þar. Hér á Akureyri
er nú orðin næsta eðlileg skóla-
sókn í öllum skólum bæjarins.
Engir hættulegir fylgikvillar hafa
komið í kjölfar inflúenzunnar,
nema hvað borið hefur á ein-
staka lungnabólgutilfelli og einn-
ig á illkynjuðu kvefi. Ekki er
kunnugt um neitt dauðsfall af
völdum veikinnar.
Hér var í haust mikið bólu-
sett gegn veikinni og mun al-
mennara að hlutfalli til en ann-
ars staðar á landinu. Telur hér-
aðslæknir að í flestum tilfellum
hafi þessi bólusetning gefizt
mjög vel. Ýmist hafa menn alls
ekki tekið veikina eða þá mjög
vægt. Til er þó að bólusetningin
hafi engin áhrif haft. Héraðslækn
irinn telur að þessi inflúenzufar-
aldur hafi hagað sér mjög svipað
og venjulegt er og að telja verði
að Akureyringar hafi sloppið til-
tölulega vel. — vig.
þar sem mikill hluti fiskútflutn-
ings íslendinga hafði gengið til
Bretlands. En hann segir, að ætl-
unin með þessum hefndarráðstöf-
unum hafi einkum verið að
hræða aðrar þjóðir frá því, að
fylgja fordæmi íslendinga að
víkka landhelgi sína.
Breyiing á lagaákvæBum
um eignarskatt
í undirbúningi
1. UMRÆÐA um frumvarp það
sem ríkisstjórnin lagði fram í
fyrradag varðandi fasteignagjöld
til sveitarsjóða var til 1. umr. í
gær. Jón Pálmason tók til mals
og benti á, að gert hefði verið ráð
fyrir, að hið nýja fasteignamat,
sem gekk í gildi 1. maí s.l., ætti
ekki að leiða til þess að neinir
fasteignaskattar hækkuðu. Gilti
það ekki einungis um skatta til
sveitarfélaga heldur og um eign-
arskatt til ríkisins og um gjöld
í sýsluvegasjóði. Spurði hann
fjármálaráðherra hvað liði end-
urskoðun lagaákvæða um eignar-
skatt í sambandi við þetta atriði.
Eysteinn Jónsson svaraði því til,
að frumvarp um þetta efni yrði
lagt fram á þessu þingi. Myndi
það gert nægilega snemma til að
ákvæði þess gætu tekið gildi áður
en eignarskatturinn verður næst
lagður á.
Níræð Guðbjörg
Sigurðardóllir
á Mureyri
NÍUTÍU ÁRA er í dag, Guðbjörg
Sigurðardóttir, Strandgötu 45 á
Akureyri, ekkja Einars heitins
Einarssonar útgerðarmanns. Guð-
björg er fædd að Eyri á Reyðar-
firði. Hún fluttist til Akureyrar
ásamt manni sínum um síðast-
liðin aldamót og með þeim þrjú
börn þeirra hjóna. Ennfremur ólu
þau upp þrjú fósturbörn. Mann
sinn missti Guðbjörg árið 1945.
Hefur hún síðan lengst af dvalist
hjá syni sínum, Einari J. Malm-
quist og verður hún stödd þar nú
á afmælisdegi sínum.
Guðbjörg er heilsuhraust og
vel ern, nema hvað sjón er
nokkuð tekin að bila. — vig.
Frakkar og skæruliðar berjast heift-
arlega um lík ungrar stíilku
ALSÍR, 3. des. — Franskar her- I
sveitir og skæruliðar í Alsír hafa I
barizt harkalega um lík 16 ára
gamallar stúlku, sam fór frá
Evrópu og gerðist skæruliði í
Alsír. Bardaginn átti sér stað að-
faranótt miðvikudags sl., en
Frakkar hafa ekki getið hans fyrr
en nú. Þeir segja, að stúlkan hafi
heitið Reymonde Peschard og
hafi verið flokksbundinn komm-
únisti. Önnur evrópsk stúlka,
Danielle Minne, 17 ára gömul,
tók þátt í þessum bardaga en var
tekin höndum af Frökkum. —
Franska stjórnin segir, að báðar
þessar stúlkur hafi gengið í lið
með skæruliðum eftir að þær
höfðu átt hlut að sprengjukasti
í Algeirsborg.
f fyrrnefndur* bardaga féll
Reymonde og grófu Frakkar
hana, áður en þeir drógu lið sitt
til Bordj -Bou-Arreridj. Næsta
dag var nokkrum hermönnum
fyrirskipað að sækja lík stúlk-
unnar, en þá sáu þeir, að skæru-
liðar voru að grafa það upp. —
Frakkarnir kölluðu á hjálp, en
þeim tókst ekki að komast að
gröfinni vegna vélbyssuskothríð-
ar skæruliða. Tóku þeir það þá
til bragðs að beita orrustuvélum
lí viðureigninni við skæruliða og
I höfuðu þeir þá á ílótta. Frakkar
fóru svo með líkið í sjúkrabíl
inn í næsta bæ, en þegar þangað
Reymonde Pechard
kom, var hann sundurskotinn.
Svo mikla áherzlu lögðu skæru-
liðar á að ná líki félaga síns. Nú
hefir Reymonde fengið hvíld í
kirkjugarðinum í Bordj-Bou-
Arreridj.
-v