Morgunblaðið - 04.12.1957, Blaðsíða 3
Miðvik'udagur 4. des. 1957
MORGVKBT4 ÐTÐ
3
^ v^" wv , ? •?-■ %vyww»ftwy^< ■ ^ - ' ' ■-■<"'■'•" "jwwn « ' V-P^W: ■*»
í .<? £ #«?«** Séaíaiist*$iíÍokk$§ft$ áÍij'iUtrz ' ' ;
FYRIRSÖGN sú sem birt er
mynd af hér að ofan, var yfir
þvera 1. síðu Þjóðviljans í
gær. Fyrir neðan þessa fyrir-
sögn var birt eftirfarandi til-
kynning:
„Ellefta þing Sameiningar-
flokks alþýðu — Sósíalistaflokks-
ins samþykkti í fyrradag ein-
róma eftirfarandi ályktun um
sjálfstæðismál.
11. þing Sameiningarflokks al-
þýðu — Sósíalistaflokksins lítur
svo á, að ríkisstjórn sú sem nú
situr, sé skuldbundin gagnvart
umbjóðendum sínum og sam-
kvæmt stjórnarsáttmálanum að
framfylgja tafarlaust samþykkt-
inni um brottför bandaríska hers
ins frá íslandi.
Fyrir þvi skorar þingið á ríkis-
stjórnina að standa við fyrirheit
sín um brottför hersins úr land-
inu og treystir því, að fulltrúar
Alþýðúbandalagsins í ríkisstjórn
og á Alþingi neyti allra krafta
til þess að knýja fram tafarlausa
lausn i þessu höfuðmáli þjóðar-
innar og heitir á alla fylgjendur
hins íslenzka málstaðar, einstakl
inga og félagssamtök, að standa
sem einn maður í þessari bar-
áttu, unz fullur sigur er unninn.
Þingið lýsir því einnig yfir, að
það telur höfuðnauðsyn á að nú
þegar verði hafinn undirbúning-
ur að því að fylkja þjóðinni til
baráttu fyrir því að Island segi
sig úr Atlantshafsbandalaginu
árið 1959 og að erlendar her-
stöðvar verði lagðar niður á ís-
landi.
Þá lítur þingið svo á, að fs-
landi beri að lýsa yfir ævarandi
hlutleysi og stefnt sé að því að
tryggja það með alþjóðasamning-
um.“
Það fer ekki hjá því, að það
séu talin tíðindi, þegar stærsti
stuðningsflokkur stjórnarinnar,
gerir svo afdráttarlausa ályktun,
sem miðar að því, „að framfylgt
skuli tafarlaust“ samþykkt Al-
þingis frá í fyrra um brottflutn-
ing varnarliðsins úr landinu, en
í þessu sambandi er vitnað í
„stjórnarsáttmálann“ en þar er
átt við málefnasamning þann,
sem núverandi stjórnarflokkar
gerðu áður en ríkisstjórnin var
mynduð.
Almenningur veltir því fyrir
sér, hvað muni verða næsta |
skrefið í þessu máli. Þótt menn I
séu orðnir vanir stóryrðum úr'
þessari átt og viti að ekki er að .
marka öll gífuryrðin, þá fer ekki!
hjá því að margir munu bíða þess |
með nokkurri forvitni, hvort.
kommúnistar ætla sér raunveru- I
lega að fylgja eftir þessari sam-
þykkt flokksins innan ríkisstjórn
ar og á Alþingi.
Friðrik heiur 1 vinning citir 3
umiorðir í SÞalias
— en sigurinn vann hann á einum
snjallasfa skákmanni heims
I ANNARRI umferð skákmótsins í Ðallas í Texas vann Friðrik
Ólafsson stórmeistarann Reshevsky. Szabo og Najdorf gerðu jafn-
tefli en skák Yanofskís og Evans og skák Gligorics og Larsens
fóru í bið. Eftir tvær umferðir var því staðan: Yanofskí 1 vinning
og biðskák, Friðrik 1 vinning, Szabo, Gligoric, Najdorf og Evans
V? og biðskák hver. Larsen 2 biðskákir, Reshevsky 1 biðskák.
I gærkvöldi sagði Ríkisútvarp-1 þegna til Ungverjalands.
Reshevsky tefldi á kandidata-
mótinu í Zurich 1953, þar sem
Smyslov sigraði og öðlaðist rétt
til að skora á Botvinnik heims-
meistara í hið fyrra sinn. Þegar
fáar umferðir voru eftir af því
kandidatamóti voru Smyslov og
Reshevsky jafnir, og segja fróðir
að Reshevsky hafi farið of geyst
á endasprettinum, en hvað um
það, hann varð nr. 2—4 ásamt
Bronstein og Keres.
1953 og 1954 tefldi Reshevsky
tvö 18 skáka einvígi við Najdorf
ið, að Evans hefði unnið Friðrik
í 3. umferð og að efstir á mótinu
væru eftir 3 umferðir Szabo og
Evans með 2 vinninga og Larsen
þriðji með VA vinning.
Aðrar fregnir hafa ekki borizt
af 3. umferð. En af fréttum út-
varpsins verður ekkert ráðið um
gang biðskáka nema það að Ev-
ans og Yanofskí hafi gert jafn-
tefli og hefur þá Yanofskí 114
vinning ásamt Larsen.
Töfluröð
Töfluröð keppendanna í Dallas
hefur enn ekki borizt, en af þeim
3 umferðum sem lokið er, verð
ur hún ekki rétt ráðin á annan
hátt en þennan:
1. Yanofskí
2. Evans
3. Larsen
4. Szabo
5. Reshevsky
6. Najdorf
7. Gligoric
8. Friðrik
Á mótinu er tvöföld umferð og
þegar hinni fyrri er lokið byrja
þeir sem tefldu saman i fyrstu
umferð aftur og skipta um lit.
Stórsigur Friðriks
Sigur Friðriks Ólafssonar yfir
Reshevsky er mjög mikill per-
sónulegur sigur, einn af meiri
eða mestu slíkra sem Friðrik
hefur unnið. Sam. Reshevsky er
46 ára gamall og hefur um ára-
bil verið einn af snjöllustu skák-
mönnum heims.
1948 er tefla skyldi um það
hverjum bæri heimsmeistaratign-
in í skák eftir andlát Aljechins
var Reshevsky 1 af 5 er um titil-
inn kepptu. Hinir voru Botvinnik,
Smyslov og Keres frá Rússlandi
og dr. Euwe frá Hollandi. Tefld
var 5-föld umferð (3 í Moskvu
og 2 í Hollandi). Botvinnik sigr-
aði og varð heimsmeistari Smys-
lov varð annar og Reshevsky og
Keres í 3.—4. sæti. Sigur Botvinn
iks var glæsilegur og næstu þrír
voru mjög álíka að vinningum.
Reshevsky átti sökum sinnar
fyrri getu að tefla á kandidata-
mótinu í Budapest 1950 án þátt-
töku í undankeppni. Þá stóð svo
á að Bandaríkjastjórn hafði lagt
bann við ferðum þandarískra
og vann bæði. Hið fyrra með
nokkrum mun, hið síðara 9V2'.BV2.
Reshevsky hefur lengi verið
fremsti skákmaður Bandaríkj-
anna. í skákkeppnum sem Banda
ríkin og Rússland hafa háð hef-
ur hann eiginlega verið eini mað-
urinn sem staðið hefur Rússum á
sporði. 1953 fór slík keppni fram
á nokkrum borðum og var um-
ferð 4-föld. Keppnin var í New
York og tefldu Reshevsky og
Smyslov á 1. borði. Allar 4 skák-
irnar urðu jafntefli.
1956 fór önnur slík keppni fram
í Moskvu. Reshevsky mætti þá
heimsmeistaranum Bottvinnik á
1. borði og var 4-föld umferð.
Reshevsky vann með 214:114.
Búðar keppnirnar unnu Rússar
með yfirburðum.
Reshevsky hefur allmikið teflt
vestra síðari árin en ekki keppt
mikið í Bandaríkjunum. Mun það
fremur stafa af því að keppnin
vestra gefur meira í aðra hönd,
en skákmót í Evrópu.
Flyzt Mykle til Danmerlmr
Sigurd Hoel minnir á ritfrelsið
og fasistana
KAUPMANNAHÖFN, 3. des. —
Sigurd Hoel, norski rithöfundur-
inn frægi, hefur skýrt frá því, að
„Roðasteinn“ Mykles hafi nú ver
ið seldur í 200 þúsund eintökum
á Norðurlöndum.Hann sagði m.a.
um bókina í blaðaviðtali: Eitt er,
hvort manni líkar bókin, annað
hvort maður vill láta lögregluna
I banna þær bækur, sem manni
'geðjast ekki að. Eftir hernám
iÞjóðverja í Noregi hefði maður
ekki trúað því, að svo margir
væru reiðubúnir að ráðast á rit-
frelsið í landinu. En það er ein-
mitt það, sem gerzt hefur. —
Hann sagði í gamansömum tón:
Við höfum talað um bók Mykles
síðan í marz. Ég yrði hamingju-
samur þann dag, sem ég fengi
tækifæri til að tala um eitthvað
annað en hana! — Þá benti hann
á, að Ibsen hafi ekki verið í Nor-
egi í þrjá áratugi og Björnsson
og Kjelland voru alltaf að fara
utan annað veifið. Flestir „hinir
stóru“ í norskum bókmenntum og
málaralist fengu frægð sínar er-
lendis.
Þá ræddi blaðamaðurinn við
Mykle, sem kvaðst hafa unnið
að tveimur nýjum skáldsögum
eftir að „Roðasteinninn“ kom út.
En nú bíð ég dóms hæstaréttar,
bætti hann við. Þá sagði hann,
að sennilega mundi hann flytjast
til Danmerkur, ef hæstiréttardóm
urinn yrði honum ekki í vil. Og
loks: Nú hafa verið seld 200 þús.
eintök af bók minni — og skyldi
nokkur hafa skaðazt af að lesa
hana? Ég hef ekki trú á því.
Nýr þýzlrnr togari
á Patreksfirði
PATREKSFIRÐI, 30. nóv. — Einn
giæsilegasti togari Þjóðverja,
Hans Pickenpack, frá Hamborg,
er hér í höfninni, kom vegna
radarbilunar. Togari þessi var
tekinn í notkun fyrir 14 dögum.
Er hann 750 brúttólestii% 324
nettólestir með 42 manna áhöfn.
Togari þessi getur verið 5—6 vik-
ur að ísfiskveiðum, því flökun
fisksins fer fram á þilfari, en
flökin síðan hraðfryst í kössum,
en úrgangur og ruslfiskur fer í
fiskimjölsverksmiðju. Nokkrum
dögum áður en veiðiför líkur
veiðir togarinn í ís. Öllu er mjög
haganlega komið fyrir um borð
í þessum stóra togara og marg-
ar tæknilegar nýjungar sá ég þar
um borð, en skipverjar láta hið
bezta yfir sjóhæfni togarans.
—Karl.
Verið að vinna við
Hvalveiðistöðina
AKRANESI, 2. des. — Enn eru
10 menn að störfum í Hvalveiði-
stöðinni í Hvalfirði. Eru þeir að
vinna við smíðar á 140 ferm. við
bótarbyggingu við verksmiðjuna,
og ýmiss konar viðgerðir og við-
hald, þannig að allt verði tilbúið
til vinnslu er hvalveiðivertíðin
hefst næsta vor.
í sumar er leið voru hvalveið-
ar stundaðar á fjórum bátum af
fimm sem stöðin á og varð „hval-
veiðikóngur" Jónas Sigurðsson á
Hval V.
Framleiðsla stöðvarinnar í ár
varð 3000 tonn af lýsi og annað
eins af hvalkjöti og rúmlega það,
29,000 sekkir af mjöli og 40—60
tonn af skíðum — Oddur.
SIGLUFIRÐI, 30. nóv. — Undan-
farið hefur verði hér ágæt tíð
og gæftir góðar. Tveir bátar
stunda róðra héðan með línu að
staðaldri og hafa aflað sæmilega.
Aflinn hefur verið 6—8 þúsund
pund í róðri. Nokkrar trillur róa
héðan, mest með færi, en sumar
með línu. Róa litlu bátarnir aðal-
lega þegar ekki er vinnu að hafa
1 í landi. —Guðjón.
STAKSTtlMiVR
Óf rægingarsí arf
stjórnarinnar
Tíminn sagði frá því í gær, að
undir mánaðarlokin síðustu hafi
birzt „óvenju rætið og svívirði-
legt lesendabréf“ í „Information“
í Kaupmannahöfn. Að sögn Tím-
ans stendur m.a. þetta í bréfinu,
sem ritað er af C. Linde í Hels-
ingör:
„Amerikumönnum er sagt að
fara frá Keflavíkurherstöðinni
(af hugsjónalegum og friðar-
stefnulegum ástæðum), en þegar
þeir bjóða fram álitlegt mútufé,
þagnar allt í einu talið um hug-
sjónirnar--------“
Sjálfur bætir Tíminn við:
„Þetta er nærri því eins og það
hefði staðið í Morgunbiaðinu eða
í grein eftir Tamöru Ershova i
Moskvu“.
Hins getur Tíminn ekki, að það
er núverandi ríkisstjorn, sem með
atferli sínu hefur gefið ástæðu til
þess, að svo er talað um ísland.
Héðan af er vonlaust að breyta
því, sem orðið er. En ef Tímann
tekur sárt að lesa slík erlend um-
mæli, væri honum nær að beita
áhrifum sínum til að fá stjórnina
til að hverfa af óheillabraut siii'oi
og liætta að gefa mönnum sem
Linde þessum efni til ádeilna á
ísland.
Þá ætti Tíminn og að láta niður
falla skammirnar um Tamöru
Ershova í Moskvu. Hún sagði í
New Times aðeins frá því,
sem stjórnarliðar hér trúðu henni
fyrir. Og þótt ekki sé mark tak-
andi á þvi, sem kommúnistar
segja um andstæðinga sína, þá
eru það sannarlega eftirminnileg
tíðindi, þegar þeir skýra trúnað-
arvinum sínum frá því, að þeir
hafi sjálfir ásamt Hermanni og
félögum samið um áframhald
herstöðva á íslandi gegn því að
fá þrjú stórlán frá Bandaríkjun-
Rakettu-flugvél með 15 þús. km hraða
MOSKVU, 3. des. — Skýrt lief-
ur verið frá því, að rússneskir
visindamenn vinni að því að
smíða flugvél, sem flogið geti fyr
ir utan gufuhvolfið, eins og eld-
flaugar. Það er rússneska blaðið
„Sovjetskaja Aviatzia“, sem skýr
ir frá þessarl flugvélasmíð. — í
greininni er ennfremur sagt, að
rakettuflugvélar geti farið upp í
liiminhvolfið og snúið svo við
aftur til jarðar og lent eins og
venjulegar flugvélar. — Þegar
vélin hefur náð 12 þús.—15 þús.
km hraða á klst. drepur flugmað-
urinn á hreyflinum og flýgur
vélin svo með ,sama hraða eftir
nk. sporbaugi. — Þegar vélin
kemur aftur niður í gufuhvolf
jarðar svífur hún með aðstoð
vængjanna, en getur haldið upp
í háloftin aftur. Þannig getur
hún farið mörg þúsund kílómetra
án þes að brenna eldsneyti.
um.
„Vanræksla“ A.S.Í.
Alþýðublaðið birti á sunnu-
daginn stóra forsíðugrein undir
þessum fyrirsögnum:
„Mörg sjómannafélög segja
upp fiskverðsamningum.
Alþýðusamband íslands van-
rækti að efna til sjómannaráð-
stefnu“.
Grcininni lýkur með þessum
orðum:
„Er nú að koma í ljós, að Al-
þýðusambandið hefur alls ekki
haft nægilegt samráð við sjó-
mannafélögin um fiskverðsamn-
ingana. Þess vegna segja félögin
nú upp þrátt fyrir ákvarðanir
fundar 19 manna nefndar ASÍ og
efnahagsmálanefndarinnar“.
Þjóðviljinn segir frá þessum tíð
indum í lítilli eindálksfrétt í gær,
en Tíminn þegir alveg um þau.
Samningsuppsögnin er auðsjáan-
lega eitt af því, sem þjóðin má
alls-ekki fá vitneskju um.
Vöruskorturinn
Nýlega var hér í Morgunblað-
inu prentuð upp umsögn kaup-
félagsstjórans á Ilúsavik um vöru
skortinn, og var það ekki fögur
lýsing. Alþýðublaðið bætir nýju
atriði við s.l. sunnudag og segir:
„Þegar ég kom út, rakst ég á
kunningja minn, sem var heit-
vondur yfir því að fá hvergi sæmi
legan leslampa. Hann var búinn
að æða um alla borg, en allir
lampar voru ýmist of dýrir eða
of litlir, eða bara alls ekki les-
Iampar“.
Kíkisstjórnin virðist því í þessu
ekki gera upp á milli laudshlut-
anna.