Morgunblaðið - 04.12.1957, Síða 9
Miðvikudagur 4. des: 1957
MORCFJVBf ÁÐ1Ð
Nýi ISnskólinn bætir mjög skiiyröi tii aukinnar iðnfræ'öslu.
atvinnustéttanna haldist nær ó-
breytt á þessu tímabili. Þá hef
ég áætlað að hlutur iðnaðarins sé
um 43%, verzlunarinnar nær
13%, samgangna 12% og þjónustu
starfa 17%, en fisltveiða aðeins
6%.
Gert er ráð fyrir skv. þessu, að
653 lifi af landbúnaði í Reykj avík
3918 af fiskveiðum
28081 af iðnaði
8489 af verzlun
7837 af samgöngum
11102 af þjónustustörfum
og 5225 eru óstarfandi
Alls 65305 i árslok 1956.
Nú fjölgar fólkinu til ársloka
1962 um a. m. k. 5.759.
Spurningin er þá, hvaða at-
vinnugreinar muni veita þessu
fólki lífsviðm-væri. Ef hlut-
föll milli atvinnustétta haldast
óbreytt, þarf iðnaðurinn einn að
framfleyta 2500—2800 manns í
viðbót. Ef ég áætla, að 45% af
þessari aukningu séu framfær-
endur, þ. e. a. s. þeir menn, sem
beinlíríis vinna þá í iðnaðinum,
þarf hann að taka við.1100—1300
manns sem auknu starfsliði á
næstu 4 árum, og öðru eins
á næstu 4 árum þar á eftir,
kjörtímabilinu 1962 til 1966.
Að sjálfsögðu getur skeð, að
einhverjar breytingar verði á
þessu, þannig að fleira af
flókinu fari í t.d. fiskveiðarn-
ar, ef þær verða stundaðar meira
en hingað til er, en að óbreyttum
ástæðum lítur út fyrir, að þessi
þróun muni halda áfram eins
og gert er ráð fyrir. Af þessum
ástæðum er lögð töluverð áherzla
á það, að bæjarstjórnin greiði
fyrir iðnaðinum á ýmsan hátt,
eins og fram kemur í tillögunum.
í fyrsta lagi er gert ráð fyrir
að bæjarstjórn og þingmenn
Reykjavíkur beiti sameiginlegum
áhrifum sínum til þess að ráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar til
aukins jafnvægis í byggð lands-
ins skerði ekki hagsmuni Reyk-
víkinga og þá sérstaklega þeirra,
sem lífsframfæri sitt hafa af iðn-
aði og sjávarútvegi. Er rétt að
skýra þessa tillögu nokkuð nánar.
Frá samtökum iðnrekenda höfum
við fengið þær upplýsingar, að
nokkuð sé þegar farið að bera á
því, að auðveldara sé að fá inn-
flutningsleyfi fyrir vélum til ým-
iss konar framleiðslu og fjárfest-
ingarleyfi, ef iðnaðarfyrirtækin
eru staðsett utan Reykjavíkur.
Munu iðnrekendur í Reykja-
vík þegar hafa látið freistast af
þessum tilboðum, og flutt at-
vinnustarfsemi sína úr Reykja-
vík. Þó eru hráefnin til iðnaðar-
ins fengin i gegnum Reykjavík,
og fullunna varan er aftur flutt
til Reykjavíkur til sölu aðallega
og nær eingöngu hér. Þetta verð-
ur að telja mjög óheillavænlega
þróun. Ég sé ekki ástæðu til að
ræða þetta vandamál almennt
hér, þ. e. það, sem kallað er með
slagorði „jafnvægi í byggð iands-
ins“. í sjálfu sér get ég verið
alveg sammála hagfræðingi Þjóð-
viljans í því efni, að þetta sé
efnahagsleg fjarstæða. Við ræð-
um hér um Reykjavík og hags-
muni Reykjavíkur, þ. e. hreina
hreppapólitík. Við því er ekkert
að gera, að nokkur átök eigi sér
stað milli sveitarfélaga í ýmsum
málum. En þegar afskipti ríkis-
valdsins, fara að verða til
þess að þróunin verði sú,
að iðnaður, sem ella hefði verið
staðsettur hér, ef iðnrekendur
hefðu sjálfir mátt ráða, fer að
færast burt úr bænum, þá er
nokkur hætta á ferðum, sérstak-
lega þar sem vitað ér, að núver-
andi ríkisstjórn hefir sýnt það,
að hún er ekki sérlega vinveitt
Reykvíkingum og reykvísku at-
vinnulífi. Ákvarðanir í þessum
efnum kunna að ver» gerðar ein
mitt um þessar mundir. Þess
vegna er nauðsynlegt að fylgjast
vel með. Það er of seint að hefja
aðgerðir, þegar ný iðnfyrirtæki
hafa verið stofnsett annars stað-
ar, hús byggð og vélar settar
niður. Þá verða þau ekki auð-
veldlega flutt.
Hugmyndin um að koma í
veg fyrir hið árstíðabundna
atvinnuleysi í hinum dreifðu
byggðum landsins með því að
stofnsetja iðnfyrirtæki þar, sem
ómögulegt er að reka þau
með hagkvæmni, «r mjög var-
hugarverð, svo ekki sé meira
sagt.
Þó það virðist vera óskylt mál,
þá langar mig til þess að nefna
stóreignaskattinn einmitt í þessu
sambandi. Stóreignaskatturinn er
nefnilega ekki lagður á atvinnu-
reksturinn eða atvinnufyrirtækin
almennt, heldur aðeins á ákeðið
rekstrarform. Ég er ekki í vafa
um að stóreignaskattslögin, eru
stíluð upp á að tefja eðli-
legar framfarir og aukningu
á þeim stærri iðnaðarfyrir-
tækjum og verzlunum, sem rekn-
ar eru hér í Reykjavík. Stór-
eignaskatturinn fer nú bráðlega
að koma til innheimtu, og eykur
það gífurlega á örðugleika iðn
rekstrarins hér í Reykjavík. Með
þessum tvennum ráðum gerir nú-
verandi ríkisstjórn mjög harða
hríð að Reykvíkingum, og er rétt
að forráðamenn Reykjavíkur,
bæði í bæjarstjórn og á
þingi, séu vel á verði um
þessi mál. Ég legg áherzlu
á að þessar ráðstafanir verða
beinlínis til þess að skaða allan
almenning í Reykjavík. Ég véit
að talsmenn stóreignaskatts-
ins munu svara því, að önn-
ur fyrirtæki muni þá koma í stað-
inn fyrir þessi einkafyrirtæki,
sem verða að láta í minni pokann
fyrr skattheimtumönnum ríkis-
ins. Það eru hin skattfrjálsu sam-
vinnufélög. Sambandið undirbýr
nú á öllum sviðum stóra sókn á
hendur Reykvíkingum. Það vill
yfirtaka alla verzlunina og iðn-
aðinn og hefur nú úti öll spjót.
Þegar ekki fæst styrkur til þess
frá fólkinu sjálfu, sem lítið skipt-
ir við þá, er lagður á stóreigna-
skattur til þess að hjálpa til í
baráttunni, og slá niður keppi-
nauta Sambandsins hér í Reykja-
vík. En þá mun almenningur i
Reykjavík fljótlega finna, að út-
svarsbyrðin mun heldur snögg-
lega þyngjast, ef atvinnurekst-
urinn á að færast í þetta form,
sem ekki greiðir útsvar svo að
nokkru nemi.
Tillögur
Atvinnumálanefndar Varðar
HLUTVERK bæjarstjórnar í atvinnumálum er að veita atvinnu-
starfsemi einstaklinga og félaga hvera konar þjónustu með því að
sjá fyrir orkuþörf atvinnurekstrarins, úthluta lóðum til atvinnu-
fyrirtækja, greiða fyrir samgöngum með gatnagerð og hafnargerð
cg hafa á hendi forustu um samvinnu til úrlausnar sameiginlegum
vandamálum atvinnufyrirtækja. — Við þetta miðast eftirfarandi
tillögur:
Dýraverndarinn krefst
aðgerða í olíumálinu
ÞAÐ fer ekki milli mála að síðan
Guðmundur Gíslason Hagalín rit-
höfundur, tók við ritstjórn Dýra
verndarans hefur blaðið tekið
mikinn fjörkipp og er ósvikinn
málsvari á vettvangi dýravernd-
unar. í gær er t.d. grein eftir rit
stjórann um naðsyn þess að að-
gerðir í oliumálunum dragist
ekki úr hömlu. Segir m.a.
.....,Svo sem lesendum Dýra-
verndarans hefur verið skýrt frá,
skipaði ríkisstjórn íslands fyrir
meira en einu ári nefnd til þess
að gera tillögur um frumvarp til
laga, sem skulu fyrirbyggja olíu
mengun sjávar. Eiga sjö menn
sæti í nefndinni, og virtist í
fljótu bragði, að val þeirra hefði
tekizt mjög vel. Formaður nefnd
arinnar er Hjálmar Bárðarson,
1 Bæjarstjórn og þingmenn Reykjavíkur beiti sameiginlega
áhrifum sínum til þess að ráðstafanir ríkisstjórnarinnar til auk-
ins „jafnvægis í byggð landsins“, skerði ekki hagsmuni Reyk-
víkinga og þá sérstaklega þeirra, sem lífsframfæri sitt hafa af
iðnaði og sjávarútvegi.
2. Gerðar verði ráðstafanir til þess að fá umráð yfir Seltjarnar-
nesi og sameina það lögsagnarumdæmi Reykjavíkur og ætla
lóðir þar fyrir fiskiðnað og aðra stóriðju í framtíðinni eða
greiða á annan hátt fyrir því að stórar lóðir séu veittar iðn-
fyrirtækjum, sem gefi þeim næga möguleika á aukinni starf-
semi.
3 Bæjarstjórn hafi samvinnu við iðnaðarmenn um að koma upp
iðnaðarhúsi (industribyg) fyrir smærri iðnað og viðgerðarverk-
stæði ýmiss konar til þess að örva framtak til sjálfstæðs at-
vinnurekstrar og gera þeim með því auðveldara að veita bæjar-
búum meiri og betri þjónustu.
4. Gert verði það, sem í valdi bæjarstjórnar stendur, til að stuðla
að því, að útgerðinni sé séð fyrir þeirri aðstöðu í bænum, sem
nauðsynleg er til eðlilegrar þróunar og aukningar þessarar at-
vinnugreinar og sérstaklega verði þess gætt, að hafnaraðstaða
sé fullnægjandi.
5. Bæjarstjórn og þingmenn Reykjavíkur beiti áhrifum sínum til
þess að samþykkt verði lög um álagningu veltuútsvars á allan
atvinnurekstur og þau talin frádráttarbær við ákvörðun skatt-
sk.yldra tekna. Veltuútsvör og tekjuútsvör verði síðan lögð á
allan atvinnurekstur í bæjarfélaginu án tillits til þess í hvaða
formi fyrirtækin eru rekin og hverjir eigendur þeirra eru
Ríkis-, bæjar-, samvinnu- og einkafyrirtæki greiði öll útsvör
eftir sömu reglum.
6. Ákveðið verði, að öll meiri háttar verk í sambandi við verk-
legar frpmkvæmdir bæjarfélagsins og bæjarfyrirtækja og
einnig stærri innkaup til bæjarfyrirtækja skuli boðin út til
tryggingar því, að bæjarsjóður njóti jafnan beztu fáanlegra
kjara. !
7. Hraðað verði að ganga frá framtíðaráætlun um stæklcun Reykja
víkurhafnar og jafnframt tryggt í skipulagi bæjarins, að ekki
verði frekar en orðið er gengið á athafnasvæði væntanlegrar
hafnar.
8. Bæjarstjórn beitti sér fyrir því, að byggðar verið birgðaskemm-
ur á hafnarbökkum í samræmi við nútímakröfur um vöruaf-
greiðslu. Verði þetta gert í samvinnu við skipafélögin og sam-
tök inn- og útflytjenda.
9 Bæjarstjórn og þingmenn Reykjavíkur leggi áherzlu á, að kom-
ið verði sem fyrst upp tollvörugeymslu (frilager) í sambandi
við Reykjavíkurhöfn.
10. Bæjarstjórn skipi tvær fastanefndir, iðnaðarnefnd og sjávar-
útvegsnefnd. Hlutverk þeirra sé að efla alla fyrirgreiðslu bæj-
arins við þessar þýðingarmiklu atvinnugreinar og örva framtak
einstaklinga og félaga til þess að stofna ný iðn- og útgerðar-
fyrirtæki í bænum. Verkefni útgerðarráðs takmarkist við að
vera yfirstjórn Bæjarútgerðar Reykjavíkur.
skipaskoðunarstjóri. Eftir þvi
sem Dýraverndarinn veit bezt,
mun nefndin alls ekki hafa starf-
að — enn sem komið er. Þing
kom saman í október í fyrra og
sat fram á vor, og ekkert heyrð-
ist frá nefndinni, og nú hefur þing
verið kvatt til funda á ný, án
þess að nefndin hafi rumsk-
að, . . . . “
Margar fróðlegar greinar og
skemmtilegar frásagnir eru í blað
inu, fyrir unga sem gamla. Þá er
boðað til verðlaunasamk., eru
það ritgerðir um dýravernd eða
frásagnir um dýr og sambúð
manna og dýra. Það er Menning-
arsjóður Jóns Ólafssonar sem
veitir verðlaunin, en 1. verðlaun
eru 350 kr. og II. verðlaun 250
kr. Er sagt nánar frá þessu í blað
inu að sjálfsögðu.
* KV I K MY N D I R *
„Hver var
maburinn' i
T jarnarbiói
EF DÆMA ætti enskan „humor“
eftir þessari kvikmynd, þá mundi
maður segja, að hann væri ekki
upp á marga fiska. — Myndin
minnir að vísu nokkuð á hina
gömlu Mac-Sennet-farsa, en
stendur þeim þó svo óralangt að
baki. Keyrir vitleysan svo úr
hófi að áhorfandanum stekkur
varla bros. Þó kynni að vera að
börn hefðu gaman að sumum at-
riðum myndarinnar, t.d. er storm
ur feykir alls konar krásum fram
an í menn, eða þegar fjöldi bíla-
þýtur með ofsahraða á eftir bóf-
unum og allt lendir að lokum í
bendu. — Aðalhlutverkið leikur
Benny Hill „nýjasti gamanleik-
ari Breta, sem spáð er mikilli
frægð“, að því er segir í leik-
skránni. — Er vonandi að sú
frægðarspá rætist, en varla get-
ur hún verið byggð á leik hans
í þessari mynd. — Ego.
„Can Can” /
Austurbæjarbiói
„RAUÐA MYLLAN" var um
langt skeið víðfrægastur skemmti
staður hinnar miklu gleðiborg-
ar, Parísar þó að hún sé nú varla
meira en svipur hjá sjón við það
sem áður var. Ekki er langt síðr
an kvikmynd, sem bar nafn
„Rauðu myllunnar" og fjallaði
um ævi hins fræga franska list-
málara Toulouse-Lautrec, var
sýnd hér í Austurbæjarbíói við
feikna aðsókn og hrifningu. Nú
sýnir þetta sama bíó enn eina
kvikmynd, franska dans- og
söngvamynd þar sem „Rauða
myllan“ kemur mjög við sögu.
Er myndin efnismikil, og frábær-
lega vel gerð, enda hefur snill-
ingurinn Jean Renoir sett mynd-
ina á svið og annazt leikstjórn-
ina. Auk þess fara afburðaleik-
arar svo sem Jean Gabin, Frango-
ise Arnoul og Maria Felix með
aðalhlutverkin. Eru báðar þessar
leikkonur fríðar sýnum og glæsi-
legar og leikur þeirra hrífandi.
— Þá koma og fram í myndinni
margir aðrir þekktir listamenn,
svo sem vísna-söngkonan Yvette
Guilbert, Eugenie Buffet, Paul
Delmet o. fl. — En það sem
setur hvað mestan svip á mynd-
ina er hinn ósvikni og eldfjör-
ugi franski Can-Can-dans.
Það er óhætt að mæla með
þessari bráðskemmtilegu mynd.
Hún svíkur áreiðanlega engan.
—Ego.
I.des.-fagnaður
iKjos
Valdastöðum 2. des.
UMF Drengur efndi til kvöld-
fagnaðar 1. des. að Félagsgarði.
Hjálmar Gíslason og Haraldur
Adólfsson skemmtu með gaman-
vísnasöng o. fl. Ólafur Á. Ólafs-
son, Valdastöðum, flutti ávarp í
tilefni dagsins. Einnig voru sung-
in ættjarðarlög, undir stjórn
Odds Andréssonar á Neðra Hálsi.
Ólafur minntist m. a. á baráttu-
mál íslendinga í sambandi við
handritin og einnig um meiri rétt
íslendingum til handa á Græn-
landi, samkv. fornum og sögu-
legum heimildum. Loks var dans
stiginn. — Allmargt fólk sótti
þennan kvöldfagnað. —St.G.