Morgunblaðið - 04.12.1957, Qupperneq 20
★ kr
20 * *
DAGAR TIL JÓLA
iomimMíifoiííí
276. tbl. — Miðvikudagur 4. desember 1957.
'k 'k Q -k ~k
DAGAR TIL JÓLA
Sjálfstæðismenn leggja fram
frumvarp um húsnækismál
Dreg/ð verð/ úr skriffinnsku, frjáls sparna&ur komi í stað
skyldusparnaðar, framlög til útrýmingar heilsuspillandi
húsnæðis verði aukin og réttur sveitarfélaga virtur
í GÆR lögðu 6 þingmenn úr Sjálfstæðisflokknum fram á Alþingi®-----------------
lagafrumvarp um húsnæðismál. Leggja þeir til, að lögunum um
húsnæðismálastjórn verði breytt á ýmsan hátt til að tryggja, að
þau nái tilgangi sínum betur en nú er. Aðalbreytingarnar eru
fólgnar í þessum atriðum:
1) Sjálfstæði húsnæðismálastjórnar verði aukið.
2) Sérstakt tækniráð húsnæðismálastjórnar verði sett á stofn.
3) Starfsháttum húsnæðismálastjórnar verði breytt og skriffinnska
minnkuð í því sambandi.
4) Sérstakar reglur um frjálsan sparnað komi í stað núgildandi
ákvæða um skyldusparnað.
5) Framlög ríkisins til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis verði
aukin úr 3 í 12 millj. kr. á ári eins og bæjarstjórn Reykjavik-
ur lagði nýlega til einróma.
6) Vernda ber sjálfstjórn bæjar- og sveitarfélaga.
Flutningsmenn hins nýja lagafrumvarps eru: Jóhann Hafstein,
Ragnhildur Helgadóttir, Kjartan Jóhannsson, Magnús Jónsson,
Bjarni Benediktsson og Björn Ólafsson.
Hlýtt um sunnanvert
landið — Kaldara nyrðra
Aukið sjálfstæði
húsnæðismálastjórnar
Sú tillaga flutningsmanna frum
varpsins, sem miðar að því að
auka sjálfsæði húsnæðismáia-
stjórnar, er þess efnis, að afl at-
kvæða skuli ráða úrslitum, ef
ágreiningur verður innan hennar.
Einnig er lagt til, að aliir þeir,
sem sæti eiga í húsnæðismála-
stjórn, hafi þar fullan atkvæðis-
rétt, en fulltrúi Landsbankans
hefir það ekki, þegar lánveitingar
eru ákveðnar.
Þá er þess að geta, að mjög
hefur borið á því að undanförru,
að þeim málum, sem húsnæðís-
málastjórn er ekki sammála um,
væri skotið til úrskurðar félags-
málaráðherra. Hefur han» síðan
alloft fellt úiskurði, sem meiri-
hluti húsnæðismálastjó’:nar hefur
verið andvigur. Hinar óvinsælu
reglur um hin nýju urnsóknar-
eyðublöð varðandi lán tii íbúða
munu t.d. vera til komnar á þenn
an hátt.
Stofnun tækniráðs
Þá er lagt til, að stofnað verði
sérstakt tækniráð í húsnæðismál-
um. Skal það skipað fulltrúum
frá húsnæðismálastjórn, iðnaðar-
deild atvinnudeildar háskólans,
húsameistara ríkisins, teiknistofu
landbúnaðarins, Landssambandi
iðnaðarmanna, Félagi ísl. iðnrek-
enda, byggingavörudeild SÍS og
Félagi ísl. byggingarefnakaup-
manna. Sjálfstæðismenn hafa
áður flutt tillögu um þetta efni
á Alþingi, en hún náði þá ekki
fram að ganga.
Minni skriffinnska
Húsnæðismálastjórn hefur
nýlega að fyrirlagi félagsmála
ráðherra látið útbúa sérstök
eyðublöð undir umsóknir
um lán til íbúðabygginga.
Eyðublöðin eru þannig úr
garði gerð, að ókleift
er með öllu fyrir al-
menning að svara þeim rúm-
lega 200 spurningum, sem þar
eru settar fram nema með að-
stoð lögfræðinga og byggingar
sérfræðinga. Hefur þetta að
vonum mælzt mjög illa fyrir,
enda voru ákvarðanir um þetta
mál telcnar af félagsinálaráð-
herra gegn tillögum allra
manna í húsnæðismálastjórn
nema eins. Auðvitað verður
húsnæðismálastjórn að setja
almennar reglur um lánveit-
ingar en miklu máli skiptir
að þær séu einfaldar. skýrar
og hagkvæmar í framkvæmd.
Með tilliti til þessa leggja Sjálf
stæðismenniiuir 6 nú til í frum-
varpi sínu, að því lagaákvæði,
sem skriffinnskureglur félags-
málaráðherra munu aðallega
styðjast við, verði breytt.
Frjáls sparnaður
Þá eru í hinu nýja frumvarpi
settar fram tillögur um svonefnd
húsinnlán, sem verða myndu sér
stök leið til frjáls sparnaðar og
koma í stað skyldusparnaðarins.
Tillögur þessar voru bornar fram
á síðasta þingi en fengu þá ekki
stuðning stjórnarflokkanna.
f tillögunum er gert ráð fyrir,
að allar peningastofnanir skuli
taka við fé til ávöxtunar á sér-
stökum húsinnlánareikningi. Þeir,
sem leggja fé inn á þennan reikn
ing, verða að skuldbinda sig til
að gera það í a.m.k. 5 ár og mega
innlánin ekki vera minni en 5000
kr. á ári. Vextir af fénu verða þá
1% hærri á ári en almennir
sparisjóðsvextir, og það verður
undanþegið tekjuskatti og út-
svari. Húsinnlánin fást útborg-
uð þegar minnst 5 ár eru liðin
frá því að innlög hófust. Þá öðlast
eigendur þeirra rétt til að fá
íbúðalán hjá húsnæðismálastjórn,
sem má vera allt að 25% hærra
en önnur lán geta hæst orðið.
Útrýming heilsuspillandi
húsnæðis
Loks er lagt til í frumvarpinu,
að veigamiklar breytingar verði
gerðar á 5. kafla laganna um hús-
næðismálastjórn, hann fjallar um
útrýmingu heilsuspillandi hús-
næðis.
Flutningsmenn hafa tekið
upp þá tillögu bæjarstjórnar
Reykjavíkur, sem gerð var ný-
lega með samhljóða atkvæð-
um, að þau framlög, sem ríkið
leggur á móti framlögum bæj-
arsjóða til að byggja íbúðir
fyrir þá, sem nú búa í óhæfu
húsnæði, verði hækkuð úr 4 í
12 millj. kr. á ári. Eins og
kunnugt er hafa framkvæmdir
á þessu sviði tafizt mjög að
undanförnu, þar sem staðið
hefur á framlögum ríkisins.
Vantar txd. nú 24,5 millj. kr. á,
að ríkið hafi á s.I. 3 árum
greitt jafnmikið til þessara
framkvæmda og Reykjavíkur-
bær, en upphaflega var þó gert
ráð fyrir jafnháum framlögum
frá þessum aðilum
í greinargerð hins nýja frum-
varps er tekið fram, að 1. flutn-
ingsmaður þess, Jóhann Hafstein,
hafi að undanförnu reynt að ná
samstöðu við þingmenn úr stjórn
arflokkunum um tillögu í sam-
ræmi við þá, sem flokksbræður
þeirra samþykktu í bæjarstjórn
Reykjavíkur. Það hefur hins
vegar ekki tekizt.
Byggingarsjóðir bæjarfélaga
Þá er lagt til, að ný grein bæt-
ist við lögin:
„Nú stofnar sveitarfélag bygg-
ingarsjóð í því skyni að veita lán
til nýbygginga, svo að útrýmt
verði heilsuspillandi húsnæði, og
skal þá ríkissjóður leggja slíkum
sjóði jafnhátt árlegt framlag og
veitt er úr sveitarsjóði og með
sömu kjörum, enda hafi ráðherra
staðfest reglugerð byggingasjóðs-
ins. Sveitarfélagi ber skylda til að
sjá um, að ónothæít húsnæði sé
tekið úr notkun, jafnóðum og tek
ið er í notkun húsnæði, sem rikis
sjóður hefur veitt framlag til
samkvæmt þessari grein.“
í þessu sambandi má minna á,
að bæjarstjórn Reykjavíkur hefur
nú nýlega ákveðið að stofna
Byggingarsjóð Reykjavíkurbæj-
ar, og er ekki ólíklegt, að önnur
bæjar- og sveitarfélög geri svip-
aðar ráðstafanir.
Sjálfsstjórn bæjar-
og sveitarfélaga
Enn er þess að geta, að í hinu
nýja frumvarpi er lagt til, að
numin verði úr gildi ákvæði, sem
sett voru í lögin um húsnæðis-
málastjórn að frumkvæði núver-
andi ríkisstjórnar og gera ráð fyr
ir, að húsnæðismálastjórn geti
látið undirbúa skipulagsupp-
drætti af íbúðarhúsahverfum í
kaupstöðum án samráðs við bæj-
arstjórnir þar. Hins vegar segja
lögin, að bæjarstjórnunum sé
skylt að heimila byggingar og
láta af hendi landssvæði fyrir
þær, ef með þarf með eignarnámi.
Sömuleiðis er viðkomandi bæjar-
félagi skylt að leggja nauðsynlega
vegi og leiðslur um slik hverfi og
innan hæfilegs tíma að mati hús-
næðismálastjórnar og félagsmála
ráðherra.“
í greinargerð frumvarpsins,
sem nú hefur verið lagt fram, er
bent á, að þessi lagaákvæði eru
fullkomin óhæfa, og ganga svo
freklega á rétt sveitarfélaga, að
telja má fullvíst, að í óefni væri
stefnt, ef tilraun yrði gerð til að
hagnýta heimildina sem í þeim
felst.
Tailklúbbur drengja
í DAG verður stofnaður á veg-
um Æskulýðsráðs Reykjavíkur
taflklúbbur drengja 11 ára og
yngri. Þeir, sem áhuga hafa, eru
beðnir að koma í Tómstunda-
heimilið á Lindargötu 50, kl.
5 e. h.
fStjérnmáia-
námskeið
Heimdallar
ST J ÓRNMÁL AN ÁMSKEIÐ
Ileimdallar heldur áfram í Val-
höll í kvöld kl. 8,30.
Bjarni Benediktsson alþingis-
maffur, flytur erindi um utan-
ríkismál.
ÞÓ hlýindin undanfarið þyki
mjög óvenjuleg, þá var svona
góðviðriskafli í fyrra. Þá var
nóvembermánuður með þeim
hlýjustu, sem um getur fyrr og
síðar. Undanfarið hefur hitinn
komizt allt upp í 10 stig, ekki að-
eins hér um sunnanvert landið,
heldur í öllum landshlutum.
Suðlægaáttin er ríkjandi um
sunnanvert landið, en aftur á
móti hefur norðaustanáttin náð
yfirtökunum um norðanvert land
ið. Er þar svalar 1 veðri. Var
1 st. frost í gærkvöldi kl. 5 í
Möðrudal en hitinn nyrðra
yfirleitt 0—2 stig. Nokkru fyrir
norðan Island eru frosthörkur,
Varðarfund-
urinn í gœr■
kvöldi
FJÓRÐI og síðasti umræðufund-
ur Varðar um málefnaflokkinn,
sem nefndur hefur verið fram-
tíð Reykjavíkur, var haldinn í
gærkvöldi.
Form. Varðar, Þorvaldur Garð-
ar Kristjánsson lögfr. setti fund-
inn og gaf síðan framsögumönn-
um orðið. Er skýrt frá fram-
söguræðum inni í blaðinu í dag.
í lok framsagna og umræðna
flutti Gunnar Thoroddsen borg-
arstjóri snjalla ræðu. Vék hann
að ýmsum bæjarmálum, en hvatti
að lokum Sjálfstæðismenn til að
berjast einhuga fyrir miklum
sigri flokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar í janúar.
í fundarlok þakkaði formaður-
inn framsögumönnum og nefnd-
um þeim, sem starfað hefðu í
sambandi við fundina um málefni
Reykjavíkur.
Kona verður fyrir
bíl og meiðist
UM KLUKKAN 5 í gær var tilk.
um umferðarslys á Suðurgötu, á
móts við Loftskeytastöðina. Var
lögregla og sjúkralið sent á vett-
vang, en þegar þangað kom, var
enginn slasaður þar á saðnum.
Klukkan 6 upplýstist málið
Þá var hringt til rannsóknarlög-
reglunnar frá slysavarðstofunni.
Þar var kona sem orðið hafði
fyrir bíl. — Hafði bílstjórinn flutt
hana þangað sjálfur, kvaðst
mundu bíða eftir að gert yrði að
sárum hennar — Nú var hann
horfinn og konan vissi ekki eitt
eða neitt um mann þennan.
Lýsti hún honum er rannsóknar-
lögreglumaður tók af henni
skýrslu, á þá leið að hann hefði
verið klæddur í hvítan slopp, og
hefði ekið sendiferðabíl. Mann-
inn varðandi eða bílinn gat hún
elcki fleira upplýst. Eru það til-
mæli rannsóknarlögreglunnar að
þessi maður komi hið fyrsta til
viðtals í skrifstofur rannsóknar-
lögreglunnar. Konan skrámaðist
nokkuð og marðist.
Bazar Sjálfslæðis-
kvenna í Keflavík
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ-
LAGIÐ „SÓKN“ í Keflavík held-
ur hinn árlega bazar sinn í Sjálf-
stæðisliúsinu í Keflavík n. k.
fimmtudag 5. des. kl. 9 síffd.
Margt ágætra muna. Allur á-
góffi rennur til góffgerffarstarf-
semi fyrir jólin.
t. d. 7 stiga frost á Jan Mayen
og í námubænum Meistaravík á
Grænlandi var í gær 32 st. frost.
Hér í Reykjavík og víðar um
sunnanvert landið var allt að 8
stiga hiti kl. 5 síðd. í gær. Það
eru ekki taldar horfur á því, að
hinn kaldi norðaustan strekking-
ur muni ná hingað suður í bili.
Hlýindi eru nú um Norður-
löndin og Bretlandseyjar, t. d.
vorveðrátta um vestanverðan
Noreg. Kuldar eru aftur fyrir
austan Eystrasalt. — Einnig eru
miklar frosthörkur á Labrador.
— Ef hinn kaldi loftstraumur það
an næði hingað, myndi hér um
slóðir ganga á með hríðarveðri.
Treg er
síldveiðin
SJÓMENN á reknetabátunum,
sem veiðar stunda hér við Faxa-
flóa, ræða nú um það hvað valda
muni mikilli aflatregðu í reknet-
in. Eru á lofti ýmsar getgátur,
en flestir munu að því hallast,
að sjórinn sé nú of heitur á
yfirborðinu. Bátarnir lóða á
mikla fiskgengd á dýpi, þar sem
ógjörningur er að veiða og sjó-
menn telja að þar muni síldar-
göngur vera.
Reknetabátar frá verstöðvun-
um komu í gær með lítinn afla
og höfðu þeir sem hæst komust
50—60 tunnur eftir róðurinn.
Nýr stórvelda-
fundur!
HAMBORG, 3. des. — Þýzka
blaðið „Welt am Sonntag" skýrir
frá því, að Rússar hafi í hyggju
að gera það að tillögu sinni, að
leiðtogar stórveldanna fjögurra
komi saman til ráðstefnu í byrjun
næsta árs, ef ekki verði unnt að
hefja beinar samningaviðræður
um heimsmálin milli Washington
og Moskvu. Blaðið segir, að starfs
menn rússneska sendiráðsins í
Bonn hafi skýrt frá þessu, en ekki
hafi verið hægt að fá þessar
fréttir staðfestar. Tilgangurinn
með væntanlegri ráðstefnu yrði
m. a. að hefja aftur viðræðurnar
um afvopnunarmálin, sem báru
lítinn árangur og féllu niður eftir
Lundúnafundinn.
Kvikmyndasýning
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óffinn,
félag Sjálfstæðisverkamanna og
sjómanna efnir til kvikmynda-
sýningar fyrir börn félagsmanna
í Trípolibíó n.k. sunnudag 8. þ.m.
kl. 1,15
Affgöngumiðar verffa afgreidd-
ar í skrifstofu Sjálfstæðísílokks-
ins í kvöld frá kl. 8—10. Einnig
má panta affgöngumiffa í síma
14724 og 33044.
Skemmtinefndin.