Morgunblaðið - 18.05.1958, Side 8

Morgunblaðið - 18.05.1958, Side 8
8 MORCVNBT. AÐ1Ð Sunnudagur 18. mal 195& Ummœli Hannibals Valdemarssonar á Alþingi: Alls ekki við því að stjórnin geti verkalýðsins Frá' síðasta hluta fyrstu umræðu um efnahagsmálafrumvarpið að húast, hætt hag þarf að gera, er að gefa þjóð- inni færi á að segja álit sitt á ríkisstjórninni. Breytingar í at- vinnu- og fjármálum eru örar og dýrtíðin vex. Þessi stjórn mun ekki leysa vandann, þjóðin þarf að fá tækifæri til að segja sitt álit. Ákvæðin hjá A.S.f. Hannibal Valdimarsson: Það er aðalskylda hverrar ríkisstjórnar að tryggja það, að atvinnuvegirn- ir geti starfað og ríkisbúskapur- inn verði hallalaus. Tillögurnar í hinu nýja frumvarpi miða að þessu tvennu. Þar er ekki meira tekið en þarf og atvinnuvegirn- ir ekki látnir fá meira en nauð- synlegt er. Sjálfstæðismenn hneyksluðust fyrir nokkru á því, að ekki væri við verkalýðshreyfinguna talað um þessi mál. Það var þó gert, þegar er frumv. lá fyrir fullmót- að. Og nú hneykslast Sjálfstæðis- menn á, að verið sé að flytja vald ið frá Alþingi og forseta og leggja það í hendur Alþýðusambands- ins. Og sagt er, að verkalýðs- hreyfingin hafi snúizt öndverð gegn frumv. Þar vaða Sjálfstæð- ismenn reyk. A fundi efnahagsmálanefndar og miðstjórnar Alþýðusambands- ins kom fram tillaga um af- greiðslu málsins frá 4 mönnum: Eðvarði Sigurðssyni, Snorra Jóns syni, Eggerti Þorsteinssyni og Óskari Hallgrímssyni. Við hana komu fram 3 breytingatillögur. Ein var um að mótmæla ráð- stöfununum. Hún fékk eitt atkv., önnur var um að undirstrika, að þær væru í mótsögn við á- kvarðanir síðasta Alþýðusam- bandsþings. Sú tillaga fékk 2 atkvæði. Loks var tillaga um að Framh. á bls. 14 í SÆR var sagt hér í blaðinu frá umræðunum um efnahagsmál in á Alþingi. Síðasta ræðan, sem rakin var, var flutt af Ásgeiri Sigurðssyni. í dag er sagt frá annarri ræðu, sem flutt var síð- ari hluta föstudags. Er það ræða Angantýs Guðjónssonar. Hér á eftir verður síðan rakinn síðasti hluti fyrstu umræðu um frumv. ríkisstjórnarinnar: Tölum mótmælt Lúðvík Jósefsson tók til máls að ræðu Asgeirs Sigurðssonar lokinni. Hann sagði að það væri rétt að sjómenn hefðu staðið sam einaðir í kaupkröfum sínum. Hitt væri og lýðum ljóst, eins og hann sagði, að Morgunblaðið hefði, með æsingaskrifum róið undir kröfur sjómanna. Lúðvík svaraði ræðum þing- manna Sjálfstæðisflokksins, er töluðu á miðvikudaginn. Hann sagði að Sjálfstæðismenn vildu að sjávarútvegurinn stöðvaðist. Hins vegar kvað hann samninga við útvegsmenn hafa gengið vel undanfarið svo að aidrei hefði komið til stöðvunar. — Lúðvík sagði að það væri fráleitt að hinar nýju álögur næmu 790 miiljónum króna. Hitt væri rétt ara að þær næmu 240 millj. kr. Taldi hann nokkra liði, sem valda aukningu. T.d. 50 millj. kr. vegna almennrar kauphækkun- ar, 50 millj. kr. vegna hækkana á áður umsömdum bótum til sjáv arútvegsins, 20 millj. kr. auknar bætur til togaraflotans, 16—18 millj. kr. til að auka bætur á Norðurlandssíld, 10 millj. kr. til Fiskveiðisjóðs, 7 millj. kr. til líf- eyrissjóðs togarasjómanna, 22 millj. kr. vegna krafna bænda um nýja verðlagningu landbún- aðarafurða og 11 millj. kr. til að standa undir skattalækkun, sem ráðgert væri að lögfesta. Lúðvík Jósefsson sagði, að í febrúar, er hann ritaði gre.nar sínar í Þjóðvi.ljann, hefði margt verið ófyrirsjáanlegt af því, sem nú er fram komið. Gæti veyið eðlilegt að nú væri mikiu meiri þörf fyrir fé, en þá. en hann hefði talið að þá þyrfti 90 millj. kr. í útflutnings- og ríkíssjóð. Lúðvík sagði að Sjálfstæðis- menn ættu auðveldlega að geta myndað sér skoðun um, hvað þyrfti að gera til að styrkja sjáv- arútveginn, þeir hefðu fulltrúa í flestum samtökum og stofnunum sem snertu sjávarútveginn. Taldi Lúðvík að meðan Sjálfstæðis- menn bentu ekki á nýjar leiðir, ættu þeir að sjá sóma sinn í að styðja frumvarp stjórnarinnar. Spurningar ítrekaðar Gylfi Þ. Gislason flutti stutta ræðu, kvað hann svör Ólafs Björnssonar við þremur spurn- ingum á miðvikudag hafa verið ófullnægjandi. Þó þóttist hann sjá af ræðu Ólafs að hann hlyti að vera hrifinn af frumvarpi stjórnarinnar, það gerði uppbóta kerfið einfaldara og skapaði samræmi milli innlends og er- lends verðlags. Beindi Gylfi enn 3 nýjum spurningum til Ólafs: Hvort frumvarp ríkisstjórnarinn ar fæli í sér byrðar á þjóðina í heild, hvort hann væri sammála því að hér væri um að ræða 790 millj. kr. í nýjum sköttum og hvort frumvarpið væri spor í átt- ina til aukins jafnvægis í þjóðar- búskapnum. Þegar Gylfi lauk ræðu sinni vantaði klukkuna 4 mín. í sjö og var gefið matarhlé til kl. 9. Flugfélögin í hættu Fundur hófst aftur á tilsettum tíma. Fyrst var afgreitt frumv. fjármálaráðherra umáframhaldá stöðvun tollafgreiðslna, en síðan hófust umræður um efnahags- málin aftur. Ingólfur Jónsson tók til máls og sagði m.a.: Tveir ráðherrar, þeir Eysteinn Jónsson og Lúðvík Jósefsson hafa vikið nokkuð að ræðu minni í fyrrinótt, en málflutningur þeirra hefur verið nokkuð blendinn og rök þeirra einkennileg. Eysteinn Jónsson vildi ekki fallast á, að frumv. myndi skaða atvinnuvegina, þvert á móti taldi hann það þeim til mikilla hags- bóta. í því sambandi nefndi hann flug m.a. En hið rétta er þó, að flugfélögin verða e. t. v. að hætta starfsemi sinni, ef frumv. verður samþykkt. Þeim er ætlað að greiða 55% yfirfærslugjald af vöxtum og afborgunum af lánum, svo og af benzíni og varahlut- um. Munu þessi útgjöld nema miklu meiri upphæðum en félög- in fá aftur í tekjur af seldum gjaldeyri. Manni, sem heldur þannig á málum, þarf í rauninni ekki að svara með mörgum orðum. En fullyrðingar hans um áhrif frum- varpsins á hag landbúnaðar eru svipaðar: Hækka á vélarnar, vegná þess, hve dýrt er orðið að afla heyja, — og líklega líka vegna þess, að vinnuafl er ófáan- legt! Ráðherrann talaði líka um góð áhrif frumv. á iðnaðinn. Iðn- rekendur telja þó, að afleiðing- arnar verði miklir erfiðleikar og samdráttur. Stjórnin hefur misst tökin Málflutningur Lúðvíks Jósefs- sonar var mjög í sama dúr. Hann sagði, að Sjálfstæðismenn hefðu kynnt undir verkföll. Þetta er rángt og hefur áður verið hrak- ið í umræðunum. Ráðherrann sagði líka, að margt hefði breytzt siðan hann ritaði greinar sínar í Þjóðvilj- ann í febrúar og taldi tekjuþörf útflutningssjóðs og ríkissjóðs alls 90 millj. kr. Er það þá ekki vegna þess, að stjórnin hefur nú alger- lega misst tökin á efnahagsmál- um landsins og þar gerast á hverjum degi atburðir, sem leiða þjóðina lengra út í fenið og kalla á nýjar aðgerðir? Ráðherrarnir vita, að breytingarnar gerast ört, — þetta frumv. leggur á mikil gjöld, en meira þarf að gera í haust. Og í hvaða átt er svo stefnt með þessu frumv.? Forsætisráð- herra talaði um framleiðsluvísi- tölu í stað framfærsluvísitölu og varð ekki skilinn á annan hátt en þann, að hann boðaði gengisfell- ingu. Sjávarútvegsmálaráðherra og formaður Sósíalistaflokksins, Einar Olgeirsson, telja-sig and- víga gengislækkun, og a. m. k. hinn síðarnefndi segist á móti framleiðsluvísitölu. Þetta sýnir, að stjórnin sem slík hefur ekki stefnu, og af henni er því ekki mikils að vænta. Hún vill tillögur frá .Sjálfstæðismönnum, en til lítils væri að ætlast til, að hún framkvæmdi þær. Það, sem nú Teiknuðu þau eimingartækin rétt? „Ég er búlnn að læra kássu al lögmálum” —„Guð, Ástvaldur, ég er svo landsprófi, sem yfir 600 ungling- hrædd um að falla — ég er að deyja!“ — „Nei, er það? Bara að lesa, vera ákveðin, þá hefurðu það.“ — „Ég er veik, é'g er svo hrædd — heldurðu að mig langi til þess að fara í landspróf í þriðja sinn? Viltu kannski hafa mig hér áfram?“ — „Ja, auðvitað hef ég ekkert á móti því — en annars held ég, að þú þurfir ekkert að óttast —, ef þú verður dugleg.“ — „En Ástvaldur, hvernig er það með náttúrufræðina, hvað fékk ég — ha?“ — „Jamm, ég er nú lítið byrj- aður af fara yfir það.“ — „Gerðu það, Ástvaldur — 3,5? — 4? — meira? — ha?“ — „Ég segi ekkert, veit ekkert enn með vissu.“ — „Ó, Guð — Ástvaldur, ég er svo hrædd — segðu mér bara svo- lítið — ha?“ En Ástvaldi verður hvergi þokað, hann er nefnilega náttúru- fræðikennarinn. Stúlkan brosir sínu blíðasta, rétt eins og lands- prófið væri á enda, en Ástvaldur lætur sig hvergi, enda þótt erfitt sé að neita lítilli, bænheitri stúlku um að segja henni, hvort lýsing hennar á steinbítnum og kólíbrífuglinum, á sveppum, þör- ungum og fléttum falli þeim vísu lærifeðrum í geð. — „Jæja, þá það,“ segir hún, „en ég er svakalega hrædd.“ Svo skokkar hún inn ganginn. ,.— „Maður verður víst að fara að laga sig eitthvað til eftir setuna, öll úr skorðum eftir eðlisfræð- ina,“ segir hún og dregur upp greiðu. Hún er kominn á þann aldurinn að þurfa alltaf að vera að „laga sig til.“ — „Hálfgert kvikasilfursfiðr- ildi — efnileg stúlka, en nennti ekki að lesa í fyrra — og féll,“ segir Ástvaldur. Já, þeir eru ekki svo fáir, sem fallið hafa á þessu landsfræga ar þreyta nú í vor viðs vegar um land. Mikið hefur verið rætt og ritað um lands- prófið, margir eru því mót- fallnir, telja það heimskulegt — og sennilega þreytast menn aldrei á að deila um raunveru- legt gildi þess. Blaðamaður Morgunblaðsins skrapp í höfuðvígi landsprófsins, Gagnfræðaskólann við Vonar- stræti, á föstudagsmorguninn, en þar ræður ríkjum Ástráður Sig- ursteindórsson — og var gliman við eðlisfræðina rétt að hefjast. Innsigluð sending frá landsprófs nefnd var opnuð með viðhöfn þrem mínútum fyrir níu — og, þegar klukkan sló níu var send- ingunni dreift meðal þeirra mörgu, sem mættir voru til að standa reikningsskil á því, hve þeir höfðu fært sér eðlisfræði- skræðurnar vel í nyt. Um ellefuleytið fóru þau fyrstu að tínast út — og við Ástvaldur gerðum þeim fyrirsát í anddyr- inu. En sá góði maður hafði ekk- ert annað upp úr því en eilífar spurningar um náttúrufræðina, hún hafði verið mjög streaábin að þessu sinni, en hann var samt þögull sem gröfin — og vildi ekk ert láta uppi. Og um síðir sá hann það skynsamlegast að hverfa af sjónarsviðinu, því að þeim fór ört fjölgandi, sem voru að „deyja úr hræðslu við nátt- úrufræðina“ og' voru ekki viss um, að þau hefðu lýst steinbítn- um, eins og landsprófsnefnd kom hann fyrir sjónir. ★ ★ ★ En innan um voru kotrosknir strákar, og einn sagði: — „Ætli maður hafi það ekki, en maður getur bara ekkert svindlað. Það er svo langt á milli borðannna. Einn strákur, í öðrum skóla, sem svindlar alltaf, skrifar á miða ártöl og svoleiðis, áður en hann fer í prófin. Þegar hann er hræddur um, að þeir hafi séð til hans — þá étur hann bara mið- ann. Hér dettur engum í hug að svindla maður græðir annart sjaldnast á því.“ Sá stutti hafði greinilega ekki hugmynd um, að hann var að tala við blaðamann og var að af- hjúpa vin sinn, miðagleypinn —- og hann hélt áfram: — „Blessað. ur, maður — ég er ekkert hrædd- ur við að falla. Ég varð samt fyrir vonbrigðum með eðlisfræðina, ég var búinn að læra kássu af lög. málum og teikningum, en prófið var ósköp asnalegt — tóm dæmi og vitleysa, næstum engin lögmál —■ ég er hræddur um að stelp- urnar væli undan þyí, þær kunna ekkert í eðlisfræði,“ sagði hann dálítið borginmannlega. En stúlkurnar voru ekki jafn- slæmar og sá stutti ætlaði. Að vísu hrópaði ein í örvæntingu, þegar hún varð þess vísari, að út koman úr dæminu var ekki 2,4: „Ég er fallin, ég er fallin“. En það gerði líka maðurinn, sem var að taka bílpróf og ók á kú — en féll samt ekki. Margar stúlknanna voru harð- ánægðar með frammistöðuna. Að vísu voru þær ekki allar vissar um að hafa teiknað eimingartæk- in rétt, en ef til vill höfðu þær þá komið fram með nýja hug- mynd um eimingu, sennilega miklu einfaldari en þessa í bók- inni. — „Hvað skrifaðir þú annars margar línur um spanstraum- inn?“ „Tíu, ég hlýt að fá eitthvað fyr- ir það — kannski einn fyrir hverja línu, ha, ha!“ — „Guð ég vissi eiginlega ekki hvað þessi spanstaumur var, ég skrifaði ekkert — sknfaði bara sendibréf til kennarans." — „Þú lætur nú alltaf svona, þykist aldrei hafa getað neitt, en veizt allt. Heldurðu að maður þekki þig ekld “ — „Ég er ekkert hrædd við eðlisfræðina og söguna,“ sagði önnur, „en náttúrufræðin var hryllileg.“ Allir samþykktu þetta, því að allir höfðu kannazt við menn eins og Pál postula, Galilei og Benjamín Franklín og líka Karl Marx, en þó var einn ekki í því hreina, hvort þessi Karl hafði fundið Ameríku, eða eitt- hvað annað. h.j.h.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.