Morgunblaðið - 18.05.1958, Qupperneq 23
Sunnudagur 18. maí 1958
MORGUNBLAÐ ÍÐ
23
— Bjargfábin
Framh. af bls. 14.
braut og í jólagjöfinni. Sam-
hvæmt þessu er það þá ekki
fyrr en nú eftir nær 2ja ára
valdatíff, sem vinstri stjórnin
tekur loksins „rétta stefnu“.
Að lokum vék Magnús Jónsson
að ræðu þeirri, sem Hannibal
hafði flutt þá um kvöldið. Hann
rifjaði það upp, að Hannibal
hefði sakað Ólaf Thors um að
vera á móti aðstoð til sjávarút-
vegsins, fyrir það eitt að hann
hafði talið ýmsa annmarka vera
á þessu frumvarpi. Þá væri alveg
eins hægt að spyrja, hvort verka-
lýðsforingjarnir, sem voru á
móti því hafi sýnt með því að
þeir væru á móti því að halda
atvinnulifinu gangandi. Má þó
nærri geta að svo er ekki, heldur
efast þeir, eins og Ólafur Thors
um það, að þetta frumvarp
sé rétta leiðin tii að halda at-
vinnuvegunum gangandi.
Á mesta sökina
Þegar Hannibal Valdimarsson
talar fjálglega um að styðja at-
vinnuvegina, vaknar hjá manni
önnur spurhing. t>að er hvort
hann hafi íhugað, hver eigi mésta
sökina á þessum erfiðleikum. Og
þá vaknar upp spurningin um
það, hvort nokkur einn maður
á meiri sök á þessu en einmitt
Hannibal, þvi að enginn átti meiri
þátt í hinu ógæfusamlega verk-
falli 1955, þar sem ekkert var
skeytt um burðarafl atvinnulífs-
ins, verkaiýðsfélögih aðeins nýtt
á pólitískan hátt, enda voru gerð
ar svo óhóflegar kröfur, að sýnt
var að þær voru til þess eins að
koma atvinnulífinu út úr jafn-
vægi. Verkalýðurinn veit það
vel, að þetta verkfall var mesta
óhappaverk í íslenzkum stjórn-
málum. Hefði það ekki verið háð,
stæðum við ekki í dag frammi
fyrir þessu frumvarpi.
Hvað era nauðsynjavörur?
Þá sagði Hannibal að „á all-
ar nauðsynjavörur" leggist að-
eins 30% yfirfærslugjald. En
á hve mikinn hluta innflutn-
ingsins leggst þessi lægri gjald
stigi. Sá innflutningur nemur
10 milljl kr. af 1400—-1500
millj. kr. heildarinnflutningi.
Hljómar þetta ekki næsta ein-
kennilega, að nauðsynjavör-
urnar sén ekki stærri hluti af
heildarinnflutningnmm. Gæti
þjóðin þá látið sér nægja að
flytja inn vörur fyrir þessar
70 milljón krónur, en loka
fyrir innflutninginn á vörum
fyrir svona 1400 milljón krón-
ur, sem þá eru væntanlega ó-
þarfar lúxusvörur!!!
Nei! Þessar staðhæfingar hljóta
ð vekja miklar efasemdir um
oversu haldgóð er skipting inn-
flutningsins í nauðsynjar og lúx-
us, enda kom það fram hér í dag,
að einn ráðherranna í vinstri
stjórninni taldi nælonsokka lúxus
fyrir konur. — Ég hef nú hingað
til haldið að það væri nauðsyn-
legt á okkar landi að vera í sokk-
um. En það fer nú kannske að
líða að því, ef þessi stjórn verð-
ur áfram við völd, að þjóðin hafi
ekki efni á að klæða sig í sokka.
Hannibal sagði að lausn þess-
ara efnahagsmála væri mjög ein-
föld. Sé það rétt, yfir hverju var
það þá sem ríkisstjórnin hefur
setið nú langan tíma. Var stjórn-
in máske ennþá einfaldari en
vandamálin og átti þess vegna
svona erfitt með að leysa þau?
Breyttar skoðanir
Þá vék Magnús Jónsson nokk-
uð að hinni stórfurðulegu breyttu
skoðun Hannibals og raunar
fleiri vinstri-ráðherra, að vísi-
talan sé aðeins til hags fyrir há-
launamenn og þess vegna væri
bezt að afnema hana. öðru vísi
mér áður brá. Áður en þessir
menn komust í ríkisstjórn lögðu
þeir ríka áherzlu á vísitölukerfið
og kölluðu skerðingar á vísitöl-
unni árás á verkalýðinn. Það er
að segja, ein skerðing vísitölunn-
ar var þó ekki árás á verkalýð-
inn. Það var skerðing hennar,
sem vinstri stjórnin framkvæmdi
rétt eftir að hún tók við völdum.
Þannig er allur málflutn-
ingur þessara manna, sagði
Magnús Jónsson og kom með
annað dæmi: — Þegar jafn-
vægi hafði haldizt í efnahags-
málunum í þrjú ár og verðlag
haldizt óbreytt, þá taldi Hanni
bal Valdimarsson að ástæða
væri til fyrir verkalýðinn að
fara i verkfall og kref jast allt
að 70% kauphækkunar. En nú
þegar hver verðhækknnin og
skattaálögurnar hafa rekið
aðra, þá segir Hannibal, að
verkalýðurinn bafi engan á-
huga á kauphækkun!
Öryggisleysi framundan
Magnús Jónsson hélt áfram: —
Ýmisleg einstök atriði þessa frum
varps eru til bóta. En stærsti
galli þess er að því virðist að-
eins ætlað að lifa í 4—5 mán-
uði. Enginn veit, hvaða lokatak-
marki því er ætlað að ná. Af
ræðum ráðherranna virðist sem
alls ekki sé samkomulag um hver
stefnan sé í raun og veru.
Það er þessi þróun sem er
uggvænleg. Frumvarpið felur í
sér fullkomið öryggisleysi og ó-
vissu, nema það eitt er víst að
það spennir upp verðbólguna, svo
að hætt er við að þessar 790 millj.
króna, sem nú eru teknar í aukna
skatta verði orðið alltof lítið,
þegar líður á árið.
Stjórnarsinnar hafa lýst þessu
frumvarpi sem vegg. Ég er hrædd
ur um að sá veggur standi ekki
Íengi, heldur hrynji. Jafnvel er
ég hræddur um að hann hrynji
yfir ríkisstjórnina sjálfa, því að
hún virðist treysta þessum bil-
aða vegg svo takmarkalaust að
hún situr undir honum.
Hví ekki að brenna þetta
frumvarp?
Jón Pálmason flutti stutta
ræðu til að andsvara Hannibal
"'aldimarssyni. Hann kvað það
rétt vera, að hann hataði vísi-
töluna vegna verðhækkunarskrúf
unnar. Hitt væri hins vegar of-
mælt að hann hataði Eystein og
Framsóknarflokkinn. Kvaðst Jón
engan mann hata og þeim mun
síður svo stóran hóp manna sem
umræddan flokk. Hann ætti og
marga persónulega vini innan
hans.
Hitt kvað hann annað mál, að
hann hataði fjármálastefnu Ey-
steins Jónssonar og hann hataði
það, hvernig Framsóknarflokkur-
inn hefði gengið á villigötum í
slóð rangsýnna forustumanna
sinna.
Jón kvaðst hafa gert sér góðar
vonir um það í þyrjun, að vinstri
stjórnin myndi afnema vísitölu-
skrúfuna. Þegar hún settist að
völdum stöðvaði hún kaupgjald
og vísitölu. Þá fór ég að gera
mér vonir um, sagði Jón, að með
Hannibal Valdimarssyni væri
fenginn góður ráðherra, sem
þyrði að spyrna við fótum.
En þetta stóð ekki lengi. Ríkis-
stjórnin hafði aðeins setið í 4
.mánuði þegar hún hækkaði
skatta og tolla um 300—400 millj.
krónur.
Mér þótti vænt um það sem
Hannibal sagði nú áðan, að verka
lýðsfélögin vildu jafnvægi. Og
þá fer. ég einmitt að skilja, hvers
vegna verkalýðurinn er á móti
þessu frumvarpi, því að með því
er farið lengra út í hringavit-
leysu verðbólgu en nokkru sinni
áður.
Þess vegna spyr ég: — Sé
það vilji verkalýðsins að
koma á jafnvægi og ef ráð-
herrann vill afnema vísitölu-
skrúfnna, — hví þá ekki að
taka þetta ógæfufrumvarp ogj
brenna það, reyna að!
fleyta efnahagsmálunum á- |
fram yfir sumarið, stöðva
kaupg jald og verðlag og'
sjá hvort ekki sé hægt
að taka málið upp á skynsam-
legri grundvelli t. d. í haust
þegar fiundur launþegasamtak
anna hefst?
Hreykinn af verkfallinu
Næstur talaði Hannibal Valdi-
marsson. Hann mótmælti um-
mælum Magnúsar Jónssonar um
að verkafallið 1955 hefði verið
verkalýðnum óhagstætt, og
kvaðst ekki skammast sín fyrir
að hafa staðið fyrir þvi. Hann
minnti á að í verkfallinu 1952—
53 hefði verkalýðshreyfingin knú
ið fram verðlækkanir. Það var
ekki fyrr en póltískar ráðstafanir
höfðu verið gerðar til kjararýrn-
unar, sem verkalýðurinn hóf
verkfallið í marz 1955. Þá fékkst
10—11% kauphækkun og stofnun
atvinnuleysistryggingasjóðs.
Hannibál ítrekaði enn sem fyrr
að engar tillögur hefðu komið
fram frá Sjálfstæðisffokknum
um Iausn efnahagsmálanna. Allt
sem þeir hefðu haft til málanna
að leggja hefði verið neikvætt.
Sagði hann að það væri ekki
traustvekjandi, ef Sjálfstæðis-
flokkurinn gerði ekkert til að
bæta úr bölinu. Þjóðin muni þá
dæma hann hart.
Hverjir þóttust kunna
töfrabrögð?
í tilefni þessara síðustu um-
mæla Hannibals gerði Magnús
Jónsson að lokum stutta athuga-
semd og sagði m. a.:
Hannibal hafði áhyggjur út af
sálarheill okkar Sjálfstæðis-
manna og því hve þjóðin muni
dæma okkur hart. Hann þarf
ekki að hafa áhyggjur út af
Sjálfstæðisflokknum, — honum
væri óhætt að takmarka sig við
ríkisstjórnina, því að við berum
ekki sams konar tilfinningar til
hennar. Við berum engar sérstak-
ar áhyggjur af því, þótt hún hafi
glatað trausti þjóðarinnar.
En gerir hann sér Ijóst, hvern-
ig það lítur út í augum þjóðar-
innar, að ráðherrarnir hafa stöð-
ugt verið að óska eftir því að
Sjálfstæðismenn komi með úr-
bótatillögur? Nú vilja þeir, að
Sjálfstæðisflokkurinn komi þeim
til bjargar og leiði þá út úr
eyðimörkinni.
Við Sjálfstæðismenn höfum
aldrei haldið því fram að við
hefðum töfrabrögð til lausnar
vandamálunum. Stjórnarflokk
arnir hafa hins vegar haldið
því fram að þeir byggju yfir
slíkum ráðum. — Nú skulu
þeir bara sýna þjóðinni töfra-
brögðin.
Við Sjálfstæðismenn munum
ekki skorast undan að leysa
vandamálin, þegar að því kemur
að við verðum að taka við þrota-
búi vinstri stjórnarinnar. Hitt er
ekki nema vitleysa þegar stjórn-
arflokkarnir halda því fram, að
við eigum nú að gera breytingar-
tillögur við einstakar greinar.
Sannleikurinn er sá, að það þyrfti
að umskapa allt frumvarp ríkis-
stjórnarinnar frá rótum og skapa
nýtt kerfi. Til þess gefa stjórnar-
flokkarnir okkur stjórnarand-
stæðingum 2—3 daga. Ég held að
þjóðin sjái í gegnum þessi láta-
læti ríkisstjórnarinnar.
Klukkan var orðin langt geng-
in tvö, þegar fyrstu umræðu
um frumvarpið lauk. Var frum-
varpið síðan samþykkt til 2. um-
ræðu með 18 samhljóða atkvæða
og til fjárhagsnefndar með 22
samhljóða atkvæðum.
Kópavogsbúar
Stúlka óskast til starfa í verksmiðjunni.
Fyrirspurnum ekki svarað í síma.
iMlálviing hf.
Tvœr sfúlkur
helzt vanar verksmiðjusaumi
óskast nú þegar.
Verksmiðjan Hercules hf.
Bræðrabcirgarstíg 7
Siglfirðingamót 1958
SIGEiFIROTNAGAMÓT verður haldið í Sjálfstæðishúsinu
þriðjudaginu 20. þ.m. og hefst kl. 20,30.
Dagskrá:
Ávarp: Áki Jakobsson, alþm.
Einsöngur: Þorsteinn Hannesson. óperusöngvarL
Bæða: Jóu Kjartansson, forstj.
Endurminningar frá Siglufirði: Sig. Björgúlfsson.
Kveðjur frá Siglufirði.
Leikþáttur: Áróra og Emilía.
Gamanvísur: Baldur Hólmgeirsson.
Dans.
Aðgöngumiðar verða seldir í Sjálfstæðishúsinu n.k.
mánudag og þriðjudag kl. 4—6 e.h.
UNDIRBCNINGSNEFNDIN.
Frænka okkar
GUNNVÖR PÁLSDÖTTIR
andaðist á Elliheimilinu Gmud þann 14. þ.m. Hún verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20. maí kL
3,30 edi.
Margrét og Geirþrúður Ásgeirsdætur.
Maðurinn minn
JÖN GUÐMUNDSSON
skipstjóri, Iézt að Landakotsspítala aðfaranótt 17. þ.m.
Fyrir mína hönd og bama hans.
Aðalheiður Magnúsdóttir.
MARlA SVEINSDÓTTIR
dó 16/5. á Elliheimilinu Grund. Fyrir hönd aðstandenda.
Hróbjartur O. Marteinsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur,
ÖLAFUR BJARNASON
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 20.
maí kl. 2.
Bíóm vinsamlegast afþökkuð.
Erna Erlendsdóttir og böm,
Bjarni Ólafsson.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar
CARL EMIL OLE MÖLLER JÓNSSON
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 20.
maí kl. 13.30.
Hrefna Olafsdóttir og böra.
Hjartkæri eiginmaður, faðir tengdafaðir og afi
GUÐJÓN ÞORKELSSON
vélstjóri, verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði þriðjudaginn 20. maí kl. 2 e.h.
Eginkona, börn, tengdabörn og barnabörn. r
Hjartanlega þökkum við öllum er auðsýndu okkur
samúð við andlát og jarðarför móðir okkar og tengda-
móðir
MARGRETAR ÞORVARÐARDÓTTIR
Elín Brynjólfsdóttir, Magnús Brynjólfsson,
Guðný Guðmundsdóttir.
Hjartanlega þökkum við þeim sem hjúkruðu og á annan
hátt hjálpuðu okkar hjartkæra syni og stjúpsyni
HALLDÖR JÓNASSYNT
í hans löngu legu og heiðruðu útför nans með nærveru
sinni, blómum og minningargjöfum.
Guð blessi ykkur öll í Jesú nafni.
Sigríður og Ahnar Normann.