Morgunblaðið - 19.06.1958, Side 20

Morgunblaðið - 19.06.1958, Side 20
VEDRIÐ Sunnankaldi, skýjað. — Lítils- háttar rigning með morgninum. Jarlshof á Hjalflandi Sjá grein á bls. 11. 135. tbl. — Fimmtudagur 19. júní 1958 Járniðnaðarmfínn, bifvélavirkjar, blikksmiðir og skipasmiðir boða verkfall 26. júní í GÆR tilkynntu stjórn og trúnaðarmannaráð Félags járniðnaðarmanna í Reykja- vík vinnuveitendum, að fé- lagsmenn myndu hefja verk- fall hinn 26. júní, ef ekki hef- ur áður náðst samkomulag í deilu þessara aðila Heimildin til vinnustöðvunar var veitt á félagsfundi s.l. sunnudag. I gær tilkynntu einnig Fé- lag bifvélavirkja, Félag blikk- smiða og Félag skipasmiða, að félagsmenn þeirra myndu hefja verkfall sama dag, ef samningar tækjust ekki milli þeirra og atvinnurekenda. Hafa þá alls 5 félög í Reykja- vík boðað verkfall næstu daga. □ oa Þá er þess að geta, að deilum vinnuveitenda og verkamanna- félagsins Hlífar i Hafnarfriði, svo og verkakvennafélaganna Fram- Fyrsta síldin barst til Siglufjarðar í gœrdag SIGLUFIRÐI, 18. júní. — Fyrstu síldinni sem berst hingað á síld- vertíðinni á þessu ári var land- að í dag. Var hún svo stór að hægt var að salta nokkurn hluta aflans, en hitt var fryst. Það voru sex skip sem komu með, alls um 1850 tunnur af sild voru þau þessi: Álftanes frá Hafn arfirði, sem mun fyrst íslenzkra síldveiðiskipa hafa fengið síld á vertíðinni. Var skipið með 350 tn. Faxaborg var með 300 tn., Víðir II Garði með 650, Faxavík 300, Guðmundur frá Sveins- eyri með 150 tn. og Jón Kjartans son með 100. í dag hófst söltun á þremur söltunarstöðvum hér á Siglufirði. Var það hjá Óla Hinriksen, Óla Óskars og íshúsi Óskars Halldórssonar. Fitumagn síldarinnar, sem Álftanesið kom með var 18,2% meðalvigt 377 gr. og lengd 35,7 cm. Fitumagn síldarinnar úr Faxaborg var 19,4%. í morgun lóðaði skip á nokkrar síldartorfur norður af Siglufirði milli Kolbeinseyjar og Strandagrunns. Logn og blíða er hér i dag og mikið líf hefur færzt í bæinn. á strœtisvagns- stjóra við akstur FÓLSKULEG árás var gerð á strætisvagnastjóra í fyrrinótt. Maður nokkur ætlaði að taka sér far með vagni ofan úr Hlíðum niður í bæ, og hugðist greiða fyrir farið með tíeyringi. Þegar vagnstjórinn benti honum á að hann þyrfti að greiða meira, sló maðurinn hann í andlitið. Siglufjarðarskarð fært um helgina SIGLUFIRÐI, 16. júní: — Gert er ráð fyrir því, að (okið verði snjóruðningi af fjallveginum yfir Siglufjarðarskarð á morgun, en tvær ýtur hafa unnið við þann starfa síðan um mánaðamót maí og júni. Er því óhætt að full- yrða, að vegurinn verður fær öll um bifreiðum um eða eftir næstu helgi og jeppabifreiðum nú þeg- ar. Hér er nú dimmt yfir og bræla á miðunum. Fjöldi íslenzkra og norskra síldveiðiskipa liggur í Siglufjarðarhöfn. Nokkur skip munu hafa verið á miðunum und anfarna daga, en ekki er um neina veiði að ræða. —Stefán. Horft af hrúnni AKUREYRI, 18. júní — Leik- flokkur Þjóðleikhússins hefur haft hér tvær sýningar á sjón- leiknum Horft af brúnni, og hef- ur leikurinn hlotið frábæra dóma. Síðasta sýning leiksins er annað kvöld, en héðan heldur leikflokkurinn til Siglufjarðar og hefur þar a. m. k. tvær sýningar, 20. og 21. þ, r». Þaðan fer leik- flokkurinn til ísafjarðar með Esju og mun hafa sýningar á sex stöðum víðsvegar um Vestfirði. Vagnstjórinn vildi ekki láta árásarmanninn sleppa við svo búið, og ætlaði að hafa hann með sér niður í bæ. Er komið var niður á Laugaveg sló náungi þesi vagnstjórann enn honum að óvörum þannig að hann missti stjórn á bílnum svo hann lenti þversum á götunni. Er bíllinn var stanzaður opnaði árásarmað- urinn hurðina og hljóp út. Þetta gerðist um kl. 1 um nótt- ina, og var aðeins ein kona far- þegi í strætisvagninum auk mannsins. Vagnstjórinn telur sig munu þekkja manninn, ef ef hann sér hann aftur. sóknar í Reykjavík og Framtíðar- innar í Hafnarfirði hefur nú ver- ið vísað til sáttasemjara eftir árangurslausa fundi með aðilum. =- Fundur hefur verið boðaður • verkamannafél. Dagsbrún i Reykjavík í kvöld til að ræða um samningamál félagsins. Ungverskra blaða- manna minnzt ÁÐUR en fundum á norræna blaðamótinu lauk í Alþingis- húsinu í gær báru hinn fimm forsetar þess fram svo- hljóðandi tillögu: „Ellefta norræna blaðamótið, sem haldið er í Reykjavík, lýsir yfir andstyggð og hryggð vegna aftöku tveggja ung- verskra blaðamanna, Josep Szilagy og Miklos Gimes. Þeir féllu sem fulltrúar hinna frjálsu blaða og frelsis lands síns. Við heiðrum minningu þeirra“. Ályktunin var samþykkt af öllum viðstöddum og risu mótsfulltrúar úr sætum til að minnast hinna ungversku blaðamanna. Bjargráðin í framkvœmd í GÆR tiíkynnti skrifstofa verð- gæzlustjóra að kaffikílóið myndi liæk'ka um eina krónu sextíu aura. Halfpundið hækkar því úr kr. 10.50 í kr. 10.90. í gær kom líka til framkvæmda hækkun á þvottaefni. Rinsó pakk- inn hækkar úr kr. 7.90 í kr. 9.50. Sparr, sem er sennilega mest not- aða þvottaefni hér á landi, hækk- ar úr kr. 3.75 í kr. 4.30 pakkinn. Vim ræstiduft ha*kkar úr kr. 5.30 í kr. 6.70 pakkinn. Þetta var um þvottaefnið. Þá skal þess getið að lokum að pakk- inn af Corn-tíakes hækkar úr kr. 6.55 í kr. 8.10. Kristján Kristjáns son skipstjóri látinn KRISTJÁN Kristjánsson, skip- stjóri, lézt hér í Reykjavík sl. mánudag eftir langvarandi veik- indi, tæplega 65 ára gamall. Kristján, sem ungur hóf sjó- mennsku, varð togaraskipstjóri árið 1927, er hann tók við skip- stjórn á togara, sem hét Gull- toppur, og síðar hlaut nafnið Andri. Allt fram tii ársins 1953 var hann skipstjón á togurum, sigldi t. d. stríðsárin öll á togur- um frá Kveldúlfi. Þegar nýsköpunartogararmr komu til landsins, varð hann skipstjóri á Akurey, og átti hlut að stofnun hlutafélagsins um það skip. Kristján varð að fara í land árið 1953, en þá tók heilsa hans að bila. Öll hans skip- stjórnarár voru skip hans jafnan í tölu hinna aflamestu í flot- anum. Var Kristján mikili skip- stjóri og aflamaður að sama skapi. Verður bíóunum lokað? SVO alvarlegt ástand er nú orðið í gjaldeyrismálunum að óvíst er hvort kvikmyndahúsin hér í bæn- um muni starfa í sumar. Bíóferð- ir eru sem kunnugt er ein allra ódýrasta skemmtun, sem almenn- ingi býðst, og jafnframt sú vin- sælasta. Hafa kvikmyndahúsaeig- endur tilkynnt gjaldeyrisyfirvöld- unum þá ákvörðun sína að loka bíóum bæjarins áður en langt um líður, fáist ekki viðunandi lausn. Allt þetta ár hefur verið mikl- um erfiðleikum bundið fyrir bíó- in að fá nauðsynleg leyfi og hafa leyfisveitingar fram til þessa ver- ið óverulegar miðað við lágmax’ks- þörf bíóanna. Er nú svo komið að bíóeigendur munu ekki lengur treysta sér til þess að reka við- skipti sín við hina erlendu selj- endur upp á þær spýtur að vera eilíflega í niklum vanskilum, og standa í nær vonlausu stapp' við að fá nauðynlegan gjaldeyri til kvikmynaakaupanna. Fyrir nokkru hélt félag það, sem öll bíóin hér í Reykjavík eru aðilar að, fund. Þar var samþykkt a tilkynna gjaldeyrisyfirvöldun- um að við svo búið yrði ekki leng- ur unað. Höfðu bíóeigendur gert glögga grein fyrir málinu. Að lok un. tilkynntu þeir, að ef ekki feng- ist leiðrétting á gjaldeyrismálum bíóanna, myndu eigendur neyðast til að loka þeim hinn 1. júlí n.k. Gengið á Helgafell á Jónsmessunótt FARFUGLAR efna um næstu helgi til skemmtiferðar „út í bláinn“ eins og venja þeirra hef- ir verið einu sinni á hverju sumri. Veit þá enginn fyrirfram hvert haldið verður nema fararstjór- inn. Á mánudagskvöld munu Far- fuglar svo gangast fyrir „jóns- messunæturferð" á Helgafell sunnan Hafnarfjarðar. Framhaldssaga eftir Stefan Zweig hefst í dag FRAMHALDSSAGAN, sem hefst í blaðinu í dag, heitir á frummál- ing „Angst" og er eitt af kunn- ari verkum hins fræga austur- ríska rithöfundar Stefans Zweigs. Stefan Zweig fæddist í Vínar- borg árið 1881 og hóf snemjna að kynna sér bókmenntir, enda mjög bráðþroska. Hann var ekki nema 19 ára þegar hann kom fyrst fram sem rithöfndur. Zweig ferðaðist mikið og víða, fór alla leið austur til Indlands og var jafnan opinn fyrir öllum áhrifum, eins og verk hans bera vitni um. í fyrri heimsstyrjöld- inni settist Zweig að í Sviss og hóf harða baráttu gegn hernað- arandanum. Þar hitti hann m.a. Roamin Rolland sem varð ævi- langur vinur hans og baráttufé- lagi. Rit hans „Jeremias" er mælsk ur vottur um reynslu Zweigs á styrjaldarárunum. Það vakti heimsathygli. Eftir styrjöldina settist hann að í Salzburg, en varð að fara þaðan aftur árið 1934 sökum frelsisástar sinnar. Settist hann nú að í London og safnaði þar efni í hina heims- frægu bók sína um Maríu Stúart, sem kom út 1935. Árið 1938 fór hann í fyrirlestrarför um Banda- ríkin en settist að í New York 1940. Heimsstyrjöldin síðari hafði djúptæk áhrif á hann og hann missti að lokum trúna á sigur vestrænnar menningar. Þess vegna svipti hann sig lífi ásamt seinni konu sinni 23. fe- brúar 1942 á sveitasetri sínu ná- lægt Rio de Janeiro í Brazilíu. Reit hann Getulio Vargas for- seta kveðjubréf þar sem hann gerði grein fyrir þessu örþrifa- ráði. Stefan Zweig var mjög stór- virkur rithöfundur, samdi jöfn- um höndum ævisögur, skáldsög- ur, smásögur, Ijóð, ritgerðir og fræðibækur. Frægastur hefur hann orðið fyrir ævisögur sínar, sem sumar hverjar hafa komið út í íslenzkum þýðingum, t.d. ævi- sögur Maríu Antoinettú og Maríu Stuart. Ein af sögum Zweigs var lesin í útvarpið í vetur „Amok“, og er sagan sem hefst í dag í flokki hinna svonefndu dularfullu skáldverka hans. Prcstsvígsla í Dóm- kirkjunni í dag KLUKKAN 10 árdegis í dag fer fram prestsvígsla í Dómkirkjunni. Vígir biskup cand. theol. Kristján Búason til prests í Ólafspresta- kalli. Séra Harald Sigmar, próf- essor, lýsir vígslu, en prófastarnir séra Garðar Þorsteinsson og sera Þorsteinn B. Gísiason þjona fyrir altari. Auk þeirra er víglusvottur séra Ingólfur Þorvaldsson. Hinn nývígði prestur prédikar. Klukkan 4 síðd. í dag setur biskup prestastefnuna í Kapeilu Háskólans. Hafnarstjórn fær ekki fjárfestinp- arleyfi STJÓRN Reykjavíkurhafnar sótti til fjárfestingaryfirvaldanna um leyfi til að byggja ofan á hið mikla Hafnarhús. Nú hafa þessi yfirvöld tilkynnt hafnarstjórn- inni að leyfi verði eigi veitt í þessu skyni. Á fundi hafnarstjórnar, er þetta var tilkynnt formlega, var samþykkt að halda við uppsögn á leiguhúsnæði því, sem tolL stjóraembættið hefur til umráða í Hafnarhúsinu og einnig upp- sögn húsnæðis Skipaútgerðar ríkisins, en þessum aðilum hafði verið tilkynnt um uppsögnina í marz-byrjun. Hnppdrætti Sjólistæðisflokksins DAGLEGA berast skrifstofu happdrættisins skil frá hinum ýmsu umboðsmönnum um land allt. Þeir fáu, sem enn hafa ekki greitt heimsenda miða, eru livattir til að draga það ekki lengur. Skrifstofan í Sjálfstæðishús inu er opin daglega frá kl. 9 f. h. til 5 e. h. Dregið verður á þriðudag- inn kemur, það er að segja á Jónsmessunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.