Morgunblaðið - 03.08.1958, Page 8
8
MORCVNnr 1ÐIÐ
Sunnudagur 3. ágúst 1958
l'/S/.yj
<■< ■
• • ••••• ••
•■•••■..:.■
.
5 /, " j/ j
'/:■/< y.
;
VJÍ' 5
: :
Wmmm
\ :
■ ■:
. ■.'■■
':• ••• •:
-
|!|
W /.j s - § í 1 v m M
Svipmyndir úr starfi ve rzlunarfólks
Efst til vmstri: í kjötbúðum
bæjarins er margt girnilegt á
boðstólum — hangikjöt og lax,
grænmeti og áskurður, niður-
suðuvörur og heitir réttir. —
Myndin er tekin í kjötbúðinni
Borg, og sést m. a. kaupmaður-
inn, Þorbjörn Jóhannesson. Borg
er ein af vinsælustu kjötverzlun-
um í Reykjavík, bæði meðal
þeirra, sem borða venjulegan
mat, eins og lambasteik og vínar-
pylsur og svo meðal' þeirra, sem
vilja fá sérstaklega verkaðan
mat — hákarl og annað af því
taginu.
Efst í miðju: Bóka- og ritfanga
verzlanir eru um 35 í Reykjavík.
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar í Austurstræti er þeirra
elzt. Myndin sýnir blaðaborð í
búðinni.
Efst til hægri: Nú eru 32 ár
síðan þeir Sigurliði Kristjánsson
og Valdimar Þórðarson settu upp
matvörubúðir við Baldursgötu og
í kjallara við Vesturgötu. — Nú
reka þeir 10 verzlanir, og allir
kannast við fyrirtækið Silla og
Valda. Myndin er tekin í búð-
inni í Aðalstræti, en hún er sem
kunnugt er í elzta húsi í Reykja-
vík, rúmlega 200 ára byggingu
frá tíma innréttinga Skúla fó-
geta.
Miðröð til vinstri: Þessi unga
stúlka var að koma fyrir glæsi-
í Reykjavík
legum flíkum í sýningarglugga
Markaðarins við Hafnarstræti,
þegar fréttamenn Morgunblaðs-
ins áttu leið þar um. Tízkuverzl-
anirnar í Reykjavík hafa á boð-
stólum varning frá góðum sauma
stofum í París London, Reykja-
vík og New York.
I miðju: í Blómum og ávöxt-
um var um ýmislegt að velja.
Konan á myndinni virðir fyrir
sér rósakerin, en fresíur, nellikk-
ur og gladíólur voru líka á boð
stólum.
Miðröð til hægri: Það var ekki
ástæða til að kvarta yfir fisk-
leysi á föstudaginn. Þarna gat að
líta heilan og flakaðan þorsk,
lax, rauðspettu, sjóbirting, skötu,
léttsaltaðan rauðmaga, saltaða
grásleppu, silung, gellur og kinn-
ar, skelfisk og lunda. Konan er
að skoða vænan lax.
Neðsta röð til vinstri: Frétta-
mennirnir brugðu sér upp í bæki
stöðvar Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna til að gefa lesend-
unum kost á að sjá, hvernig um-
horfs er í nýtízku skrifstofu. —•
Sölumiðstöðin seldi á sl. ári rúm-
lega 55 þús. lestir af freðfiski til
útlanda. Skipafélagið Jöklar og
Tryggingarmiðstöðin hf. eru í
tengslum við sölumiðstöðina.
Neðsta röð til hægri: Myndin
er úr Reykjavíkur Apóteki, elzta
fyrirtæki í borginni. Apótekið
var sett á stofn 1162.
Auglýsingagildi
blaða fer aðallega eltir Jes-
endafjölda beirra. Ekkert
hérlent blaf Kem þar 1
námunda við
Framkvœmdastjóri
óskast fyrir fyrirtæki, sem hefur mikil erlend .og inn-
lend viðskipti. Góð launakjör. Fullri þagmælsku heitið.
Þeir, sem áhuga kynnu að hafa á starfinu, sendi nöfn
sín og upplýsingar á afgreiðslu blaðsins fyrir hádegi á
miðvikudag n.k. merkt: „Framkvæmdastjóri — 4052“.