Morgunblaðið - 03.08.1958, Page 9
Sunrvudagur 3. ágúst 1958
M On CVMrtr iOlÐ
9
Kappreiðar á Kjalarnesi
J
REYKJUM, 1. ágúst. — Hesta-
mannafélagið Hörður gengst fyr-
ir kappreiðum sunnudaginn 10.
ógúst n.k. Verða þær háðar á
velli félagsins við Arnarhamar
á Kjalarnesi. — Félagsmenn
Harðar eiga nokkra úrvalshesta
og má þar nefna Gnýfara Þor-
geirs í Gufunesi og Garp Jó-
hanns í Dalsgarði, en þeir skip-
uðu 1. og 2. sætið í 400 m á lands-
mótinu og hlupu báðir á 30,2 sek,
sem er mjög góður tími. Nú mæt-
ast þeir aftur og að þessu sinni
á 350 m., en þar er Gnýfari tal-
inn sigurstranglegri, en e'ngu skal
spóð um úrslitin, því báðir eru
miklir hlaupagammar.
Stjórn Harðar hefur í hyggju,
að mæla og lagfæra völlinn sér-
staklega, en á honum hafa náðst
mjög góðir tímar. Nú gera menn
sér vonir um íslandsmet, t.d. í
þessu hlaupi. Þá er tekin upp
sú nýlunda, að hafa sérstakan
flokk í skeiði, þar sem atrennan
er 100 m. Er nú heimilt að haga
því svo, enda samþykkt á síðasta
landsþingi L.H. og gekk í gildi
um síðustu áramót. í þetta hlaup
er einkum búizt við ungum
óþekktum hrossum, t.d. er til
jörp tryssa á Laugabóli, fleygi-
vökur, undan Hreini frá Þverá.
í skeiði með venjulegu fyrir-
komulagi má búast við, að Gull-
toppur Jóns í Varmadal og Nasi
í Gufunesi hafi hug á að sigra
Kolskegg og borga þannig fyrir
sig frá landsmótinu.
Vonandi fær maður að sjá alla
þessa hesta þarna, en eins og
kunnugt er, mega allir félags-
KVIKMYNDIR *
Fjörugir fimmburar
I ÞESSARI frönsku gamanmynd,
sem sýnd er í Trípólíbíói, hittum
við fyrir gamlan og góðan kunn-
ingja, snillinginn Fernandel, sem
lengi mun mönnum minnisstæður
fyrir frábæran ieik í myndinni
Don Camillo, sem sýnd var hér
fyrir nokkrum árum. — I þessari
nýju mynd er Ferandel hvorki
meira né minna en sexfaldur í
roðinu, því að hann er ekki að-
eins fimmburi heldur fimmburar
og fer auk þess með hlutverk
gamla mannsins, föður hinna
gjörvilegu sona. — Föðurgleði
þessa sómamanns hefur að vísu
frá því fyrsta verið af skornum
skammti, því að ríkið sló eip.n
sinni á fimmburana þegar við
fæðingu þeirra og tók þá frá for-
eldrunum í „vísindalegt" fóstur,
rétt eins og gert var við fimm-
burasysturnar amerisku forðum.
En auk þess hafði gamli maður-
inn verið að vonast eftir dóttur,
þegar þessir fimm náungar rudd-
ust inn í tilveruna samtimis og
það gat sá gamli aldrei fyrirgefið
þeim. — Þegar myndin hefst eru
fimmburarnir um fertugt og
dreifðir hingað og þangað við
hin ólíkustu störf og lífskjör. —
Hinir vísu feður fæðingarþorps
þeirra hafa nú ákveðið, til þess
að örva ferðamannastrauminn til
þorpsins, að efna til mikils fagn-
aðar í tilefni fertugsafmælis
fimmburanna og tekst eftir langa
leit að hafa uppi á þeim ölh.im
Kynnumst við nú nokkuð högum
bræðranna, en sú saga verður
ekkj rakin hér. Einn bræðranna
er þó sérstök ástæða til að minn_
ast á, því að hann er þorpsprest-
ur og hálförvilnaður út af því
að sóknarbörn hans láta hann
óspart heyra margs konar hað-
glósur vegna þess hversu líkur
hann er presti éinum í ítalskri
kvikmynd, sem er jafnvígur á
knattspyrnu og handalögmál! —
Mynd þessi er skemmtileg og
vel leikin. Er einkum frábær
leikur Fernandels, sem fæt- þarna
óvenjulegt tækifæri til að sýna
fjölhæfni sína og hin margvíslegu
og skoplegu svipbrigði, sem hann
er írægur fyrir.
Ego.
menn L.H. reyna hesta sína á
þessum kappreiðum. — J.
Sigfús Kröyer
fimmtugur
FIMMTUGUR er í dag Sigfús
Kröyer, verzlunarmaður hjá K.
Einarsson og Funk. Sigfús er
Austfirðingur að ætt, eins og
nafnið bendir til, fæddur að
Vífilsstöðum í Hróarstungu. 3.
ágúst 1908. Voru foreldrar hans
Guðný Sigfúsdóttir og Þorvaldur
Kristjánsson Kröyer. Ungur flutt
ist Sigfús hingað til Reykjavíkur
og hefur nú um áratugi unnið hjá
sama fyrirtækinu og er því orð-
inn vel þekktur fjölda manna í
byggingariðnaði bæjarins.
Sigfús er maður orðheldinn og
áreiðanlegur, svo að hverju orði
hans er óhætt að treysta, Er hann
því gæddur einum bezta kosti
góðs verzlunarmanns.
Sigfús er kvæntur hinni ágæt-
ustu konu, Díönu Karlsdóttur frá
Djúpavogi. Þau eiga þrjár dætur
og einn son. Þeirra ánægjulega
gestkvæma heimili er á Kirkju-
teigi 5. En ekki verður vinum
þeirra og frændum kápan úr því
klæðinu að heimsækja húsbónd-
Úr fatadeild verzlunarinnar Geysis.
I verzluninni ,,Geysi
Í44
ann á þessum hans heiðursdegi,
því að nú eru þau hjónin stödd
austur á Fáskrúðsfirði hjá dóttur
sinni og tengdasyni. Við vinir
þeirra verðum því að láta okkur
nægja að senda þeim skeyti með
heillaóskum og þakklæti fyrir
vináttu margra ára.
G .B.R.
Sutidmeistaramó t
Akureyrar liáð
5.-6. ágúst
AKUREYRI, 1. ágúst — Sund-
meistaramót Akureyrar verður
háð þriðjudaginn 5. og miðviku-
daginn 6. ágúst. Hefst það kl. 8
e. h. í Sundlaug Akureyrar.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum: 100 metra skriðsundi
karla, 400 m skriðsundi, 100 m
bringusundi, 200 m bringusundi,
50 m baksundi, 4x50 m frjálsri
aðferð, 50 m skriðsundi drengja.
I kvennagreinum verða keppnis-
greinar þessar: 50 m skriðsund,
100 m skriðsund, 200 m skrið-
sund, 100 m bringusund, 200 m
bringusund, 50 m baksund, 400
m baksund, 4x50 m frjáls aðferð,
50 m skriðsund telpna og 50 m
bringusund telpna.
Helga Haraldsdóttir frá Rvik
mun á mótinu gera tilraun til
að setja íslenzkt met í 400 m
baksundi. — Hún hefur þjálfað
sundfólk Akureyrar sl. þrjár vik
ur. Ríkir nú mikil bjartsýni í
sundmálum Akureyringa.
SAGION, 2. ágúst. — Reuter. —
Stjórn Suður-Vietnam viður-
kenndi í dag hina nýju stjórn
íraks.
í TILEFNI af hátið verzlunar-
manna heimsóttu fréttamenn frá
Morgunblaðinu nokkur fyrirtæki
í Reykjavík fyrir helgina. Ljós-
myndari blaðsins tók þá myndir
þær, sem hér birtast.
Myndirnar á þessari síðu eru
teknar í verzluninni Geysi. —
Fréttamennirnir lituðust þar um
innanveggja, komu fyrst í skrif-
stofuna, þar sem fjallað er um
vörupantanir, umsóknir til banka
og innflutningsyfirvalda o. s. frv.
Síðan var farið í vörugeymslurn-
ar, þar sem nælónkaðlar og sjó-
stakkar, vindsængur, hattar,
blikkfötur, verkfæri, peyjur,
sokkar, úlpur og vaðstígvél eru
geymd ásamt öðrum nytsömum
og fallegum varningi. Og loks lá
leiðin upp í sölubúðirnar sjálfar,
Á horninu, þar sem Aðalstræti,
Hafnarstræti og Vesturgata mæt-
ast er gengið inn í fatnaðardeild-
ina. Er hún í stóru húsnæði með
nýtízku sniði og á boðstólum eru
hvers konar fatnaðarvörur fyrir
karlmenn og börn. í veiðarfæra-
deildina er gengið inn frá Vest-
urgötunni og auk netja og færa
má þar fá verkfæri ýmiss konar,
teppi, dregla og margt fleira.
Verzlunin Geysir var stofnuð
haustið 1919 og var til húsa í
Hafnarstræti 1 í 36 ár, en var síð-
an flutt yfir götuna. Fyrst var ein
göngu verzlað með veiðarfæri,
en fötum var bætt við árið 1927.
Var fyrst miðað við að hafa á
boðstólum varning, sem sérstak-
lega hentar sjómönnum, en nú
fara menn í Geysi til fatakaupa,
hvaða starf sem þeir stunda —
hvort sem þeir eru kokkar og
þUrfa hvíta húfu, smiðir, sem
þurfa góðan „galla“, skrifstofu-
menn, sem þurfa sterk jakka-
föt eða ungir menn, sem þurfa
að ganga í augun á kvenfólkinu.
— Forstjóri fyrirtækisins er einn
af stofnendum þess, Kristinn J.
Markússon, sem allir bæjarbúar
þekkja undir nafninu Kristinri í
Geysi.
Frá Geys!. Kristinn J. Markússon og starfsfólk í skrifstofu
verzlunarinnar.
Vantar yður kolanet með blýstreng? — tJr veiðarfæradeild Geysis.