Morgunblaðið - 03.08.1958, Blaðsíða 20
1
íslenzka semenfið kemur
ámarkaðinn í þessari viku
Byrjað að mala sementsgjallið á Akranesi
DR. Helgi Tómasson, yfirlæknir
á Kleppi, andaðist í fyrrinótt á
heimili sínu 61 árs að aldri.
Hann hafði átt við vanheilsu að
stríða um nokkurra mánaða
skeið. Þó hafði hann gengið til
starfa á sjúkrahúsinu daginn
áður en hann lézt.
Dr. Helgi var þjóðkunnur
maður fyrir læknisstörf sín og
vísindaiðkanir, svo og þátttöku í
ýmsum félagsmálum.
Landsliðið mætir
>[pressu"-liðinu
á þriðjudag
Á ÞRIÐ JUDAGSKV ÖLDIÐ kl.
8,30 hefst leikur landsliðsins og
„pressu“-liðsins á Laugardals-
vellinum. Engin forföll hafa ver-
ið boðuð svo liðin verða eins
skipuð og þau voru tilkynnt hér
í blaðinu á föstudaginn og þegar
rætt var um þau í laugardags-
blaðinu.
Þetta verður síðasta æfingin
fyrir landsleikinn við íra 6 dög-
um síðar og eftir þennan leik
verður landsliðið sem mætir
írsku atvinnumönnunum endan-
lega valið.
AKRANESI, 2. ágúst — Á föstu-
daginn var sementskvörnin sett
í gang í smentsverksmiðjunni og
byrjað að mala sementsgjallið. Er
þá náð hinu langþráða takmarki
að byrjað er að búa til íslenzkt
sement, og mun það koma á
markaðinn upp úr helginni eða
í næstu viku.
Fremur litlar sementsbirgðir eru
til í landinu og segja forráða-
menn verksmiðjunnar að þeim
muni takast að fullnægja sements
þörf þjóðarinnar upp frá þessu.
Ágætlega hefur gengið að fram-
leiða sementsgjallið, sem numið
hefur 305 lestum á sólarhring og
fer það langt fram úr áætlun.
Örlítið hefur borið á vöntun á
rafmagni, en bót verður ráðin á
því þar sem loforð er fengið fyr-
ir að háspennulínan frá Sogs-
virkjun verði tilbúin í næstu
viku.
Pökkun á sementinu hefst eftir
tvo daga og verður það þá þegar
sent á markaðinn.
Ef allt gengur að óskum mun
verksmiðjan framleiða 400—500
lestir af sementi á sólarhring.1
íslenzka sementið kvað standast
fyllsta samanburð við sement
annarra þjóða, enda segir dr. Jón
Vestdal, að hráefnin sem notuð
eru séu eins góð og frekast verð-
ur á kosið.
Piltur slasast
á Akranesi
AKRANESI, 2. ágúst — Það
gerðist í Sementsverksmiðjunni í
kaffitímanum um miðjan daginn
í gær, að Björn Ingvarsson, ung-
lingspiltur úr Reykjavík, ætlaði
að flýta fyrir sér, greip í kaðal
er lá niður með sementsgeymin-
um og lét sig renna niður úr
10—12 m hæð. Áður en hann náði
til jarðar, missti hann af kaðlin-
um og féll. Marðist hann á baki
og fótum. —Oddur.
Cífurlegur sfraumur
ferðafólks út úr bcenum
VERZLUNARMANNAHELGIN
hefur jafnan verið mikil ferða-
mannahelgi og að þessu sinni
mun fólksstraumurinn út úr
Reykjavík sennilega meiri en
nokkru sinni fyrr. Góða veðrið
lokkar út í náttúruna. Hundruð
og þúsundir fólks hafa flykkzt
út úr bæjunum til að njóta sum-
arblíðunnar á fjöllum og í ó-
byggðum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Ferðaskrifstofu ríkisins og Ferða
félagi íslands, var naumast hægt
að anna eftirspurnum fólks eftir
ferðum um helgina — allir bílar
yfirfullir. Stærstur er hópurinn
sem fer í Þórsmörk — mörg
hundruð manns, en einnig fara
stórir hópar í Landmannalaug-
ar, Hveravelli og Kerlingaríjöll,
austur í Skaftafellssýslu og vest-
ur í Stykkishólm og Breiðafjarð-
areyjar. Og víðar og víðar munu
hamingjusamir ferðalangar gista
fagra staði íslenzkrar náttúru
um þessa helgi.
Esja í Vestmannaeyjum
I gær eftir hádegið sigldi Esja
úr Reykjavíkurhöfn í skemmti-
för til Vestmannaeyja með fjölda
fólks. Var áætlað að hún kæmi
til Eyja undir miðnætti í gær
kvöldi og kæmi aftur til Reykja-
víkur kl. 7 á þriðjudagsmorgun.
Þá tvo daga, sem staðið verður
við í Eyjum býr ferðafólkið og
matast um borð í skipinu. Þá er
og ráðgerð skemmtisigling kring-
um Eyjarnar — og er búizt við,
að allmargir Vestmannaeyingar
muni þá slást í hópinn.
Með næsta vori verður tekjð
til við að dæla upp skeljasandi
úti á Sviði, en eins og er, á verk-
smiðjan nægan skeljasandsforða
til að vinna úr í heilt ár. Um
300 manns hafa verið í starfi hjá
verksmiðjunni undanfarið.
—Oddur.
Eiðahátíð um
næstu lielgi
MIKIL hátíðahöld verða að Eið-
um n.k. sunnudag í tilefni af 75
ára afmæli skólans.
Verður þar skólasýning, afmæl
isins minnzt i ræðum og út kem-
ur Eiðasaga eftir Benedikt Gísla-
son.
Ferð verður úr Reykjavík á
hátíðina frá ferðaskrifstofu Páls
Arasonar, ef nægileg þátttaka
fæst fyrir þriðjudagskvöld.
Söngskemmtun
á Raufarhöfn
RAUFARHÖFN, 2. ágúst. — í
fyrrakvöld hélt ítalinn Vincenzo
emetz söngkennari í Reykja-
vík söngskemmtun hér á
Raufarhöfn við ágætan undir-
leik Marenar Gísladóttur, en
hún er nemandi í pípuorgel-
leik. Kynnir var Róbert Arnfinns
son leikari, sem vinnur hér í
síld. Var söngvaranum vel tekið
og gerður góður rómur að söng
hans. — Fréttaritari.
KRISTJANA Ingimundardóttir
Sandgerði verður 55 ára mánu-
daginn 4. ágúst.
Frá þjóðhátíðinni i Eyjum í fyrra.
Undirbúningi að Þjóð-
hátíð í Eyjum senn lokið
UNDIRBÚNINGUR að Þjóðhátíði teljast. Flugfélag fslands býst við
Vestmannaeyja stendur nú sem
hæst. Er öllum meiri háttar verk-
um að verða lokið, en eftir er
að leggja síðustu hönd á verkið
með því að skreyta Herjólfsdal,
koma upp ljósum o. fl. er til
augnayndis og hátíðarbrigða má
Meisfaramót Norður-
lands í frjálsum íþróttum
AKUREYRI, 2. ágúst — Um
helgina, 9. og 10. ágúst nk., verð-
ur háð hér á Akureyri hið árlega
meistaramót fyrir Norðurland í
frjálsum íþróttum. Búizt er við
mjög mikilli þátttöku.
Keppnin hefst á laugardag kl.
2 og verður þá keppt í eftirtöld-
um greinum: 100 m hlaupi, 1500
m hlaupi, 1000 m boðhlaupi, þrí-
stökki, kringlukasti, hástökki
karla karla og kvenna og 80 m
hlaupi kvenna.
Á sunnudag hefst keppni fyrir
hádegi í 110 m grindahlaupi og
langstökki karla og kvenna. Eftir
hádegi verður keppt í 400 m
hlaupi, 3000 m hlaupi, 4x100 m
boðhlaupi karla og kvenna,
stangarstökki, spjótkasti, kúlu-
varpi og kringlukasti kvenna.
Ungmennasamband Eyjafjarð-
ar sér um mótið. — Mótsstjóri
verður Ingimar Jónsson, Akur-
eyri. — Mag.
1 sýningarglugga Morgunblaðsins verður um helgina stækkuð vetrarmynd af Esjunni, tekin af
Ijósmyndara blaðsins. Myndin er tekin á Medalist II ljósmyndavél og á infrarauða filmu. Hún
er stækkuð frá 6x9 sm stórri filmu upp í 127x254 sm. Drengurinn heldur í vinstri hendi á upp-
runalegu myndinni.
miklum fólksflutningum til Eyja
og gerir sérstakar ráðstafanir til
þess að geta annað flutningi fó#ks
þangað um næstu helgi.
Blaðamenn Reykjavíkurblað-
anna skruppu til Eyja í gærmorg-
un í boði Flugfélagsins. Sýndu
þeir Valtýr Snæbjörnsson form.
Þórs og Stefán Runóifsson gjald-
keri félagsins þeim undirbúning
er gerður hefur verið vegna há-
tíðarinnar en hann hófst 5 júlí.
Þeir tveir bera hita og þunga
undirbúningsins, en Þór stendur
að hátíðinni og hyggst félagið
reyna að vanda sig sem mest í því
efni ekki sízt vegna þess að fé-
lagið verður 45 ára á þessu ári.
Herjólfsdalur heilsaði í gær
votum augum, en þó hlýlega. Þar
hefur verið komið upp danspöil-
um, hliðum á tjaldgötur, allt tré-
verk t. d. brú á tjörnina o. fl.
málað skrautlitum. Á Fjósakletti
er stór bálköstur ti'búinn til
brennu. Eftir eru skreytingar sem
fyrr segir m. a. ljósskreyting á
taug sem strengd er yfir dalinn
milli Blátinds og Molda.
Þjóðhátíðin hefst með guðs-
þjónustu kl. 2 nk. íöstudag og
þann dag verða íþróttir og
skemmtun um kvöldið sem lýkur
með brennu. Á laugardag hefst
hátíð á ný kl. 2 með alls kynns
skemmtunum, t. d. bjargsigi og
varðeldi skáta. Báða daga er
dansað til kl. 4 um nóttina á
tveim pöllum. Hátíðinni lýkur á
sunnudag.
Þjóðhátíðin var fyrst haldin
1874 er Eyjaskeggjar komust ekki
til lands til þátttöku í þjóðhálíð-
inni 1874. Efndu þeir þá til eigin
hátíðar og hafa svo gert hvert ár
síðan að undanskildum 2 árum í
fyrri heimsstyrjöldinni. Þetta gr
því 82. árið sem Þjóðhátíð Vest-
mannaeyja er haldin. Mikill
fjöldi aðkomumanna er þar
æ, og fjölgar með ári hverju
vegna bættra samgangna. Flug-
félagið flutti í fyrra nær 2000
manns þangað, þar af nær 1000
manns á einum degi. Allir kom-
ust sem vildu og er takmark
Flugfélagsins að svo verði áfram.
VEÐRIÐ
Norðaustan gola eða kaldi,
léttskýjað með köflaim.
174. tbl. — Sunnudagur 3. ágúst 1958
Reykjavíkurbréf
Sjá bls.'ll.