Morgunblaðið - 09.11.1958, Blaðsíða 1
24 siður
Hussein í hjóna-
bandshugleiðingum?
AMMAN, 8. nóv. (Reuter). —
Undanfarið hefur gengið orðróm
ur um það, að Hussein Jórdaníu
konungur sé í hjónabandshug-
leiðingum. í dag var tilkynnt, að
hann væri að fara í þriggja vikna
leyfi til Svisslands, „sér til
heilsubótar“.
I fjarveru hans mun þriggja
manna ráð gegna störfum kon-
ungs.
Þegar heimildarmenn, sem eru
nátengdir konungsfjölskyldunni,
voru inntir eftir því, hvort kon-
ungurinn, sem er 23 ára gamall,
hefði í hggju að kvænast ungri
prinsessu frá írak, var svarið:
„Það er ekki útilokað, að ást sé
í spilinu".
Hussein konungur hefur verið
fjarvistum við konu sína Dínu,
sem nú dvelst í Kaíró, í rúm tvö
ár.
Það er haft eftir góðum heim-
ildum í Lausanne, að Hussein
hafi augastað á 18 vetra prins-
essu, Khuzima að nafni, en hún
er dóttir Rajihu prinsessu og
hershöfðingja í írak. Það er tal-
ið öruggt að Khuzima muni
koma í fjölskyldúboð hjá kon-
ungi þegar hann á afmæli í næstu
viku.
í konunglegri tilskipan, sem
Frh. af bls. 2.
Lögreglan i Jóhannesarborg í Suður-Afríku er ekki vönd að meðulum þegar hún þarf að fá blökku-
konur til að fara yfir götuna. Á dögunum voru 335 blökkukonur ákærðar fyrir að hafa valdið
óspektum 21. október s.l., og í tilefni af réttarhöldunum höfðu nokkrar kynsystur þeirra safnazt
saman fyrir utan dómshúsið. Lögregluþjónarnir hófu þegar ákafa barsmíð með kylfum sínum og
krumlum, og til að eiga ekkert á hættu beittiu þeir líka táragasi. Enda fór svo að þeim tókst
að hrekja konurnar á flótta.
Information segir:
Lúðvík kom Patursson til hjálpar
með tylliloforðum
Þriðja tunglflaug Banda
ríkjamanna eyddist
KAUPMANNAHÖFN, 8. nóv. —
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
— Ekki er búizt við úrslitum lög-
þingskosninganna í kvöld. —
„Information“ segir í dag, að úr-
slitanna sé beðið með óvenju-
mikilli eftirvæntingu.
Fyrir tveim mánuðum gerðu
menn yfirleitt ekki ráð fyrir, að
lögþingskosningarnar yrðu kosn-
ingar um samband Danmerkur
og Færeyja, en á kosningadaginn
voru menn á öðru máli.
Sennilega fær hvorki Sam-
bandsflokkurinn né Þjóðveldis-
flokkurinn meirihluta, en talið
er víst, að báðir vinni þessir
flokkar á í kosningunum, þótt
ekki verði um mikla aukningu að
ræða.
LONDON, 8. nóv. Reuter—Tveir
vísindamenn skýrðu frá því í dag,
að skozkir hirtir hefðu fengið
geislavirk horn vegna'geislamagn
aðs ryks af völdum vetnisspreng-
inga.
Vísindamennirnir, John Hawt-
horn prófessor og dr. Ronaid B.
Duckworth, báðir frá Glasgow,
sögðu frá því í vikulegu vísinda-
tímariti, að hluti af horni, sem
tekið var af hirti er skotinn hafði
verið á eyju undan austurströnd
★--------------------------★
Sunnudagur, 9. nóvember.
Efni blaðsins er m.a. :
Bls. 3: Sr. Guðm. Guðmundsson.
Guð og keisarinn.
— 6: Bókaþáttur: Ofsóttir höfundar
(s-a-m).
— 8: F'ólk í fréttunum. Skákþáttur.
—■ 12: Ritstjórnargreinin nefnist:
Ótrúlegt ábyrgðarleysi. Presley
og Pat Boon drekka aðeins
mjólk (Utan úr heimi).
— 13: Reykjavíkurbréf.
— 15 og 16: Lesbók barnanna.
★--------------------------★
Hugsanlegar breytingar
Breytingar á hlutföllum flokk-
anna gætu hins vegar leitt til
þess, að grundvöllur fengist fyrir
stjórnarsamvinnu Þjóðveldis-
flokksins, Fólkaflokksins og
Sósíaldemókrata. Það mundi
sennilega leiða til harðari sjálf-
stæðisbaráttu, en hins vegar
mundi það binda hendur Erlend-
ar Paturssonar.
Krafan um sambandsslit ekki
eins eindregin
Krafan um sambandsslit virð-
ist ekki eins eindregin og áður.
Blaðið bendir á þau ummæli
Paturssonar, að Færeyingar geti
fengið sérréttindi innan fiskveiði
takmarka íslands, ef þeir vísi á
Skotlands, hefði verið svo geisla-
virkur, að hann tók mynd af
sjálfum sér á röntgenfilmur.
Vísindamennirnir sögðu, að
hornin af hirtinum sem var skot-
inn í fyrra, hefðu að geyma ellefu
sinnum meira magn af geisla-
virku Strontium en horn á hjört-
um, sem skotnir voru á sömu
slóðum árið 1952.
Þeir sögðu ennfremur, að
Strontium 90, sem sezt að í bein-
um allra manna og dýra er
gleypa geislavirkt ryk, hefði eink
um safnazt í horn hjartans vegna
þess að þau vaxa svo ört.
Ennfremur er þess að gæta að
villtir hirtir halda sig einkum á
hásléttum þar sem mikið magn
af regni leiðir af sér meira magn
af geislavirku ryki en víða ann-
ars staðar.
Dagsbrúnoglðja
tefla í dag
í DAG kl. 2 e. h. munu félagar
í Dagsbrún og Iðju halda skák-
mót í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu. Verður þar teflt á 30 borð-
um. Öllum er heimill aðgangur.
bug samningum við Breta. Bend-
ir blaðið á, að í kosningabarátt-
Framh. á bls. 2.
Einar Blechingberg — njósn-
aði fyrir Pólverja
Kaupmannahöfn, 8. nóv. —
NÁKVÆMLEGA hálfu ári eftir
að Einar Blechingberg, starfs-
maður í utanríkisþjónustu Dana,
var handtekinn fyrir að lána
leyniskjöl sendiráðsins í Bonn.
sendi ríkissaksóknarinn, H. OI-
afsson, dómsmálaráðuneytinu á-
kæruskjalið. Hækkerup, dóms-
málaráðherra, mun síðan skera
úr því, hvernig málsókninni gegn
Blechingberg skuli hagað.
Ekki er búizt við að ráðherr-
ann geti lagt fram úrskurð sinn
fyrr en eftir svo sem tvær vik-
ur, þar eð málið er mjög víð-
tækt. Sérfræðingar dómsmála-
ráðuneytisins munu fara vand-
lega yfir ákæruskjalið, og auk
þess mun Jens Otto Krag utan-
ríkisráðherra leggja fram sín
sjónarmið.
16 ár eða lífstið
Þar sem Blechingberg hefur
LONDON, 8. nóv. — Reuter. —
Moskvu-útvarpið sagði í dag
stuttlega frá þriðju misheppnuðu
tilraun Bandaríkjamanna til að
senda eldflaug til tunglsins. —
Síðast í fréttatíma sinum sagði
það frá því, að eldflauginni hefði
verið skotið á loft, en síðan hefði
hún eyðzt. Eftir að þulurinn
hafði lesið fréttina sagði hann:
„Eldflaugin komst aðeins í 3534
kílómetra hæð. Eins og kunnugt
er, mistókust líka tvær fyrri til-
„Monty44 gengur
ekki á hólm
LONDON, 8. nóv. — Eins og
skýrt var frá í fréttum, skoruðu
tveir ftalir Montgomery mar-
skálk á hólm fyrir ummæli hans
um ítalska herinn í endurminn-
ingum hans.
Montgomery, lem er kominn
til ára sinna, hugsar sér ekki að
verða við áskoruninni. Hann
sagði í gær: Ég á ekki einu sinni
skammbyssu lengur. Og auk þess
held ég að einvígi séu bönnuð
í Englandi. Jafnskjótt og hin
formlega áskorun berst mér, ætla
Iég að setja hana í gler og ramma
og festa hana upp á vegg hjá
mér.
játað flestar þær sakir, sem á
hann voru bornar, er búizt við
að farið verði með málið sem
svokallað „játninga-mál“. Það
verður tekið fyrir í borgarrétti.
Blechingberg verður ákærður
fyrir njósnir í þágu erlends rík-
is og getur þá hlotið allt að 16
ára fangelsi, sé farið eftir fyrstu
grein laganna um njósnir, en lífs-
tíðarfangelsi sé farið eftir ann-
arri grein þeirra, en þar er fjall-
að um njósnir sem stofna öryggi
föðurlandsins í hættu. Dómsmála
ráðherrann sker úr því, undir
hvora grein hegningarlaganna
mál Blechingbergs komi.
Ekki hefur enn verið látið
neitt uppi um það, fyrir hvaða
land Blechingberg stundaði
njósnir en góðar heimildir
herma að hann hafi staðið í sam-
bandi við pólsku njósnaþjónust-
una.
raunir Bandaríkjamanna til að
senda eldflaug til tunglsins, sú
fyrri 16. ágúst, sú síðari 11. okt.“
Brezkir og bandarískir vísinda-
menn í risastjörnuturninum í
Jodrell Bank komu sem snöggv-
ast auga á eldflaugina, áður en
hún brann til agna yfir Mið-
Afríku austanverðri.
Radíókíkirinn í Jodrell Bank
náði sambandi við eldflaugina
13 mínútum eftir að henni var
skotið á loft frá Cape Canaveral
í Flórída, en missti aftur af henni
nokkrum mínútum síðar.
A. C. B. Lovell prófessor, yfir-
maður stjörnuturnsins í Jodrell
Bank, sagði að eldflaugin hefði
birtzt þremur mínútum of seint,
svo greinilega hefðu orðið ein-
hver mistök í sambandi við send-
ingu hennar.
Listkynning Mbl.
UM þessa helgi hefst sýning á
málverkum eftir Jóhann Briem í
sýningargluggum Morgunblaðs-
ins. —
Óþarfi er að fara mörgum orð- !
um um listamanninn Jóhann
Briem. Hann hefur um langt
skeið verið landskunnur málari
og staðið framarlega í félagsskap
listmálara.
Að þessu sinni sýnir hann 8
olíumálverk, er hann hefur mál-
að á þessu ári. Myndirnar heita:
Blágrýti, Grámann, Á heimleið,
Grindverk, Gult tungl, í hlað- i
varpanum, Stelpa að gefa hænsn-
um og Blágrýti.
Myndirnar eru allar til sölu.
Strontium 90 í hjartar
hornum
*>---------------
i Danski njósnarinn Blechingberg
hefur játað á sig sakir.