Morgunblaðið - 09.11.1958, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.11.1958, Blaðsíða 2
2 IUORCI’TSBLAÐIÐ Sunnudagur 9. nðv. 1958 „Asymmetrisk44 bílaljós lögleidd hér? ASYMMETRISK lágljós fyrir bíla, ryðja sér nú til rúms í Evrópu. Er mikill munur á ljósi þessu og vanalegu bílljósi. í síð- asta blaði Bindindisfélags öku- manna: „Umferð“ er ýtarleg grein um þessi nýju bílljós og myndir til skýringar. Segir blaðið að búast megi við að ljós þessi verði lögleidd hér sem annars staðar og getur þess „að ljós þessi myndu verða ein með meiri endurbótum í sam bandi við umferð hér‘‘, í>á eru í blaðinu ýmsar fróð- legar greinar og má nefna: Hætt- ur skammdegisumferðarinnar. „Að kaupa gamlan bíl“ heitir önnur. Þá eru fróðleiksmolar um umferðar- og öryggismál, grein um tilgang Bindindisfél. öku- manna og sitthvað fleira. Þetta er 3. tbl. af „Umferð". — Hussein Frh. af nls. 1. gefin var út í dag, var sagt, að ráðið sem fer með völd konungs að honum fjarverandi, sé skipað þessum mönnum: Said el Mufti, fyrrverandi forsætisráðherra, AIi Mismar forseta hæstaréttar Og Mohammed Amin Shanqrti dómara í hæstarétti. í tilskipun- inni, sem er undirrituð af Huss- ein, segir að „ráðið skuU takast hans“. á hendur öll réttindi konungs önnur en þau að breyta stjórnar- skránni, gera samninga eða stað- festa þá, vikja forsætisráðherra frá eða taka við lausnarbeiðni Tvær tilkynningar Tilkynningin um brottför Husseins var hin önnur í röðinni í þessari viku. Fyrir þremur dög- um sagði upplýsingamálaráðherr- ann, Abdul Monim Rifai, að kon- ungurinn mundi fara til Evrópu og sennilega heimsækja móður sína, Zein drottningu, í Lausanne Hann sagði ennfremur, að för konungs væri merki þess, að komið væri jafnvægi og festa í innanríkismál Jórdaníu. Áhætta Stjórnmálafréttaritarar líta hins vegar svo á, að með för sinni sé Hussein að gera vel yfir- vegaða tilraun. Hann vilji kom- ast að raun um, hvernig ástand- ið í Jórdaníu raunverulega sé, og ef hann komi aftur að öllu óbreyttu í landinu, þá hafi hann unnið pólitiskan sigur. Flýgur sjálfur Hussein mun fljúga vél sinni sjálfur hluta af leiðinni, en ekki hefur verið látið neitt uppi um það, hvaða leið hann muni fara. Flugferðir yfir Sýrland hafa nú hafizt að nýju, og kynni hann að fara yfir þetta land, enda þótt það sé ekki í stjómmálasambandi við Jórdaníu, fremur en fljúga lengri leið. Þegar Hussein er farinn frá Jórdaniu verðar enginn fulltíða meðlimur konungsfjölskyldunnar eftir í landinu. Auk Zein drottn- ingar em Mohammed krónprins og aðrir meðlimir konungsfjöl- skyldunnar í Evrópu. Dagskrá Alþingis FUNDIR eru boðaðir í báðum deildum Alþingis á morgun. Á dagskrá efri deildar er eitt mál, útflutningur hrossa. Það er til þriðju umræðu. Tvö mál eru á dagskrá neðri deildar. Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þingsköp Alþingis er til 1. umr. og frum- varp til laga um skemmtana- skattsviðauka. 1959 er einnig til 1. umr. í dag er merkjasöludagur Blindrafélags íslands og rennur ágóðinn til byggingar Blindraheim- ilisins, sem nú er að rísa á mótum Hamrahlíðar og Stakkahlíðar. Ðúsið á að verða 3 hæðir og kjallari. Á tveim efstu hæðunum verða vistarverur blindra, á neðstu hæð vinnusalir, sölubúð og skrifstofa, en í kjallara vinnuvélar og birgðageymsla. Myndin var tekin fyrir skömmu, þegar búið var að steypa upp kjallara og fyrstu hæðina. Nú er hins vegar búið að steypa 2. hæð og vonir standa til þess, að hægt verði að koma húsinu undir þak fyrir áramót. Svipfur ökuleyfi œvilangt með Hœstaréttardómi „Varhugavert með tilliti til öryggis umferðarinnar að hann hafi ökuleyfi" HÆSTARÉTTI í HÆSTARETTI er genginn dómur í máli, er ákæruvaldið höfðaði gegn bílstjóra einum, Gissuri Karli Guðmundssyni, Vatnsendabletti 63. í Hæstarétti var dómur undirréttar staðfest- i um undirréttar: keyrslunni án þess að gefa nokk- urt merki um það, né huga nægi- lega að umferðinni um götuna að baki sér. Síðan segir orðrétt í forsend- ur, er svipti manninn ökuleyfi ævilangt. Það sem olli svo þung- um dómi, var ökuferill Gissurar Karls sem bifreiðastjóra. Málið var höfðað gegn honum vegna umferðarslyss er varð á gatnamótum Rauðarárstígs og Flókagötu í marzmánuði 1957. Drengur að nafni Leifur Jónsson 10 ára ,til heimilis Rauðarárstíg 7, hafði orðið fyrir vagni, sem vörubíll sá dró er Gissur Karl ók. Drengurinn litli var á reið- hjóli. Hlaut hann höfuðkúpubrot, en náði sér að fullu eftir það. Það þótti sannað við rannsókn málsins að Gissur Karl hefði sýnt óaðgæzlu og að hann hefði því átt sinn þátt í slysinu og þannig gerzt brotlegur við um- ferðarlög og lögreglusamþykkt og hafa unnið til ökuleyfissvipt- ingar. Um leið og dómur var kveð- inn upp í þessu máli sakbom- ingsins í undirrétti, var og látinn ganga dómur í öðru máli til. Þar var um að ræða árekstur bíls þess, er Gissur Karl ók, og ann- ars bíls á Skúlagötunni í sept- ember 1957. Var Gissur Karl bil- stjóri hjá Landssíma íslands í bæði þessi skipti. Áreksturinn á Skúlagötunni vildi til, þá er Giss ur Karl var að aka af Skúlagöt- unni og inn í port birgðaskemmu Landssmiðjunnar. Einnig hér þótti maðurinn ekki hafa sýnt nægilega aðgæzlu í akstri, að hann skyldi hafa beygt að inn- Frá 24.7. 1953 til 23.9. 1957, er ákærði var sviptur ökuleyfi til bráðabirgða hefur hann lent í 17 umferðaslysum, þar af sjö það sem af er þessu ári, en dómurinn í undirrétti gekk 3. des. 1957. í þessum slysum hefur fólk meiðzt þrisvar sinnum, þar af í tveimur alvarlega. Svo virðist sem gáleys islegur akstur ákærða, sé orsök flestra slysanna. Með þessu at- ferU sínu þykir kærði hafa sýnt að það sé varhugavert með til- liti til öryggis umferðarinnar, að hann hafi ökuleyfi. Þess skal get- ið að sakborningur fékk ökuleyfi árið 1950. Var Gissur Karl dæmdur í 2000 kr. sekt í undirrétti og með til- vísan til 39. gr. bifreiðalaganna var hann sviptur ökuleyfi ævi- langt, frá 23. september 1957. Sem fyrr segir staðfesti Hæsti- réttur þennan dóm undirréttar og þar segir m.a. svo: Sakaratriðum er rétt lýst í héraðsdómi, og er háttsemi á- kærða færð þar til réttra ákvæða laga, er þá giltu. Eftir uppsögu héraðsdóms hafa lög nr. 23/1941 um bifreiðar og lög nr. 24/1941 um umferð verið numin úr gildi. Brot ákærða gegn þeim lögum varða samkvæmt 2. gr. laga nr. 19/1940 nú við 1. mgr. 26. gr. og 1. mgr. 37. gr. sbr. 80. og 81. gr. umferðarlaga nr. 26/1958. Sam- kvæmt þessu og með hliðsjón af 77. gr. laga nr. 19/1940 þykir mega staðfesta héraðsdóminn. Ákærða var gert að greiða all- an áfrýjunarkostnað sakarinnar alls 7000 krónur. Einn togari íland- helgi í gær í GÆRMORGUN var aðeins einn brezkur togari að veiðum innan fiskveiðitakmarkanna hér við land. Var togari þessi að veiðum í ísafjarðardjúpi, eina sjómílu innan takmarkanna. Út af Ön- undarfirði voru nokkrir brezkir togarar að veiðum um og utan við fiskveiðitakmörkin. Er greini legt að fiskur stendur nú dýpra fyrir Vestfjörðum en verið hefir, því vitað var um allmarga tog- ara, sem voru að veiðum djúpt undan landi. Fyrir Austfjörðum var hins vegar stormur í gær- morgun og héldu nokkrir brezk- ir togarar sjó út af Dalatanga. Af öðrum fiskislóðum umhverfis land var ekkert sérstakt að frétta, en vitað var um allmarga togará, sem voru að veiðum djúpt undan landi. Sl. viku hafa brezkir togarar nær stöðugt stundað veiðar inn- an fiskveiðitakmarkanna hér við land, eins og áður hefir ver- ið frá skýrt. Þessar veiðar hafa ávallt far- ið fram á sérstökum verndar- svæðurm brezku herskipadeild- arinnar. Tvö þessara verndar- svæða hafa verið fyrir Vestfjörð ur og eitt fyrir Austurlandi, ann- að hvort út af Langanesi, eða út af Seyðisfirði. Þó hefur ekkert verndarsvæði verið opið fyrir Austurlandi síðan á hádegi á föstudag, en þá tilkynnti freigát an Dundas togurunum, sem þarna voru að veiðum, að svæð- inu yrði lokað um óákveðinn tíma. í byrjun vikunnar gekk hvass- viðri yfir landið. Brezku togar- arnir, sem voru að veiðum inn- an markanna fluttu sig þá út- fyrir mörkin og héldu þar sjó á- samt herskipunum, unz veður lægði. Alls hafa 4 brezk herskip ver- ið hér við land í þessari viku, en þau eru tundurspillarnir Lagos og Hogue, og freigáturnar Zest og Dundas. Þá hefur einnig ver- ið hér birgðaskip fyrir brezku herskipin. (Frá landhelgisgæzlunni). Kommúnistar gengu af fundi hjá UNESCO — Lúðvik Framh. af bls. 1 unni hafi þetta verið mikilvæg- ustu rök Paturssonar gegn mála- miðlun í fiskveiðimáli Færeyja. Hins vegar gat hann ekki fært sönnur á þetta. Lúðvik kom til hjálpar Það var ekki fyrr en fyrir nokkrum dögum, að hinn komm- úniski sjávarútvegsmálaráðherra íslands kom Erlendi Paturssyni til hjálpar með því að gefa í skyn, að Færeyingar kynnu að fá sérréttindi á íslandsmiðum. Þetta gerði ráðherrann sennilega án þess að ráðgast formlega við samráðherra sína. Blaðið segir, að aðeins trú- gjörnustu Færeyingar geti trú- að á loforð Lúðvíks Jósepsson- ar. Islendingar hafi ekki sýnt færeysku bræðraþjóðinni skiln- ing, og megi í þvi sambandi fyrst benda á gjaldeyrisskattinn og síð- an 12 mílna fiskveiðitakmörkin, sem hafi haft hræðilegar afleið- ingar fyrir þúsundir al færeysk- um fjölskyldum. Þessar óþægi- ar saman nokkur lög — svo sem legu staðreyndir hafi Erlendur Mambo og fleiri þekkt og vmsæl Patursson ekki getað skýrt eða lög. 1 dregíð dul yfir. KK. í kvöld KK-SEXTETTINN og söngvar- amir Elly Vilhjálms og Ragnar Bjarnason hafa haldið tvo mið- næturtónleika að undanfömu, sem hafa verið vel sóttir — og heldur hljómsveitin aukahljóm- leika í kvöld í Austurbæjarbíói. Sérstaklega hefur verið gerður góður rómur að söngnum, þykir Elly fara skemmtilega með ítölsku og spænsku dægurlögin og jafnframt syngja þau Ragn PARÍS, 8. nóv. Reuter. — í dag gengu fulltrúar kommúnistaríkj anna af fundi Menningar- og vis- indastofnunar S.Þ. (UNESCO), þegar fulltrúi Formósustjórnar- innar, Hsueh-Fong Poe, hélt ræðu. Var þetta hámark fimm daga deilna milli komm- únistarikjanna og Vesturveld- anna á ráðstefnunni í París. Síðan hún hófst á þriðjudaginn hafa kommúnistar, undir forustu rússneska fulltrúans, Kuznetsovs, hamrað á því, að fulltrúa For- mósustjórnarinnar verði vikið úr sæti Kina hjá UNESCO, en full- trúa Pekingstjórnarinnar fengið það. í stofnuninn er 81 ríki. Komu aftur. Fulltrúar kommúnistaríkjanna fóru aftur í sæti sin þegar full- trúi Formósustjórnarinnar hafði lokið máli sínu. Kommúnistaríkin hafa hótað að hætta greiðslum til stofnun- arinnar, þar eð Formósustjórnin skuldi nú margra ára tillög. — Bandarikin hafa hins vegar varið Formósustjórnina og fengu því til leiðar komið í allsherj- arnefnd ráðstefnunnar í dag, að Formósustjórnin fengi áfram að greiða atkvæði á ráðstefnunni, þrátt fyrir skuldir sínar við stofn unina. Jafnvægi. Fulltrúi Kanada, dr. Norman Mackenzie, hét á ráðstefnuna að koma jafnvægi á fjármál stofn- unarinnar og hætta umræðum um fjárhagsáætlunin fyrir 1959—60 verði 25.800.000 doliarar, en það er þriggja milljóna hækkun frá núgildandi fjárhagsáætlun. — Kanadíski fulltrúinn sagði enn- fremur, að starfsemi stofnunar- innar væri svo vítæk og vanda- málin svo áþreifanleg, að nauð- synlegt væri að gera nánari grein fyrir þeim. Frá Landssam- bandi vörubíl- stjóra SEM kunnugt er af fréttum, er fyrir nokkrum dögum lokið hér í bænum fundi Landssambands vörubílstjóra, en innan vébanda þess eru nú 36 félög, sem telja um 1100 meðlimi. Félagið sendir 11 fulltrúa á þing Alþýðusam- bands íslands, sem mun hefjast 25. þ. m. Þingið fékk meðal annarra mála til meðferðar deilumál vörubílstjórafélagsins Þróttar hér í Reykjavík og Mjölnis í Ár- nessýslu og staðfesti þingið úr- skurð sambandsstjórnar, um skipt ingu á flutningum austur við Efra-Sog, en hann er á þá leið að hlutur Þróttar verði 80%, en Mjölnis 20%. Þá var gerð ályktun varðandi heildarsamninga fyrir vörubíl- stjóra um land allt, en það taldi aukaatriði og smámuni. Stjórn I þingið meðal helztu hagsmuna- UNESCO hefur mæit með því, að mála völubílstjórastéttarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.