Morgunblaðið - 09.11.1958, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 09.11.1958, Blaðsíða 20
20 MORGVNBL AÐ1Ð Sunnudagur 9. nóv. 1958 ekki til að fara í kvikmyndahúsið með mér? Ég get ekki sagt þaö *jálfur, og það er í rauninni þetta, sem veldur mér mestri órósemi, því að ég hef annars alltaf getað nálgazt ungar stúlkur án þess að finna til feimni. Þegar ég sé þessa litlu stúlku með stóru, bláu aug- un, neitar tunga mín að starfa og ég get ekki komið upp orði. Það hlýtur að vera ástin mikla í þetta skipti. Súsanna! Einkennin eru mjög alvarleg". Súsanna hló hjartanlega að ör- væntiagu hans. „Jæja, ég skal þá hjálpa þér“, eagði hún, „en fyrst verður þú að lofa mér því að trufla hvorki mig né ungfrú Ingrid hér á deild- inni — með þínum persónulegu áhyggjum, á ég við. Ungfrú Corell er mjög ströng og siðavönd deild- arhjúkrunarkona, og hún getur gert ungfrú Ingrid litlu lífið óbærilegt, ef hún kemst að því, að það er eitthvað ykkar á milli. Ef þú lofar mér þessu skal ég lofa þér því á móti að segja hana á morgun, hvort hún vilji fara með þér í kvikmyndahúsið". Leifur lagði höndina á hjarta- stað og lagði við drengskap sinn, að hann skyldi aldrei trufla. Hún sagði, að viðtalið væri búið. Nú sagðist hún verða að fara að líta eftir nýja, litla sjúklingnum, áð- ur en heimsóknartíminn byrjaði og foreldrar hans kæmu ef til vill og vildu tala við hana um sjúk- dóminn. Þegar Súsanna kom aftur inn til Tómasar, sat hann og var að líta í stóra myndabók. örlítill roði var kominn í kinnar hans og hann hló, er hann þekkti hana aftur, en var þó dálítið feimnislegur. „Kannt þú að lesa?“ spurði hún, og settist á rúmstokkinn. Henni fannst drengurinn ekki líta út fyrir að vera hamingju- samur. Hvernig skyldi heimili hans vera? Og hvernig fóru for- eldrar hans með hann? Hún tal- aði við hann og reyndi að koma honum til að segja eitthvað um sjálfan sig. „Segðu mér, Tómas, hefur þú alltaf átt erfitt með að hlaupa, af því að þú varst móður og þreyttur?" „Já, en það hefur versnað síð- an um jólin“. „Getur þú hjálpað mömmu að bera böggla, þegar hún tekur þig með sér í búðir?“ Drengurinn lagði bókina skyndi lega frá sér og leit á hana sínum stóru, alvarlegu augum. „Mamma er dáin“, sagði hann í hryggum, en um leið dálítið ásak- andi róm. Súsanna vék undir eins að allt öðru umtalsefni, enda virtist hann ■ ekki langa til að tala um móður sína. Ef til vill mundi hann alls ekki eftir henni. Veslings litli snáð inn, það var ekki að furða, þótt hann væri dulur og einrænn. Önn- um kafinn faðir gat aldrei komið í móður stað. Nú s'kildi hún betur þá þrá eftir ást og umhyggju, sem hún hafði þótzt verða vör við hjá drengnum. Þau flettu stóru bók- þegar þér megið vera að því?“ Upphátt sagði hún við Tómas: „Ég kem bráðum aftur. Þá skulum við sjá, hvort þú manst stafina, sem ég hef kennt þér“. Þegar Súsanna var aftur á leið inni inn til Tómasar síðdegis mætti hún ungfrú Sjögren í dyr- unum og þá mundi hún eftir lof- orðinu, sem hún gaf Leif. „Það er satt, ungfrú Sjögren", sagði hún, „þekkið þér Redell lækni?“ „Já, ég kannast að minnsta kosti við nafnið“, svaraði unga hjúkr- unarkonan hægt, en hinn djúpi roði, sem hljóp fram í kinnar hennar, hafði aðra sögu að segja. „Hann hefur sem sé tekið eftir ■ Kannt þú að lesa, Tómas? spurði Súsanna og settist á rúm- stokkinn hjá Tómasi. Ný sending Helena Rubinstein snyrtivörur MARKAÐURINN Hafnarstræti 11 inni saman, og það gladdi Sús- önnu, hve fljótt hann lærði nöfnin á stöfunum og þekkti þá aftur. Svo opnuðust dyrnar og ungfrú Sjögren kom inn. „Það var hringt og spurt, hvort læknirinn vildi koma yfir á frí- lækningadeildina", sagði hún. Súsanna stóð upp og meðan þær fylgdust að fram að dyrunum, hvíslaði hún: „Ég hef sérstaka* áhuga á litla sjúklingnum okkar hérna. Mynduð þér ekki vilja líta sérlega vel eft- ir honum og annast hann svolítið, yður“, hélt Súsanna áfram og gat varla varizt hlátri. „Hann er góð ur kunningi minn, og ég veit, að hann langar til að bjóða yður í kvikmyndahúsið í kvöld. Hann hefur reynt að spyrja yður sjálf- ur, en hann er svo ótrúlega ófram færinn". „Mér virðist nú samt, að hann ætti að tala þetta við mig sjálfur', svaraði hjúkrunarkonan. „Það skal ég segja honum“, Sagði Súsanna hlæjandi. Þegar hún kom inn til Tómasar, lá hann og horfði út um glugg IMOKKUR gölluð baðker seld með afslætti. Helgi Mognússon & Co. Hafnarstræti 19 Símar 13184 og 17227 Þeir, sem vilja selja málverk á næsta Listmunauppboði, sem verður haldið í Sjálfstæðishúsinu n.k. föstudag, ættu að hafa tal af mér í fyrramálið kl. 9—12 f.h. SigurðWr Benediktsson, Austurstræti 12 — Sími 13715. I FÉEL SURE BlÖ WALKER HAS PONE THIS, MARK ...BUT HOW? SOMÉOlE'S i, . BEÉN around THIS PEN/... these moccasin PRINT3 ARE 7 TOO LARGE \ l TOBE VOURS / klli BIG WALKER IS THE ONLV MAN IN OUR TRIBE WHO WOULD MAKE A PRINT LIKE THAT ANO TAKE SUCH LONGSTRIDES... ^ ^ Y* IT 'LL TAKE ] more than a FOOTPRINT TO CONVINCE VOUR PEOPLE THAT 4 HE KILLED TWE SHEEP j^MONTE /rj LOOKS Wj AS IF THEV MIGHT HAVE BEEN POISONED, MARK...BUT s__ I'M NOT SURE/ r 1) „Ég þykist viss um að Gðngu- garpur hafi gert þetta, en hvernig hefur hann farið að því?“ „Ein- hver hefur verið á ferli hér í fjár- girðingunni. Þessi spor eru of stór til að vera eftir mokkasíurnar þínar." 2) „Göngugarpur er eini mað- urinn i okkar flokki, sem þessi spor geta verið eftir. Enginn ann- ar er svona skreflangur..." 3) „Engin spor duga til að sann- færa fólkið þitt um að hann hafi drepið kindurnar, Monti.“ „Það lítur út fyrir að þeim hafi verið byrlað eitur, Markús, en ég er þó ekki viss um það.“ ann, en hann sneri höfðirfu undir eins að henni og sagði: „Ég hef gáð lengi að honum, en hann er þar ekki“. „íkorni hefur í ákaflega mörgu að snúast", útskýrði Súsanna. „Hann þarf að finna allar hnet- urnar, sem hann faldi í haust“. „Ég held að ég kalli hann Rolf“, sagði Tómas hugsandi. „Roif, hvers vegna velur þú það nafn?‘ „Af því að pabbi minn heitir það, og þá get ég látið sv^ sem faðir minn -»é hérna allan dag- inn“. Súsanna hló og Tómas hló líka af kæti. Hvorugt þeirra heyrði, að hurðin var opnuð og Súsanna sá el.ki hinn háa, dökkhærða mann með hina ákveðnu andlitsdrætti, sem stóð í dyrunum og virti þau bæði fyrir sér, ungu, grönnu, hvít- klæddu konuna með kastaníubrúna hárið og litla drenginn, með and- litið Ijómandi af gleði. Það var Tómas, sem tók fyrr eftir honum. „Pabbi", kallaði hann hamingju- samur. Súsanna sneri sér fljótt við, og brosið var enn í augum hennar, þegar hún mætti augnaráði hans. aHUtvarpiö Sunnudagur 9. nóvember. Fastir liðir eins og venjulega. 11,00 Messa í Hallgríimskirkju (Prestur: Séra Sigurjón Þ. Árna- son. Organleikari: Páll Halldórs- son). 13,15 Erindaflokkur um gríska menningu; I: Leiklist í Aþenu til -forna (Dr. Jón Gísla- son skólastjóri). 14,00 Hljómplötu klúbburinn (Gunnar Guðmunds son). 15,00 Miðdegistónleikar plötur). 15,30 Kaffitíminn. 16,30 Hljómsveit Ríkisútvarpsins leikur undir stjórn Þórarins Guðmunds- sonar. Einsöngvari: -Guðmundur Guðjónsson. Einleikari: Björn R. Einarsson.17,00 Tónleikar (plöt- ur). 17,30 Barnatími (Skeggi Á«- bjarnarson kennari). 18,30 Á bóka markaðnum (Vilhjálmur Þ. Gísla son útvarpsstjóri). 20,20 Erindi: Píus páfi XII. (Sigurður Þor- steinsson bankamaður). 20,40 Kór söngur: Karlaraddir úr Robert Shaw kórnum syngja vinsæl lög. Robert Shaw stjórnar (plötur). 21,00 „Vogun vinnur — vogun tap ar“. — Sveinn Ásgeirsson hag- fræðingur sér um þáttinn. 22,05 Danslög plötur). 23,30 Dagskrár- lok. Mánudagur 10. nóvember: Fastir liðir eins og venjulega. 13,15 Búnaðarþáttur: Gísli Krist- jánsson ritstjóri ræðir við Pál Guðmundsson bónda á Gilsárstekk í Breiðdal. 18,30 Barnatími: Tón leikar fyrir börn (Jórunn og Drífa Viðar). 18,50 Fiskimál: Fiskileit 1058; síðari hluti (Dr. Jakob Magnússon fiskifræðingur). 19,05 Þingfréttir og tónleikar. — 20,30 Einsöngur: Carlo Berganzi syng- ur óperuaríur með hljómsveit tón- listarháskólans í R4m; Cavazzeni stjórnar (plötur). 20,50 Um dag- inn og veginn (Helgi Tryggvason kennari). 21,10 Tónleikar (plöt- ur). 21,25 Útvarpssagan: „Út- nesjamenn"; IX. Séra Jón Thor- arensen). 22,10 Erindi: Vakning (Jón H. Þorbergsson bóndi á Laxamýri). 22,30 Kammertónleik ar (plötur). 23,05 Dagskrárlok. Þriðjudagur 11. nóvember : Fastir liðir eins og venjulega. 18,30 Barnatími: Ömmusögur. 18,50 Framburðarkennsla í esper- anto. 19,05 Þingfréttir og tónleik ar. 20,30 Daglegt mál (Árni Böðvarsson cand. ntag.). 20,35 Frá tónleikum Sinfóníuhljómsveit ar íslands í Þjóðleikhúsinu; fyrri hluti. Stjórnandi: Hans Antolitsch Einleikarar: Guðmundur Jónsson (píanó) og Björn Guðjónsson (trompet). 21,10 Erindi: Þjóð- fundarkosning Jóns Sigurðsson- ar; fyrri hluti Lúðvík Kristjáns- son rithöfundur). 21,45 Iþróttir (Sigurður Sigurðsson). — 22,10 Kvöldsagan „Föðurást" eftir Selmu Lagerlöf; XI. (Þórunn Elfa Magnúsdóttir rithöfundur). 22,30 Islenzkar danshljómsveitir: — Hljómsveit Gunnars Ormslevs leik ur. Söngkona: Helena Eyjólfsdótt- ir 23,00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.