Morgunblaðið - 09.11.1958, Qupperneq 4
4
MORCVNBL4Ð1Ð
Sunnudagur 9. nóv. 1958
I dag er 313. dagur ársins.
Sunnudagur 9. nóvember.
Árdegisflæði kl. 3,26.
SíSdegisflæði ki. 15,42.
Slysavarðstofa Rcykjavíkur S
Heilsuverndarstöðir.ni er opin all-
an sólarhringinn. LæKnavörður
L. R. (fyrir vitianir) er á sama
stað, frá kl. 18—8. — Simi 15030.
Næturvarzla vikuna 9. til 15.
nóv. er í Vesturbæjarapóteki, sími
22290.
Hoks-apótek og Carðs-apótek
eru opin á sunnudógum kl. 1—4.
Hafnarfjarðar-apótek er <pið alla
virka daga kl. 9-21, laugardaga kl.
9-16 og 19-21. Helfidaga kl. 13-16.
Nætur- og helgidagslæknir í
Hafnarfirði er Kristján Jóhannes
son, sími 50056.
Keflavíkur-apótek er opið alla
▼irka daga kl. 9-19, iaugardaga kl.
9-16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, ÁlfhóIsTegi 9
er opið daglega kl. 9—2C, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl. 13—16. — Sími 23100.
□ MÍMIR 595811107 = 2
□ EDDA 595811117 = 2 Atkv.
LO.O.F. 3 a 14011108 = 8% O
Messur
Neskirkja: — Barnaguðsþjón-
usta kl. 10,30 f.h. — Messa kl. 2
e.h. Séra Jón Thorarensen. —
Vegna misfcaka féll þessi messu-
tilkynning niður í blaðinu í gær.
Keflavíkurkirkja: — Barna-
guðsþjónusta kl. 11 árdegis. Messa
kl. 5 e.h. — Ytri-Njarðvík: Barna-
guðsþjónusta kl. 2 e.h. — Séra
Björn Jónsson.
IS^Brúðkaup
Nýlega voru gefin saman í
hjónaband í Neskirkju af séra
Jóni Thorarensen ungfrú Guðrún
Sigurðardótfcir frá Marbæli í
Skagafirði og Guðmundur 1.
Magnússon, trésmiður, Fornhaga
24. Heimili ungu hjónanna er á
Þvervegi 40.
Nýlega voru gefin saman í
hjónab. af sr. Sig. Ó. Lárussyni
í Stykkishólmi, ungfrú Birna
Bjarnadóttir, Stykkishólmi og
Sveinbjörn Sveinsson, sjómaður,
Ólafsvík. Heimili þeirra er í Ól-
afsvík.
1 gær voru gefin saman í hjóna
band í Stykkishólmi af prófasfcin-
um, séra Sigurði Ó. Lárussyni,
ungfrú Hrefna Þorvarðardóttir,
símastúlka og Hannes Gunnars-
son, iðnnemi. Heimili þeirra er I
Stykkishólmi.
HpHjónaefni
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína hér í bænum ungfrú Dóra
Iris Guðmundsdóttir, Langholts-
vegi 85 og Ivar Ingvarsson, hósa-
smiður, Laugarnesvegi 110.
IBBS Skipin
Eimskipafélag íslands h. f.: —
Dettifoss er í Rostock. Fjallfoss
fór frá Hamborg í gær. Goðafoss
er í New York. Gullfoss er í Kaup
mannahöfn. Lagarfoss fór frá
Hafnarfirði í gær. Reykjafoss fór
frá Hull 6. þ.m. Selfoss fór frá
Álaborg í gær. Tröllafoss fór frá
Reykjavík 2. þ.m. Tungufoss er
væntanlegur til Rvíkur árdegis í
dag. —
Skipadeild S.l.S.: — Hvassafell
„Sa hlær bezt. . .” er eini gamanleikurinn, sem sýndur er í leik-
húsum bæjarins um þessar mundir. — Næsta sýning verður
í Þjóðleikhúsinu í kvöld. — Á myndinni eru Alfred Metcalfe
(Róbert Arnfinnsson), ungfrú L’Arriere (Sigríður Þorvalds-
dóttir) og John Blessingham (Indriði Waage).
er á Dalvík. Arnarfell er í Sölves
borg. Jökulfell er væntanlegt til
Reykjavíkur í kvöld. Dísarfell er
í Reykjavík. Litlafell er væntan-
legt til Skerjafjarðar í nótt.. —
Helgafell fór frá Siglufirði 4. þ.
m. Hamrafell fór frá Reykjavík
5. þessa mán.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f..
Katla lestar síld á Norðurlands-
höfnum. — Askja fór frá Rvík
30. f.m. áleiðis til Jamaica og
Cuba. —
Flugvélar*
Flugfélag Islands h.f.: Gull-
faxi er væntanlegur til Reykjavík
ur kl. 16,10 í dag frá Hamborg,
Kaupmannahöfn og Osló. Flug-
vélin fer til Glasgow, Kaupmanna
hafnar og Hamborgar kl. 08,30 í
fyrramálið. — Innanland~flug: í
dag er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar og Vesfcmannæyja. — Á
morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Hornaf jarðar, Isa-
fjarðar, Siglufjarðar og Vest-
mannaeyja.
Loftleiðir h.f.: — Saga er vænt
anleg frá New York kl. 07,00, fer
til Osló, Gautaborgar og Kaup-
mannahafnar kl. 08,30. — Edda
er væntanleg frá Hamborg, Kaup-
mannahöfn og Osló kl. 18,30, fer
til New Ýork kl. 20,00.
Aheit&samskot
Lamaði íþróttamaðurinn: Ein-
ar og Guðmundur kr. 100,00; frá
konu í Stykkishólmi 50,00.
Lamaða stúl’kan: — Þuríður
kr. 100,00; frá konu á Akranesi
50,00; frá konu í Stykkishólmi
kr. 50,00.
Bruninn á I.átrum: — Frá N
N krónur 900,00.
Félagsstörf
Kvenfélagið Keðjan heldur
skemmtifund mánudaginn 10. þ.m.
í félagsheimili prentara við Hverf
isgötu. —
Ljósálfar 4. hverfi (Bústaða-
hverfi) : — Ljósálfafundur verður
haldinn í Háagerðisskóla n. k.
mánudag 10. nóvember kl. 6 e.h.
K.F.U.M. og K., Hafnarfirði: —
— Sunnudagur: kl. 10,30 f.h.
sunnudagaskólinn. Kl. 1,30 e.h.
drengjafundur. KI. 8,30 e.h. Al-
menn samkoma, Sigurður Pálsson
kennari talar. Allir velkomnir. —
Mánudagur: Kl. 8. — Athugið kl.
8: Unglingadeild KFUM. — Allir
piltar velkomnir.
g! Ymislegt
Orð lífsins: — Og ég mun alls
ekki minnast fra/mar synda þeirra
né lögmálsbrota. En þar sem er
fyrirgefning þeirra, þar þarf ekki
framar fómar fyrir synd. —
(Hebr. 10, 17. 18.).
Kvenfélag Háteigssóknar: Hinn
árlegi bazar félagsins verður
miðvikudaginn 12. þ.m. í G.T.-hús
inu. Þær konur, sem styrkja vilja
bazarinn, eru vinsamlega beðnar
að koma munum til Kristínar Sæ-
mundsdóttir, Háteigsvegi 23,
Ágústu Jóhannsdóttur, Flókagötu
3'5 og Maríu Hálfdánardóttur,
Barmahlíð 36.
Happdrætti Háskóla íslands. —
Dregið verður í 11. flokki á mánu
dag. Vinningar eru 996, samtals
1.255.0.00 kr.
Verkakvennafélagið Framsókn
Félagskonur, munið bazar félags-
ins í G.T.-húsinu n.k. þriðjudag
kl. 2. — Tekið á móti munum í
skrifstofunni til mánudagskvölds.
Þjóðliátíðardagur Svía. — í
tilefni af þjóðhátíðardegi Svía
hefur sænski ambassadoinn, Sten
von Euler-Chelpin og kona hans
móttöku í sænska sendiráðinu,
Fjólugötu 9, þriðjudaginn 11.
nóvember frá kl. 5 til 7.
Gangleri, rit Guðspekifélags
Islands, 2. hefti, er komið út. Efni;
Af sjónarhóli. — Sigurjón Daní-
valsson (Sigv. Hjálmarsson). —
Þorvaldur Árnason (Grétar Fells)
Brúðkaupsklæðin (GF) — Draum
farir (Guðm. Einarsson frá Mið-
dal). — Viðtal við Edwin C. Bolt
(Sigv. Hjálmarsson). — Hvít
kyngi (Akice Baily. — Erl. Har-
aldsson þýddi). — Hugleiðing-
(kvæði eftir Kristján frá Djúpa-
læk). — Hugtöfrar (GF). —
Fjallið helga (Einar Einarsson).
Guðir og menn (GF). — Dulræn-
ar gáfur (Eiríkur Sigurðsson
skólastjóri).
• Gengið •
Gullverð ísL krónu:J
100 gullkr. = 738,95 pappírskr.
Sölugengi
1 Sterlingspund .... kr. 45,70
1 Bandaríkjadollar..— 16,32
1 Kanadadollar .... — 16,96
100 Gyllini .......— 431.10
100 danskar kr.............— 236,30
100 norskar kr.............— 228,50
£
da^ómó
dú
Hvert er álit yðar á hugmyndinni um aðskilnað ríkis
kirkju?
Séra Bjarni Sigurðsson, Mos-
felli: Þetta er að nokkru spurn-
ing um það, hvort kirkjan hafi
bolmagn og djörfung til að sækja
eigur sínar í greipar ríkisvalds-
ins í eitt skipti fyrir öll, eða læt-
ur sitja við nöldur þurfalingsins.
Þetta er spurn-
ing um það,
hvort fólki sé
treystandi til að
gjörast ábyrgð-
armenn kirkj-
unnar. Og mér
er kunnugt um,
að það telur
ekki eftir sér
fórnir í þágu
kirkju sinnar, sé eftir leitað. En
þjóðkirkjuskipunin stingur safn-
aðarvitundinni einatt svefnþorn
— þetta áreynzluleysi, sem oft
fylgir því að kúra á faðmi ríkis-
kirkjunnar. Málið er flókið. En
sú hugmynd er athyglisverð að
gjöra tengsli ríkis og kirkju mun
frjálsari en nú. Þannig leystust
vafalaust úr læðingi kraftar, sem
ella fá ekki nötið sín sem skyldi.
Einar Ásmundsson, framkvstj.:
Ég álít, að kirkjan sé og verði
ein af höfuðstoðunum í okkar
þjóðfélagi, sem hefur mjög þýð-
ingarmiklu hlutverki að gegna
í menningarlífi
okkar. Þ e s s
vegna á hún að
vera í sem nán-
ustum tengslum
við ríkið, og ber
þvi. að efla við-
gang kristninn-
ar í landinu til
hagsbóta fyrir
alla þegna þjóð-
arinnar.
Að sjálfsögðu hlýtur ávallt að
vera starfandi í landinu frjáls
kristileg starfsemi, svo sem eins
og K.F.U.M. og K. og önnur sam
bærileg starfsemi, og ber kirkju-
stjórninni að styðja þá starf-
semi í hverju tilfelli eftir því sem
efni standa til.
Andrés Andrésson, kaupmað-
ur: Það er mannlegt og einstakl-
ingnum eiginlegt að hlúa betur
að sínu en því, sem er hins opin-
bera. Nærtækasta dæmið er opin
ber rekstur á
MM ýmsum sviðum,
lllsern flestir eru
sammála um, að
/ J&S'í''' ekki sé til fyrir-
' ^ ' myndar. Svo er
og með kirkj-
una — skilnað-
ur ríkis og
|kirkju yrði til
þess að auðga og
efla trúrækni og kirkjulífið í
landinu. Og kirkjan á að gera
meira. Hún á að gangast fyrir
fjölbreyttu æskulýðsstarfi, við
hverja kirkju á að vera æsku-
lýðsheimili þar sem börn og ungl
ingar eiga alltaf athvarf til heil-
brigðrar starfsemi og góðrar
skemmtanar — og eiga prestar
að njóta aðstoðar safnaðarmeð-
lima við starf sitt.
Séra Óskar J. Þorláksson: Ég
hefi engan áhuga fyrir aðskiln-
aði ríkis og kirkju eins og nú
standa sakir og svo lengi sem
ríkisvaldið er vinveitt kirkjunni
og lætur hana njóta þess athafna-
frelsis, sem hún nú nýtur. — Ég
tel eðlilegt, að
náið samstarf sé
milli ríkisins og
kirkjunnar,
endda ætti slíkt
samstarf ekki
að vera neinum
vandkvæðum
bundið í þjóðfé-
lagi þar sem
næstum allir
íbúar landsins tilheyra einni og
sömu kirkjudeild. Þjóðkirkjan
mætti þó hafa meira sjálfsfor-
ræði en nú er, meiri festa mætti
vera í stjórn kirkjumála almennt
og meiri fjölbreytni í starfi. —
Með sambandi ríkis og kirkju tel
ég auðveldara að ná til allrar
þjóðarinnar með boðskap kristin
dómsins og síður hættu á öfgun
og sundrungu í trúmálum. öll-
um, sem vilja, er frjálst að efna
til fríkirkjusamtaka, en ég held
að sú reynzla, sem fengizt hefur
af fríkirkjuskipulagi hér á landi
sýni ekki neina yfirburði yfir
þ j óðkirk j uskipulagið.
Sverrir Haraldsson, cand. tlieol:
Ekki er hægt að neita því, að
kirkjuaðsókn á íslandi er mjög
lítil miðað við önnur kristin
lönd og trúaráhugi almennings
virðist með minnsta móti. Ef
FERDIIM AIMD
Stakk af!
kirkjan segði
skilið við ríkið
væri fólkinu í
sjálfs vald sett
hvort það vildi
hafa sína kirkju
áfram, eða
hvort það sýndi
trúmálunum
jafnmikið skeyt
ingarleysi og áður. Ég held, að
mikill meirihluti okkar vildi
alls ekki missa kirkjuna og að-
skilnaður ríkis og kirkju yrði
einmitt til þess að þjappa söfn-
uðunum betur saman um kirkju
sína og prest, þegar á reyndi
mundi trúaráhugi landsmanna
vakna a ny