Morgunblaðið - 09.11.1958, Page 24
Reykjavíkurbréf
er á bls. 13.
Stal 4000 kr. í peningum
og eyddi á sömu nóttu
500 mál síldar á 2 dögum
TVÍTUGUR piltur stal í fyrra-
kvöld um 4000 krónum í pening-
um hér í bænum, en í gærmorg-
un, er rannsóknarlögreglan hand
tók hann, voru peningarnir allir
horfnir úr fórum hans: Hann
hafði eytt af þeim, lánað og loks
sagði hann að peningum hefði
verið stolið frá sér.
Pilturinn komst yfir pening-
ana á verkstæði einu, en starfs-
menn að þrem undanskildum
vóru farnir heim. Hann kom í
verkstæðið um klukkan 6,30 á
föstudagskvöidið, en hann hefur
unnið þar áður og var staðháttum
kunnugur. Var hann drukkinn,
er hann kom til tveggja verk-
stæðismanna, sem voru að virma
uppi á lofti. Hann hafði þar að
eins skamma viðdvöl og fór nið-
ur án þess að nokkur fylgdist með
ferðum hans, fór í skúffu, sem
hann vissi að í myndu vera pen-
ingar, væri eitthvað óborgað af
launum starfsmanna. Þar fann
hann þjú vinnulaunaumslög og
stakk þeim á sig, en í þeim voru
alis um 4000 krónur. Skömmu
eftir að hann var farinn kom einn
þeirra verkstæðismanna, sem
átti eftir að fá laun sín greidd
Skákmót Kefla-
víkur er Iiafið
KEFLA V ÍKURFLUGVELLI, 7.
okt. — Tefldar hafa verið 3 um-
f erðir í skákmóti Keflavíkur.
Teflt er í meistaraflokki, I. fl.,
II. fl. og unglingaflokki. Alls eru
keppendur á mótinu um 40 í öll-
um flokkum. Staðan í meistara-
flokki er þannig eftir 3 umferðir:
Ragnar Karlsson 2 v.; Borgþór
H. Jónsson 1% v.; Óli Karlsson 1
v. og biðskák; G. Páll Jónsson
y2 v. og biðskák) Gisli Alfreðs-
son engan vinning en biðskák.
í I. flokki er Gunnar Guðnason
efstur með 2 v., en Kristinn Dani
valsson er efstur í 2. fl. með 2%
vinning. Keppendur í unglinga-
flokki eru 20. — BÞ.
FYRRA laugardag var bíllinn
G-1688 sem er „station“-bíll, á
leið suður í Hafnarfjörð, er dá-
lítið sjaldgæft atvik kom fyrir.
Þegar bíllinn var í slakkanum í
sunnanverðum Kópavogshálsi, sá
bílstjórinn allt í einu hvar vöru-
bíll var á veginum ljóslaus, en
þetta gerðist um klukkan 7 um
kvöldið. Bilstjórinn snarhemlaði
en við það þaut verkfæra-kista,
sem var aftur í bílnum af stað
, og lenti aftan á framsætinu.
i Nokkur skellur varð. Hugsaði bíl
I.. , ..................
Ósannindi
f rá rótum
1 G Æ R birti Alþýðublaðið
þriggja dálka feitletraða frétt á
forsíðu þess efnis, að settum bæj-
; arfógeta á Akureyri og sýslu-
i manni Eyjafjarðarsýslu, hefði
verið hent út af dansleik að
) Freyvangi í Eyjafirði fyrir
| skömmu.
Sigurður M. Helgason, settur
bæjarfógeti á Akureyri og sýslu-
maður Eyjafjarðarsýslu, hringdi
til Mbl. í gær og bað blaðið að
koma því á framfæri, að fregn
þessi, sem birzt hefði bæði í Degi
, og Alþbl., væri lygasaga frá rót-
Lum. —
og var peninganna þá saknað og
lögreglunni gert viðvart. Eftir-
grennslan hennar þá um kvöldið
bar ekki árangur, en í gærmorg-
un knúðu rannsóknarmennirnir
dyra hjá piltinum, sem játaði
þegar þjófnaðinn og gerði grein
fyrir því, hvað orðið hefði af
peningunum, eins og að ofan
greinir. Piltur þessi hefur ekki
áður gerzt sekur um peninga-
þjófnað og lofaði hann að standa
skil á peningunum, er hann hafði |
stolið.
Þá gat Sverrir Hermannsson
þess, að stjórn félagsins hefði
boðið Trygve Lie til íslands á
vegum félagsins, en eins og kunn
ugt er, kom Peter Freuchen
til íslands í boði félagsins ekki
alllöngu áður en hann lézt, og var
allt ferðalag þessa mikla ævin-
týragarps hingað til hinnar
mestu ánægju. Er ekki að efa,
að ferðalag Trygve Lies hingað
til lands takist vel og má geta
þess, að hann mun flytja hér fyr-
irlestra. Lie er heimsfrægur mað
ur, áhrifamikill norskur stjórn-
málamaður á sínum tíma og
fyrsti framkvæmdastjóri S.þ.
Væntanlega mun Lie koma til ís
lands næsta vor.
Engar umræður urðu um
skýrslu formanns.
Næst las Már Elísson hagfr.
upp reikninga félagsins og voru
þeir samþykktir í einu hljóði.
Að lokum fór fram stjórnar-
kosning. Eyjólfur K. Jónsson
stjórinn ekki frekar um þetta, en
er hann kom heim til sín sá hann,
að gaflhurðin í bílnum var öll
dælduð. Var sýnilegt að um leið
og verkfærakistan skall á sætinu,
hefur bíl verið ekið aftan á bílinn
og skellurinn ,kom af árekstrin-
um. Vill rannsóknarlögreglan ein
dregið biðja þann, sem ók aftan
á bílinn í umrætt skipti að gefa
sig fram, svo og tvær konur, er
nærstaddar voru þegar þetta
gerðist.
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfél.
Kópavogs verður haldinn annað
kvöld í Valhöll við Suðurgötu.
Að loknum aðalfundarstörfum
mun Jón Pálmason alþm. ræða
ástand og horfur í fjármálum og
efnahagsmálum.
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ-
LAGIÐ „SÓKN“ 1 Keflavík
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu
annað kvöld kl. 9 síðd.
Sameiginleg kaffidrykkja og
félagsvist. Sjáifstæðiskonur eru
beðnar um að fjölmenna á fund
inn og mæta stundvíslega.
lögfr. var einróma kosinn for-
maður félagsins, en í aðalstjórn
voru kosnir: Gunnar Hólmsteins
son stud. oecon., Helgi K. Hjálms
son viðskiptafræðingur, Helgi
Þórðarson verkfr. og Sigurður A.
Magnússon blaðamaður. í vara-
stjórn: Gunnlaugur Björnsson
viðskiptafr., Hrafn Þórisson
bankam., Gunnlaugur Snædal
læknir, Ólafur Jónsson lögfr. og
Baldur Jónsson cand. mag.
Fundurinn var fjölmennur.
FYRSTI erindaflokkurinn í
sunnudagserindum útvarpsins á
þessum vetri hefst í dag. Þetta
verða fimm erindi um ýmsar
greinar forngrískrar menningar
og bókmennta. Fyrirlesararnir
eru: Dr. Jakob Benediktsson, Dr.
Jón Gíslason og Kristinn Ár-
mannsson, rektor.
í dag talar Dr. Jón um Upp-
runa grískrar leiklistar, og síðan
aftur á sunnudaginn kemur, um
Blómaskeið attískra harmleikja,
eða um höfuðskáldin Æskylos,
Sofokles og Euripides.
Þá flytur Kristinn Ármanns-
sofi tvö erindi, ferðaþætti frá
Grikklandi. Rektor er nýkominn
úr ferðalagi þar um slóðir og
mun nota ferðaminningar sínar
sem uppistöðu í frásagnir um
fornsögu og fornminjar í Aþenu
og Delfi, Mykene og Korinthu.
Erindi Dr. Jakobs Benedikts-
sonar verður um gríska stafrófið
Ný þingskjöl
NOKKRUM nýjum þingskjölum
hefur verið útbýtt á Alþingi. Má
þar nefna tillögu til þingsálykt-
unar um fullgildingu á sáttmála
um stofnun Atómvísindastofn-
unar Norðurlanda til samvinnu
á sviði fræðilegra atómvísinda.
Þá er frv. til laga um breytingu
á lögum um dýralækna flutt af
Páli Þorsteinssyni, þar sem lagt
er til, að Hornafjarðardýralækn-
isúmdæmi verði stofnað. Einnig
frv. til laga um breytingu á lög-
um um þingsköp Alþingis. Loks
tillaga til þingsályktunar um nið
ursuðuverksmiðju á Akureyri.
Flm. Björn Jónsson og Friðjón
Skarphéðinsson.
GRAFARNESI, 8. nóv. — Vél-
báturinn Grundfirðingur II hef-
ur leitað síldar undanfarna daga,
á Grundarfirði og Kolgrafarfirði,
með þeim árangri, að hann er bú-
inn að fá í dag og í gær 500 mál
síldar.
I BYRJUN október var framinn
þjófnaður austur í Hveragerði.
Var þar stolið frá Bandaríkja-
manni, sem starfar við stóra jarð
borinn, er bær og ríki eiga, en
hann hefur verið austur við
Hveragerði í haust og vetur, —
Verðmætast af því, sem stolið
var frá verkfræðingnum, var
kvikmyndavél, mjög fullkomin.
Er hún talin hvorki meira né
minna en 50 þús. kr. virði. —
Einnig var stolið nokkru af föt-
um, rafmagnsrakvél og fleiru.
Nú hefur tekizt að upplýsa
þennan þjófnað. Rannsóknarlög-
reglan handtók fyrir nokkrum
dögum 18 ára pilt, sem ekki hef-
ur áður komizt undir manna
hendur. Hann hafði verið í
Hveragerði allt fram til síðustu
mánaðamóta, en kom þá hingað
til Reykjavíkur. Hefur piltur
þessi játað á sig þjófnaðinn. —
Hann hafði kvikmyndavélina enn
undir höndum og skilaði henni
aftur, óskemmdri, að því er virð-
ist. Einnig skilaði hann mestu
af öðru því, er hann stal frá
hinum bandaríska verkfræðingi.
Þjófnaðinn framdi pilturinn
og upphaf grískrar ritaldar.
í sambandi við þennan erinda-
flokk mun útvarpið væntanlega
flytja i vetur forngrískt leikrit,
Antígónu eftir Sófókles, í nýrri
óprentaðri þýðingu Dr. Jóns
Gíslasonar, og mun það vera í
fyrsta sinn sem forngrískt leik-
rit er flutt hér.
Sunnudagserindi þau sem flutt
voru í útvarpið í fyrra, Vísindi
nútímans ,eru nú um þessa helgi
að koma út í vandaðri bók, sem
Hlaðbúð gefur út.
KRISTINN Guðnason á merki-
legt starfsafmæli innan skamms,
því að hinn 1. des. eru liðin 25
ár frá því að hann hætti að
stunda leigubílaakstur hér í bæn
um og setti á stofn verzlun sína
að Klapparstíg 27. Með stakri
eljusemi og dugnaði tókst Kristni
að gera fyrirtæki sitt landsþekkt,
því viðskiptamenn hans eru ekki
aðeins hér í Reykjavík, heldur og
út um allt land.
Öll viðskipti eru í sambandi
við varahluti í bíla, einkum
ameríska. Kristinn sagði í gær,
að ekki yrði hjá því komist að
fara að hugsa alvarlega um vara
hlutainnflutning vegna Evrópu-
bílanna, en hann hefur ætíð sjálf
ur flutt inn þá varahluti, sem
verzlun hans hefur á boðstólum.
Gestum bar saman um að hið
nýja verzlunarhúsnæði væri í
senn rúmgott og skemmtilegt.
Kristinn kynnti fyrir gestum sín-
um Ólaf son sinn, sem nú tekur
Þetta er smá millisíld og hefur
til þessa aðeins veiðzt á Kolgraf-
arfirði. Þessi síld veður ekki og
er eingöngu tekin eftir mæli-
tækjum. Báturinn hefur veitt
síldina í hringnót. E. M.
þannig, að hann brauzt inn í
herbergi það, er Bandaríkjamað-
urinn hafði á leigu hjá Hótel
Hveragerði.
Kirkjuvika í Sel-
fosskirkju
SÉRA Sigurður Pálsson á Sel-
fossi ætlar að efna til kirkju-
viku í Selfosskirkju og hefst hún
annað kvöld, mánudagskvöld, og
stendur yfir til laugardagskvölds.
Verða á samkomunum flutt
skemmtileg og fræðandi erindi.
Hefur Séra Sigurður fengið ýmsa
kunna ræðuskörunga til þess að
tala á samkomunum.
Samkomurnar hefjast öll kvöld
in kl. 8,30 og munu þessir menn
verða ræðumenn: Úlfar Ragnars-
son læknir, séra Jóhann Hannes-
son, séra Haraldur Sigmar, Felix
Ólafsson kristniboði og prófessor
Sigurbjörn Einarsson.
Það mun vera einsdæmi að til
slíkrar kirkjuviku sé efnt utan
hinna stærri kaupstaða landsins.
Samkomugestum skal bent á að
taka með sér sálmabók.
Blaðamenn!
BLAÐAMANNAFÉLAG íslands
hcldur áríðandi fund að Hótel
Borg kl. 2 e.h. á mánudag. —
Fundftirinn verður stuttur, og
áríðandi að stundvíslega verði
mætt.
AKRANESI, 8. nóv. — Lagarfoss
lestaði hér 5000 kassa af frystum
fiski. í dag er Bjarni Ólafsson
hér og losar tæplega 300 tonn af
karfa. — Oddur.
við verzlunarstjórn, en hann er
nýkominn frá Bandaríkjunum,
þar sem hann hefur kynnt sér
rekstur varahlutaverzlunar. —
Lagði hann á ráðin um innrétt-
ingarfyrirkomulagið í hinni nýju
verzlun Kristins, föður síns. Nú
starfa við fyrirtækið fimm menn,
en lengi vel var Kristinn þar
einn. Ber þetta vott um dugnað
Kristins og góða stjórn hans á
fyrirtækinu.
® Fjöl-
tefli
í DAG kí. 2 e.h. hefst fjöltefli
Sveins Kristinssonar í Valhöll.
Mætið stundvíslega og hafið með
ykkur töfl.
Skellurinn var frá
allhörðum árekstri
Eyjólfur K. Jónsson
Eyjólfur K. Jónsson form,
Stúdentafélags Rvíkur.
í GÆR var haldinn aðalfundur Stúdentafélags Reykjavíkur í Sjálf-
stæðishúsinu. Fráfarandi formaður félagsins, Sverrir Hermannsson,
setti fundinn og stjórnaði honum. Flutti hann skýrslu stjórnarinnar
og bar hún með sér, að félagslífið hefur verið með miklum blóma.
Margir umræðufundir voru haldnir og kvöldvökur, og má geta
þess, að umræðufundirnir voru fjölmennari en árin áður.
Útvarpserindi um forn-
gríska menningu og bók-
menntir
Þjófurinn skilaði aftur
50 þús. kr. kvikmyndavél
„Kristinn á Klappar-
stígnum" flytur í nýtt
veglegt verzlunarhúsnœði