Morgunblaðið - 17.12.1958, Page 2
z
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 17. des. 1958
Mao Tse-tung lætur af störf
um sem forseti Kína
Er orsök jbess ágreiningur við Rússa
eðo mistök i „kommúnunum" ?
PEKING, 16. des. — (Reuter). — Mao Tse-tung, sem hefur
haidið óvéfengjanlegu alræði í Kína síðan 1950, hefur
ákveðið að láta af embætti sem forseti Kína. Utanríkisráð-
herra Kína, Chen-yi, tilkynnti erlendum sendimönnum í
Peking í dag þessa ákvörðun Maos. Hann skýrði jafnframt
frá því að Mao myndi halda embætti sínu sem framkvæmda-
stjóri kínverska kommúnistaflokksins.
Þessi snaggaralegi náungi er hér að velja sér það sem hann
óskar sér í jólagjöf.—Ég ætla a ð segja mömmum þegar ég kem
heim, hvað það er. Svona gítar væri nú gaman að eiga, maður.
Kleemola faliÖ í annaÖ
skipfi aÖ mynda stjórn
Það er álit kunnugustu manna,
að Mao muni sem framkvæmda-
stjóri flokksins halda hinu valda-
mesta embætti Kína. Hitt hefur
vakið nokkrar grunsemdir, að
hann skuli segja af sér embætti
einmitt um sömu mundir og gagn
rýni er að hefjast á kommúnu-
skipulagið, sem hann er talinn
hafa átt frumkvæðið að.
Mao
Frá Taipei, höfuðborg kín-
verskra þjóðernissinna á For-
mósu er símað, að það sé al-
mennt álitið að lausnarbeiðni
Maos sé mikill álitshnekkir fyr-
ir hann. Hann myndi ekki hafa
farið þessa leið, nema af því að
hann er til þess neyddur af ein-
hverjum ástæðum, hvort sem það
eru mistök í sambandi við komm
únurnar eða fyrir áhrif frá Rúss-
um. Jafnvel er hugsanlegt, að
Mao verði að hverfa vegna þess
hve herferðin gegn Quemoy og
Matsu misheppnaðist í haust.
í Júgóslavíu er nú mikið rætt
um afsögn Mao Tse-tung. Segir
í Reutersskeyti frá Belgrad, að
langlíklegast sé að Mao Tse-tung
hverfi nú frá völdum sem forseti
Kína vegna alvarlegs ágreinings
Dagskrá Alþingis
í DAG er boðaður fundur í Sam-
einuðu Alþingi. Sex mál eru á
dagskrá.
1. Kosning þriggja yfirskoðun-
armanna rikisreikninganna 1958,
að viðhafðri hlutfallskosningu
samkv. 43. gr. stjórnarskrárinnar.
2. Kosning 5 manna í stjórn
síldarverksmiðja ríkisins og jafn
margra varamanna, allra til
þriggja ára, frá 1. jan. 1959 til
31. des. 1961, að viðhafðri hlut-
fallskosningu, samkv. 1. nr. 1, 5.
jan. 1938 og 1. nr. 43, 19. maí s.á.
3. Kosning þriggja manna í
síldarútvegsnefnd og jafnmargra
varamanna, allra tii 3 ara, frá
1. jan. 1959 til 31. des. 1961, að
viðhafðri hlutfallskosningu, skv.
1. gr. 1. nr. 74, 29. des. 1934.
4. Kosning nýbýlastjórnar, 5
manna og jafnmargra varamanna,
allra til 4 ára, frá 1. jan. 1959 til
31. des. 1962, að viðhafðri hlut-
fallskosningu samkv. 2. gr. 1. nr.
48, 28. maí 1957, um landnám,
ræktun og byggingar í sveitum.
5. Þörf atvinnuveganna fyrir
sérmenntað fólk, þáltill. Ein umr.
6. Póstur og sími í Hafnarfirði,
þáltill. — Fyrri umr.
við Rússa. Það sem Rússa og Kín-
verja greinir einkum á um, er
kommúnurnar og utanríkisstefna
Kína.
Kunnugir menn innan júgó-
slavneska kommúnistaflokksins
segja, að Krúsjeff hafi hvað eftir
annað reynt að halda aftur af
Kínverjum og fá þá til að taka
upp hæglátari stefnu í utanríkis-
málum. Rússum hefur líka verið
meinilla við kommúnur Maós,
því að með þeim ganga Kínverj-
ar lengra á vegi sósíalismans, en
Rússar hafa nokkru sinni gert og
ÚR MÝVATNSSVEIT 11./12. ’58.
— Tíðarfarið hefur verið framúr-
skarandi gott í haust og það sem
aí er vetrinum. Jörð var nær því
frostlaus og tún græn fram yfir
mánaðamót nóv. og des.
Sauðfé hefur ekki verið hýst
fyrr en nú. Lokið er fyrstu smöl-
ur. á fé því, sem haft er á Austur-
fjöllum fram eftir vetri. Farið var
með leitarmennina í útjaðra leit-
arsvæðisins á jeppum.Sparaði það
þeim margra klukkustunda
göngu. Einnig var farið á jeppa
í Grafarlönd, langt inn með Jök-
ulsá, en þar fannst engin kind.
Föstudaginn 5. des. var sam-
koma í Skjólbrekku, þar sem Mý-
vetningar minntust þess, að Lestr
arfélag Mývetninga er hundrað
ára á þessu ári. Formaður Lestr-
arfélagsins, Ragnar Sigfinnsson,
setti samkomuna og stjórnaði
henni. Meðan setið var undir borð
um, voru fluttar margar ræður.
Aðalræðuna flutti Pétur Jónsson
í Reynihlíð. Rakti hann sögu fé-
lagsins, las upp nöfn allra stofn-
enda þess og rakti ævisögu þeirra
í stórum dráttum eftir því, sem
við varð komið. Síðan lýsti hann
starfsemi félagsins fram á yfir-
standandi ár. Var erindi hans
mjög ýtarlegt og fróðlegt. Til
sýnis‘ voru fyrstu bækurnar, sem
bókasafnið var stofnað með. Þær
eru nú orðnar fágætar og mjög
verðmætar. Að loknu borðhald-
inu söng Karlakór Mývetninga
nokkur lög. Sr. Örn Friðriksson
stjórnaði. Að lokum var stiginn
dans. Heillaskeyti bárust félag-
inu og afmælisgjafir. Kvenfélag
Mývetninga gaf því 5 þúsund kr.
og annaðist auk þess um alla
vinnu við veitingarnar og ýms-
an undirbúning, og gerði það aí
miklum myndarskap. Sigurður
Jóhannesson á Geiteyjarströnd
gaf félaginu eitt þúsund krónur,
og börn Péturs heitins Jónssonar
á Gautlöndum, alþingsm. og fyrr-
verandi ráðherra, gáfu alfræði-
bók í 12 bindum, í minningu þess
að faðir þeirra var fæddur 1858,
sama árið og Lestrarfélagið var
stofnað.
Þ. 20. nóv. lézt Þorsteinn Jónsson
bóndi í Reykjahlíð, f. 19. júní
1874. Hann hafði þá búið yfir
50 ár í Reykjahlíð. Þorsteinn var
gáfaður og vinsæll maSu». Jarð-
arför hans fór fram að Reykja-
hlíð 27. nóv. að viðstöddu miklu
fjölmenni.
finnst Rússum, að með því séu
Kínverjar að taka stjórnmálalega
forustu sósíalismans.
Ekki vilja Júgóslavar þó stað-
hæfa, að Mao verði nú að hverfa
af sviðinu fyrir áhrif frá Rúss-
um. Telja sumir jafnvel hugsan-
legt, að hann taki sér frí frá for-
setastörfum til þess að geta ein-
beitt sér að ritun stefnuskrár um
kommúnurnar.
Tekur Chu Teh
við?
Lausafregnir hafa borizt
um það frá Kína, aff eftir-
maður Maos verði kjörinn
Chu Teh fyrrum hershöfðingi,
en ekki Liu Shao-chi, sem
fram til þessa hefur verið tal-
inn krónprins hins kommún-
íska einræðisríkis.
Ef Chu Teh verður kosinn
getur það haft í för með' sér
miklar breytingar á æðstu
stjórn landsins og kommún-
istaflokksins, því að hann og
Chou En-lai forsætisráðherra
Kína eru álitnir hatrammir
andstæðingar.
Silungsveiði var mjög mikil í
Mývatni síðastliðið sumar og allt
bendir til að óvenjulega mikil
mergð af silungi sé nú í vatninu.
Unnið er að minkaveiðum þegar
færi gefst til. Nokkrir minkar
hafa náðst í haust, flest af því
voru læður. Þegar snjóföt gerir,
fara menn um þau svæði sem
helzt má búast við að minnkurinn
haldi sig á og ef þar sjást minnka
slóðir er Finnboga minkaveiði-
manni gert aðvart. Á þennan hátt
er hægt að hafa hugmynd um
hvað minkarnir eru margir. Full
yrða má að nú séu að minnsta
kosti 6 til 7 minkar við Mývatn
og Laxá í Mývatnssveit, en vel
geta þeir verið fleiri.
Jóhannes.
Á AÐALFUNDI L.Í.Ú., sem hald
inn var 3.—8. þ.m., voru mörg
mál á dagskrá og margar álykt-
anir gerðar. Hefur blaðið þegar
getið nokkurra þeirra. Auk
Luciuliátíðin
ÍSLENZK-SÆNSKA félagið hélt
hina árlegu Lúcíuhátíð sína í
Þjóðleikhússkjallaranum sunnu-
dagskvöldið 14. des. Formaður
félagsins, Guðlaugur Rósinkranz,
þjóðleikhússtjóri, setti samkom-
una. Ambassador Svía, Sten von
Euler-Chelpin, flutti ræðu um
Lúcíuhátíðahald í Svíþjóð og
hvernig það hefði breytzt með
breyttum þjóðfélagsháttum. Síð-
an var uppfærður stuttur leik-
þáttur, sem Bo Almkvist, lektor
hafði samið, en í lok hans komu
Lúcía (Anna Geirsdóttir) og
þernur hennar syngjandi Lúcíu-
sönginn. Undir kaffiborðum lék
Sigfús Halldórsson eigin lög og
stjórnaði borðsöng, en Sigurður
Þórarinsson sýndi litskuggamynd
ir frá Kiruna og Kebnekaise. Að
lokum var dans stiginn. Húsfyllir
var og virtust menn skemmta sér
hið bezta.
HELSINGFORS, 16. des.
(NTB). — í kvöld fól Kekkon
en Finnlandsforseti flokks-
bróður sínum Kauno Klee-
mola úr Bændaflokknum í
annað skipti að reyna stjórn-
armyndun. Að þessu sinni er
Klcemola falið að gera til-
raunina að grundvelli tillagna
frá hinum hægrisinnaða Sam-
bandsflokki. ,
Tillögurnar eru þess efnis
að reynt verði að mynda
stjórn með ráðherrum frá
þeirra, voru eftirfarandi ályktan-
ir gerðar:
„Aðalfundur L.Í.Ú. 1958 telur
aðliiegt oð sjálfsagt, að allt
að helmingur atvinnleysistrygg-
ingasjóðs verði ávaxtaður hjá
Fiskveiðasjóði íslands. Felur
fundurinn stjórn L.Í.Ú. að fá al-
þingismenn til að flytja frum-
varp um þetta mál‘.
„Aðalfundur L.Í.Ú. 1958 álykt-
ar að væntanleg samninganefnd
um starfsgrundvöll, beri að
semja um fullnaðargreiðslu á
reksturlánum vélbátaflotans sam
anber framsettar kröfur stjórnar
L.Í.Ú.“.
„Aðalfundur L.Í.Ú., haldinn
3.—8. des. 1958, skorar á stjórn
Seðlabankans, að hún ákveði, að
Seðlabankinn endurkaupi víxla,
sem gefnir eru út með veði í út-
flutningsuppbótum, sem greidd-
ar eru bátaeigendum úr Útflutn-
ingssjóði".
„Aðalfundur L.Í.Ú. 1958 vekur
athygli útvegsmanna og skip-
stjórnarmanna á nauðsyn þess að
framfylgt sé settum reglum um al
þjóðleg merki, sem fiskiskipum
ber að hafa uppi, bæði við veiðar
og eins þegar öðruvísi stendur á.
Jafnframt beinir fundurinn
þeim tilmælum til stjórnar L;Í.Ú.
að leitað verði samstarfs. við
Bændaflokknum, Sambands-
flokknum, frá sænska þjóð-
flokknum, Finnska þjóðflokkn
um og með fimm fylgjendum
jafnaðarstefnunnar, sem þó
hafa ekki tekið þátt í hinum
harðskeyttu innbyrðis deilum
í Jafnaðarmannafiokknum.
Kleemola varð fyrir nokkrn
að gefast upp við stjórnar-
myndun, þar sem hann gerði
ráð fyrir að minnihluti Jafn-
aðarmannaflokksins fengi aS-
ild að ríkisstjórninni.
Fiskifélagið og Landhelgisgæzl-
una um sérprentun á þeim regl-
um, sem gilda um þessi mál og
annað það, sem orðið getur til
leiðbeiningar íslenzkum sjómönn
um í þeirri hörðu samkeppni,
sem búast má við, að háð verði á
fiskimiðunum við strendur lands-
ins á næstunni.
Þessi sérprentun verði síðan
send öllum skipstjórnarmönnum,
og brýnt fyrir þeim, hversu þýð-
ingarmikið það er, að jafnan sé
farið að lögum, bæði innlendum
og alþjóðlegum, hvort heldur er
innan eða utan landhelgi.
Ennfremur beinir fundurinn
þeim tilmælum til landhelgisgæzl
unnar, að birt verði a.m.k. öðru
hvoru nöfn þeirra brezku skipa,
sem veiðar stunda hér við land á
verndarsvæðum fyrir fiskveiði-
brot og utan þeirra, þar sem slík
ur nafnalisti mundi auðvelda
skipstjórnarmönnum að semja
kærur á hendur þeirra brezku
skipa, sem valda veiðarfæratjóni,
eða sýna yfirgang á annan hátt“.
Fréttabréf úr Mývatnssveit:
Framúrskarandi goft
tíÖarfar í Mývatnssveit
Ályktun aÖalfundar L.Í.Ú.:
AÖ helmingur atvinnuSeysistrygginga-
sjóös verÖi ávaxíaSur Fiskveiðasjóöi