Morgunblaðið - 17.12.1958, Page 4
4
MORCVWMAÐ1Ð
Miðvikudagur 17. des. 1958
í dag er 351. dagur ársins.
Miðvikudagur 17. desember.
lmbrudagar.
Árdegisflæði kl. 10,12.
SíðdegisflæSi kl. 22,42.
Slysavar&stofa Keykjavíkur i
Heilsuverndarstöðirni er opin all-
an sólarhringinn. Læicnavörður
L. R. (fyrir vújanir) er á sama
stað. frá kl. 18—8. — Simi 15030.
Nælurvarzla vikuna 14. til 20.
desember er í Laugavegsapóteki,
sími 24045.
Holts-apótek og Garðs-apótek
eru opin á sunnudögum kl. 1—4
eftir hádegi.
Ilafnarfjarðar-apótek er 'pið alla
virka daga kl. 9-21, laugardaga kl.
9-16 og 19-21. Helridaga kl. 13-16.
Næturlæknir í Hafnarfirði er
Kristján Jóhannesson, sími 50056.
Keflavíkur-apóte^ er opið alla
virka daga kl. 9-lá, laugardaga kl.
9-16. Helgidaga kl. 13—16.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið daglega kl. 9—2C, nema
laugardaga kl. 9—16 og heigiduga
kl. 13—16. — Sími 23J00.
St.: St.: 595812177 VIII. — 4
□ Gimli 595812187 — 1 Frfl.
Atkv.
I.O.O.F. 7 = 14012178% =
Jólav.
RMR — Föstud. 19. 12. 20. —
VS — Jól. — Hvb
* AFMÆLI <■
Silfurbrúffkaup eiga í dag hjón-
in frú Halldóra Guðjónsdóttir og
Jóhann Vilhjálmsson, bifreiðar-
stjóri, Norðurbraut 24, Hafnar-
ifirði. —
K^Brúökaup
1. des. s. 1. voru gefin saman í
hjónaband ungfrú Katrín Péturs-
Athyglisverð
barnabók
I ÖLLU þessu svokallaða bóka-
flóði eru sjálfsagt margar góðar
og merkilegar bækur, og tæki
það eflaust langan tíma, ef mað-
ur ætti að grannskoða þær allar.
Ég var í einni bókabúð um dag-
inn og rakst þar á yfirlætislausa
bók, en það var eitthvað við útlit
hennar, sem dró mig til þess að
skoða hana nánar, Hún heitir
Biblíu-litabókin. Kápan er lát-
laus og gjörð af mikilli smekk-
vísi, hún hefur inni að halda
20 teiknimyndir fyrir börnin að
lita. Þessar myndir eru frá
sköpun heimsms og endar á
krossfestingu Jesús Krists á Gol-
gata.
Þetta er athyglisverð barna-
og unglingabók. Hún er mjög
fjölbreytt og er vafalaust mjög
þroskandi fyrir unglinga að
glíma við, að lita þessar yndis-
legu myndir.
Ég er í engum vafa um að for-
eldrar og fleiri muni stinga þess-
ari hugðnæmu barnabók í jóla-
pakka barnanna, þvl bókin er
bæði falleg og göfgandi.
B. J.
dóttir, Neðri-Engidal og Sigurður
Herlufsen, rakari, ísafirði.
7. des. s. 1. voru gefin saman
í hjónaband ungfrú Sigríður Gunn
arsdóttir, símamær, ísafirði og
Einar Þorsteinsson, vélsmiður,
sama stað.
pp^Hiónaeim
Nýlega .opinberuðu trúlofun
sína ungfr. Guðrún Gísladóttir og
Þórður Finnbjörnsson, bæði til
heimilis á ísafirði.
Ennfremur ungfrú Ágústa
Benediktsdóttir og Bjarni Gests-
son, ísafirði.
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Sjöfn Smith, Hringbraut
74, Reykjavík og Ingimundur
Magnússon, Bæ, Króksfirði.
H5S Skipin
Eimskipafélag íslands b.f.: —
Dettifoss fór frá New York 12. þ.
m. Fjallfoss fer frá Hull í dag. —
Goðafoss fór frá Flateyri í gær-
kveldi. Gullfoss fór frá Reykja-
vik í fyrradag. Lagarfoss og
Reykjafoss eru í Reykjavík. Sel-
foss fór frá Reykjavík 14. þ.m.
Tröllafoss fór frá Reykjavík í
gærkveldi. Tungufoss fór frá
Hamina í fyrradag.
Skipaúlgerð ríkisins: — Hekla
er í Reykjavík. Esja er á Aust-
fjörðum. Herðubreið er á Aust-
fjörðum. Skjaldbreið er á Húna-
flóa. Þyrill er væntanlegur til
Karlshamn í dag. Skaftfellingur
fór frá Reykjavík í gær. Baldur
fer frá Reykjavík í dag.
Skipadeild S.Í.S.: — Hvassafell
lestar á Eyjafjarðarhöfnum. Arn-
arfell er í Kefiavík. Jökulfell er
væntanlegt til New York 20.. þ.m. '
Dísarfell er í Þorlákshöfn. Litla- j
fell er í olíuflutningum í Faxa-
flóa. Heigafell fór frá Raufarhöfn !
í gær. Hamrafell fer frá Reykja- ^
vík í dag. j
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla er væntanleg til Rvíkur á
morgun. — Askja er í Patras.
Flugvélar
Flagfélag íslands h.f.: — Hrím
faxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar kl. 08,30 í dag. —
Væntanlegur aftur til Reykjavík-
ur kl. 16,35 á morgun. — Gull-
faxi fer til Lundúna kl. 08,30 í
fyrramálið. — 1 dag er áætlað
að fljúga til Akureyrar, Húsavík-
ur, ísafjarðar og Vestmannaeyja.
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar, Bíldudals, Egilsstaða,
ísafjarðar, Kópaskers, Patreks-
fjarðar og Vestmannaeyja.
|Aheit&samskot
Gjafir til Styrktarfélags van-
gefinna. — Safnað á héraðsfundi
Vestur-Skaftafellssýsiu af séra
Jónasi Gíslasyni kr. 285; G H
Keflavík 100; S H J Bolungarvík
150; L J Ólafsfirði 50; N N Rvík
200; N S 500; N M 500; G B
50. — Sölulaun, gefin á merkja-
söludaginn kr. 1033. — Með inni-
legu þakklæti. — Stjórnin.
Sólheimadrengurinn, afh. Mbl.:
Bjami kr. 50,00; G J 50,00;
Guðbj. Helgad., 50,00; G G 50,00.
Frá Áfengisvarnarnefnd
Hallgrímskirkja í Saurbæ, afh.
Mbl.: — G G kr. 25,00.
Gjafir til Vetrarhjálparinnar. ——
Peningagjafir: D Á L M kr. 500;
N N 20; Sigurður Guðjónsson
200; Valgerður Þorvaldsdóttir
100; Mjólkurfélag Reykjavíkur
500; Fjórmenningar 400; Theo-
dóra 50; Heildv. Edda 500; Skáta-
söfnun Vesturbæjar 23.665,00; —
Starfsfólk Sjóvátryggingarfél. Is-
lands 1.175,00. — Skátasöfnun
Austurbæjar 28.479,00. — Kjart-
an Ólafsson 100; N N 50; Leiftur
h.f. 974; Skátasöfnun í Klepps-
holti 16.620,00; N N 20; G H 100;
Verzl. Geysir 500,00. — Frá
mörgum hefur auk þess borizt
fatnaður. — Vetrarhjálpin flytur
öllum þeim, em gefið hafa og stutt
hana, beztu þakkir. — Vetrar-
hjálpin í Reykjavík.
Tmislegt
Orð lífsins : — Þá er }>ú 'xmn&ak
ar hjwrta mitt, prófar það um næt
ur, reynir mig, þá firmur þú eng-
ar illar hugsanir hjá mér, munnur.
minn heldur sér í skefjum. (Sálm.
17, 3). —
★
Júlasöfnun Mæðraslyi'ksnefndar
er til húsa að Laufásvegi 3. Opið
kl. 1,30—6 síðd. alla virka daga.1
Móttaka og úthlutun fatnaðar fer j
fram að Túngötu 2. — Opið kl.
2—6 síðdegis.
Munið jólasöfnun Mæðrastyrks-
nclndar. — |
Jólagjafir til blindra. — Jóla-
gjöfum til blindra er veitt mót-
taka í skrifstofu Blindravinafé-
lags Islands, Ingólfsstræti 16.
Styrktarfélag vangefinna þakk-
ar öllum þeim, er veittu félaginu
aðstoð við merkjasölu 2. nóv. s. I.
Sérstaklega þakkar félagið skóla-
stjórum b .rnaskólanna úti um
land, sem algerlega sáu um sölu
á merkjunum. Einnig flytur félag
ið þakkir til skólastjóra barnaskól
anna í Reykjavík fyrir góða fyrir
greiðslu, og öllum þeim börnum er
önnuðust sölu merkjanna. — Fjár-
öflunarnefndin.
Happdrætti Háskóla fslands. —
Vinningar í 12. flokki Happdrætt
is Háskóla íslands verða greiddir
í Tjarnarbíói dagana 17., 18., 19.
og 20., frá kl. 13,30 til 15,30. —
Eldri vinningar verða greiddir
eins og venjulega í aðalskrifstof-
unni í Tjarnargötu 4 daglega kl.
14—15. —
Rafvæðing í Kjós. — 1 frásögn-
inni af raforkuframkvæmdum í
Kjós, féll niður nafn eins bæjar-
ins, sem rafmagn fær á næst-
unni, en það er írafell. Útskála-
hamar fær aftur á *ióti ekki raf-
magn í þessum áfanga fram-
kvæmd-anna, en vonir standa til að
svo verði, þá er áfram verður
haldið að raflýsa sveitina.
Listamanniiklúbburinn er opinn
í kvöld í baðstofu Naustsins, í síð
asta sinn á þessu ári.
^Pennavinir
Pennavinir. — Kanadísk stúlka,
Elsie Williams að nafni, hefur
hug á að. skrifast á við nokkra
íslenzka pilta eða stúlkur. — Hún
kveðst eiga mörg tómstundaáhiiga
mál, m. a. frímerkjasöfnun, og
býðst til að senda blöð, minjagripi
og annað smávegis í skiptum fyrir
frímerki, notuð eða ónotuð. —
Heimilisfang stúlkunnar er: Suite
18, 3375 Oak Street, Vancouver 9,
B.C., Canada.
David Bennett, c/o Lowel Benn-
et , American Embassy, Paris, 14
ára, vill skrifast á við íslenzkan
pilt á líku reki.
Söfn
Bæjarbókasafn Reykjavíkur: —
Aðalsafnið, Þingholtsstræti
29A. — Útlánadeild: Alla virka
daga kl. 14—22, nema laugardaga
kl. 14—19. Sunnud. kl. 17—19. —
Lestrarsalur fyrir fullorðna. Alla
virka daga kl. 10—12 og 13—22,
nema laugardaga kl. 10—12 og 13
—19. Sunnudaga kl. 14—19.
Útibúið, Hólmgarði 34. Útlána
deild fyrir fullorðna: Mánudaga
kl. 17—21, aðra virka daga nema
laugardaga, kl. 17—19. — Les-
stofa og útlánadeild fyrir börn:
Alla virka daga nema laugardaga
kl. 17—19.
Náttúrugripasafnið: — Opið á
sttnnudögum kl. 13,30—15 þriðju-
dogum og fimmtudögum kl. 14—15
Listasafn Einars Jónssonar að
Hnitbjörgum er lokað um óákveð-
Lnn tíma. —
Þjóðmínjasafnið er opið sunnu-
daga kl. 1—4, þriðjudaga, fimmtu
daga og laugardaga kl. 1—3.
Byggðasafn Reykjavíkur aS
Skúlatúni 2 er opið kl. 2—5 alia
daga nema mánudaga.
Barnalesstofur eru starfræktar
í Austurbæjarskóla, Laugarnes-
skóla, Melaskóla og Miðbæjar-
akóla,
Útibúið, Hofsvallagötu 16. Út-
lánadeild fyrir börn og fullorðna:
Alla virka daga nema laugardaga,
kl. 18—19.
Útibúið, Efstasundi 26. Útlána
deild fyrir börn og lullorðna: —■
Mánudaga, miðvikudaga og föstu-
daga, kl. 17—19.
Hvað kostar undir bréfin.
Innanbæjar 20 gr. kr. 2.00
Innanl. og til útl.
(sjóleiðis) 20 — — 2.25
Flugb. til Norðurl »
Norðurlönd 20 — — 3,50
40 — — 6.50
Norð-vestur og 20 — — 3.50
.lið-Evrópu 40 — — 6.10
Flujb. til Suður- 20 — — 4.00
og A-Evrópu 40 — — 7.10
Flugbréf til landa 5 — — 3.30
utan Evrópu 10 — — 4.35
15 — — 5.40
20 — .— 6.45
• Gengið •
100 gullkr. = 738,95 pappírskr.
Guliverð isL krónu:
Sölugengi
1 Sterlingspund
1 Bandaríkjadollar.
1 Kanadadollar ....
100 Gyllini ........
100 danskar kr......
100 norskar kr......
100 sænskar kr......
1000 franskir frankar .
100 belgiskir frankar.
100 svissn. frankar .
100 vestur-þýzk mörk
1000 Lírur .......
100 tékkneskar kr
100 finnsk mörk
kr. 45,70
— 16.32
— 16,96
— 431,10
— 236,30
— 228,50
— 315,50
— 38,86
— 32,90
— 376,00
— 391,30
— 26,02
— 226,67
— 5,10
KVIKMYNDIR +
Camla bíó:
Bróðurhefnd
Þessi ameríska kvikmynd fjallar
um viðureign leynilögreglu-
manna við alrænda bófaklíku, en
giæpaveröld stórborga Ameríku,
virðist vera óþjótandi uppspretta
fyrir ameríska kvikmyndafram-
leiðendur. — í myndinni segir frá
leynilögreglumanni, sem er ekki
fclltof vandur að virðingu sinni
og þiggur stórfé af bófafélagi til
þess að hýma yfir og vera því
innan handar ef þörf gerist. En
svo ber við að bróðir hans, sem
er götulögregluþjónn, kemst að
of miklu um athafnir bófanna, og
því ráða þeir hann af dögum.
Leynilögreglumaðurinn á nú það
eitt takmark að hefna bróður
síns. Eftir miklar hættur og
margskonar þrautir tekst honum
loksins að koma fram hefnd sinni
svo kirfilega að bófarnir liggja
allir í valnum áður en lýkur.
Það er töluverð spenna í þess-
ari mynd og hún er vel leikin,
enda fara þarna ágætir leikarar
með hlutverk, svo sem Róbert
Taylor er leikur leynilögreglu-
manninn og George Raft, sem leik
ur aðalbófann. — En eins og sjá
af því sem að framan er sagt, er
mynd þessi ekki beint til þess
fallin að koma áhorfandanum í
jólaskap eða vekja honum jóla-
hugleiðingar!