Morgunblaðið - 17.12.1958, Síða 12
12
MORCVrUJT. AÐIÐ
Miðvikudagur 17. des. 1958
Utg.: H.f. Arvakur, Reykjavfk.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Aðalritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Bjarni Benediktsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vt«nr
Ejanx Asmundsson.
Lesbók: Arni óla, sími 33045
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 2248f
Askriftargjald kr 35.00 á mánuð: innanlands
I lausasölu kr. 2.00 eintakið.
„ÁRANGURINN AF STEFNU
EYSTEINS"
EGAR Hræðslubandalagið
lagði fram sfefnuskrá
sína fyrir kosningarnar
1956, var lofað „alhliða viðreisn
efnahagsmálanna“, nú átti að
„brjóta blað í efnahagssögu lands
ins‘. Það átti að stöðva verðbólg-
una og jafnframt skyldi haldið
uppi „þróttmikilli framfarastefnu
til sjávar og sveita“. í málefna-
samningnum, sem gerður var síð-
an milli Hræðslubandalagsins og
kommúnista, þegar stjórnin var
sett á laggirnar, var lofað hinu
sama, frelsun -þjóðarinnar úr
klóm verð’. ólgu og verðhækkana,
en j nframt „þróttmiklum" fram
fö. ,m.
í meira en fvö ár hefur ríkis-
stjórnin alltaf við og við þótzt
vera að leysa efnahagsvandann.
Hún hefur sagt, að enn þyrfti hún
svolítinn tíma, en nú yrðu gerðar
ráðstafanir, sem ættu að duga
nokkurt bil, þangað til hin end-
anlega lausn yrði fundin, en hún
væri á næstu grösum og að henni
væri unnið með aðstoð innlendra
og erlendra sérfræðinga. Svo rak
hver bráðab:rgðalausnin aðra og
alltaf var sagt að hin endanlega
lausn væri að fæðast. Það væri
ekki nema spurning um tíma.
þangað til það loforð yrði upp-
fyllt að „brotið skyldi blað í efna-
hagsmálum landsins“, verðbólgan
stöðvuð og „atvinnuvegunum
kippt upp úr styrkjafeninu“.Þetta
kvað við, þegar skatthækkanirn-
ar miklu dundu yfir, sem nefndar
voru „jólagjafir" og þetta kvað
líka við, þegar þær ráðstafanir
voru gerðar, sem kenndar eru við
„bjargráð". Alltaf sagðist ríkis-
stjórnin að vísu vera að tjalda til
einnar nætur, en sú nótt yrði
stutt, því lausnin væri á næsta
leiti. Reyndin varð hins vegar
sú, að þessi eina nótt hefur orðið
meira en tvö ár eða allur valda-
tími vinstrj stjórnarinnar.
Þann tíma, sem vinstri stjórnin
hefur setið að völdum, hafa Fram
sóknarmenn haft forsætið og Ey-
steinn Jónsson verið oddviti ríkis
stjórnarinnar í efnahags- og fjár-
málum. Það þarf meira en lítinn
skort á sómatilfinningu til þess
að birta nú, eftir allt sem á dag-
inn er komið, forystugrein í Tím-
anum undir yfirskriftinni: „Ár-
angurinn af stefnu Eysteins",
Þjóðin sér þennan árangur og
hvernig sem Tíminn reymr að
snúa málum við, hvernig sem
blaðið þegir yfir staðreyndum um
ástandið, eins og það raunveru-
lega er, þá verður aldrei dregin
fjöður yfir það hver hefur orðið
„árangur af stefnu Eysteins".
Efnahagsmálasérfræðingur ríkis-
stjórnarinnar orðaði það svo, að
við værum að „ganga fram af
bakkanum".
Sami skorturinn á sómatilfinn-
ingu kemur fram í Tímanum, þeg
ar hann sagði sl. sunnudag, að
óhætt væri að segja „að engin
stjórn hafi að undanförnu skilið
eins vel við í efnahagmálunum
og núverandi stjórn hefur gert.“
Nú lætur Tíminn í veðri vaka,
að sá vandi, sem að okkur steðji
sé ákaflega auðleystur, það þurfi
ekki nema einíaldar ráðstafanir,
eins og það er orðað, til þess að
kippa öllu í lag. Þetta er hið sama
og vinstri stjórnin hefur verið
að blekkja þjóðina með hvað eftir
annað á öllum sínum valdatíma.
Hér skortir allt hugrekki til þess
að segja sannleikann. Það er eng-
an veginn einfalt mál að ráða við
þau verkefni, sem blasa við eftir
viðskilnað vinstri stjórnarinnar.
En þetta þora þeir Tímamenn
ekki að segja heldur grípa til
nýrra gyllinga.
En ef það er rauiaverulega rétt,
að það þurfi ekki nema einfaldar
ráðstafanir til þess að kippa efna
hagsmálunum í lag og að ástandið
sé svo gott, að engin stjórn hafi
að undanförnu „skilið við“ á betri
hátt en þessi, þá er eðlilegt að
spurt sé, vegna hvers Framsókn-
armenn og þá sérstaklega Ey-
steinn Jónsson og Hermann Jón-
esson, gengu ekki fram fyrir Al-
þingi áður en þeir hlupust burt
úr stjórninni, og lögðu þar fram
tillögur sínar um hinar einföldu
ráðstafanir. Að þessu spyr þjóð-
in. Þessir menn létu ekki
einu sinni svo lítið, að skýra Al-
þingi frá því í höfuðdráttum,
hvernig komið væri. Um það var
ekkert sagt. Því síður höfðu þess-
ir menn nokkuð fram að bera fy:
ir Alþingi í formi tillagna um
hvað gera skyldi. Framsóknarráð
herrarnir hlupust einfaldega burt
með ríkistjórnina án þess að
leggja nokkuð fram á Alþingi til
úrlausnar. Svo er komið á eftir
og sagt að allt sé í bezta lagi,
enginn „viðskilnaður“ hafi ver-
ið betri en viðskilnaður Her-
manns Jónassonar.
Sannleikurin* er vitaskuld sá
um efnahagsmálastefnu vinstri
stjórnarinnar, að þar hefir alltaf
verið stefnt hröðum skrefum út
í botnlaust fen, þannig að ástand
iS er nú ískyggilegra fyrír okk-
ur en oftast hefur verið áður.
Allar bráðabitgðaráðstafanirnar
hafa einungis verið til þess falln-
ar að sökkva okkur dýpra og
dýpra, atvinnuvegirnir hafa
aldrei sokkið dýpra niður í
„styrkjafenið" en nú er, verð-
bólgan aldrei verið ískyggilegri
og peningarnir, sem fólk fær
handa á milli, aldrei verið verð-
minni heldur en eftir valdatíma
vinstri stjórnarinnar.
f þessu sambandi er ekki ófróð-
legt að minnast stuttlega á feril
Framsóknarmanna á undanförn-
um árum. Þeir hafa átt aðild að
ríkisstjórnum nú um langa hríð,
en að jafnaði hafa þeir ýmist
hlaupizt á brott, ellegar þá haft
uppi áróðurgagnvartþeirristjórn,
sem þeir áttu aðild að og verið
fádæma óheilir í samstarf-
inu. Mest heí'ur þó borið á því, að
þeir hafi hlaupizt á brott. Ekki
skyldu menn heldur gleyma því,
að Tíminn hafði uppi sífelldan
áróðuráhendur stjórn Steingríms
Steinþórssonar, sem var þó mað-
ur úr þeirra flokki. Og alla tíð
hefur sami söngurinn kveðið við
hjá Framsóknarmönnum. Lausn-
in er tiltölulega einföld á öllum
vandanum, en það eru bara ekki
við sem fáum að ráða. Allt er
öðrum að kenna. Framsóknar-
menn eru hinir hreinu englar,
sem vita allt og vilja vel, en það
eru aðrir, sem ekkert vita og vilja
allt illa. Þannig hefur þetta geng-
ið á mörgum sl. árum og mættu
menn vel muna það.
Ta//ð, að sonur hans hafi venð
myrtur i hefndarskyni
í KJALLARA undir verzlun
nokkurri í grennd við dómshúsið
í Varsjá fundust fyrir nokkru
jarðneskar leifar 16 ára drengs.
Drengnum var rænt fyrir tæpum
tveimur árum, og þá vakti ránið
mikla athygli bæði heima fyrir
og erlendis.
★
Hinn 22. jan. tóku tveir menn
skóladrenginn Bogdan Piaseeki
upp í leigubifreið. Drengurinn
hefur ekki sézt síðan. Daginn eft-
ir ránið fékk faðir hans, Bole-
slaw Piasecki, bréf, þar sem kraf-
izt var lausnargjalds, sem nam
um 500 þús. ísl. kr. Sögðust ræn-
ingjarnir verða á ákveðnum stað
á tilteknum tima, en þangað
komu þeir aldrei. Drengurinn
kom aldrei í leitirnar, jafnvel þó
að faðir hans byði enn hærra
lausnargjald, en ræningjarnir
fóru fram á. Jarðneskar leifar
drengsins fundust með þeim
hættij að tveir blikksmiðir áttu
að gera við leiðslu undir verzlun-
inni. Svo virðist, sem líki drengs-
ins hafi verið kastað niður í kjall
arann inn um loftloku.
var einnig gefið út vikublaðið
„Tygodnik Katolikow" og tímarit
ið „Zycie i mysl“ ásamt fjölmörg-
um öðrum blöðum.
Stofnsetti INCO
Yfirmenn kaþólsku kirkjunnar
í Róm vöruðu við starfsemi Pia-
seckis, en áform hans heppnuð-
ust samt að mestu leyti. En Pia-
secki hélt sig ekki eingöngu að
blaðaútgáfunni. Hann stofnsetti
einnig iðnaðar- og verzlunarfyr-
irtækið INCO, sem hefur 35 verk-
smiðjur á sínum vegum, fjöl-
marga banka og veitir einstakl-
ingum lán til að koma á fót fyrir-
tækjum, en reyndar á INCO þessi
fyrirtæki að mestu leyti. Miðað
við kommúnisk ríki er INCO
ótrúlega stórt einkafyrirtæki.
Enda er Piasecki, sem áður var
fasisti og andkommúnisti, auðug-
asti kapítalistinn í Austur- Ev-
rópu og þó víðar væri leitað á
áshrifasvæði kommúnista.
Er Gomulka tók stjórnartaurrj-
ana í sínar hendur í Póllandi,
komu fram háværar kröfur um,
að ferill Piaseckis yrði rannsak-
Boleslaw Piasecki.
aður. Einkum var þessum kröf-
um haldið á loft í stúdentablað-
inu Po Prostu. En aðstaða Pia-
seckis virtist óhagganleg, og ekki
leið á löngu, þar til Po Prostu
var bannað. Kommúniski kapítal-
istinn Piasecki stóðst fall fasism-
ans í Póllandi, sigur kommúnism-
ans og valdatöku Gomulka. En
sigrana galt hann dýru verði —
með missi sonar síns.
★
En hvað sem því líður, ekur
hann enn í dag um götur Varsjár
í lúxusbifreið, sem er svo stór og
íburðarmikil, að hún myndi
vekja athygli, hvar sem væri —
jafnvel í Bandaríkjunum.
Piasecki - ríkasti kapítalistinn
í ríkjum kommúnista
Eru „snjómennirnir"
naktir Lamaprestar?
Allt bendir til þess — og það
var reyndar einnig álit manna
fyrir tveimur árum — að pen-
ingagræðgi hafi ekki verið undir-
rót glæpsins heldur stjórnmála-
ástæður. Tilgangurinn hafi verið
að hefna sín á föður drengsins,
sem er mjög umdeildur maður og
á marga hatursmenn í Póllandi.
Aðstaða Boleslaws Piasecki er
óneitanlega nokkuð sérstæð, því
að hann er mesti kapítalistinn,
sem nú er uppi í hinum komm-
úniska heimi.
★
Piasecki er nú 48 ára að aldri.
Fyrir styrjöldina var hann leið-
togi fasistahreyfingar í Póllandi,
er gekk undir nafninu Falaxsen,
og beittu meðlimir hennar sér í
senn gegn Gyðingum og komm-
únistum. Er Rússar hertóku
landið 1945, fannst Piasecki í litlu
þorpi og var honum þegar varp-
að í fangelsi. Þar gerðist Piasecki
kommúnisti, og „seldi“ kommún-
istum hugmynd, sem flokksfor-
ingjarnir ginu þegar við. Hug-
myndin var sú, að hann reyndi
að kljúfa kaþólsku kirkjuna inn-
an frá. Kaþólska kirkjan var öfl-
ugasti andstæðingur kommún-
ismans í Póllandi. Piasecki var
sleppt úr fangelsinu, og hann tók
að skipuleggja Paxhreyfinguna,
sem að nafninu til var félags-
skapur kaþólskra leikmanna.
Hann setti á stofn dagblaðið
„Slowo Powszechne", sem gefið
var út í 200 þús. eintökum. Síðar
—*». «nn unglegri.
Þýzkur kristniboði, sem nýlega
er kominn heim frá Tíbet eftir 13
ára dvöl þar í landi, fullyrðir, að
hinir svokölluðu „snjómenn“ í
Eina ófalsaffa myndin, sem til
er af „snjómanni“, segir ka-
þólski presturinn.
Nágranni Chaplins í Sviss er
hinn frægi yngingarsérfræðing-
ur, prófessor Niehans. Chaplin
er nú 72 ára, mjög unglegur eftir
aldri, en hefur samt ákveðið að
láta dr. Niehans yngja sig upp.
Ef allt fer eftir áætlun, held ég
hundrað ára afmæli mitt hátíð-
legt árið 1986, og þangað til ætla
ég að vinna að kvikmynd um,
hvernig ég varð ungur í annað
sinn, segir Chaplin.
Margir frægir menn eru sagðir
hafa leitað til dr. Niehans, þ. á.
m. dr. Adenauer og Churchill.
Himalaya séu raunverulega inn-
fæddir prestar, sem búi í af-
skekktustu byggðum dölum í
Himalayafjöllunum.
★
Faðir Franz Eichinger hefur
tekið mynd af einum þessara
presta, og var myndin birt í nýj-
asta eintaki kaþólska biskups-
dæmisins í Regensburg. Er þar
sagt, að þetta sé fyrsta ófalsaða
myndin, sem tekin hefur verið
ar „snjómanni".
Blaðið birtir einnig frásögn
föður Eichingers af því, er hann
fyrst hitti einn þessara presta fyr
ir niu árum, þegar hann var á
ferðalagi í Himalaya. Lýsir Eich-
inger prestinum sem frumstæðri
loðinni mannveru, sem hafi vanið
sig á að vera að jafnaði nakin
þrátt fyrir hinn mikla kulda
þarna uppi í fjöllunum. Hafði
hann í fórum sínum tötralega
skikkju, sem hann sveipaði um
sig, er hann varð var manna-
ferða. *"
★
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem ég gat aflað mér, virtust 20—
30 slíkir lamaprestar vera bú-
settir á þessu fjallasvæði, sem ég
fór um. Fjöllin þarna eru allt að
6 þús. m á hæð. Þó að okkur sé
það óskiljanlegt, hefur þessum
mannverum á einhvern hátt tek-
izt að verða ónæmar fyrir kuld-
anum, segir Eichinger.
Arbók Sameinuðu
þjóðanna 1957
ÁRBÓK Sameinuðu þjóðanna
fyrir árið 1957 er nýlega komin
út. — Árbókin er sem fyrr mikið
og vandað verk, 585 bls. að stærð.
Er þar að finna greinargóðar
skýrslur um aískipti Sameinuðu
þjóðanna af ýmsum alþjóðlegum
vandamálum og deiluelnum á s.l.
ári.
Árbókin — „Yearbook of the
United Nations 1957“ — íæst hér
í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds
sonar.
Chaplin œtlar að láta
yngja sig upp