Morgunblaðið - 17.12.1958, Síða 22
MOnCl’NBLAÐIB
Miðvikudagur 17. des. 1958
3. bekkingar sýndu þjoðdansa. Stúlkurnar voru allar í íslenzkum búningi, svo sem venja er 1. des.
Fullveldisfagnaður í Cagnfrœðaskóla
fyrrverandi nemendur skólans
sóttu þennan fagnað, og fór sam-
koman mjög vel fram og var
nemendum til sóma í hvivetna.
Félags- og skemmtanalíf nem-
enda hér er gott. Sá þáttur skóla
starfsins er mikilvægur og stuðl-
ar að auknum þroska nemend-
anna. (Myndirnar tók Árni Matt-
híasson. — G.
Jólagjafasjóður „Stóru
barnanna"
Heiðruðu samborgarar!
MÖRGUM er orðið kunnugt um
þennan litla sjóð. Því, sem safn-
ast í hann fyrir jólin, er varið til
að gleðja vangefið fólk, sem
dvelst á hælisstofnunum. Allir,
sem leggja eitthvað af mörkum í
því skyni, geta verið þess full-
vissir að þeim hefir lánazt að
gleðja aðra, því að vangefið fólk
gleðst hjartanlega af litlu tilefni,
en það hryggist einnig eins og
börnin, ef því er gleymt.
X sumar var stofnað Styrktar-
félag vangefins fólks hér á landi.
Starfi þess fylgja góðar óskir og
fyrirbænir margra. Mörg líknar-
félög bera nafn með rentu, ekki
sízt félög til lxknar þeim, sem
ekkert geta hjálpað sér sjálfir,
ekki bundizt neinum samtökum
sér til hagsbóta. Jólagjafasjóður
Stóru barnanna, sem starfað hef-
ur í nokkur ár, verður nú af-
hentur hinu nýja félagi, það er
eðlilegast að hann starfi innan
vébanda þess þegar það er komið
til sögunnar. Við, sem að honum
höfum starfað, óskum aðeins eftir
að hsnn fái að bera sama nafn
framvegis og hafi áfram það
markmið, sem í nafni hans felst.
Undanfarin ár hefur Ragnhild-
ur Ingibergsdóttir læknir, Kópa-
vogshæli, keypt jólgjafir handa
öllum hælunum og sent þær, og
kann ég henni miklar þakkir fyr-
ir. En nú mun hver forstöðukona
kaupa handa sinu heimilisfólki
fyrir það fé, sem úthlutað er úr
sjóðnum. Gjöfum í jólagjafasjóð-
inn veita viðtöku auk Ragnhildar,
þau Kristrún Guðmundsdóttir,
Auðarstræti 17, sem er gjaldkeri
Styrktarfélags vangefinna, og
Georg Lúðvíksson, forstjóri Rík-
isspítalanna, Klapparstíg 29, sem
er gjaldkeri Jólagjafasjóðsins.
Að svo mæltu þakka ég blaðinu
birtingu þessa greinarstúfs og öll-
um þeim, sem muna eftir Jóla-
gjafasjóði Stóru barnanna.
Gleðileg jól.
Emil Björnsson.
Sexmenningarnir syngja ýmis dægurlög.
Tvísýn hraðkeppni að Háloga-
landi annað kvold
Hér leikur Elín Guðmunds-
dóttir í 1. bekk einleik á
píanó og eru það klassísk lög.
á Isafirði
ISAFIRÐI, Nemendur Gagn-
fræðaskólans efndu 30. nóvem-
ber, til fullvaldisfagnaðar í húsa-
kynnum skólans. Efnisskráin var
fjölbreytt og höfðu nemendur
lagt sérstaka alúð við undirbún-
ing allan, og notið góðrar aðstoð-
ar kennara sinna.
★
Á efnisskránni voru m.a.: kór-
söngur tveggja kóra, einleikur á
píanó, þjóðdansar, söngur með
gítar- og píanóundirleik og leik-
þáttur. Guðmundur Árnason,
kennari, minntist fullveldisins í
ágætri ræðu. Að lokum var stig-
inn dans af miklu fjöri. Margir
IR og FH mætast -
ÞAU eru að verða tíð hin stærri
handknattleiksmót að Háloga-
landi. Þau bera vott um vaxandi
líf innan handknattleiksíþróttar-
innar og eru sannarlega skemmti-
leg tilbreyting frá hinum löngu
meistaramótum, sem stundum
standa í 3 mánuði eða lengur.
Enn fyllist húsið þegar lirað-
keppni er, en öllu skyldi þó í hóf
stillt. Ekki er þó að efast um
að hinni næstu hraðkeppni, sem
hefst annað kvöld verður vel
fagnað. Þar verður skorið úr um
það hvaða fjórir eða jafnvel sex
leikmenn komast til æfinga fyrir
- og KR móti Fram
landsleikjaförina til Danmerkur,
Svíþjóðar og Noregs og verður
keppnin því ekki gefin fyrr en
í fulla hnefana.
Þessi hraðkeppnl sem hefst á
morgun og lýkur á föstudags-
kvöld er haldin í ágóðaskyni fyr-
ir landsleikjaförina. Það er Hand
knattleikssambandið sem að
henni stendur — og uppi á pöll-
unum einhvers staðar mun lands-
liðsnefndin sitja með sín al-
skyggnu gleraugu og velja 4—6
menn í hóp þeirra 14 sem fyrir
eru við æfingar undir utanferð-
ina.
Tíu lið taka þátta í hraðkeppn-
inni og hefur verið dregið um
það hverjir leika saman fyrra
kvöldið, en keppnin er útsláttar-
keppni og er það lið úr leik sem
tapar.
Leikirnir annað kvöld eru:
Ármann — Keflavík
Víkingur — Afturelding
ÍR — FH
KR — Fram
Valur — Þróttur.
Ekki er að efa að athyglin
beinist að leik IR—FH og leik
KR gegn Fram. Þetta eru 4 sterk-
ustu lið landsins nú. Fram vann
síðustu hraðkeppni og áður hef-
ur ÍR unnið eina og KR-ingar
eru nýbakaðir Réykjavíkurmeist
arar. Um styrkleika FH vita allir.
Hvað gerist er ómögulegt um að
spá. — Og grunntónn keppninn-
ar verður án efa keppnin um
landsliðssætin 4 eða 6.
EFTIB
EDDVARD SCHURÉ
Þessi stórmerka bók er áreiðanlega
fær um að beina huga lesandans
í hamingjuátt.
Björn Magnússon prófessor
þýddi bókina.
Bókin er 436 blaðsíður.
Verð kr. 198.00.
BÓKAFORLAG
ODDS BJÖRNSSONAR
Lesið meistaralega
sagðar ævisögur hinna
vígðu meistara.
Lesið um
LAUNHELGAR
EGYTALANDS,
MUSTERIÐ 1 DELFÍ,
REGLUNA
OG KENNINGAR
HENNAR.
VIGÐIR
SVIEI8TARAR
Hraðskákmót
Keflavíkur
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 17.
des. — Skákfélag Keflavíkur
gekkst fyrir hraðskákmóti á
sunnudaginn var. Þáttakendur
voru alls 14, en tefld var tvöföld
umferð svo að hver keppandi
varð að tefla 26 skákir.
,Ólafur Gíslason úr Reykjavík
tefldi sem gestur á mótinu.
Skákkeppni þessi var fjörug
og spennandi. Sérstaka athygli
vakti árangur þriggja unglinga,
eða Helga Ólafssonar 15 ára, sem
hlaut 3. sæti, Pálmars Breiðfjörð,
14 ára og Hauks Angantýssonar
10 ára.
Sigurvegari varð Ólafur Gísla-
son og hlaut hann fagran bikar
að launum, en grip þennan hafði
Haukur Magnússon forstjóri gef-
ið.
Úrslit urðu þessi:
1. Ólafur Gíslason 21% vinning;
2. Guðmudur Gíslason I9V2; 3.
Helgi Ólafsson 18; 4. Borgþór H.
Jónsson 16%; 5—7. Pálmar Breið
14; Vilhjálfur Þórhallsson 14;
Haukur Magnússon 14; 8. Páll
Jónsson 13%; 9. Haukur Angan-
týsson 10; 10—12. Júlíus Eggerts-
son 9; Hörður Pálsson 9; Bryn-
leifur Jónsson 9; 13. Magnús
Gíslason 8; 14. Hilmar Pétursson
6 vinninga. — BÞ.