Morgunblaðið - 17.12.1958, Side 24
V ED RID
NA-kaldi. — Léttskýjað.
Frost 1—5 stig.
290. tbl. — Miðvikudagur 17. desember 1958
Jólasveininn hefur aSeins
fengið um 1000 iólabréf
JÓLASVEINNINN á íslandi, sem
í fyrra var nær kafnaður í jóla-
bréfum frá börnum erlendis,
einkum þó brezkum, hefur haft
heldur náðuga daga um þessi jóL
í fyrra bárust honum alls rúm-
lega 45,000 bréf. — Var það
xnargra manna verk að hjálpa
hinum vinsæla jólasveini, til þess
að svara þessum bréfum öllum,
en það mun þó hafa tekizt í tíma
og glatt börnin.
Það er Ferðaskrifstofa ríkisins
sem tekið hefir á móti jólabréfum
til jólasveinsins. Höfðu henni í
gær borizt alls um 1000 bréf, —
flest frá Bretlandi eins og í fyrra.
Þeim mun öllum verða svarað nú
næstu daga.
• ★ •
Ýmsir gárungar hafa leitt að
því getur, hvort Bretar eldri
sem yngri muni telja að í átök-
unum undan íslandsströndum
hafi hinn konunglegi brezki floti,
flæmt jólasveininn á íslandi í
burtu!!
Heklu hlekktist á og óvíst
hvort skipið sigli fyrir jól
Annað sinn sem skip laskasf í rennunni
á Patreksfirði nú í ár
FORRÁÐAMENN Skipaútgerð-
ar ríkisins voru áhyggjufullir
mjög í gærdag. Strandferðaskip-
inu Heklu hlekktist í fyrrdag á
I „rennunni“ í Patreksfjarðar-
höfn og er með öllu óvíst hvort
skipið kemst í strandferð sína
vestur og norður nú fyrir jólin.
Þetta var mjög mikið áfall
fyrir okkur, sagði Guðjón Teits-
son forstjóri, er Mbl. átti tal við
hann í gær. Þetta er í annað
skipti á þessu ári sem skipi frá
okkur hlekkist á í Patreksfjarð-
arhöfn og þriðja tjónið sem verð-
ur þar á skipum okkar. í marz-
mánuði síðastl. varð Esja fyrir
miklum skemmdum, braut stýrið,
þar áður hafði Esjan einnig orðið
fyrir tjóni þar.
Þegar óhappið vildi til var
Bretar vilja land-
helgisgæzluna
fyrir
Haag-dómstól
í FRÉTT frá NTB í gærkvöldi
er skýrt frá því, að á ráðherra-
fundi NATO hafi Selwyn
Lloyd utanríkisráðherra Breta
komið nokkuð inn á fiskveiði-
deilu Breta og íslendinga. Er
sagt að hann hafi endurtekið
fyrri ummæli sín til íslendinga
um að deilan verði lögð fyrir
alþjóðadómstólinn í Haag.
Þess er ekki getið í fréttinni
að fulltrúi íslands hafi svarað
ummælum Lloyds.
Hið nýja hús Landsbanka íslands á ísafirði, semtekið var í notkun sl. mánudag. —
(Ljósm. Guðm. Ágústsson).
Hekla að leggja af stað út úr
höfninni. Stinningskaldi var og
rakst skutur skipsins í bakka
rennunnar. Er vitað að önnur
skrúfa skipsins mun ónýt eftir.
Þá er mjög óttazt að stýri skips-
ins hafi laskazt. Ef svo er, verður
skipið ekki komið aftur úr við-
gerð fyrir jólin, en ef nægir að
skipta um aðra skrúfuna, þá
tekur það^ verk aðeins um sól-
arhring. Úr þessu fæst væntan-
lega skorið í dag, ef skipið kemst
upp í slippinn hér í Reykjavík.
Hingað kom Hekla í gærdag og
var margt farþega með skipinu
sem ætlaði á viðkomuhafnir á
Vestfjörðunum og Norðurlandi.
Einnig er allmikill varningur
með skipinu og átti hann að kom-
ast á hafnirnar núna fyrir jólin.
Hinn þaulreyndi skipstjóri Ás-
geir Sigurðsson var með Heklu
er þetta gerðist. Enginn í skip-
stjórastétt mun hafa meiri
reynslu að baki sér í strand-
ferðasiglingum hér við land en
einmitt Ásgeir skipstjóri.
Starfsstúlkur
spítalanna
fá launahækkun
UM 200 starfsstúlkur við spítala
ríkisins, hafa fengið kjarabætur
með nýjum samningum. Tókust
samningar um síðustu helgi. Fé-
lag starfsstúlknanna hafði boðað
til verkfalls á spítölunum. Aðal-
atriði hins nýja samnings er að
starfsstúlkurnar fengu 10 pró-
sent hækkun grunnlauna sinna.
Ósamhljóða dómar í héraði
um yfirráðarétt
yfir litlu barni
Ættleiðing hafði farið fram
er móðir þess vildi fá jbað
NORÐUR í Húnavatnssýslu hef-
ur vart verið um meira rætt en
mál er risið hefur út af umráða-
rétti yfir barni, sem hjónin í Ból-
staðahlíð gengu í foreldrastað,
skömmu eftir fæðingu þess. En
móðir barnsins gerir kröfu til
þess að hjónin afhendi sér barnið
aftur. Nú hefur sérstakur setu-
dómari, sem var falið mál
þetta kveðið upp dóm, er gengur
í þá átt að krafa stúlkunnar skuli
tekin til greina. Þykir fullvíst að
hjónin í Bólstaðahlíð muni á-
frýja þessum dómi til Hæsta-
réttar.
Barn það er um er deilt, er
óskilgetið. Móðir þess, ung
stúlka, ákvað þá er hún gekk með
barnið, að gefa það. Magnús
bóndi Klemensson í Bólstaðahlíð
og kona hans ákváðu að taka
barnið þá er það myndi fæðast,
með því skilyrði að fá barnið til
fullrar eignar.
Svo fór sem ákveðið hafði ver-
ið. Þegar stúlkan hafði alið barn-
ið gaf hún það Bólstaðahlíðar-
hjónunum og tóku þau þá við því.
í beinu framh. af þessu fóru Ból-
staðahlíðarhjónin fram á ættleið-
ingu í stjórnarráðinu. Var sú
Fengu ekki að yfirgefa Gullfaxa
fyrr en síðbúnir tollverðir komu
Farhegar biðu um borð i yfir 20 min.
heimild veitt án skilyrða eða at-
hugasemda.
I sumar er leið fór móðir barns
ins á stúfana og krafðist afhend-
ingar barnsins, þar eð hún hafi
ekki hugsað sér að gefa það
þannig, að hún gæti aldrei fengið
það aftur. Bar móðir barnsins
því við m. a. að hún hafi þá er
hún tók svo örlagaríka ákvörðun,
eigi fengið nægilegar upplýsing-
ar um hvað hún væri í rauninni
að gera.
Málið kom til kasta héraðs-
dómsins á Blönduósi. Dómur upp
kveðinn þar dæmdi Bólstaða-
hlíðarhjónunum óskoruð yfirráð
yfir hinu umdeilda barni. Var
þeim dómi áfrýjað til Hæstarétt-
ar. Fyrir nokkrum vikum gekk
dómur þar í þessu viðkvæma
máli. Bæstiréttur vísaði málinu
aftur heim í hérað og lagði fyrir
að skipaður yrði setudómari í
málið. — Hæstiréttur tók ekki
málið sjálft til dómsúrskurðar.
Var ákveðið að skipa setudóm-
ara með tilliti til þess, að fulltrúi
hins reglulega dómara í héraði
hafði haft afskipti af ættleiðing-
unni.
Fyrir nokkrum dögum kvað
setudómarinn upp dóm sinn í
máli þessu og gekk hann í þver-
öfuga átt, ógilti ættleiðinguna og
taldi að taka bæri kröfu móður
barnsins um afhendingu þess til
greina.
Md/ið úr sögunni ef breyt-
ingartillagan er sam-
KOMA flugvélarinnar Gullfaxa
hingað til Reykjavíkur í gærdag
var með stórfurðulegum hætti og
minnti meir á stórgripaflutninga,
en farþegaflutninga samkvæmt
nýjustu tízku og eðlilegum kröf-
um í nútíma þjóðfélagi.
Þegar flugvélin var stödd yfir
Ve. nannaeyjum var farþegun-
um ’ :kynnt að svo vel hefði
heh ðin gengið að flugvélin
væri á undan áætlun! —
Þessu var fagnað meðal hinna
rúmlega 20 farþega sem með
flugvélinni voru.
Um klukkan 4 var svo lent á
Reykjavíkurflugvelli og flugvél-
in renndi upp að flugafgreiðsl-
unni. Farþegar kvöddust og tóku
böggla sína og handtöskur og
hugðust yfirgefa flugvélina. En
það var þá ekki hægt. Fór nú
glansinn af öllu með skjótum
hætti. Er ekki að orðlengja það,
að í 23 mínútur voru farþegarnir
hafðir í haldi um borð í flugvél-
inni, vegna þess að tollþjónustan
lét hvergi sjá sig. Var fólkinu
alveg neitað um að fara inn
í flugstöðvarbygginguna og bíða
þar tollþjónanna. Flugfreyjurnar
sögðu, að það væri heldur ekki
hægt, því landgöngubrúnni var
ekki ekið að flugvélinni, heldur
látin standa um það bil 1 metra
frá útgöngudyrunum.
Þegar loks toll-„þjónustu-
menn“ komu á vettvang, var ekki
með einu orði borin fram afsök-
un við flugfarþegana á þessu hátt
erni, en sú skýring gefin að
ástæðan væri sú að flugvélin
hefði verði á undan áætlun.
Nokkrir útlendingar voru með
flugvélinni. Virtust þeir ekki í
fyrstu átta sig á að flugvélin væri
lent í Reykjavík. Einn heyrðist
segja að flugvélin myndi hafa
villzt og myndi vera einhvers
staðar fyrir austan járntjald, og
það hlyti að vera „landtöku-
kommisar“ sem bíða yrði eftir.
þykkt
Frá Albingi
FUNDIR voru settir í báðum
deildum Alþingis á venjulegum
tíma í gær. — Á dagskrá efri
deildar voru tvö mál. Frv. til laga
um breytingu á sjúkrahúsalögum
var til fyrstu umræðu og sam-
þykkt til 2. umr. samhljóða. Frv.
um viðauka við lög um virkjun
Sogsins var til annarrar umr.
<frh.) Var Páll Zóphóníasson á
mælendaskrá frá deginum áður,
en hann var ekki mættur í þing-
salinn er umræður hófust og
kvaddi Bjöm Jónsson sér þá
hljóðs. Vék hann að ræðu Bern-
harðs Stefánssonar frá deginum
áður og taldi furðulegt, hve mik-
ið Bernharð Stefánsson hefði lagt
upp úr orðum aðalbankastjóra
Seðlabankans.
Bernharð Stefánsson tók næst-
ur til máls. Skýrði hann frá því,
að fjárhagsnefnd efri deildar
hefði falið sér að ganga á fund
aðalbankastjóra Seðlabankans og
hefði hann því ekki verið að gera
annað en skyldu sína, er hann
skýrði frá viðræðum sínum við
hann í deildinni.
Gunnar Thoroddsen kvaddi
sér næstur hljóðs. Skýrði hann
frá því, að þegar stjórn Sogs-
virkjunarinnar hefði leitað ráða
hjá Seðlabankanum um lánsút-
vegun hefði bankastjórinn lagt til
að sú leið yrði farin sem í frv.
segir. Hann hefði líka skýrt svo
frá, að skuldabréfin væru ekki
seljanleg án verðtryggingar.
Gunnar Thoroddsen sagði, að ef
breytingartillaga þeirra Björns
Jónssonar og Páls Zópóhóníasson-
ar yrði samþykkt, væri mál þetta
þar með úr sögunni. Kvaðst hann
því eindregið vilja beina þeim
tilmælum til fundarmanna, að
þeir felldu þessa breytingartil-
lögu.
Þegar hér var komið, var málið
tekið af dagskrá og fundi slitið.
Mikill snjór
í Ólafsfirði
ÓLAFSFIRÐI, 16. desember. ~
Hér hefur verið illviðrasamt und
anfarið og hefur sett niður svo
mikinn snjó, að allar leiðir eru
tepptar. í kvöld eru meir að
segja horfur á því að götur, þar
sem snjóýtu hefur verið beitt,
verði ófærar aftur. Fluptningar
fara fram á sleðum.
Um helgina tókust samningar
við verkamenn hér og fá þeir
sömu hækkun og Dagsbrúnar-
menn í Reykjavík fengu í vetur.
Forstjóri togaraútgerðarinnar
hér hefur sagt starfinu lausu frá
áramótum. Forstjórinn Guðmund
ur Guðmundsson á Akureyri,
11 mun vera að flytjast suður. Höf-
um við augl. eftir nýjum fram-
kvæmdastjóra og leikur okkur
hugur á að fá í starfið ungan
dugandi mann. Togari Ólafsfirð-
inga er Norðlendingur. — JÁ.