Morgunblaðið - 23.01.1959, Blaðsíða 20
V EÐRIÐ
NA-kaldi, 3—7 stiga frost.
ALÞINGI
Sjá frásögn af umræðum
á blaðsíðu 11.
18. tbl. — Föstudagur 23. janúar 1959
Aldrei hefur það verið heiglum hent að vera sjómaður á Islandsmiðurn, og allra sízt í hörðum
veðrum á vetrum. Þessi mynd var tekin í gœrdag um borð í varðskipinu Ægi, er það kom til
Akureyrar. Skipið líktist eiginlega miklu fremur borgarísjaka en skipi, svo ferleg var klaka-
brynja þess. Hér eru á þilfari varðskipsins, eim og við íshellismunna, þeir Þórarinn Björnsson,
akipherra, til hœgri, og Haraldur Björnsson, fyrsti stýrimaður. (Ljósm.: Mbl. Gisli Ólafsson)
Ægir varð fyrir brotsjó
og skemmdist nokkuð
AKUREYRI, 22. jan. — Ægir
varð fyrir nokkrum skemmdum
á miðvikudaginn, er brotsjór kom
á miðju skipsins út af Rauðunúp-
um. Var loftskeytastöð skipsins
óvirk með öllu ó eftir. Ekki varð
slys á skipsmönnum, er þetta
gerðist.
Svo er varðskipið ísað, að það
er eiginlega líkara borgarísjaka,
en skipi, þar sem það liggur hér
við bryggju í dag. Sagði Þórarinn
skipherra Björnsson, að hann
hefði aldrei fyrr séð Ægi svo ís-
aðan, en það hefði einmitt verið
orsök þess að hnúturinn kom á
skipið. Var skipið orðið þungt
undir ísbrynjunni og varði sig
Félag fasteigna-
skattsgjaldenda
stofnað
19. Þ.M. VAR stofnað hér í bæ
Félag stóreignaskattsgjaldenda.
Samkvæmt 2. gr. félagslaganna
er tilgangur félagsing þessi:
a) Að sanda vörð um friðhelgi
eignarréttarins og önnur ákvæði
stjórnarskrárinnar, sem hagkerfi
ríkisins og frjálst athafnalíf lands
manna grundvallast á.
b) Að vinna að því af fremsta
megni, að lög nr. 44/1957 komi
ekki til framkvæmda, en verði
numin úr gildi sem allra fyrst.
c) Að hafa skrifstofu, sem með-
al annars veiti félagsmönnum alla
lögfræðilega aðstoð við mála-
rekstur þeirra út af nefndum lög-
um.
I stjórn félagsins voru kosnir:
Páll Magnússon, lögfr., Hjörtur
Hjartarson, fulltrúi_ oe Guðmund-
ur Guðmundsson, forstjóri. í vara-
stjórn: Sighvatur Einarsson,
pípulagningameistari og Jón
Bjarnason, hæstaréttarlögmaður.
Sími félagsins er fyrst um sinn
14964.
þar af leiðandi illa.
Sjór hafði ekki verið mikill, en
hvasst mjög, 8—9 vindstig. Hnút-
urinn lagði inn brúarvænginn,
mölvaði rúður í gangi í brúnni,
og komst sjór þar inn og í loft-
skeytaklefann, sem fylltist af sjó.
Er hætt við að loftskeytatækin
hafi orðið fyrir miklum skemmd-
um eða hreinlega eyðilagzt. Brot-
sjórinn braut einnig léttbát
Tæplega 140
mislingatilfelli
ENN eru dálítil brögð að misl-
ingum hér í bænum. Kemur þetta
fram í yfirliti frá skrifstofu borg-
arlæknis um farsóttir hér í
Reykjavík vikuna 4—10. jan. Eru
þá skráð 138 mislingatilfelli, en
þau höfðu verið vikuna þar áður
108. Annars er það einkum kvef-
sóttin, sem herjar í bænum og
eru 160 kvefsóttartilfelli skráð
á fyrrnefndu tímabili, 4—10. jan.
í þeirri sömu viku skutu rauð-
ir hundar upp kollinum hér í
bænum, en höfðu ekki áður gert
vart við sig. Voru skráð 10 til-
felli.
Fyrsta skeljasands
löndunín
AKRANESI, 22. jan. — Sand-
dæluskipið Sansu sem leigt hefur
verið til skeljasandstöku fyrir
Sementsverksmiðjuna hér úti í
Faxaflóa, kom í dag úr fyrsta
sandtökuleiðangri sínum. Vel
hafði gengið að ná sandinum upp.
Var byrjað að losa skipið við
bryggju sementsverksmiðjunnar
um klukkan 2,30 í Jag. 1 skipinu
munu hafa verið um 800 rúmmetr
ar af skeljasandi. — Oddur.
skipsins og dældaði reykháfinn.
Hér á Akureyri mun gert við
skipið til bráðabirgða og sett í
það loftskeytastöð svo skipið geti
siglt til Reykjavíkur og fengið
þar fullnaðarviðgerð.
Ægir hafði verið á eftirlitsferð
úti fyrir Norðurlandi í nokkra
daga, er þetta vildi til. Erlendir
togarar eru þar djúpt úti og langt
frá línunni. — Mag.
Biskupskjöri
lýkur 1. apríl
BISKUPSKOSNINGAR fara
fram á næstunni. Kjörstjórn við
biskupskjör, mun senda út kjör-
seðla í næsta mánuði, til allra,
sem kosningarétt hafa, og verða
kjörseðlarnir að berast aftur í
hendur formanns kjörstjórnar í
kirkjumálaráðuneytinu fyrir kl.
24,00 að kvöldi 1. apríls n.k.
Kjörstjórn skipa þessir menn:
Gústav A. Jónasson, ráðuneytis-
stjóri, sem er sjálfkjörinn, séra
Sveinn Víkingur, biskupsritari,
tilnefndur af kirkjumálaráðherra
og séra Jón Þorvarðarson, sóknar
prestur, tilnefndur af Prestafél-
agi íslands.
Fjölmennur fundur full-
trúaráðs Sjálfsfœ&is-
félaganna
I FYRRAKVOLD var haldinn
fjölmennur fundur í fulltrúaráði
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
og voru þar til umræðu bæjarmál
Reykjavíkur og flokksmál.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri hélt þar ógæta ræðu um
bæjarmálin. Gaf hann glöggt yfir
lit um hag bæjarfélagsins og hin-
ar miklu framkvæmdír sem yfir
standa og fyrirhu.gáðar eru. Máli
hans var mjög vel tekið.
Bæjarfulltrúarnir Þorvaldur
Garðar Kristjánsson og Gísli
Halldórsson, héldu og ítariegar
ræður, þar sem þeir ræddu sér-
staka þætti bæjarmálanna. Enn-
fremur töíuðu þeir Hannes Jóns-
son og Þorkell Sigurðsson.
Birgir Kjaran, formaður full-
trúaráðsins, ræddi um nokkur
verkefni þess, er nú liggja fyrir,
og bar fram tillögur um flokks-
málefni, er samþykktar voru ein-
róma.
Eins og fyrr segir var fundur-
inn fjölsóttur og fór fram með
prýði.
Fróðlegt yfirlit í Ægi
um fiskframleiðsluna '58
í NÝÚTKOMNUM ÆGI, riti Fiski
félags íslands, segja ýmsir for-
ráðamenn í fiskiðnaðinum, frá
framleiðslunni á síðasta ári og
ræða auk þess ástand og horfur
í markaðsmálum.
★
Um saltfiskframleiðsluna segir
Richard Thors, framkvæmda-
stjóri m.a., að framleiðslan 1953
hafi orðið 35.000 tonn. Var fisk-
urinn allur að undanskildum
1600—1800 tn. seldur og flutt-
ur út fyrir áramótin síðustu. Tel-
ur framkvæmdastjórinn að út-
flutningsverðmæti saltfisksins
hafi numið 135—140 millj. kr.
og hafi allur fiskurinn að 1500
tonnum undanskildum verið seld-
ur fyrir frjálsan gjaldeyri.
Markaðshorfur eru álitnar góð-
ar fyrir óverkaðan saltfisk. Tel-
ur framkvæmdastjórinn að hægt
hefði verið að selja 10.000 tonnum
meira af saltfiski árið 1958, ef
hann hefði verið fyrir hendi.
Óskar Jónsson framkvæmda-
stjóri segir í grein sinni um skreið
arframleiðsluna að hún hafi gef-
ið þjóðarbúinu 40—45 millj. kr.
í hörðum gjaldeyri. Framleiðslan
var 42.000 tonn. Framkvæmda-
Ætjjórinn telur ekki horfux á
markaðshruni. Eftirspurn eftir
skreið var mikil á síðasta ári.
★
Erlendur Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri segir frá því í yfir-
liti sínu að verðmæti Norður-
landssíldar — saltaðrar, hafi num
ið 94,5 millj. kr., en Suðurlands-
síldar 8 milljónum.
Hann segir frá því að nokkur
þúsund tunnum síldar sé enn ó-
ráðstafað. og stafi það af göllum
á síldinni. Sé með öllu óvíst um
sölu hennar. Erlendur leggur á-
herzlu á, er hann ræðir fram-
tíðarhorfur, að auka þurfi vand-
virkni í meðferð saltsíldarinnar.
Bóndinn fór í einn róður
og hlutur hans var yfir 3 þúsundir kr.
AKRANESI, 22. jan. — Ungur
bóndi ofan úr Reykholtsdal, er
hingað kom í fyrradag með vöru-
bíl sinn til viðgerðar, vatt kvæði
sínu í kross og fór í róður, meðan
hann var að bíða eftir bílnum.
Þessi ungi bóndi, sem er héðan
af Akranesi, er Guðmundur Guð-
jónsson, að Brekkukoti í Reyk-
holtsdal, hóf þar búskap með
konu sinni, Laufeyju Hannes-
dóttur, fyrir hálfu öðru ári.
Guðmundur er dugnaðarmaður
hinn mesti. Hann hóf hér að
stunda sjóinn um fermingu og er
þaulvanur sjómaður.
Aflinn var góður í þessari sjó-
ferð Guðmundar með vélbátnum
„Ver“, 350 tunnur. Þegar Guð-
mundur í Brekkukoti kvaddi
i skipsfélaga sína og fékk greiddan
hlut sinn í aflaverðmætum báts-
ins í þessum róðri, komu í hans
hlut kr. 3135,00. Stóðst það nokk-
urn veginn á endum, að með
hlutnum gat hann borgað viðgerð
arkostnaðinn á bílnum. — Oddur.
Árshátíð
í Keflavík
KEFLAVlK, 22. jan. — Árshátíð
og þorrablót Austfirðingafélags-
ins í Keflavík og nágrenni verð-
ur haldið í Ungmennafélagshús-
inu í Keflavík næstkomandi laug-
ardag_ og hefst kl. 8 um kvöldið.
Þetta er önnur árshátíðin, sem
féjagið heldur, og er hið bezta til
hennar vandað. — Félagið er fjöl-
mennt og hefir starfað með mikl-
um þrótti undanfarið. — Ingvar.
f grein Sveins Benediktssonar
útgerðarmanns og formanns
stjórnar Síldarverksmiðjanna,
segir frá því að útflutningsverð-
mæti bræðslusíldarafurða hafi
alls numið 55,5 millj. kr. Hann
telur ekki mögulegt að segja fyr-
ir um markaðshorfur á síldar-
mjöli á þessu ári. Einnig ræðir
Sveinn í grein sinni um síldar-
vertíðina á sl. sumri og segir að
fullyrða megi að síldveiðin hafi
byggzt að langmestu leyti á auk-
inni veiðitækni. Sveinn segir að
vegna þess hve veiðitækninni
hafi fleygt fram megi vænta va»-
andi afla, þótt síldin kunni að
halda sig langt frá landi og vaði
illa.
★
Jónas Jónsson framkvæmda-
stjóri, segir frá því að fiski-
mjölsframleiðslan hafi á síðasta
ári orðið meiri en nokkru sinni
fyrr. Er það karfinn sem þessu
veldur.
★
Tryggvi Ólafsson framkvæmda
stjóri segir frá því að þorskalýs-
isframleiðslan hafi minnkað á
s. 1. tveimur árum. Var hún 1958
9700 tonn. Lýsisframleiðslan seld-
ist nokkurn veginn jafnóðum en
verðið hefur farið lækkandi, en
mest varð þó lækkunin 1958 og
nemur hún 12—14 sterlingspund-
um á tonnið á því ári.
Tveir lítils liáttar
brunar í Firðinum
HAFNARFIRÐI — Slökkvilið-
ið var tvívegis kallað út í gær, en
í bæði skiptin var um smávægi-
lega bruna að ræða. Rétt fyrir
kl. 3 var það kallað upp í Grænu-
kinn 20, að nýju tveggja hæða
steinhúsi, sem þar er í smíðum.
Var eldur þar í mótatimbri, er
geymt var í kjallara hússins, og
logaði glatt í. Var eldurinn fljót-
lega slökktur, en nokkrar
skemmdir urðu á timbrinu. Hús
þetta er enn óinnréttað og ekki
hefir verið leitt í það rafmagn, og
er því hallazt að því, að krakkar
hafi verið að leika sér með eld í
timbrinu.
Og aftur var liðið kallað út kl.
rúmlega fjögur í gærdag, og í
þetta skipti að áhaldahúsi bæj-
arins í Svendborg. Hafði eldur
komizt þar á milli þilja, líkleg-
ast frá kolakynntum ofni, sem
var upp við þil. Varð að rífa
það að nokkru leyti til ao kom-
ast að upptökum eldsins, sem
var sama og enginn, en nokkur
hluti þilsins hafði sviðnað.—
Slökkviliðið hefir aðeins einu
sinni verið kallað út síðan fyrir
jól, en það var fyrir nokkrum
dögum, þegar kviknaði í húsi
Sigmundar Björnssonar, Öldu-
götu 21. Urðu nokkrar skemmdir
á húsinu, svo og húsgögnum og
fatnaði. — G.E.