Morgunblaðið - 05.04.1959, Page 3

Morgunblaðið - 05.04.1959, Page 3
Sunnudagur 5. apríl 1959 MORGVNBLAÐIÐ 3 Úr verinu --Eftir Einar Sigurðsson- Togararnir Saman hefur farið hjá togur- unum ótíð og aflaleysi. Skipin eru nú flest fyrir sunn- an land, bæði á Selvogsbanka og Eldeyjarbanka, nokkur skip fyr- ir vestan og enn önnur á Jóns- miðum við Austur-Grænland. Sem dæmi upp á aflaleysið má geta þess, að síðasta skipið, sem landaði í vikunni, Hvalfellið, var með 97 lestir eftir 11 daga úti- vist, eða 9 lestir að meðaltali yfir sólarhringinn. Aflinn hjá Bjarna riddara, sem líka landaði í fyrradag, var enn minni. Það er eins og aflinn hjá tog- urunum á heimamiðum fari greinilega árlega minnkandi, þannig að til stórvandræða horf- ir. Ef karfaveiðarnar hefðu ekki hafizt við Nýfundnaland, væri togaraútgerð nú hér í kaldakoli. Fisklandanir í sl. 14 mánuði: tonn dagar Skúli Magnússon .. 27 15 saltfiskur 107 Neptúnus 170 11 Karlsefni 159 8 Jón Þorláksson .... 160 10 Geir 153 10 Austfirðingur .... 201 16 Pétur Halldórsson .. 63 20 saltfiskur 63 Fylkir 186 12 Egill Skallagrímsson 156 14 Úranus 155 15 Jón forseti 191 11 Þorkell máni ...... 32 11 saltfiskur 56 Ingólfur Arnarson . . 42 14 saltfiskur 68 Marz 215 13 Hvalfell 97 11 Hér fer á eftir aflamagn þeirra Reykjavíkurtogara, sem hafa fengið 1000 lestir eða meira frá áramótum fram til 1. apríl, bæði það, sem landað hefur verið hér- lendis og erlendis. Saltfiskmagn- ið er tvöfaldað. Úthaldstímj er að sjálfsögðu misjafn. Pétur Halldórsson .. 1442 tonn Úranus ................ 1394 — Jón Þorláksson ........ 1337 — Geir .................. 1333 — Hvalfell .............. 1321 — Egill Skallagrímsson . 1311 — Þo'rkell máni ......... 1121 — Þormóður goði ......... 1023 — Allir 18 Reykjavíkurtogararn- ir hafa aflað frá áramótum 17.857 lestir, eða við 1000 lestir að með- altali. Reykjavík Róið var alla daga vikunnar utan þriðjudaginn. Tíðin hefur verið heldur stirð, sífelldir um- hleypingar. Afli hefur verið misjafn, sæmi legur hjá mörgum, komst t.d. einn daginn upp í 42 lestir hjá einum bát, Hafþór. Var það tveggja nátta. Algengasti aflinn hefur verið 8—12 lestir. Nokkrir bátar eru byrjaðir með handfæri og hafa aflað sáralítið. Af útilegubátum eru þessir afla- hæstir: Hafþór .......... 528 t sl og ósl Helga ........... 453 -------- Guðm. Þórðars .. 388---------- Af bátum, sem róa daglega, eru aflahæstir: Svanur ............. 405 t. ósl. Ásgeir ............. 321 t. ósl. Barði .............. 315 t. ósl. Keflavík Tíðin hefir verið stirð síðan um páska, en páskavikuna voru góð sjóveður, og héldu menn þá, að loks tæki að batna, en svo var þó ekki, og hefur síðan verið mesti ruddi og ólæti í veðrinu. Afli hefur komizt upp í tals- vert magn, en allt meira og minna skemmt, helzt aldrei náðst næturgamall fiskur úr netunum. Stærsti róðurinn var hjá Bald- vin Þorvaldssyni á 2. í páskum, 46 lestir, en svo hefur aflinn líka oft verið niður í ekki neitt. Handfærabátar hafa verið að reyta svolítið, en hafa lítið getað róið vegna ótíðarinnar. Aflamagn lá ekki fyrir. Akranes Alla þessa viku hefur aldrei verið hægt að draga öll netin vegna þrálátrar ótíðar, og hefur aflinn farið eftir því. Stærsti róðurinn var á skírdag hjá Sæ- faxa, 3614 lest, en algengasti afli hefur verið 7—15 lestir. Nokkrir bátar eru byrjaðir með handfæri og margir tilbúnir. Þeir hafa komizt tvisvar út og aflað sæmilega, við 114 lest á færi.' Báðir togararnir komu inn í vikunni með heldur rýran afla, Bjarni Ólafsson með 170 lestir og Akurey með 150 lestir. Aflahæstu bátarnir eru: Sigrún ............. 524 t. ósl. Sigurvon ........... 497 - — Ól. Magnússon ...... 456 - — Höfrungur........... 410 - — Sæfari ............. 400 - — V estmannaey jar Sjóveður voru góð í vikunni fyrir páska, en um páskana brá aftur til, þó hefur aldrei tekið alveg frá síðasta 14 mánuð. Laugardagurinn fyrir páska og 2. páskadagur heppnuðust ágætlega að þessu sinni og voru eins og oftast áður stærstu afla- dagar vertíðarinnar. Afli hjá netjabátum hefur yfir- leitt verið góður, en þó óvenju misjafn á þessum tíma. f fyrradag og daginn þar áður öfluðu nokkrir bátar ágætlega undir Sandi á 25 faðma dýpi, og er það óvenjulegt svo seint á vertíð. Var þetta frekar smár fiskur, og er það einnig óvenju- legt. Handfæraveiðarnar hafa geng- ið treglega, og er það algjör- lega veðrinu að kenna, því að þá daga, sem gott veður hefur verið, var góður afli eða frá 10—16 lest- ir á skip hjá þeim, sem bezt öfl- uðu. Llfrasamlag Vestmannaeyja hefur nú tekið á móti 1608 lestum af lifur á móti 1774 lestum í fyrra eða við 10% meira þá. 30. marz tók Lifrasamlagið á móti 143 lestum af lifur, og er það met á einum degi. Fyrra metið var frá 1954, 127 lestt- 10 aflahæstu bát Gullborg 10 t. ósl. Stígandi .... . 486 - — Kári ... 468 - — Hannes lóð'' 460 - — Kristbjörg 441 - — Sig. Pétur .. 440 - — Snæfugl SU 424 - — Björg SU .. 410 - — Ófeigur III . . 410 - — Gullfaxi NK 389 - — Fiskafli Norffmanna er nú svo að segja nákvæmlega sami og á sama tíma í fyrra. Meiri áherzla hefur nú verið lögð á herzlu og frystingu en í fyrra og dregið um helming úr söltun- inni. Fiskafli Nýfundlendinga gekjt saman á sl. ári um nærri 20% frá árinu áður. Nýfundna- land er einn af skæðustu keppi- nautum íslands í frosnum fiski á Bandaríkjamarkaðnum. Falla fyrir tímans tönn Togaraeigendur í Aberdeen eru nú að breyta togaraflota sínum í nýtízku díeseltogara, og verða í ár 30 gamlir gufutogarar seld- ir í brotajárn. Aff spara Það var sú tíð, að það þótti dyggð að spara. Má vera, að svo sé enn, en eitthvað hefur áhug- inn hjá ungdóminum dofnað. j Eldri kynslóðin á þar sjálfsagt j sína sök. Hún hefur ekki gætt þess eins og skyldi að rýra ekki trú þeirra yngri á gildi pening- anna. Talið er, að sl. 12 ár hafi verðbólgan numið 10% á ári. Má nærri geta, hvort það hefur ekki sín áhrif, þegar um sparnað er að ræða, að verðgildi p«ning- anna hefur þannig stöðugt farið lækkandi. Einhver viðleitni hefur verið í þá átt að hvetja skólabörn til að spara. Er það góðra gjalda vert, ef ekki skorti á að tryggja þeim jafnframt verðgildi spari- skildinganna. Eitthvað hefur það borið á góma hjá þeim, er pen- ingamálunum ráða, því að ann- að slagið hefur heyrzt, að þetta stæði til, en minna orðið úr fram- kvæmdum. Og enn halda því börnin, sem leggja aurana sína í bankann, áfram að greiða með þeim sem svarar 5% á ári, ef rétt er fullyrðing hagfræðing- anna um vöxt verðbólgunnar. Peningar eru ekkert annað en milliliður, ávísun á önnur verð- mæti. Ef ekki er um svikinn gjaldmiðil að ræða, er augljóst, hve mikils er um vert að geta lagt fyrir fé til þess að veita sér fyrir fæði og klæði, hús og Óskar J. Þorláksson: Á fermingardegi Varðveit hjarta þitt fram- ar öllu, því að þar eru upp- sprettur lífsins. (Orðskv. 4. 23). í DAG byrja fermingar í söfnuð- um Rvíkur. Fjöldi ungmenna verður fe.rmdur næstu sunnudaga, vinir og vandamenn gleðjast með fermingarbörnunum og hátíð verð ur á heimilum þeirra. Hvað er svo fermingin í eðli sínu og hver er hinn raunverulegi tilgangur hennar? Það er eðlilegt að um þetta sé hugsað á þessum dögum. Fermingin er heilög stund í lífi hinna ungu, þegar þeir eru minnt- ir á skyldur sínar við Frelsara sinn og játast undir merki hans. Megin kjarni kristindómsins felst í tvöfalda kærleiksboi'ðorðinu alkunna: „Þú skalt elska Dix>tt- inn Guð þinn af öllu hjarta þínu, og af allri sálu þinni og af öllum huga þínum. Og þú skalt elska náuhga þinn eins og sjálfan þig“. | Matt.: 22, 37—39). Við þetta miðast sú fræðsla og fermingarundirbúningur sem ung) ingarnir njóta fyrir fermingu. Á öllum sviðum er verið að efl* fræðslu hinna ungu og búa þá sem bezt undir lífið. Einn þáttur i þeim undirbúningi hlýtur að vera, að fræða hina ungu um grundvall- aratriði trúar og siðgæðis, sem mestu máli skiptir fyrir tíman- lega og andlega velferð mannsand- ans. Það er sannfæring allra krist inna manna, að hina varanlegustu hamingju lífsins sé að finna í sam félaginu við Jesúm Krist, og með því að þroska með sér það hugar- far, sem bjó í hjarta hans. Kristindómurinn miðar því allt I við það að Guð sé herra lífsins, og að maðurinn eigi að þroslcast í trú til eilífs lífs. „Því að hvað mun það stoða manninn þótt hann eignist allan heiminn, en fyrir- gjöri sálu sinni. Matt. 16. 26). Og er ekki réttlætiskennd, sann leiksást. Þetta vill kristindómur- inn innræta hinum ungu, þó að misjafnlega gangi að fá menn til þess að lifa eftir þessum sannind- um. húsmuni, sem eru hverju manns- barni jafnnauðsynleg og loftið, sem það andar að sér. Þá er öryggið, sem fjármunirnir veita, mikilvægur þáttur í hugsun hvers manns, eða ætti að vera. Að verða ekki öðrum til byrði, þegar sjúkdómar og elli sækja að, jafnframt lönguninni til að koma börnum sínum til manns. Margir hugsa fyrir því að sjá sér og sinum farborða, en líka eru aðrir, sem gera sér enga grein fyrir gildi peninganna og eyða því, sem hönd á festir. En það skyldu þeir athuga, sem svo hugsa, að þeir eru ekki aðeins að kasta frá sér því, sem þeir eyða í það og það sinnið, held- ur eru þeir að svipta sig tekju- möguleikum til æviloka. Segj- um t.d., að maður eyði 12.000 krónum í að sigla og tilgangur- inn sé ekki annar en að skemmta sér. Nú er ekki verið að hafa á móti því, að menn „lyfti sér upp“, það getur blátt áfram ver- ið nauðsynlegt oft og einatt, og til hvers er að eignast fé og tíma aldrei að láta neitt eftir sér? Maurapúkar voru þeir nefndir, sem gengu lengst í þeim efnum. En athugum nánar með 12000 krónurnar. Ef maðurinn hefði lagt þær í húseign, að sjálf- sögðu ásamt mörgum öðrum 12000 krónum, hefðu þær gefið af sér ekki minna en 1200 krónur á ári eða 100 krónur á mánuði til æviloka. Það er kannske ekki mikið, en það gátu líka alveg eins verið tvennar 12000 krónur. En eyðslan gat líka verið önnur og minni. En ef menn hefðu það jafnan hugfast, er þeir eyða fé, að þeir eru að svipta sig árlegum 10% tekjum af upphæðinni ævi- langt, má vera að afstaða þeirra væri önnur en hún einatt er. Stjórnmálamönnum og öðrum forráðamönnum þjóðarinnar í efnahagsmálum er nú að verða það æ betur og betur ljóst, að yið svo búið má ekki standa: hamslaus eftirspurn eftir lánsfé jafnframt því sem sparifé vex ekki eðlilega, vegna þess að vext irnir hafa ekki einu sinni við verðbólgunni. Það er því verið að stinga upp á að verðtryggja spariféð. En það kann að vera hægara sagt en gert, ef ekki á að stofna í hættu gjaldþoli ríkis- ins, sem ber yfirleitt ábyrgð á sparifénu. Fyrir nokkru voru gef in úr svonefnd vísitölubréf. Slíkt er hægt í smáum stíl, en hvern- ig færi með sömu þróun í peninga málum, þegar t.d. var verið að tala um í haust, að vísitalan gæti hækkað úr 185 og upp í 270 stig, eða um 50% á einu ári. Og nú hefur gamla vísitalan hrein- lega verið afnumin og hvað þá? Ef gulltryggja ætti spariféð, er það allt tæpar 2000 millj. kr. Nú verður ekki umflúið að leið- rétta gengið fyrr eða síðar, ætli það yrði ekki 100% hækkun á erlendum gjaldeyri. Hvernig færi ríkissjóður eða bankarnir að inna slíka greiðslu af hendi? Einu sinni var hægt að skipta íslenzku króuunni fyrir gull, og kann það .Framh. á bls. 11 II. Fermingin er því fyrst og fremst trúarlegs eðlis, eins kon- ar vígsluathöfn í lífi hinna ungu, þegar þeir eru minntir á skyldur sínar við Frelsara sinn og hvatt- ir til trúmennsku við hann. En þessi helgistund hefur líka jafnan verið gleðistund fyrir börn in sjálf, foi’eldra þeirra og'ástvini. Yér erum nú einu sinni þannig gerð, að vér viljum gleðjast á há- tíðlegum augnablikum lífsins. Og ekki er það óeðlilegt að foreldrar, börn og vandamenn þeirra gleðjist þegar svo merkum áfanga er náð í lífi barnanna. Þegar sú gleði er í samræmi við grundvallarreglur kristindómsins, er ekki annað en gott um hana að segja. Hitt er svo annað mál, að allt óhóf í sam- bandi við fermingar, bæði í gjöf- um og veizluhöldum er engum til góðs og allrá sízt börnunum, sem fermast, og getur orðið til þess að skyggja á sjálfan tilgang ferming- arinnar. Kirkjan vill gera sitt til að draga úr óhófi og kostnaði við fermingar, og gera sjálfa athöfs- ina einfalda og hátíðlega, og ég bygg að flestir foreldrar vilji það líka, en tízkan og tíðarandinn hef- ur sin áhrif á helgiathafnir og hátíðir kirkjunnar, sem eiga þó fyrst og fi'emst að vera andlegs eðlis. — Engum dylst, að fermingin sjálf er fögur og hátíðleg athöfn og snertir oft viðkvæma strengi í hjörtum fermingarbarnanna og ástvina þeirra, enda er fermingar- dagurinn einn mesti hátíðisdagur- inn í söfnuðum landsins. Hitt er svo ekki á voru valdi að segja, hvaða áhrif fermingin kann að hafa á líf hinna ungu eða hins fulltíða manns, þegar árin líða. En ég get ekki hugsað mér annað en að athöfnin sjálf og fermingar- undirbúningurinn geti haft annað en góð áhrif, svo langt sem það nær. Og það er líka víst, að sjálf fermingarathöfnin rifjar upp í hugum hinna fullorðnu, margar bjai'tar og fagrar minningar frá æSkuárum þeirra sjálfra og get- ur átt sinn þátt í því, að tengja fjölskyldurnar fastari böndum og minna á gagnkvæmar skyldur for- eldra og barna. Það hefur verið sagt, að það sé nokkur vandi að vera ungur á vor- um tímum, og vissulega eru tæki- færin mörg fyrir þá, sem snemma koma auga á hin sönnu verðmæti lífsins, og leitast við að þi-oska vilja sinn í samfélagi við Guð. Freistingarnar eru líka margar og oft vandi að velja og hafna. Þess vegna hvílir líka alltaf nokk ur óvissa yfir framtíð hinna ungu á hverjum tíma. En Guð blessi og leiði þau ungmenni, sem fermast á þessu vori, víðsvegar um landið. Ó, hvert fer þú, barnið mitt blítt, er brosir nú svo milt og hlýtt? Ó Guð veit, hvar þín liggur leið, hann leiði þig um æviskeið. Ó. J. Þ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.