Morgunblaðið - 05.04.1959, Blaðsíða 24
V EÐRIÐ
Hvass og rigning fyrst síðan
allhvöss V-átt með éljum.
Reykjavíkurbréf
Sjá bls. 13
Fyrsti ísl. togarinn aft-
ur á Nyfundnalands-
miðum
TOGARASKIPSTJÓRAR eru nú
farnir að hlusta vel eftir fréttum
af hinum fengsælu karfamiðum
við Nýfundnaland og nú er fyrsti
íslenzki togarinn kominn vestur
þangað. Þetta er Austfjarðartog-
arinn Vött'ir.
Eftir þeim fregnuwi sem borizt
hafa frá honum, hafði hann verið
í nokkrum fiski þar til á föstu-
daginn. Þá varð togarinn að slá
undan vegna þess hve mikill rekís
var á veiðisvæðinu.
Það mun fara mjög eftir því,
hvernig ísinn hagar sér á miðun-
um og hversu Vetti verður ágengt,
Þjófarnir báðu
lögregluna
um aðstoð
KLUKKAN rúmlega 7 í gær-
morgun var lögreglunni tilk., að
bíl hefði verið stolið á bilastæð-
inu við Skjaldbreið. Var hér um
að ræða bifreiðina R-9049. Svo
sem stundarfjórðungi seinna
hringdi landssíminn á lögreglu-
stöðina. Sá sem talaði, kvaðst
vera annar tveggja manna er
stolið hefðu bílnum R-9049. Væru
þeir staddir upp við Bergvík á
Kjalarnesi og hefðu þeir misst
bílinn út af veginum. Bað mað-
urinn lögregluna um aðstoð við
að ná bílnum upp. Þegar lögreglu
mennirnir komu á staðinn með
krana bíl og tilfæringar, voru
þar fyrir tveir piltar, báðir ölvað
ir. Bíllinn var fastur og hafði í
meðförum þeirra skemmst mikið.
Piltarnir voru báðir færðir í lög-
reglustöðina og sátu enn í varð-
haldi seinnipart dags í gær.
hvenær togararnir hefja á ný
karfavei&ar þar vestra. Rekísinn
virðist vera allt að 200 mílur aust-
ur fyrir Nýfundnaland, en það
þýðir að hann er enn 20—30 mílur
austur fyrir véiðisvæðið.
Þegar Vöttur var að fara af
miðunum á föstudaginn, hafði
hann dregið suður og undan ísn-
um. —
Klukkunni
flýtt
í DAG hefst sumartími hér á
landi, þ.e.a.s. klukkunni var flýtt
um eina klukkustund í nótt er
leið.
Koparþjófar
ræna í vélasal
Vélstjóraskólans
1 PYRRINÓTT hafa koparþjófar
lagt leið sína inn í sjálfan Vél-
stjóraakólann til þess að ræna
þar eir.
Vélstjóraskólinn er, s>em kunn-
ugt er, til húsa í Sjómannaskólan-
um, en í sérstöku húsi, skammt
frá er vélasalur, þar sem nemend
ur skólans stunda verklegt nám. 1
þennan sal var inmbrotið framið.
Þar inni var sundurtekin vél. Eir-
rörin frá henni lágu þar í einni
hrúgu, en þau voru af öilum lengd
um og sverleikum, en þau lengstu
5—6 m., og sverustu 2 tommur.
Voru þau .neð flönsum og tilheyr-
andi festingum. Er talið að alls
muni rör þessi vega um 100 kg.
Þá var stolið úr vé-asalnum 4
-stuttum stálröru-m.
Listkynning Mbl.
Jóh'annes Geir
Jónsson
UM þessa helgi hófst sýning á
málverkum eftir Jóhannes Geir
Jónsson, listmálara á vegum list
kynningar Morgunblaðsins. Jó-
hannes Geir er ættaður úr Skaga
firði og er rúmlega þrítugur að
aldri. Er talinn meðal hinna efni
legustu listamanna í hópi hinna
yngri listmálara. Hann hóf mynd
listarnám í Handíða- og mynd-
listarskólanum hér í Reykjavík
en var síðan um skeið í Konung-
lega listháskólanum í Kaup-
mannahöfn. Hann hefur haldið
tvær sjálfstæðar málverkasýn-
ingar og tekið þátt í mörgum
samsýningum. Hafa verk hans
oft vakið mikla athygli.
Málverk þau, sem Jóhannes
sýnir nú á vegum listkynningar
Morgunblaðsins eru flestar mál-
aðar í pasteL
Starfsfræðsludagurinn
er í Iðnskólanum í dag
FJÓRÐI starffræðsludagurinn er
í dag. Fer fræðslan fram í Iðnskól
Steíánsmótið í dag
við skála KR
anum í Reykjavík, og verður
húsið opnað almenningi kl. 2
e.h., en kl. 1,45 hefst „dagurinn"
með ávarpi Óskars Hallgrímsson-
ar, formanns Iðnfræðsluráðs.
Leiðbeiningar verða síðan veitt-
ar í yfir 100 starfsgreinum til
kl. 5.
1 DAG fer fram skiðamót við
skála KR í Skálafelli, en hér ít
um að ræða svonefnt Stefánsmót,
sem er svigkeppnismót, með þátt-
töku í öllum flokkum kvenna,
karla og drengjaflokki. Er gert
ráð fyrir að 70 skíðamenn muni
taka þátt í mótimu, sem hefst kl.
10 árdegis. Upp við skála KR er
nú góður snjór nýfallinn. Keppt
er um bikara í öllum flokkum. —
'Standa vonir til að þetta skíða-
mót geti orðið mjög spennandi
vegna þess að heita má að þetta sé
fyrsta skíðamótið sem haldið sé
'hér við Reykjavík í vetur, við hag-
'stæð skilyrði.
☆
Nokkur reynsla er nú komin á
þessa starfsemi, og er ljóst, að
hennar er mikil þörf, en áhugi
unglinga á starfsfræðslunni hef-
ir farið vaxandi ár frá ári. —
Aðalhvatamaður starfsfræðslunn
ar og forstöðumaður hennar er
Ólafur Gunnarsson, sálfræðing-
ur, en fulltrúar stofnana og starfs
greina, sem fræðslu veita í dag,
eru liðlega hundrað, en starfs-
greinarnar eru raunar nokkru
færri.
Pólýfónkórinn heldur
tónleika í Camla Bíó
Á þriðjudags- og miðvikudags-
kvöld heldur Pólýfónikórinn tón-
.eika í Gamla Bíói. Þetta er annað
starfsár Pólýfónkórsins, sem er 40
manna blandaður kór. S.l. ár efndi
kórinn til kirkjutónleika, sem
vöktu mikla athygli.
Að þessu sinni eru lögin á söng-
skrá kórsins einungis veraldlegs
efnis — bæði gömul og ný lög. Á
söngskránni eru m. a. lög eftir
Hans Lei Hassler, Orlando di
Lasso, Hugo Distler og Béla
Bartók. Stjórnandi kórsins er
Ingólfur Guðbrandsson og undir-
leikari Gísli Magnússon.
Tónleikarnir í Gamla Bíói hefj-
ast kl 7:15.
■4» Appelsínur eru komnar sunnan frá Spánl, að visu ekki stór
sending, en þær virðast ágæt vara. Þær komu með Kötlu í
gærmorgun var verið að Ijúka við uppskipun þeirra. —
Appelsínur voru hér síðast um jólin. — Segja má að búðar-
borðin svigni nú undan suðrænum ávöxtum, því nú er líka.
nýlega komin ný sending af eplum frá Ameríku. Þessi mynd
af uppskipun hinna spænsku appelsína tók ljósmyndari Mbl.
niður við höfn í gærmorgun.
Feikimikil ísl. landkynn-
ing í sœnskum blöðum
GAUTABORG 4. apríl. Frá
fréttararitara Mbl.). — Mikið er
nú skrifað um Island og íslenzk
málefni í sænsk blöð. Eru það
gneinar sænsku blaðamannanna,
sem hafa verið á Islandi á vegum
Sölumiðstöðvar Hraðfrystihús-
anna og fyrirtækisins „Felix“,
sem hefur með höndum dreifingu
ig sölu á .slenzka fiskinum. Síð-
ustu viku hafa daglega verið heil-
síðugreinar í víðlesnustu blöðun-
um, t. d. í Göteborgs Posten,
stærsta blaði Gautaborgar, sem
gefið er út í 215 þúsund eiintök-
um. Er það annað stærsta blað
Svíþjóðar.
Það er langt síðan svo mikið
hefur verið skrifað í sænsk blöð
um Island, ef það hefur þá verið
nokkurn tímann. Er þetta gríðar-
lega mikil landkynning auk þess,
ÞANN 25. þ.m. fór fram hin ár-
lega sveitakeppni í Bridge milli
Kjósarmanna og Kjalarness.
Þrjár sveitir frá hvorum. Að
þessu sinni, urðu úrslit þau, að
Kjósarmenn unnu. Fengu 4 stig,
en Kjalarnes 2.
sem íslenzki fiskurinn hefur feng-
ið verðuga auglýsingu.
Síðustu vikur hefur hraðfrystur
fiskur frá Islandi, einikum þó ýsan,
unmið sér mikla markaði í Svíþjóð,
sem fyrsta flokks gæðafiskur. —
Enginn vafi er á því aö fyrirtækið
„Felix“ hefur unnið mikið og gott
starf með þessari auglýeingaher-
ferð sinni.
Oðinsfundur
á þriðjudagskvöld
Málfundafélagið Óðinn, félag
Sjálfstæðisvei'kamanna og sjó-
manna heldur fund í Sjálfstæðis-
húsinu n. k. þriðjudag 7. þ.m. kl.
8:30. — Frummælandi á fundinum
verður: Gunn-ar Thoroddisen, borg-
arstjóri