Morgunblaðið - 05.04.1959, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.04.1959, Blaðsíða 23
Sunrmríaerur 5. áprfl 1959 MORfirVRr 4BIÐ 23 Hampiðjan í Reykjavík 25 ára í dag Verksmiðjan getur nu framleitt allt það botnvörpugarn, sem togaraflotinn þarfnas*. — Framleiðsla kaðla fyrirhuguð FYRSTA og eina verksmiðjan hér á landi, sem kembir og spinnur hamp til veiðarfæragerðar og annarra nota, á 25 ára afmæli í dag. Þetta fyrirtæki er Hampiðjan h.f., Stakkholti 4, Reykjavík. Þrátt fyrir ýmsa erfiðleika hefir Hampiðjan smám saman fært út kvíarn- ar, stækkað hús sín og bætt og aukið vélakost. Siðast var unnið að stækkun verksmiðjuhúsanna árin 1957 og 1958 (er grunnflötur þeirra nú rúmlega 3700 fermetrar), og fyrir skömmu var lokið við að setja upp nokkrar nýjar vélar og tæki, en þar með eykst Hamleiðslan svo, að Hampiðjan getur nú fullnægt þörfum alls togaraflotans, hvað botnvörpugarni viðvíkur. Óskaði ríkis- Þessar upplýsingar komu m. a. fram á fundi, sem Hannes Páls- son, framkvæmdastjóri Hamp- iðjunnar, átti með fréttamönnum í sl. viku. Sýndi hann frétta- mönnum húsakynni fyrirtækisins og skýrði gang framleiðslunnar. — Starfslið verksmiðjunnar er nú 70 manns, en auk þess vinn- ur fjöldi manns (um 400 sl. ár) heima hjá sér að netjahnýtingu fyrir verksmiðjuna. Þá má geta þess, að Hampiðjan hefur starf- rækt netjavinnustofu á Eyrar- bakka um 20 ára skeið, en ekki er unnið þar nema hluta úr ár- inu. — Auk netjahnýtingar, sera fram fer í heimahúsum, er starf- rækt netjahnýtingarstofa í sam- bandi við sjálfa verksmiðjuna og vinnur þar allmargt fólk. Eink- um er það aldrað fólk og las- burða, sem vinnur við hnýtingu netjanna, og nýtast þannig starfs kraftar margra, sem annars gætu ekki unnið við arðbær störf. Stofnun Hampiðjunnar. f bæklingi, sem Hampiðjan hef ur látið prenta í tilefni afmælisins er rakin saga fyrirtækisins í meg indráttum. — Hampiðjan var stofnuð 5. apríl 1943, en aðalhvata maður að stofnun hennar og fyrsti framkvæmdastjóri var Guðmund- ur S. Guðmundsson. Sama ár voru keyptar vélar frá frlandi til vinnslu á manila- og sísalhampi, og jafnframt var byggt einlyft hús í Rauðarárholti — þar sem verksmiðjan enn stendur — var það 450 ferm. að stærð. Verk- smiðjan tók til starfa fyrir árslok 1934, en fyrstu framleiðsluvör- ur hennar voru seldar hinn 3. janúar 1935. Fyrirtækinu vegnaði vel hin fyrstu ár, og starfsemin óx hröð um skrefum. Árin 1935—39 nem framleiðslan 653 tonnum af botn- vörpugarni, og fullnægði það þörfum togaraflotans, enda féll innflutningur á slíku garni nær alveg niður á þessum árum, v.ar t. d. aðeins 2 tonn 1939. Það ár var verksmiðjuhúsið stækkað og aftur 1941. Styrjaldarárin. Þegar Guðmundur S. Guð- mundsson lézt, árið 1942, tók Frí mann Ólafsson við starfi fram- kvæmdastjóra, en að honum látn- um, 1956, tók núverandi fram- kvæmdastjóri við, Hannes Páls- son. — Á styrjaldarárunum tók nær alveg fyrir innflutning á veiðarfærum til landsins, en hins vegar fékkst innflutt nokkurn magn af hampi. stjórnin þá eftir því við Hamp- iðjuna, að hún yki framleiðslu sina eftir föngum, þar sem við blasti vandræðaástand vegna veið arfæraskorts, einkum hjá línu- bátum. — Tókst verksmiðjunni á þessum árum að fullnægja þörf- um bátaflotans fyrir fiskilínur, auk þess sem framleitt var botn- vörpugarn fyrir togarana. — Á árunum 1940—1948 framleiddi Hampiðjan 1487 tonn af botn- vörpugarni og 938 tonn af fiski- línum eða eingirni í þær. Þetta tókst með því að vinna í verk- smiðjunni allan sólarhringinn, svo framleiðsumagn nýttist til Hannes Pálsson, framkvæmda- stjórL ráðamanna þjóðarinnar á eflingu veiðarfæraiðnaðarins munu „ekki líða mörg ár, þar til íslendingar fara að flytja út veiðarfæri af framleiðslu umfram þarfir veiði- flotans." Verksmiðjuhúsið við Stakkholt. fulls. Má segja, að þetta hafi * komið í veg fyrir stöðvun fisk- veiðanna, eða a.m.k. stórfellda truflun á þeim. Guðleysis-barátta aukin MOSKVU 4. apríl. (Reuter). — Rússneska vísinda-akademían hef ur ákveðið að setja upp sérstakt ráð til að skipuleggja og sam- ræma guðleysisáróður og barátíu gegn trúarbrögðum. Einnig var ákveðið á fundi akademíunnar, að vísindamenn skyldu leggja áherzlu á guðleysissjónarmið í ritum fyrir almenning m. a. á sviði líffræði, jarðfræði, efna og eðlisfræðL Erfiðleikar. Á árunum eftir styrjöldma tók hagur fyrirtækisins að þrengjast vegna vaxandi innflutnings á þeim vörum, sem það framleiðir og árið 1949 varð ekki annað séð en rekstrarstöðvun væri fyrir dyrum. En með gengisbreyting- unni 1950 batnaði hagur verlc- smiðjunnar á ný. Hefir framleiðsl an siðan vaxið ár frá ári, en sl. ár varð hún 417 tonn, en það nam um 65% af heildarnotkuninni það ár. Árið 1956 var ráðist í kaup á nýjum vélum til verksmiðjunnar frá írlandi, en eldri vélarnar voru mjög slitnar orðnar eftir hina miklu notkun á stríðsárunum. — Framkvæmdabanki fslands lánaði fé til vélakaupanna. Síðan var verksmiðjuhúsið stækkað, eins og fyrr greinir. — Fyrirtækið hefur nú í hyggju að hefja kaðlafram- leiðslu á næstunni ,en til þess þarf enn að bæta við nokkrum nýjum vélum. Má geta þess í því sambandi, að innflutningur á k iðl um s.l. ár nam rúmlega 1200 tonnum. Elnn togarl & árl. Útflutningur? Hannes Pálsson lét þess getið í viðtali sínu við fréttamenn að ein innflutt botnvarpa, fullgevð, kostaði jafnmikið í erlendum gjaldeyri og efni í þrjár vörpur, sem framleiddar eru hér heima. Og í fyrrgreindum bæklingi seg- ir: „Má nú með hagkvæmri nýt- ingu veiðarfæraiðnaðarins vinna að gj ardeyrissparnaði, er nemur andvirði nýtízku togara árlega". f lokaorðum bæklingsins segir svo, að með vaxandi áhuga for- - Dalai Lama Framh. af bls. 1. ur. Er búizt við að Dalai Lama hvílist þar í sólarhring og biðjist fyrir. Hann verður að halda för- inni áfram á hestbaki. Enginn flugvöllur er i nágrenninu og ekki hægt að koma þyrilvængjum við, vegna þess að bærinn stend- ur nærri 4000 metra hæð í fjöll- unum. Indversk yfirvöld gáfu það í skyn í dag, að Dalai Lama fengi ekki að búa í Himalaya-fjöll- um, þar sem slíkt myndi fara í viðkvæmar taugar kínverskra kommúnista. En þar sem hann er því vanastur að búa í fjallalofti mun honum veittur bústaður í fjalllendinu í Suður-Indiandi. Frá Tíbet berast þær fréttir, að kínverskir kommúnistar séu nú að hefja allsherjarsókn gegn tíb- etskum uppreisnarmönnum í suð- urhluta landsins. Er sagt að beitt sé minnsta kosti 100 þús. manna herliði í þessum aðgerðum. Að undanförnu hafa Kinverjar reynt að varpa fallhllífarliði niður í fjöllunum, en sagt er að það hafi gefizt illa. Uppreisnarmenn hafi umkringt flokka fallhlífarher- mannanna og þurrkað þá út. í þessari allsherjarsókn beita Kínverjar nú í fyrsta skipti þung um fallbyssum og leggja þeir bæi og byggð í rústir til þess að hindra að uppreisnaarmenn fái vistir frá almenningi. Uppreisnaarmenn af Khamba-ættflokknum halda enn uppteknum hætti að dyljast að degi en gera skyndiárásir á Kín- verja í næturmyrkrinu. Eru þeir miklu kunnugri fjalllendinu en Kínverjar og geta því farið lengri vegalengdir á skemmri tma. Nú- 1 tímasamgöngutækjum verður ekki komið við á þessu háfjalla- svæðú Nýkomið Plasthandriðalistar svartir, gráir, grænir Plastgólflistar, svartir Plastborðkantar Pantanir 'óskast sóttar sem fyirst. n d ðoinn Bankastræti 7 Simi 22135. öllum vinum okkar á íslandi sem glöddu okkur með kveðjum og gjöfum á gullbrúðkaupsdegi okkar 28. marz sl. sendum við hlýjustu þakkir. Steinunn Ölafsdóttir og Þórður Jónsson Nordre-Frihavnsgade 31, Kaupmannahöfn. Stúlka helzt vön afgreiðslu í apóteki, óskast sem fyrst. Tilboð merkt: „Apótek — 5849“, sendist afgr. Morgunblaðsins fyrir 10. apríl. Faðir okkar JÓN SGURÐSSON jámsmíðameistari, Laugavegi 54, andaðist 2. þ.m. Börnin. ÖLAFUR EINARSSON Vindási í Kjós, andaðist að heimili sínu Króki Hraungerðishreppi föstu- daginn 3. apríl. Bjarni Ólafsson. KRISTlN BÁRÐARDÓTTIR fyrrv. ljósmóðir, Bergstaðastræti 11, sem lézt 31. f.m. verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 7. apríl kl. 3 e.h. Vandamenn. Jarðarför eiginmanns míns JÓNS BALDVINS GUÐMUNDSSONAR veitingamanns Laugaveg 64, sem andaðist 28. marz, fer fram frá Dómkirkjunni 7. þ.m. kl. 10,30 f.h. — Blóm afbeðin. En þeim er vilja minnast hins látna er bent á sjóð Slysavarnafélags íslands. — Athöfninni verður útvarpað. Fyrir mína hönd, móður hins látna og annarra vanda- manna. Guðný Jóhannsdóttir. Útför eiginmanns míns og föður ÞÓRÓLFS INGÓLFSSONAR offsetprentara, sem lézt í Bæjarspítalanum 31. f.m. fer fram frá Foss- vogskirkju þrðjudaginn 7. apríl kl. 1,30 Unnur Bergsveinsdóttir, Dagný Þórólfsdóttir. Útför mannsins míns JÓNS BJÖRNS EllASSONAR skipstjóra, fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudagmn 7. aprQ kl. 2 e.h. Athöfninni verður útvarpað. Blóm vin- samlegast afbeðin, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Slysavarnafélag íslands. Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda. Jóhanua Stefánsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.