Morgunblaðið - 05.04.1959, Side 10
10
MORCVTSBL ÁÐU5
Sunnudagur 5. apríl 1959
Leikkonan Elízabeth Xaylor
hefir snúizt til Gyðingatrúar.
Hún er uppalin í mótmælenda-
trú, en mun um all langt skeið
hafa haft í hyggju að skipta um
trú. Mike Todd, eiginmaður
hennar, sem fórst í flugslysi á
s.l. ári var Gyðingur, og söngvar-
inn Eddie Fischer, sem Elízabeth
kvað ætla að giftast á næstunni
er einnig Gyðingur.
Allir, sem þekkja vel til í
Bandaríkjunum, vita, að þar er
gefin árlega út svokölluð sam-
kvæmisskrá, nokkurs konar „blá
DÓk“ um sam-
kvæmislífið. Það
þykir mjög eftir
sóknarvert a ð
komast í „bláu
bókina". Hins
vegar mun fáum
vera kunnugt
um það, að gef-
in er út Alþjóða
samkvæmisskrá,
svo að Bandaríkjamenn á ferða-
lagi geti áttað sig á því, hvort
Þeir eru með „fínu fólki“ eða
ekki.
Maður að nafni Blackwell tek
ur saman og gefur út bók þessa.
Hann hóf útgáfu þessarar bókar
fyrir löngu, og honum hefir þeg-
ar græðzt mikið fé á útgáfu henn
ar. Árgangur 1959 er nýlega kom
inn út, og þar gerir útgefandinn
nokkra grein fyrir því, hvaða
reglum hann fylgir, er hann vel-
ur fólkið í bláu bókina sína:
— Rainier, fursti af Monaco,
er með, en eingöngu af þvi að
hann er kvæntur Grace Kelly.
Markgreifinn af Milford-Haven
er ekki með, en fyrrverandi vin-
kona hans Eva Bartók er nægi-
lega fræg og umdeild til að fá
að fljóta með. Ég hefi einnig tek-
ið jazzpíanóleikarann Robin Dou-
glas-Home með vegna skipta
hans við sænsku hirðina, og ég
er ánægður yfir því, að ég skyldi
einnig hafa rúm fyrir lafði Dock-
er. Hún er nú mikið umtöluð
vegna gimsteinafúlgunnar, sem
stolið var frá henni. Það má
kannski segja, að ég sé ósvífinn
í vali mínu, en það verður nú
svo að vera.
Það er óneitanlega ærið vafa-
söm upphefð að lenda í „bláu
bókinn'“ hans Blackwells.
Charles Chaplin hefir miklar
áhyggjur af syni sínum Syd.
Hann var fyrir skömmu trúlof-
1,1 SKÁK
SKÁKÞINGINU lauk á annan í
páskum, og hafði þá staðið frá
21. marz. Sú nýbreytni, sem var
tekin upp á skákþinginu 1957, að
halda mótið um páskahelgina
hefur gefizt mjög vel og aukið
á vinsældir mótsins hjá öllum
þorra skákmanna og skákunn-
enda. Mér tókst að verja titil
minn án þess að komast í veru-
lega hættu af aðsókn Ingvars Ás-
mundssonar, sem kom úr sveita-
sælunni á Laugarvatni til þess að
leiða saman hesta sína við ryk-
ugan borgarlýð. Landsliðið er nú
skipað eftirtöldum mönnum. 1.
Ingi R. (10), 2.—3. Ingvar og
Ingimar (&V2), 4.—5. Benóný og
Halldór (6%), 6. Ólafur Magnús-
son (6), 7. Kári (5), 8. Þórir Sæm.
(4). Vinningar keppenda úr mót-
inu eru innan sviga. Úr landsliði
falla 9. Jón Kristjánsson (3V2>,
10. Haukur Sveinsson (3), 11.
Jón Guðm. (3), 12. Reimar (IV2).
Áhorfendur voru margir á hverri
umferð og fylgdust með gangi
keppninnar af miklum áhuga, en
skákstjórn og mótstjórn fórst
þeim Árna Jakobssyni og Gísla
ísleifssyni prýðilega úr hendi
miðað við hinar frumstæðu að-
stæður.
Hvítt: Benóný Benediktsson
Svart: Ingi R. Jóhannsson
Sikileyjar vörn
1. e4, c5; 2. g3 Ónákvæmur leikur,
sem gefur svörtum tækifæri til
þess að jafna taflið. Ef hvítur vill
staðsetja Bfl á g2 er betra að
leika fyrst 2. Re2. 2. — d5!; 3. Rc3
dxe4; 4. Rxe4, e5; Ef til vill er
4. — Bd7! sterkari leikur. T. d.
5. Rc5?, Bc6; 6. f3. Þvingað e5 og
svartur hefur mikla möguleika
fyrir peðið. Eða 5. Rc5 (Ekki 5.
Bg2? vegna Bc6 og hótar f5.
5. — Bc6; 6. Rf3, g6; 7. Bg2, Bg7
ABCDEFGH
ABCDEFGH
Staðan eftir 7.-c 4!
og svarta staðan er betri. 5. Bg2,
Rc6; 6. d3, Be7; 7. Re2, c4!; 8.
dxc4(?) Skárra var 8. 0-0. Eftir
hinn gerða leik fær svartur frum-
kvæðið fyrir peðið. 8. — Dxdlj-
9. Kxdl, Be6; 10. Rd2 Önnur leið
er hér 10. b3, 0-0-Of; 11. Bd2, f5;
12. Rc3, Rf6; með flókinni stöðu.
10. —, 0-0-0; 11. Bxc6 Til álita
kemur 11. b3 11. — bxc6; 12. Kel,
Bf5! Sterkur millileikur sem tek-
ur af Re2 reit og lokar útgöngu-
leið Bcl í gegnum b2 13. c3, Rf6;
14. b4, Hd7; 15. f3, Hhd8; 16. h4,
Bd3; 17. Kf2, c5; 18. a3, Bxe2;
aður hinni álitlegu leikkonu og
ballettdansmey Noélle Adams.
Síðan fór hann flugleiðis heim
til Bandaríkjanna og trúlofaðist
June Holliday, sem hann hafði
einnig verið trúlofaður, áður en
Noélle varð á vegi hans. Nú
hefir Syd Chaplin hitt danska
stúlku, Merete Ströyberg að
nafni, og er hann sagður vera
mjög ástfanginn af henni. Merete
er systir Anettu Ströyberg, sem
er gift franska kvikmyndaleik-
stjóranum Vadim
Enska leikkonanVivian Leigh,
eiginkona Sir Laurence Olivier,
er 45 ára að aldri og orðin amma.
Það vakti því
mikla athygli, er
hún kom fram
fyrir nokkru í
brezka sjónvarp
inu í hlutverki
tvítugrar stúlku
í gamanleik
Thorton Wilders
„Á yztu nöf“.
19. Kxe2, Hd3; 20. Rbl Ömurleg
örlög fyrir stoltan riddara 20. —
e4!; 21. Be3, exf3f 22. Kxf3, Rg4;
23. Hel Engu betra var 23. Kxg4,
Hxe3 og Hd3. 23. — Hxe3f; 24.
Hxe3, Rxe3; 25. Rxe3, Hdl!
Hvítur er nú bjargarlaus. 26. b5,
f5; 27. a4, Bd6; 28. Kf2, Be5;
29. Kg2, g6; Ef 29. — Bxc3: 30.
Ha3, Bb2; 31. Hb3, Hxbl; 32. a5,
Kb7; 33. Kg2 og svartur þarf að
tefla nákvæmt til þess að vinna.
30. a5, Kb7; 31. a6f, Kc7; 32.
Kf2, h6; 33. Ke2, Hhl; 34. Kd3,
Bxg3; 35. Kc2, f4; 36. Ha2, Bel!
Skemmsta leið til vinnings. 37.
Kd3, f3; 38. Rd2, f2; 39. Hal,
Hgl!; 40. Hbl Hvítur átti engan
leik til bjargar. 40. — Bxd2; 41.
gefið.
★
ABCDEFGH
HöOundur Chr. Bandelow
Hvítur mátar í 5 leikjum.
Skákþrautir
Lausnin á hinni hörkugóðu
þraut S. Loyd er 1. Bb5!!, a) axb5
2. Dfl!, Kxe5; 3. Df6t! Kf4 eða
f5 4. Dxc3 mát. 1. — b) Bh3; 2.
Bd8!!, Bf5; 3. Bg3, Bxg3; 4. Dg4
IRJóh.
í FYRRA var mikið talað um
ástarævintýri þeirra Robins Dou-
glas-Home og Margrétar Svía-
prinsessu. Robin fór á biðilsbux-
unum til Svíþjóðar, en sú ferð
varð ekki til fjár. Var ýmsukennt
um, en margir héldu því fram,
að Sibylla prinsessa, móðir Mar-
grétar, hefði verið mjög andvíg
þessum ráðahag. Og Robin fór
heim aftur og hélt áfram að
starfa á auglýsingaskrifstofu og
leika á píanó. Nú hefir Robin trú
lofast Söndru Pauls, sem er að-
eins 18 ára gömul. Þau ætla að
gifta sig í júlí í sumar. Trúlofun-
in var innsigluð með hring með
roðasteini — þess má geta, að
12 smágimsteinar eru greyptir i
hringinn umhverfis roðasteininn.
Sandra brosir og Robin er ham-
ingjusamur. Nú hefir hann eign-
azt sína „prinsessu", þó að ekki
renni blátt blóð í æðum hennar.
Sandra er sýningarstúlka að at-
vinnu.
Sænska leikkonan May Britt
Nilson þykir sérkennileg og
falleg kona. Það hefir nú verið
ákveðið, að hún leiki hlutverk
Lolu Lolu í Bláa englinum, sem
á að kvikmynda að nýju í Holly-
wood á næstunni. Þetta hlutverk
færði Marlene Dietrich á sínum
tíma frægð og frama, löngu áður
en May Britt var fædd. Myndin,
sem hér fylgir með sýnir May
Britt búa sig undir að feta í fót-
spor Marlene Dietrich.
Sennilega heilsar engin kona í
heiminum jafnmörgu fólki með
handabandi og Elizabeth Eng-
Yfirleitt er hún
alltaf með
hanzka, þegar
svo ber undir en
þótt undarlegt
sé, virðast ljósu
hanzkarnir henn
ar alltaf vera
jafnhreinir.
Ástæðan er sú,
að hún hefir
alltaf með sér
.a.m.k. sex pör af hÖnzkum, sem
ein af hirðmeyjum hennar geym
ir í handtösku sinni. Þegar á þarf
að halda, afhendir hún drottn-
ingunni hreina hanzka, svo lítið
ber á.
Eins og kunnugt er, býr
Ernest Hemingway á Kúbu.
Fidel Castro hefir ákveðið að
hækka skatta til mikilla muna til
að geta komið
ýmusm umbót-
um í fram-
kvæmd. Um
t í m a óttaðist
Hemingway, að
hann gæti ekki
staðið u n d i r
þessum auknu
álögum, en þá
hljóp á snærið
fyrir honum, og nú eru allar horf
ur á því, að hann geti staðið í
skilum við Castro!
Hann hefir selt fyrirtæki
nokkru í Hollywood sjónvarps-
réttinn á skáldsögunni Hverjum
klukkan glymur. Fyrirtækið gaf
hálfa milljón dala fyrir sjónvarps
réttinn, og mun það vera algjört
met!
Þegar er hafinn undirbúning-
ur að sjónvarpssýningunum, og
Maria Schell, sem nú nýtur mik-
illar hylli í Bandaríkjunum, fer
með hlutverk Maríu.
í fréttunum
landsdrottning.