Morgunblaðið - 05.04.1959, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 05.04.1959, Qupperneq 16
16 MORGVNBLAfílÐ Sunnudagur 5. apríl 1959 ~ Stór kona Framh. af bls. 15 Kg horfi til skiptis á skáldið og konuna hinu megin við borðið. Enn kunna menn að slá eldi í björtu. Nú erum við öldungis ekki fáir, fátækir smáir aum- ingjar á hjara heims. í kvöld erum við mörg og rík. Við erum stórauðug þjóð og eigum Davíð Og Jóhönnu. Skartklæði falla í skugga. Æskuljómi ungra manna og fag- urra kvenna hverfur í þoku. Virðulegir kjólklæddir heiðurs- menn fara sömú leið. Stöku sinnum ætti að skrifa -orðið maður með stórum stöf- um einvörðungu. — ★ — Hrifningarstund — fagnaðar- nótt — harmatár. Silfurhærður skáldjöfur minnist móður sinn- ar. — Barn fæðist. — Ástvinur deyr. Snautt væri lif án snort- inna hjartna. — Móða líður fyrir sjónir. Andartak skynja ég aðeins tvennt. — Það er skáldið og kon- an. — — ★ — Enn líða mánuðir, eða gerðist það e. t. v. áður? Tímatal og atburðaröð getur haggast í minni. Ég sit hér heima í stofu minni og hlusta á útvarpið. Jóhanna Friðriksdóttir er að tala. Frásögn hennar er fróðleg, og grípur athygli hlustandans föstum tökum. Málið er fagurt, tUngutakið hreint. Þessi kona kann tungu feðra sinna. Hún getur uppgerðarlaust tekið und- ir með Einari Benediktssyni í lokaerindi íslandsljóða: „Ég elska þig, málið, undurfríða, og undrandi krýp að lindum þínum. Ég hiýði á óminn bitra, biíða, brimhljóð af sálarkvölum mínurn." Margar safarikar greinar hafa vaxið á harðgerðum íslenzkum meiði. — ★ — Ferðaskrifstofan fer í sumar 7 utanlandsferðir Nokkrum dögum seinna bar fundum okkar Jóhönnu saman í búð við Leifsgötu. Ég notaði tækifærið, þakkaði henni fyrir útvarpserindið og bætti við: „Mættum við fá meira að heyra?*' — Hún svaraði: „Þá verðið þið, sem kunnuð að meta þetta að láta frá ykkur heyra.“ Nú minnist ég orða hennar með tiæga. Aldrei hafði ég mann- rænu í mér til að koma ósk minni á framfæri. Jóhanna Friðriksdóttir hefur án efa hugsað að orð mín væru einungis sprottin af hræsni. Það er ekki fátítt að mæla fagurt í eyru fólks, en meina lítið með því. Þannig er mannlífið. — En tækifærin bíða aldrei eftir okk- ur. — Einu sinni í vetur sá ég Jó- hönnu í mjólkurbúð. Hún var ennþá grennri en áður. Andlits- fölvinn enn bjartari. Augun söm og fyrr. — Þröngt var við borðið í litlu kytrunni, en þó var hátt til lofts og vítt til veggja í vissri merkingu. — ★ — ööðru sinni í vetur sé ég hana tilsýndar á götu. Gangstéttar- steinarnir eru gráir og votir. Skýin dimm og drungaleg. Veg- farendur leita að ljósrofi í þykkninu. Við stígum yfir húm- dimman poll. — Þarna er svell- glotti í laurisátri, serri glampar í myrkrinu. Við höldum áfram göngunni, —■ öll, — ef ekki hend- ir slys. Einn, tveir, þrír. — Allir flýta sér. Hvað knýr okkur áfram? Stundum gleymist að aðgæta, hvort við göngum á grágrýti, malbiki — eða jafnvel eðal- steinum. 15. marz 1959 S. Sigurjónsdóttir. Áformar auk jbess moi FERÐASKRIFSTOFA ríkisins hefur nú að mestu lokið undir- búningi að sumarstarfseminni. Þorleifur Þórðarson, forstjóri, og Baldur Ingólfsson skýrðu frétta- mönnum í gær frá helztu ferð- unum, sem áætlað er að fara í sumar, bæði innan lands og til annarra landa. Ferðir innanlands Von er á fleiri útlendum ferða- mönnum til landsins en nokkru sinni áður. Auk þeirra, sem koma með skemmtiferðaskipum, er von á hópum m. a. frá Noregi, Sví- þjóð, Þýzkalandi, Sviss, Austur- ríki og Rússlandi. Fyrír utan fastar ferðir til merkustu staða hér sunnanlands, sem verða með líku sniði og áður, hafa verið skipulagðar ferðir fyrir útlend- inga með ýmsum farartækjum um landið þvert og endilangt. í sumar er gert ráð fyrir föst- um ferðum á hestbaki, bæði stutt um reiðtúrum frá Reykjavík og Iengri ferðum um byggðir og ó- byggðir. T. d. verður fjórum sinnum farin Landmannaleið. Þá er farið frá Galtalæk að Búlandi og þaðan í stórum bílum í öræfin og til baka til Reykjavíkur. Eru þetta vikuferðir. Auk þess eru í undirbúningi ódýrar orlofsferðir um landið með flugvélum, bílum og skip- um. Væntanlega verður hægt að taka einhverjar skólabyggingar fyrir sumarhótel í sumar. Utanlandsferðirnar Ferðaskrifstofan hefur ákveðið 4 alllangar ferðir til útlanda í sumar, tvær til Norðurlanda og tvær ferðir til Mið- og Suður- ■gar ferðir innanlands Evrópu. Einnig hefur ferðaskrif- stofan lagt drög að utanlands- ferðum með nýju sniði fyrir ein- staklinga og hópa, þannig að séð verður fyrir ferðum og dvöl í hótelum á 2—3 stöðum og geta menn farið einir eða fleiri sam- an í hópum. Sé um fleiri en 10 að ræða, sem fara vilja saman, mun skrifstofan senda fararstjóra. Auk þessara ákveðnu ferða út- vegar Ferðaskrifstofan fólki þátt- töku í ferðum erlendra ferða- skrifstofa. Norðurlandaferðirnar eru með sama sniði og verið hefur, þ. e. að farið er með skipi til Bergen og þaðan norður í Sognfjörð, en síðan með Bergensbrautinni til Óslóar og með lest áfram til Stokkhólms og þaðan í bifreið- um til Gautaborgar, farið yfir sundið til Helsingör, og til Kaup- mannahafnar og þaðan siglt heim. Síðari Norðurlandaferðin er eins, nema hvað farið verður öfugan hring við þetta og heim frá Bergen. í þeirri ferð er flogið báðar leiðir. Einnig er hægt að fljúga heim úr fyrri ferðinni. — Norðurlandaferðirnar kosta frá 9.900—11.900. í meginlandsferðunum liggur leiðin um Frakkland, Ítalíu, Sviss, Þýzkaland og Danmörku eða Skotland. í fyrri ferðinni, sem er lengri, verður farið allt til Rómar og Napólí, en í þeirri seinni ekki lengra suður en til norðurhluta Italíu. Þessar ferðir kosta kr. 13.200—15.200 og taka frá 23 upp í 37 daga. Stuttu ferðirnar þrjár, sem ætlaðar eru sem hvíldarferðir í sumarleyfinu, eru 16 daga ferðir til Skotlands og upp í skozka há- lendið, til höfuðborga Norður- landa og til Þýzkalands, í Rínar- dalinn og Svörtuskóga. — Þær ferðir kosta kr. 6.300 og eru þá innifalin fargjöldin, gisting, morgunverður og ein máltíð á dag. Eins og undanfarin ár hefur Ferðaskrifstofan samvinnu við Skipaútgerð ríkisins í sambandi við Norðurlandaferðir Heklu, auk þess sem hún' hefur sam- vinnu við fjölda ferðaskrifstofa víða um lönd og greiðir fyrir ferðamönnum, bæði innanlands og utan. Áhugi á netja- veiðum, en ósámið ÍSAFIRÐI, 3. apríl. — Afli ís- firzkra línubáta í marzmánuði var sem hér greinir: Guðbjörn 173 tonn, Gunnhildur 155, Gunn- vör 133 tonn, Ásbjörn 96 tonn, Sæbjörn 91 tonn, Mar 91 tonn og Ásúlfur 55 tonn. Gæftir voru ágætar í mánuðin- um, en afli misjafn, aðallega steinbítur. Nú síðustu daga er afli enn aðtregðast á línu og hafa margir mikinn hug á að fara á enn að tregðast á línu og hafa hafa ekki tekizt hér á Isafirði milli útgerðarmanna og sjó- manna. Aftur á móti eru bátarnir í Hnífsdal famir á net og bátar úr Bolungarvík eru að hefja netjaveiðar upp á væntanlega samninga. Einar Hálfdáns frá Bolungarvík fékk í gær rúmlega 20 tonn í net út af Stigahlíð. Hefir sá afli aukið enn á áhuga manna á netjaveiðum og vonandi nást samningar hér hið allra fyrsta. Nokkuð hefir snjóað hér undanfarna daga, en í dag er veður milt og sólskin var fyrri hluta dagsins. — G. LESBÓK BARNAKNA LESBÓK BARNANNA S hann geri ekkert af sér.“ Eg lofaði því og þar með varð „Krummi“, eins og hann var kallaður, heimagangur hjá okkur. Fljótt varð hann hænd- ur að öllum á heimilinu, en þó sérstaklega að mér, enda gaf ég honum alltaf. Oft sat hann á öxlinni á mér og goggaði þá stund- um í eyrað á mér. Snemma tók að bera á því, að Krummi var glys- gjarn og þjófskur, sérstak lega hafði hann áhuga á að eignast allt, sem glitr- aði. Eg átti krómað arm- bandsúr og reyndi hann mikið til við að ná því af mér. Að lokum fór svo, að hann sprengdi glerið, þegar hann var að glíma við að losa það. Eitt sinn var eg úti á spariskónum mínum, en á þeim var gyllt spenna. Krummi var að vappa um rétt hjá mér og hann fór strax að gogga í spennuna. Lengi baslaði hann við að ná henni, en það tókst ekki, og varð hann að gefast upp við svo búið. Stundum kom það fyr- ir, að ég reiddist við Krumma. Eg átti vasa- hníf með skelplötuþynn- um á skaftinu. Dag nokk- urn var ég úti að tálga ■pýtu og var Krummi þar nærstaddur. Þá var kall- að á mig, svo að ég lagði frá mér hnífinn og spýt- una og hljóp til þess, er k kallaði. En þegar ég kom aftur eftir stutta stund, var Ki-ummi að skoða hnífinn. Eg flýtti mér til hans, en hann flaug þá spottakorn og settist aft- ur. Svona gekk þetta koll af kolli, þar til eg varð að gefast upp. Mér þótti mjög slæmt að tapa hnífn um. Dag nokkurn um sum- arið sat eg inni í stofu og var að lesa í bók. Mamma var nýfarin út úr stof- unni, en hún hafði verið að sauma og hafði lagt saumadótið frá sér á borð ið. Gluggi var opinri á stofunni. Allt í einu kem- ur Krummi, sezt í glugg- ann og skimar í kring um sig. Svo flýgur hann upp og hlammar sér niður á borðið hjá saumadótinu. Eg flýtti mér að rísa upp til að reka hann í burtu, en hann varð fyrri til, þrífur fingurbjörgina hennar mömmu og flýg- ur út um gluggann. Eg hentist út úr stof- unni og hugsaði mér nú að fara öðruvísi að, held- ur en þegar hann stal hnífnum. Fyrst lagiðst ég niður í skjóli við bíl, sem stóð á hlaðinu og beið þar átekta. Krummi skoðaði fing- urbjörgina um stund, en tók hana síðan í gogg- inn og hóf sig til flugs. Rétt ofan við túnið er grýttur melur. Þangað stefndi Krummi og hvarf þar niður á milli steina. Eg setti vel á mig stað- inn, og fór síðan inn til mömmu og sagði henni, að Krummi hefði tekið fingurbjörgina. — Þegar pabbi heyrði þetta, sagði hann: j*h’ér hefði verið nær að lóga hrafnsskömm inni eins og eg sagði þér, þá hefðu þessi vandræði ekki hlotizt af honurn." Krummi var nú kom- inn heim aftur, svo að ég fór út og lokkaði hann inn í fjós, þar sem eg lokaði hann inni. Eg vildi ekki láta hann kom- ast að því, að eg vissi, hvar hann geymdi gull- in sín. Síðan hélt eg upp á melinn. Á staðnum, þar sem Krummi hvarf, var ofurlítill skúti og kenndi margra grasa þar inni. Allt var þar í einni hrúgu, hringar, smápen- Töfraskórnir ingar, vasahnifurinn minn og fingurbjörgin auk fjölda margs anriars, sem of langt yrði upp að telja. Þegar eg rótaði í hrúg- unni, fann eg margt, sem horfið hafði um sumarið. Þarna var t. d. stein- hringurinn, sem systir mín hafði lagt frá sér á borðið í herberginu sínu og aldrei fundið aftur. Eg tíndi nú það verðmætasta úr hrúgunni og fór með heim, en mest allt draslið skildi eg eftir. Nú er aumingja Krummi minn dáinn. Mér var far- ið að þykja svo vænt um hann, þrátt fyrir alla hans bresti, að eg hágrét daginn, sem hann dó. Hér uppi á bænum er vindrafstöð, sem fram- leiðir rafmagn til ljósa. Dag nokkurn í haust var stormur og rafstöðin var í gangi. Krummi var að leika sér að því að láta storminn bera sig á þönd- um vængjum. Hann vissi ekki, hvað rafstöðin var hættuleg, og stormurinn kastaði honum beint á mylluvængina. Hann beið samstundis bana. Eg var sjónarvottur að því, þegar slysið varð. Seinna um daginn lagði eg hann í kistu og jarðar- förin fór fram látlaust og án allrar viðhafnar. Nú er sagan búin. Mig langaði til að segja ykk- ur frá honum Krumma, aí því að hann er dýrið, — Ég veit ekki, hvernig á að fara að því, svaraði Villi. — Þetta er þér líka mátulegt, því að þú ert reglulega vondur dverg- ur. Þú verður að sætta þig við það, að ég fari með þig eins og þú fórst með mig. Af stað nú skór — til tunglsins. Og þegar dvergurinn hefur iðrazt illsku sinnar, skuluð þið Iroma með hann hingað aftur. Dvergurinn var þégar kominn drjúgan spöl í burtu. Þegar hann var horfinn, birtist allt í einu hópur af álfum. Þeir voru klæddir grænum og rauðum skikkjum og svip- ur þeirra var vingjarn- legur og hýr. sem mér hefur þótt vænzt um hingað til. Hermóður Högnason. — Við erum fjallaálfar, sögðu þeir, og við erum komnir til að þakka þér fyrir, að þú hefur refs'að þessum andstyggilega dverg. Nú skulum við fylgja þér heim. Ha, ha, það kom vel á vondan, að dverg- urinn skuli annað hvort verða að fara til tungls- ins eða iðrast illsku sinn- ar. Hann hefur haft okk- ur fjallaálfana fyrir þræla sína og farið illa með okkur. Við erum þér afar þakklátir. Fjallaálfarnir fylgdu nú Villa heirri og þeir náðu líka í tréskóna hans, sem fastir voru ofan í leirn- um. Nú getur Villi óhrædd- ur leikið sér með vinum sínurri í fjallshlíðinni, því að nú eiga aðeins góðir dvergar heima í fjallinu. Allt illþýðið varð hrætt og flúði burtu, þegar það heyrði, hvernig farið hafði fyrir vonda dvergn- um. Dvergurinn er ennþá á leiðinni til tunglsins. Hann hefur nógan tíma til að átta sig á því, að það borgár sig, að koma vel fram við náunga sína. Vonandi skilst honum það áður en langt um líð- ur, og þá fær hann að snúa aftur til betra lífs. — Endir —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.