Morgunblaðið - 05.08.1959, Síða 9

Morgunblaðið - 05.08.1959, Síða 9
Miðvilcudagur 5. ágúst 1959 WOVCTJISBLAÐIÐ 9 * KVIKMYNDIR + AUSTURBÆJARBÍÓ: Hættulegur leikur. ÞESS ERU ærið mörg dæmi, að konur hafi haft veruleg áhrif á gang veraldarsögunnar, ekki að- eins sem valdhafar, heldur ein.n- ig og oftar miklu, á bak við tiöld- in, með gáfum sínum eða kven- legum yndisþokka. Einkum gætir þessa mikið í sögu Frakklands á tímum Loðvíkanna, og sagan greinir einnig að Napoleon mikli og síðar frændi hans Napoleon þriðji hafi verið allkvenhollir og konum eftirlátir að vissu marki. — Kvikmynd sú, sem hér ræðir um, er eitt dæmi þessa. Hér er það Napoleon þriðji sem tekur veigamikla pólitíska ákvörðun fyrir áhrif ungrar og fagurrar konu. Það er árið 1853. Ítalía lýtur yfirstjórn Austurríkismanna, en ítalskir frelsisvinir, undir íor- ustu stjórnmálamannsins Cavour, vinna að því leynt og ljóst að frelsa land sitt úr viðjum hms erlenda kúgunarvalds. Austur- ríski stórhertoginn er staddur í óperunni og með honum margt annarra austurrískra stórmenaa. Frelsisvinirnir ítölsku hafa fjöl mennt þarna og koma af stað al- mennu uppþoti, er leiðir til pess að stórhertoganum er sýnt bana- tilræði. Lögreglan handsamar marga uppreisnarmenn, en einn. af foringjum þeirra, Lucio íál- engo, glæsilegur ungur maður, kemst særður undan með þvi að stökkva inn í vagn Virginiu Oldo- ini, frænku Cavours, sem er ung og fríð kona. Þau verða hrifin hvort af öðru, en þó hljóta v^gir þeirra að skilja. — Síðan berst leikurinn til Parísar, til hirðar Napoleons keisara. — Virgi.iia hefur tekið að sér að töfra keis- arann og fá hann tit að veita ítölum lið í frelsisbaráttu þeirra. Gerast nú margir atburðir en keisarinn er unninn að lokum og ræður það úrslitum um frelsun Ítalíu — og hamingju Virginíu og Lucio Falengo’s. Kvikmyndir, sem byggðar eru á atburðum veraldarsögunnar eru skemmtilegar þegar vel er á efninu haldið. Oft bregður pa fyrir á sjónarsviðinu þekktum persónum. Svo er einnig í þess- ari mynd. Getur þar að líta, með- al annarra merkra manna, Nap- oleón þriðja, Cavour og Franz Lizt. Mynd þessi er ekki stö'-- brotin að efni, enda gætir þar meira glæsileiks hins franska hirðlífs, en mikilla átaka, þó er myndin fremur skemmtileg og vel leikin. Einkum er ágætur leikur Yvonne de Carlo í hlut- verki Virginíu og gervi Cavours er mjög gott. — Myndin er frönsk-ítölsk og tekin í litum. NÝJA BÍÓ: Innrásardagurinn 6 júni. ÞETTA er amerísk kvikmynd í litum. — Rammi myndarinnar, ef svo mætti segja, er örlagarík- Þorbergur Cunnarsson máiari — M'mning í DAG verður til moldar borinn einn af eldri borgurum þessa bæjar, Þorbergur Gunnarsson málari, hann andaðist í Lands- spítalanum mánudaginn þann 27. júlí. Þorbergur var fæddur í Reykja vík þann 1. nóvember 1887. For- eldrar hans voru merkishjónin Þorbjörg Pétursdóttir Jónssonar óðalsbónda á Gufuskálum og Gunnar Björnsson skósmíðameist ari og er hann kominn af Skóg- ætt. Ungur að aldri réðist Þorberg- ur til frænda síns Sveins Jóns- sonar trésmíðameistara í Völ- undi, sem nemandi í trésmíði og að því námi loknu þá lærði hann að mála hjá Jóni Setberg mál- arameistara, en þar sem lítið var um atvinnu í þessum greinum um þetta leiti þá réði hann sig sem nemanda hjá Hansen bak- arameistara og vann hann við bakaraiðnina í 12 ár, en þar sem atvinna var farin að glæðast í málaraiðn þá hætti hann við bakaraiðnina og fór að stunda málaraiðnina og vann hann að henni til dauðadags, eða um 35 ára skeið. Það kom snemma fram hjá Þorbergi að hann hafði yndi af hljómlist og hljóðfæraleik, en naut lítillar tilsagnar í þeirri list, heldur var það meira sjólfnám og „eftir eyranu“ og munu margir miðaldra menif minnast þess að hafa heyrt hann leika á dans- leikjum á harmónikku eða man- dólin og stundum önnur hljóð- færi. Þorbergur var léttur á fæti og léttur í lund og sömuleiðis var hann mjög bóngóður og vildi allt fyrir alla gera, og nutu margir góðs af, enda þar sem hann var mjög laghentur hvort heldur var trésmíðar, málning, veggfóðrun eða dúklagning. Þorbergur var kvæntur Soffíu Þorvaldsdóttur, systur Agústs al- þm. Arnesinga, • mestu myndar- konu enda var hjónaband þeirra mjög farsælt. Ekki var þeim barna auðið, aftur á móti var Þorbergur kvæntur áður og átti 9 mannvænleg börn sem öll eru uppkomin. Þorbergur var stakur reglumað ur, hefir hann aldrei látið vín inn fyrir sínar varir á ævinni og hin síðari ár notaði hann ekki tóbak. Hann var mikill eljumað- ur, féll aldrei verk úr hendi og oft var það þegar vinnudagur var að enda að einhver kunningi hans bað hann um að hjálpa sér með handarvik og aldrei gat Þor- bergur neitað því, svo að oft var vinnudagur hans langur. Hann var ennfremur mesta snyrti- menni í klæðaburði og allri um- gengni. Vinir Þorbergs munu minnast hans, sem hins síunga, glaða og fríska manns sem alltaf hafði spaug og gamanyrði á vörum. Blessuð sé minning hans. — G.P. asti atburðurinn í síðasta stríði, innrás bandamanna á meginland Evrópu 6. júní 1944, en megineíni hennar er ástarsaga ungrar og góðrar stúlku, sem heyr sterka innri baráttu milli tveggja á- gætra manna, -- unnustans, og hins, — sem hún elskar. Sagan er mannleg og sönn, með skini og skúrum, en harmleikur stríðsins leysir vandann að lokum. Mynd þessi er hvorttveggja, efnismikil og ágætlega gerð og leikurinn prýðilegur, enda fara þarna með aðalhlutverk þau Robert Taylor, Richard Todd og Dana Wynter. Innrás banaa- manna á strönd Normandi er sér- stklega vel sett á svið og sann- færandi og gefur þvi áhorfand- anum glögga hugmynd um það stórkostlega afrek og þann ógur- lega hildarleik, sem þar var háð- ur Guðjón Bögn- vnldsson - Kveljn GUÐJÓN Rögnvaldsson var fæddur 11. apríl 1879. Hann lézt að heimili sínu Tjörn í Biskups- tungum 17. apríl sl. Hann lauk kennaraprófi 1909, og varð kenn- ari í Biskupstungum sama ár og gegndi því starfi um nokkur ár með mikilli ástundun og góðum samskiptum við nemqndur sína. Guðjón var gáfumaður og unni bókmenntum. Átti gott bókasafn, sem hann kunni vel að nota og meta. Honum var lagið að miðla góðum áhrifum nemendum sín- um og þeim er á vildu hlýða. Urðu erindi þau er hann flutti við ýms tækifæri mörgum minn- isstæð, og þá eigi síður orð hans er hann kvaddi nemendur sína á vorin að afloknu vetrarnáminu. — Guðjón gerðist bóndi á Tjörn þegar hann lét af kennslu. Farn- aðist honum það vel eins og önn- ur störf sín. Um mörg hin síðustu ár bjó hann þar með bústýru sirtni Guð- rúnu Lýðsdóttur. Og nú í sam- býli við einkadóttur hennar Ernu, mann hennar Guðjón Gunn arsson og börn þeirra. Hafði Erna alizt upp með móður sinni og Guðjóni Rögnvaldssyni í ástúð- legri sambúð. Og börnunum sýndi hann mikinn kærleika og umönnun, og naut einnig í rík- um mæli þeirrar gleði og þess trausts, sem börnum er svo eigin- legt að láta í té. Ég hygg að þau muni lengi muna þennan fræð- ara sinn og velgerðamann. Ég hygg einnig að Guðjón hafi un- að vel og unnað þessu hlýja og umhyggjusama umhverfi sínu. Þessu fólki sem líka var hans fólk í beztu merkingu, og sem nú saknar hans og hugsar til hans með hjartanlegu þakklæti fyrir 28 ára samveru. Mót dauða sínum gekk Guð- jón með karlmannlegri ró. Hann mun hafa sannað í hjarta sínu hin sí gildu og sí endurteknu orð: „Dauði ég óttast eigi, afl þitt né valdið gilt. 1 Kristi krafti ég segi, kom þú sæll þegar þú villt“. — Þannig var trúar styrkleiki þessa mæta og mikilhæfa manns. — G. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er gtum ódvr ra að auglýsa i Morgunfclaðinu, en í öðrum blöðum. — IHðrgmikfa&fö Góður vörubíll Til sölu er Chevrolet vörubíll, model ’54 með tvi- skiptu drifi. — Bíllinn er nýyfirfarinn, og á góðum hjólbörðum. — Lítil keyrður. Tilboð sendist afgr. Mbl. fyrir laugardag merkt: „Ný sprautaður — 4446“. íbúð Sölumaður óskar að fá á leigu nýtízku íbúð strax. Má vera i Reykjavík, Kópavogi eða Hafnarfirði. Upplýsingar í síma 35135 kl. 4—6 e.h. í dag. Vantar góða íbúð í Reykjavík eða á Selfossi. Uppl. í síma 19904, Reykjavík milli kl. 7 og 8 næstu kvöld og í sima 122, Selfossi, eða hjá undirrituðum í Rafstöðinni við írafoss. PÉTUR STURLUSON, Vélstjóri. íbúð Til leigu er 1. okt. n.k. kjallaraíbúð, 2 herbergl eld- hús, bað og geymsla. Sér inngangur. Sér kynding Leigutilboð ásamt upplýsingum um möguleika á fyr- irframgreiðslu, sendist afgr. Mbl. merkt: „Séríbúð — 4533“, fyrir sunnudag. Clœsileg 8 herb. íbúð Nýtízku hæð 120 ferm., mikið innréttuð með harð- viði, ásamt rishæð í nýju steinhúsi við Kársnesbraut til sölu. — Skipti á 4ra til 5 herb. íbúðarhæð f Reykjavík, æskileg. Mýja Fasteignasalan Bankastræti 7. Sími 24300 í kvöld og næstu kvöld í síma 24647 5 herbergja íbúð í Hafnarfirði Til sölu ný og vönduð 5 herb. efri hæð (103 ferm.), með rúmgóðu geymslurisi á fallegum stað í suðurbæn- um. Sér hiti. — Sér inngangur. ÁRNI GUNNLAUGSSON, hdl. Austurgötu 10 Hafnarfirði. Sími 50764, 10—12 og 5—7. Fokhelf raðhús í Kópavogi er til sölu. Á neðri hæð er stór stofa og eldhús með borðkrók. Á efri hæð eru 4 herbergi, bað og rúmgóð geymsla. I kjallara er þvottahús, geymsla o. fl. Húsið selst fokhelt með járni á þaki. Góð 3ja herb. íbúð í timburhúsi á Seltjarnarnesi er til sölu. Hagkvæm lán áhvílandi. Austurstræti 14 in hæð Simi 14x20.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.