Morgunblaðið - 05.08.1959, Síða 11

Morgunblaðið - 05.08.1959, Síða 11
Miðvik'udagur 5. ágúst 1959 MORCUNBLAÐIÐ 11 Níu íslenzk Ijóð í einu víðlesnasta riti heimsins „NEW WORLD WRITING" er eitt víðlesnasta rit sem gefið er út í heiminum. Kemur það út í hundruðum þúsunda eintaka og er selt um allan heim, enda gerir ritstjórnin sér far um að kynna bókmenntir frá ýmsum löndum. Á sl. sjö árum hafa komið út 15 hefti af ritinu, tvö á ári, í apríl og október. Hvert hefti er 300—400 blaðsíður í vasaútgáfubroti, og kosta heftin nú 75 cent, en fyrri hefti kostuðu 50 cent. Ritið er þannig mjög ódýrt og hefur orð- ið lífseigast bandarískra rita af þessari gerð. Fimmtánda heftið af „New World Writing“ er lokahefti rits- ins. Hafa útgefendurnir, iem eru „The New American Library“, ákveðið að leggja ritið niður og segja í greinargerð, að það hafi gegnf hlutverki sínu í miklu fyllra mseli en menn þorðu að vona í öndverðu. Það hafi greitt götu nútímaskáldskapar með þeim afleiðingum, að fjöldinn allur af góðum badarískum bók- menntatímaritum hafi komið í kjölfar þess. Þessi tímarit muni nú halda verkinu áfram. Hins vegar lofa útgefendur einhverju öðru góðu innan tíðar. Þess má geta að „The New American Libr ary“ gefur einnig út hinar víð- kunnu Mentor- og Signetbækur. Þetta síðasta hefti af „New World Writing" er 345 blaðsíður. Þar er nákvæm skrá yfir höf- unda sem birt hafa efni í öllum 15 heftunum. Þá er og skrá yfir einstakar þjóðir og þá höf- unda frá hverri þeirra, sem birt hafa efni í ritinu. Loks eru all- ýtarlegar skrár yfir helztu bók- menntatímarit í Bandaríkjunum og í öðrum löndum. Á liðnum sjö árum hefur ritið alls kynnt bók menntir 43 þjóða, þ.á. m. Norð urlanda að undanteknu Finn landi. Frá Danmörku hefur ritið birt efni eftir H. C. Branner og Martin A. Hansen, frá Noregi eft- ir Tarjei Vesaas og frá Svíþjóð eftir þá Sivar Arnér, Stig Dager- man, Gunnar Ekelöf, Erik Linde gren, Arthur Lundkvist, Harry Martinson og Karl Vennberg. Efni hvers heftis er mjög sund urleitt. Birt eru ljóð, smásögur, kaflar úr skáldsögum, þættir úr leikritum og ritgerðir um bók- menntir og aðrar listir. í síðasta hefti eru m.a. smásögur eftir Bor is Pasternak, gríska stórskáldið Stratis Myrivilis og kúbanska skáldið Felix Pita Rodríguez, ný þýðing á Canto II í Purgatorio eftir Dante, ritgerðir eftir Ersk- ine Caldwell, franska skáldið Henri Michaux o. fl. Þá er kynn- ing á ljóðum og smásögum eftir höfunda í Ghana, og loks er kynn ing á níu íslenzkum Ijóðskáld- um. Enda þótt hópurinn sé ekki stór, er full ástaeða til að vekja athygli á þessari kynningu hér þjóð og gleðilegur vottur um það, að íslenzk nútímaljóðlist er fyllilega hlutgeng á alþjóða- vettvangi. Fyrir íslenzku ljóðunum er stuttur inngangur eftir Isabellu Fey, þar sem í stuttu máli er gerð grein fyrir þróun nútímaljóðlist ar á íslandi og ljóðskáldin kynnt. Jafnframt fylgir stutt greinar- Steinn Steinarr Tómas Guðmundsson Jóhann Sigurjónsson Jónas Svafár Jón Óskar Stefán Hörður okkar, en hún er samt skemmti- leg vísbending um það sem hér er gert. Ljóðin eru mjög sundur- leit að efni og formi og leiða í ljós ólíka þætti í islenzkri ljóða- gerð. Yngri skáldin hafa fengið ríflegra rúm, bæði vegna þess að þau skapa strauma og stefnur samtíðarinnar í ríkara mæli en eldri kynslóðin og eins vegna hins að þau hafa í hendi sér þró- un íslenzkrar ljóðlistar næstu ára tugina. Isabella Fey hefur heimsótt fs- land tvisvar og gert sér far um að kynnast íslenzku menningar- lífi. Hún var hér mánaðartíma á sl. ihausti og tók þá m.a. 'á segul- band tvo samtalsþætti við Sig- urð A. Magnússon, um íslenzka ljóðlist, sem fluttir voru af WFUV-útvarpsstöðinhi í New York, en þar hefur hún vikulega þætti um skáldskap og ferðalög. Hún hefur sjálf birt ljóð í ýmsum brezkum og bandarískum tíma- ritum. Fimmtánda heftið af „New World Writing" verður til sölu í nokkrum bókabúðum hér þegar það kemur til landsins, en það kom út í apríl sl. í Bandaríkjun- um. Sig. A. Mágnúss. Hannes Pétursson Matthías Johannessen heima, því þetta mun vera í fyrsta sinn sem svo víðlesið og gott bókmenntarit tekur íslenzk an skáldskap til kynningar. Er þetta mikill heiður fyrir land og Góður afli á handfœri — rœkjuveiðar að hefjast aftur ••■..>»1 >■ “ ajpv l tU 1 l( 'tl J 1 aiiúá "%1\t II. "in ’ » 1 lifli Éɧl|l| gerð um hvern höfund hverju ljóði. íslenzku ljóðin, sem birt eru i enskri þýðingu, eru þessi: ,,Sorrow“ (Sorg) eftir Jóhann Sigurjónsson, „The Great Cara- van“ (Lestin mikla) eftir Tómas Guðmundsson, „Verdun“ eftir Stein Steinarr, „The Car at the Clearing“ (Bifreiðin sem hemlar hjá rjóðrinu) eftir Stefán Hörð Grímsson, „betrayal“ (svik) eft ir Sigurð A. Magnússon, „radio- active moons“ (geislavirk tungl) eftir Jónas E. Svafár, „A Black She-cat“ (Svört læða) eftir Matt hías Johannessen, „The Sheep Roundup“ (Leitir) eftir Jón Ósk- ar og „Copernicus“ (Kópernikus) eftir Hannes Pétursson. Magnús Á. Árnason hefur þýtt „Sorg“. Hann hefur einnig ásamt Isabellu Fey þýtt „Lestin mikla“ og „Verdun“. Sigurður A. Magn ússon hefur þýtt ,Svört læða“, og ennfremur hefur hann ásamt Isa- bellu Fey þýtt hin fimm ljóðin. Þessi kynning íslenzkra ljóða er takmörkuð við aðeins níu skáld og gefur því harla ófull nægjandi hugmynd um ljóðlist ÍSAFIRÐI, 4. ágúst. — Togarinn Sólborg kom heim af Grænlands- miðum í s.l. viku og landaði hér um 300 lestum af karfa. — Aflinn fór allur til vinnslu í Hraðfrysti- húsi ísfirðings h.f. í sumar hefir verið hér góð handfæraveiði, og hafa allmarg- ir aðkomubátar stundað þær veið ar, auk heimabáta. — Rækju- veiðar hafa legið niðri nú um skeið, en næstu daga munu þær hefjast að nýju. — Atvinna hefir verið mikil hér í sumar, bæði I sambandi við fiskverkun og hús- byggingar. Einnig hefir flugvall- argerðin hér veitt nokkra at- vinnu, svo og lagning háspennu- línu að vestan, frá Mjólkárvirkj- un. — G.K. GIœsiIegt brœðra- brúðkaup MIÐHÚSUM, Reykhólasveit, 28. júlí: — Laugardaginn 25. júlí gengu í hjónaband Ingimundur Magnússon Bæ og Sjöfn Smith úr Reykjavík og tvíburabróðir hans Hákon Magnússon Bæ og Unnur Jónsdóttir frá Vaðli á Barðaströnd. Sóknarpresturinn, séra Þórarinn Þór framkvæmdi hjónavígsluna. Þeir bræður gerðu veizlu mikla að „Hótel Bjarkarlundi“ og mun hafa set- Vestfirðingavaka haldin í blíðuveðri á ísafirði Ferðalag fílslns Jumbo, er feta skyldi „í fótspor Hannibals" tókst raunar ekki eins og til var ætlazt, en allt um það vakti gönguför hans um Alpana mikla athygli, og honum var hvar- vetna tekið með kostum og kynjum, þar sem hann fór um. — Þessi mynd var tekin í byrjun ferðarinnar og sýnir Jumbo og leiðsögumann hans slökkva þorstann við komuna til þorps nokkurs í Suður-Frakklandi. ÍSAFIRÐI, 4. ágúst — Hin árlega Vestfirðingavaka var haldin hér á ísafirði um verzlunarmanna- helgina. — Knattspyrnufélagið Hörður sá um vökuna að þessu sinni og minntist í þvi sambandi 40 ára afmælis síns. Veður var hið ákjósanlegasta í alla.staði um helgina. Hafnfirzk- ir íþróttamenn sóttu ísfirðinga heim af þessu tilefni, og komu þeir hingað síðdegis á laugardag. — Þann dag léku þeir knatt- spyrnu við lið úr Herði, og lauk þeim leik með jafntefli, 3 mörk gegn 3. — Á sunnudaginn var fyrst keppt í handknattleik, og sigruðu Hafnfirðingar með 14 mörkum gegn 4. — Síðar þann dag fór fram annar knattspyrnu- kappleikur, og léku Hafnfirðing- arnir nú við lið, sem valið var bæði úr Herði og Vestra. Lauk leiknum svo, að Hafnfirðingar gengu með. sigur af hólmi — 4 mörk gegn 3. Þá sýndi flokkur fimleika- manna hér í bæ undir stjórn Bjarna Bachman, íþróttakenn- ara. — Ennfremur var drengja- boðhlaup um bæinn, og kepptu þar félagar úr Herði og Vestra. — Lið Harðar sigraði. Allmargt gesta var hér úr nær- liggjandi kauptúnum og sveitum um helgina. — Dansleikir voru haldnir bæði á laugardags- og sunnudagskvöld. — G. K. ið hana nær 200 manns og var veizlan að rausn og tign svipað því og var hér fyrr á tímum. Ræður voru fluttar og minni drukkin til heiðurs hinum ungu hjónum. Veislustjóri var faðir brúðgumanna, Magnús Ingimund arson, hreppstjóri í Bæ. Ungu hjónin taka við búsforráðum í Bæ og þriðji bróðirinn, Erlingur Magnússon og kona hans Helga Höskuldsdóttir úr Reykjavík, eru að reisa nýbýli. Hér er almennt talið að þetta framtak Bæjar- bræðra sé til fyrirmyndar öðr- um ungum bændasonum og Magnús hreppsstjóri í Bæ hafi nt mikla framsýni með því að skipta jörðinni milli bræðr- anna. — öll sveitin fagnar því ungu hjónunum þrem og væntir sér mikils af þeim í framtíðinni til blessunar fyrir byggðarlagið Sv. G. Bezti kaiiinn AKRANESI, 4. ágúst. — Togar- inn Akurey landaði hér á laug- ardaginn 297 lestium af framúr- skarandi góðum karfa, þeim bezta, sem hingað hefir borizt lengi, en karfann veiddi Akurey við Vestur-Grænland — ekki á Nýfundnalandsmiðum, eins og mishermt var í fyrri frétt undir- ritaðs. — Karfinn var allur flak að«ur og hraðfrystur. — Oddur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.