Morgunblaðið - 06.09.1959, Side 23
Sunnudagur 6. Sgúst 1959
MORCVNBL 4ÐIÐ
23
— Gufuborinn
Framhald af bls. 1.
hefur ekki enn komið í þessa
holu.
Aðalástæðan fyrir því, að við
viljum reyna að sækja vatnið
svo djúpt, er sú, að það má telja
líkur á því að hitinn aukist með
dýptinni. Borholur gufuborsins í
Reykjavík munu nú við frjálst
rennsli afkasta líklega 75 lítriun
á sek. áf vatni, sem er um 130°
heitt. Með því að setja dælur í
holurnar mætti væntanlega auka
rennslið upp í 100 lítra á sek-
úndu. Hér verður þó að hafa
nokkurn fyrirvara, þar sem mæl-
ingar hafa ekki getað farið fram
á holunum vegna þess að nauð-
synleg frárennsli efu ekki fyrir
hendi. Einnig er ekki vitað
gjörla um, hvort holurnar hafa
áhrif hvor á aðra.
Ekki má telja útilokað, að hin-
ar dýpri boranir hér í bænum
geti gefið heitara vatn, t. d. 150
stiga heitt vatn.
Gufuvinnsla i Reykjavík
Ef það tekst að ná vatni með
150 stiga hita, þá má nota yfir-
hita vatnsins til þess að vinna
nokkra gufu, sem gæti haft þýð-
ingu fyrir iðnaðinn hér í bæ.
Kæmi þá til mála að vinna guf-
una með því að eima vatnið við
120 stig og verða þá 30 stig fyrir
hendi til gufuvinnslu. Afrennslis
vatn gufuvinnslunnar, sem væri
120 stiga heitt, mætti síðan nota
til húshitunar í hitaveitu á
venjulegan hátt. Gufan fengist
þá við þrýsting, sem er ein loft-
þyngd, en slík gufa getur haft
þýðingu fyrir iðnfyrirtæki í bæn
um, ef það tekst að vinna hana
við nægilegu lágu verði.
Gufuverðið færi að sjálfsögðu
eftir dreifingarkostnaði og yrði
varla um gufuvinnslu í Reykja-
vík að ræða nema notendur
hennar væru nægilega stórir og
á tiltölulega litlu svæði í bænum,
þannig að dreifingarkostnaður
hennar yrði tiltölulega lítill. Sem
stendur eru gufunotendur í
Reykjavík litlir og einnig það
dreifir að þeir koma varla til
með að geta orðið aðnjótendur
umræddrar gufuveitu. Gufuveita
mundi því ekki hafa þýðingu
nema fyrir fyrirfram skipulagt
iðnaðarhverfi.
Að sjálfsögðu mætti einnig
vinna gufu úr vatni, sem yrði
veitt frá Krýsuvík eða Hengli,
Það eru engin vandkvæði á
því að flytja 150—160° heitt
vatn frá hinum stóru jarðhita-
svæðum þar, og þetta vatn
mætti þá nota til vinnslu iðn-
aðargufu með því að eima það
við 120 stiga hita, eins og áður
var nefnt. Afrennslisvatn yrði
síðan notað til hitaveitu. Um-
ræddir möguleikar eru einn-
ig fyrir hendi í Hafnarfirði,
þar mætti koma upp gufu-
veitu, sem byggðist á heitu
vatni frá Krísuvík.
Vinnslukostnaður gufunnar
skiptir að sjálfsögðu mestu máli
og skulu hér gefnar nokkrar á-
ætlaðar tölur til skýringar. I.
eftirfarandi töflu er gefið verð
iðnaðargufu, sem unnin er með
olíu hér í Reykjavík og Vestur-
Evrópu, og til samanburðar er
gefið áætlað verð frá gufuveitu,
sem byggist á jarðhita.
TAFLA
Gufuverð
1) Gufa unnin úr olíu í Reykja-
vík: 70 kr./lest.
2) Gufa unnin með olíu í Vest-
ur-Evrópu 40 kr./lest.'
3) Gufa frá borholu í Reykja-
vík: 20 kr./lest.
4) Gufa frá Krýsuvík eða Heng-
ilsveitu: 30 kr./lest.
5) Gufa í Krýsuvík eða Hengli:
4 kr./lest.
I þrem síðustu liðunum er
reiknað með öllum veitukostn-
aði og er verðið því áætlað hjá
notanda. Reiknað er aðeins með
stórum notendum.
Hér er að sjálfsögðu aðeins um
bráðabirgðaáætlun að ræða, en
tölurnar sýna að gufa unnin við
jarðhita hér gæti líklega orðið
ódýrari en jafnvel iðnaðargufa í
Vestur-Evrópu. En þó ber að
hafa í huga að gufa sú, sem hér
um ræðir, er aðeins 120 stiga
heit og getur það sett nokkrar
takmarkanir fyrir notkun henn-
ar. —
Segja má, að gufuveita af
þessu tagi í Reykjavík sé fram-
tíðardraumur en ekki má loka
augunum fyrir þessum mögu-
leika, þar sem hann getur haft
þýðingu fyrir iðnað í bænum,
ef rétt og skipulega er á mál-
unum haldið.
Margir munu sjálfsagt spyrja,
hvort ekki mætti byggja ein-
hverja útflutningsframleiðslu á
jarðhitagufu hér í Reykjavík, en
því er erfitt að svara á þessu
stigi málsins. Öll útflutnings-
framleiðsla er miklu erfiðari við-
fangs en iðnaður, sem ætlaður er
fyrir innanlandsmarkað, og verð-
ur því að dæma möguleikana
mjög varlega. Hér eru svo að
segja engin hráefni, sem vinna
mætti úrð en það torveidar að
sjálfsögðu verulega.
Vinnsla sjávarefna
Nokkuð hefur verið rætt
um vinnslu salts úr sjó með
jarðhita og hefur Baldur Lín-
dal efnaverkfræðingur eink-
um starfað að athugunum á
þeim möguleika. Samfara salt
inu má einnig vinna önnur
efni úr sjó, svo sem magnesi-
um-sambönd en þau eru veru-
lega verðmætari en saltið.
Saltvinnslan yrði að fara fram
á einu hinna stóru jarðhita-
svæða, svo sem í Krýsuvík
eða á Reykjanesi. En vinnsla
magnesiumefnanna gæti hins
vegar farið fram utan jarð-
hitasvæðis, ef það tekst að
gera nægilega ódýra gufu-
veitu.
Kemur til athugunar, hvort
ekki sé einmitt mögulegt að
vinna magnesium-efnin hér í
Reykjavík. Hér er góður að-
gangur að sjó, og einnig ann-
að nauðsynlegt efni fyrir
heni, sem er skeljasandurinn
í Faxaflóa, sem er mjög ódýr.
Boranir í Reykjavík
Þær boranir, sem nú er verið
að framkvæma eru að sjálfsögðu
gerðar með það fyrir augum, að
auka hitaveitu í Reykjavík og er
engan veginn útilokað að í bæj-
arlandinu og næsta nágrenni
þess megi fá þá viðbót af heitu
vatni, sem þarf til að hita upp
allan bæinn. Eins og áður er
getið er talsvert vatnsmagn þeg-
ar komið í borholur gufubors-
ins.
Boranir á Reykjum í Mos-
fellssveit
Hitaveita Reykjavíkur hefur
sem kunnugt er til umráða um
330 lítra á sekúndu af 87 stiga
heitu vatni frá jarðhitasvæðun-
um í Mosfellssveit. Þar munu
hafa verið boraðar með eldri bor-
vélum um 70 borholur, sem
flestar eru grynnri en 500 metr-
ar. Nú kemur til athugunar, hvort
ekki sé rétt að hefja djúpbor-
anir á Reykjum með það fyrir
augum að auka hita vatnsins og
jafnvel magnið.
Hitaveituenfnd Reykjavíkur
hefur haft þessi mál til athug-
unar og telur hún að af ýmsum
ástæðum sé rétt að hefja þessar
boranir á Reykjum þegar í stað
en fresta frekar borunum í bæj-
arlandinu um nokkurn tíma. Er
þetta hugsað með hliðsjón af
því, að heppilegra er að bora að
Reykjum nú, en þegar líðúr að
vetri. Er ekki ólíklegt að næsta
verk gufuborsins verði á Suður-
Reykjum í Mosfellssveit.
Boranir í Krýsuvík og Hengli
Reykjavíkurbær hefur gufu-
borinn til rnnráða samkvæmt
samningum fram í nóvemberlok,
en síðan er honum ætlað að bora
á vegum ríkisins. Að svo stöddu
eru það einkum boranir í Krýsu-
vík og Hengli, sem til mála
koma á vegum ríkisins. Þó er
nokkurt vafamál, hvort rétt sé
að hefja slíkar boranir í mesta
skammdeginu, og tæknilega séð
væri það eðlilegt að gera það
ekki fyrr en liðið er á vetur-
inn, en ljúka frekar aðkallandi
verkefnum í nágrenni bæjarins
í skammdeginu.
Líklegt má telja að fyrsta
gufurafstöðin á Islandi verði
reist á árinu 1963, og þyrftu
öllum borunum og undirbún-
ingsatriðum að vera vel lokið
fyrir þann tíma. Stöðin yrði
væntanlega 10—15 þúsund
kw. og mætti staðsetja hana
í Hengli eða Krýsuvík.
Eisenhowcr
á f örum heim
SKOTLANDI, 5. sept. (Reuter).
Evrópuför Eisenhowers Banda*
ríkjaforseta er nú senn á enda
og mun forsetinn að öllum lík-
indum halda vestur um haf á
mánudaginn.
Um helgina dvelur hann I
Culzen-kastalanum hér í Skot-
landi, en þangað kom forsetinn
í gær. Hyggst hann halda kyrru
fyrir að mestu og hvíla sig eftir
hina erfiðu 10 daga ferð sína
og tíð fundarhöld að undanförnu.
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð mér vin-
arhug á áttræðisafmæli mínu 26. ágúst, og glödduð mig
með heimsóknum, skeytum og gjöfum.
Þóra L. Björnsson
Glæsilegf einbýlishus
í Austurbænum til sölu nú þegar.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÖTTIR hrl.
Laufásvegi 2 — Sími 19960
Innbyggð rishæð
fokheld eða lengra komin óskast til kaups.
Góð útborgun.
RANNVEIG ÞORSTEINSDÓTTIR hrl.
Laufásvegi 2 — Sími 19960.
Frá Reykjarfirði á Ströndum, nyrzta bæ í Grunnavíkurhreppi. Bóndinn þar, Guðfinnur Jakobs-
son, mun scnnilega verða að Iáta af búskap í haust vegna heilsuleysis. Ljósm.: Þorst. Jósefsson.
— Við túngarðinn
Framh. af bls. 6.
sem tilraunabú hér á landi hafa
fengið.
Trúa á framtíðina
Við Hallgrímur bregðum okkur
nú í heimsókn til ungs bónda þar
á næsta bæ, Ragúels Hagalíns-
sonar. Hann er alveg nýtekinn
við búi af föður sínum, sem er
ný látinn, en hefir lengst af stund
að sjósókn og þá oft verið á
vertíð á Suðurlandi. Hann er á-
kveðinn { að halda búskap föð-
ur síns áfram og er bjartsýnn um
framtíðarhorfur þeirra Grunn-
víkinga. Það berst í tal að næsti
nágranni þeirra, bóndinn í
Reykjarfirði á Ströndum sé að
hætta búskap, en Reykjarfjarðar-
bændur hafa alla jafna sótt við-
skipti sín til ísafjarðar gegnum
Jökulfirði.
Þótt mönnum kunni máske að
vaxa í augum erfiðleikar og ein-
angrun afskekktustu byggða
þessa lands þá er óhætt að full-
yrða að meðan við eigum jafn
stælta Unga bændur og ég hitti
í ferð minni um Vestfirði þá
mun byggðin haldast og jafnvel
færast út. Það er og staðreynd
að landið okkar er gjöfult og
frjótt ekki síður það sem fjarst
liggur þéttbýlinu.
I Grunnavík eins og á Snæ-
fjallaströnd og í Nauteyrarhreppi
fékk ég hinar beztu móttökur hjá
því góða og dugmikla fólki, sem
þessar sveitir byggir.
— vig.
Þýðingar
Erlendar bréfaskriftir. — Upplýsingar, Hafnar-
stræti 15. 3. hæð. Sími 22865 kl. 10—12.
INGI K. JÓHANNESSON.
Veitingastofa
í Miðbænum er laus nú þegar Upplýsingar sendist
afgr. Mbl. merktar: „Veitingastofa—4994“.
Luxux íbuð
Til sölu luxus íbúð í Lækjunum. íbúðin er á I. hæð
með sér inngangi, sér hita og vaskahúsi á hæðinni.
Þeir, sem hafa hug á að kynna sér þetta nánar,
leggi nafn og heimilisfang inn á afgr. Mbl. fyrir 9.
sept. merkt: „Luxus—4995“.
Eiginkona mín
ÖLÍNA A. THORODDSEN
lézt í Bæjarspítalanum í Reykjavík föstud. 4. þ.m.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ólafur E. Thoroddsen.
Útför mannsins míns
JÖRUNDAR ODDSSONAR
aðalbókara
fer fram frá Dómkirkjunni, þriðjudaginn 8. þ.m. kl. 2 e.h.
María Pétursdóttir
Þökkum innilega auðsýnda hluttekningu við andlát
og jarðarför
BERGÞORU J. NYBORG
kaupkonu.
Júlíus V. J. Nyborg, Vigdís Bruun Madsen,
Jónas Guðlaugsson.