Morgunblaðið - 11.09.1959, Side 11

Morgunblaðið - 11.09.1959, Side 11
I'östudagur 11. sept. 1959 MORCVNBL4Ð1Ð 11 Stéttar- jbing bœnda EIN S og frá hefir verið skýrt í fréttum sat Stéttar- samband bænda á aðalfundi að Bjarkarlundi á Barða- strönd dagana 7. og 8. sept. si. Voru þar rædd hagsmuna- mál sambandsins og þá fyrst og fremst verðlagsmál. Gerð- ar voru ýmsar samþykktir í þeim málum. Fundinn sátu 47 fulltrúar, eða allir sem þar eiga að mæta, svo og stjórn og starfslið auk allmargra gesta. Alls voru fundarmenn 70 talsins. Vestur á Barðastrenil. Klukkan eitt síðastliðinn sunnu dag söfnuðust fulltrúar og gestir saman við Búnaðarfélagshúsið hér í bæ og stigu upp í langferða bifreið, sem flytja skyldi þá vesí- ur. Langflestir ferðamanna komu hingað til Reykjavíkur áður. — Nokkrir komu beint á fundinn t. d. Norðlendingarnir og Vestfirð- ingarnir. Fulltrúar af Vesturlandi slógust í hópinn á leiðinni. Hald- ið var sem leið liggur að Hreða- vatni og þar snæddur hádegis- verður. Á leiðinni vestur um Dali lýsti Pálmi Einarsson fulltrúi og sagði frá bæjarnöfnum svo og ör- nefnum og sögufrægum stöðum. Var þetta mjög til fróðleiks og skemmtunar. Þegar kom á leiðarenda að Bjarkarlundi, var snætt en síðan var meginþorra fulltrúanna skip að niður á ýmsa bæi í sveitinni og þar í nágrenninu. Fengu full- trúar hinar beztu viðtökur hvar vetna. , Á mánudaginn sátu fulltriiar og hlýddu á skýrslur en síðar um daginn hófust nefndarstörf. Á þriðjudaginn skiluðu nefndir álitum og þá fóru fram umræð- um þau svo og stjórnarkjör. Fyrst voru ræddar tillögur framleiðslunefndar. Hljóðar hin fyrsta þeirra svo: Fiskirækt og útflutningur sauðfjárafurða. „Aðalfundur Stéttarsambands bænda skorar á ríkisstjórnina að leggja fram ríflega fé til fiski- ræktar í ám og vötnum. Jafn- framt leggur fundurinn áherziu á að unnið sé ötullega að því, að rannsaka lífsskilyrði fyrir físka í ám og vötnum, og veiðimála- stjórninni séð fyrir nægu starfs- fé til þess“. Bent var á hve mikil hlunnindi væru að veiðum á fiski í ám og vötnum svo og að samkvæmt at- hugunum fróðra manna myndu skilyrði til fiskiræktar víðar en nú væri. Hins vegar lægi engin heildarathugun fyrir um þetta mál. Tillagan var samþykkt sam- hljóða. Önnur tillaga framleiðslunefnd ar hljóðar svo; Sverrir Gíslason, Hvammi, formaður Stéttarsambands bænda. „Þar sem aukin sauðfjárrækt hlýtur að byggjast á erlendum mörkuðum, vísar fundurinn ti! fyrri samþykkta og treystir því að framleiðsluráð og SÍS sýni stöðuga árvekni um að leita nýrra leiða í markaðsmálum og aug- lýsingastarfsemi". Samþ. samhlj. Af tillögum allsherjarnefndar má nefna: „Aðalf. S. B. 1959, mælir fast- lega með því að Alþingi fram- lengi lög nr. 48 frá 28. maí 1957 um sérframlög til jarðabóta á þeim jörðum, þar sem ræktun er skammt á veg komin og nái fram lengingin til tímabilsins 1962— 1966“. Bent var á að ýmsar aðstæð- ur hömluðu því, að bændur þeir sem enn hefðu litla ræktun gætu notfært sér stuðn- ing þann, er felst í fyrr- greindum lögum fyrir þann tíma er þau ganga í gildi. Samþykkt samhljóða. Þá var flutt tillaga um rafvæð- ingu, er hljóðar svo: „Aðalfundur ’Stéttarsamb. bænda 1959 skorar á raforkumálastjórn ríkisins að hraða sem auðið er rafvæðiilgu dreifbýlisins og þeita sér jafnframt fyrir því að raforkan verði seld sama verði til allra landsmanna". Tillagan var borin upp í tvennu lagi og fyrri hluti hennar sam- þykktur samhljóða, en síðari hiut inn með þorra atkvæða. Skipuleg þurrkun lands. Tillaga um skipulega þurrkun lands hljóðar svo: „Þar sem fundurinn telur að fram komin tillaga frá Benedikt Kristjánssyni frá Þverá um skipa lega þurrkun ræktanlegs votlend is, sé mjög athyglisverð, en heyri frekar undir Búnaðarfélag ís- lands, felur fundurinn stjórn Stéttarsambandsins að koma mál- inu þar á framfæri til frekári athugunar" Tillagan var samþykkt sarn- hljóða og á það bent, að þetta mál væri mjög merkilegt, en þar sem B. í. fjallar fremur um ræktun- armál en Stéttarsambandið væri eðlilegra að það fengi málið til afgreiðslu. Efling stofnlánadeilda. Um eflingu stofnlánadeilda var gerð svofelld ályktun: „Aðalfundur Stéttarsambands bænda haldinn að Bjarkarlundi 7. og 8. sept. 1959, telur nauð- syn bera til að stofnlánadeildum Búnaðarbanka fslands, veðdeild. ræktunarsjóði og byggingarsjóði verði nú þegar útvegað nægjan- legt fjármagn til að lána með svipuðum hætti og í ekki minna mæli, en verið hefur að und- anförnu. í því sambandi vill fund urinn benda á, að ýmis héruð hafa ekki á því tímabili getað unnið að nauðsynlegum stofn- framkvæmdum, móts við önnur, og þess vegna dregist aftur úr. Væri dregið úr lánastarfsemi þess ari nú, gæti það haft alvarlegar afleiðingar fyrir viðkomandi sveitir. Fundurinn lýsir því áliti sínu að landbúnaðinum sé það fyrir beztu að lánsfénu sé beint að ræktun, byggingum og vélakaup- um til frumbýlinga og þeirra, sem dregizt hafa aftur út í fram- kvæmdum, svo og til fyrir- greiðslu við jarðakaup. Ennfrem- ur til vinnslustöðva landbúnað- arins, svo sem mjólkurbúa, slát- urhúsa og frystihúsa. Till. var samþ. samhljóða. Efling Bjargráðasjóðs. Um eflingu fóðurtryggingar- sjóða var gerð svofelld ályktun: Framh. á bls. 19.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.