Morgunblaðið - 25.11.1959, Side 11
MiðvikudagSF 25. nóv. 1959
MORCTHVTtTAfílÐ
11
Þjó&arframleiðslan þat
að sexfaldast á nœstu
40 árum
NÚ hefur aftur verið tekinn upp
í útvarpinu þáttur Sigurðar
Magnússonar, „Spurt og spjallað í
útvarpssal“. Fyrir hálfum mán-
uði var í þættinum rætt um hvort
aðskilja ætti ríki og kirkju. En
síðastliðið sunnudagskvöld var
umræðuefnið, hvort leyfa ætti er-
lendum aðilum að taka einhvern
beinan þátt í atvinnurekstri hér
á landi.
Valdimar
Steingrímur
Þeir, sem tóku þátt í þeim um-
ræðum, auk umræðustjóra, voru
Ingi R. Helgason, lögfr., Stein-
grímur Hermannsson, verkfræð-
ingur, Valdimar Kristinsson, við-
skiptafr., og Vigfús Guðmunds-
son, gestgjafi. Ekki voru þeir
fjórmenningarnir sammála, enda
munu þeir hafa verið valdir
þannig, að búast mætti við veru-
legum umræðum.
Eins og venja er í þættinum,
fluttu þátttakendur, hver um sig,
stutt inngangserindi, en síðan var
tekið til við umræðurnar.
Með og móti
Ingi lýsti sig andvígan erlendu
fjármagni í þessari mynd, ræddi
um þau lög, er nú gilda hér um
atvinnurekstur útlendinga og
vildi jafnvel takmarka rétt þeirra
enn frekar, og sagðist vilja þakka
sérstaklega þeim mönnum, sem
hefðu komið í veg fyrir erlenda
fjárfestingu hér, þegar hún var
sem mest rædd fyrir nokkrum
áratugum.
Steingrímur kvað nauðsynlegt
að auka fjölbreyttni atvinnuveg-
anna og að mestar vonir væru
bundnar við orkulindimar í því
sambandi, enda væri okkur bráð-
nauðsyn að nýta þær áður en
samkeppni kjarnorkunnar hefði
dregið mjög úr mikilvægi þeirra.
Þetta væru svo fjárfrekar fram-
kvæmdir, að þær væru okkur of-
viða, nema að við gætum fengið
erlent fjármagn til þátttöku í
þeim. Þetta væri leið, sem fjöl-
margar þjóðir hefðu farið til upp-
byggingar atvinnulífi sínu og
hefði yfirleitt gefizt mjög veJ,
a. m. k. hjá öllum grónum menn-
ingarþjóðum vestan hafs og aust-
an.
Fjölgar um helming
á 40 árum
Valdimar benti á, að búast
mætti við, að íslenzka þjóðin yrði
Safn Þjóðsagna
VESTFIRZKAR þjóðsögur, skrá-
setjari Arngrímur Fr. Bjarnason,
eru nýkomnar út og að þessu
sinni 5. bindi. — Útgefandi er
ísaf oldarprentsmiðj a.
Áður hefir komið út nokkurt
safn Vestfirzkra þjóðsagna, og
þeim verið vel tekið, enda efnið
vinsælt lestrarefni. Þá er oft um
mikinn og ágætan fróðleik að
ræða um þjóðlíf og lifnaðarhætti
fyrri kynslóða, sem mikill feng-
u» ar í.oft og tíðum.
helmingi fjölmennari en hún nú
er um næstu aldamót. Vegna þess
arar miklu fjölgunar og til þess
að fylgjast með þeim þjóðum,
sem framsæknastar eru þyrfti að
gera ráð fyrir, að þjóðarfram-
leiðslan, allt að því sexfaldaðist
á næstu 40 árum. Vegna smæðar
þjóðarinnar væri hún mjög háð
utanríkisviðskiptum og þó að efa-
laust mætti auka fiskveiðar veru-
lega, og þó enn meir fjölbreyttni
fiskiðnaðarins, þá væri a. m. k.
mjög óvarlegt að byggja nær alla
gjaldeyrisöflun á þessari einu at-
vinnugrein. Til þess að auka fjöl-
breyttni útflutningsatvinnuveg-
anna þyrfti fyrst og fremst að
nýta orkulindirnar í stórum stíl
og það væri ekki hægt án að-
stoðar útlendinga, bæði vegna
fjármagnsins og eins vegna að-
stöðu og þekkingar, sem þeir hafa
yfir að ráða. Fjölmargar þjóðir
hefðu farið þessa leið til upp-
byggingar atvinnuvegum sínum,
með ágætum árangri ög Samein-
uðu þjóðirnar hefðu hvatt til
styrkja atvinnuvegi landsins án
áhættu.
Erlent lánsfé
Steingrímur og Valdimar töldu,
að ekki væri unnt að byggja em-
göngu á erlendu lánsfé til nauð-
synlegra stórframkvæmda, en
Ingi hélt því hins vegar fram, að
svo mikið lánsfé væri fáanlegt,
og ræddi í því sambandi, að
vinstri stjórninni hefði boðið stór
lán með 2% vöxtum. Valdimar
sagði, að það væri staðreynd ab
þetta íán hefði ekki verið tekið
og af því vildi hann draga þá
Vigfús
Ingi
ályktun, að sumum af ráðamönn-
um vinstri stjórnarinnar hefði
ekki þótt það eins hagkvæmt og
Ingi vildi vera láta.
Athyglisverðar rökræður um erlent
fjármagn á íslandi
flutninga einkafjármagns milli
landa.
Niður á nýlendustig
Vigfús lýsti hinu ömurlega á-
standi á tímum danskra yfirráða
hér og kvaðst hafa kynnzt mjög
lélegum lífskjörum víða í S-
Ameríku og kenndi erlendu fjár-
magni um. Hann sagði að íslenzka
þjóðin ætti að búa að sínu og
temja sér meiri ráðdeild og hag-
sýni. Fjármagn í eigu útlendinga,
sem fengi að starfa hér á landi
myndi líklega færa þjóðina aftur
niður á nýlendustigið og myndi
því geta eyðilagt það sem áunn-
izt hefur.
í umræðunum reyndust menn
sammála um, að stefna þyrfti að
því að sexfalda þjóðarframleiðsl-
una á næstu 40 árum.
Ingi og Vigfús töldu að hægt
yrði að byggja að mestu á útgerð
og fiskiðnaði, til þess að ná þessu
marki, en Vigfús talaði þó um
fleiri atvinnuvegi og Ingi taldi
að eitthvað þyrfti að hugsa til
stóriðju.
Nauðsyn stóriðju
Steingrímur og Valdimar sögðu,
að það mætti heita útilokað, að
hægt yrði að byggja svo mjög á
þessari einu atvinnugrein, og sér-
staklega væri þó óvarlegt að gera
það. Stóriðja þyrfti að vaxa upp
samtímis því, sem stöðugt yrði
reynt að bæta skilyrði annarra
atvinnugreina.
Var nú vikið að reynslu ann-
arra þjóða í þessu sambandi cg
voru Ingi og Vigfús margorðir
um hið slæma ástand í Suður-
Ameríku, þar sem uppreisnir
væru daglegt brauð og annað
ástand í samræmi við það; en er-
lent fjármagn hefði fengið greið-
an aðgang að þessum löndum.
Steingrímur og Valdimar héldu
því hins vegar fram, að ekki væri
hægt að bera ísland saman við
þessi lönd, en við gætum fyrst cg
fremst lært af nágrannaþjóðum
okkar, eins og til dæmis Norð-
mönnum og Hollendingum, hvern
ig semja ber um hið erlenda fjár-
magn, til þess að geta látið það
Hægt að loka mörkuðum
Steingrímur benti á, að við yrð-
um einnig að taka tillit til stóru
félaganna, sem sumir kölluðu auð
hringi og réðu yfir mörgum grein
um heimsmarkaðarins. Ingi sagði,
að við gætum selt til þeirra landa,
þar sem þessir aðilar réðu engu.
Steingrímur svaraði því þá til,
að það væri mjög hættulegt, því
að í þeim löndum, sem hann þætt
ist vita, að Ingi ætti við, væri
hægt að loka markaðinum með
einu pennastriki. — Kvað Ingi
þetta órökstudda fullyrðingu.
Að lokum dró hver þátttakandi
fram í stuttu máli það sem honum
þótti mestu skipta umræðuefninu
viðvíkjan^'
Til sölu
nokkur stykki ódýrar kvenkánur.
Réttarholtsveg 53.
Stúlka
Reglusöm og ábyggileg stúlka óskast til
afgreiðslustarfa til jóla. Upplýsingar
í síma 12770.
Laugavegur — húsnæði
Tvö samliggjandi herbergi ca. 40 fermetrar til leigu.
Heppilegt fyrir litla heildsölu. Tilboð sendist blaðinu
fyrir 28. nóv. merkt: „Laugavegur — 8623“.
Einangrunarkorkur
IVz tomma og tomma.
HL Benediktsson hf.
Sími 11228.
TIL LEIGU 2 samliggjandi
Skrifstofpiherbergi
í Austurstræti 12. Upplýsingar í síma
13851.
Atvinna
Vön kona óskast nú þegar í sláturgerð.
Uppl. í síma 11112 kl. 6—7 í dag og
næstu daga.
Bláa dreng jabókin
1959
Stei na r
sendiboði
keisarans
Bláa drengjabókin í ár er komin
út. Hún heitir Steinar, sendiboði
keisarans, og er eftir Harry Kull-
man.
Steinar, sendiboöi keisarans, er
valin drengjabók, því að hún er
í senn brá,ðskemmtileg, spennandi
og gott lestrarefni fyrir alla röska
og tápmikla drengi.
Steinar, sendiboði keisarans verður
óskabók drengjanna uin þessi jól.
Bókf e llsútgáf an