Morgunblaðið - 17.02.1960, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 17.02.1960, Blaðsíða 16
16 M O R C F /V R r 4 n 1 Ð Miðvikudagur 17. febr. 1960 islenzkar myndir á harnaBista- safn Myndin hér að ofan sýnir þróunina frá kroti tveggja ára barns til myndlýsandi teiknunar 8 ára barns og skal hún „lesin“ frá miðju að útjöðrum. (Þetta er helmingur af upphaflegu myndinni, sem var heill hringur). Frú Kellogg hefur teiknað hana með hliðsjón af niðurstöðum ítarlegra rannsókna á meir en 200.000 teikningum og kroti barna á þessum aldri í 14 löndum. barnsins; 2. aldur; 3. „F“ ef um Utanáskrift er: Teiknikennara- stúlka er að ræða „M“ ef umfélag íslands, c/o Guðmundur pilt er að ræða; 4. dagsetníngElíasson, Njálsgötu 94, Reykja- n'yndarinnar. vík. Sjálfstæðisfélag Grindavíkur UM ÞESSAR mundir er unnið að því á vegum Golden Gate leik- skólanna í San Francisco, að koma á fót barnalistasafni, er veiti yfirlit yfir þróun barna- listar um allan heim. Yfirumsjón armaður leikskólanna, frú Rhoda Kellogg, sem um mörg undanfar- in ár hefur stjórnað víðtækum rannsóknum á þróunareinkenn- um barnalistar, hefur yfirumsjón með skipulagningu safnsins. Frú Kellogg hefur farið þess á leit við Teiknikennarafélag Is- lands, að það annist söfnun mynda á Islandi til safnsins. Fé- lagið vill því hér með beina þeim tiimælum til foreldra og kenn- ara um allt land, að þeir sendi því við fyrstu hentugleika mynd- ir eftir börn á aldrinum tveggja til tíu ára. Einkum er þó seilzt eftir myndum barna á aldrinum tveggja til fimm ára. Þess er vænzt, að foreldrar og kei.narar láti félaginu berast sem fjölbreytilegast safn þeirra mynda, sem börn á fyrrgreindum aldri festa á pappír, jafnvel þótt þær virðist vera „mesta pár“. Fé- lagið mun senda til San Franc- isco allar þær myndir, sem því kunna að berast, en þar mun sér- fræðingar velja úr þær myndir, sem settar verða á safnið. Félag- ið getur ekki tekið að sér endur- sendingu þeirra mynda, sem ekki verða teknar á safnið. Æski'egt er, að á bak hverr- ar myndar sé skrifað: 1. nafn ^ AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfélags Grindavíkur var haldinn í :am- komuhúsi staðarins sunnudaginn 7. jan. kl. 3 síðdegis. Var fund- urinn vel sóttur og kom fram mjög eindreginn áhugi fundar- manna fyrir eflingu félagsstarfs- ins. Var í því skyni kosin fjög- ! urra manna nefnd og skyldi hún annast skemmtisamkomur á veg- um félagsins. Stjórn var öll end- urkjörin, en hana skipa: Eiríkur Alexandersson, formaður, Þór- ólfur Sveinsson, Bjarni Þórarins- son, Ragnar Magnússon og Þórð- ur Waldorff. Að loknum aðal- fundarstörfum las Angantýr Jóns son upp frumsamin ljóð meðal annars um félagið og stjórn þess. Að endingu var spiluð félagsvist. — E.A. Vilja fá framtíðar- mami í Bakkasel I SÍÐASTA Löbirtingi er tilk. að Bakkasel í Oxnadal sé laus til ábúðar um næstu fardaga. Karl Friðriksson yfirvegaverk stjóri á Akureyri, sagði Mbl. í gærkvöldi, að ábúandinn myndi flytja til Akureyrar í vor. Mér er kunnugt um að vegagerðin myndi vilja fá þangað duglegan framtíðarmann. Myndi ég þá leggja til, sagði Karl, að honum yrði rétt hjálparhönd til að kom- ast yfir byrjunarörðugleikana. Bakkasel er þýðingarmikill stað- ur fyrir haust og vetrarferðir og um Öxnadalsheiði. Sú kvöð fylgir að ábúandinn haldi þar uppi gistingu og greiða sölu. Aftur á móti er ekkert eftir gjald af jörðinni, sem er góð fjár lörð. Hafa ýmsir fyrrum ábúend- ur í Bakkaseli efnazt þar vel. Árið 1930 tók vegagerðin við Bakkaseli og reisti þá hús það sem nú stendur þar, ásamt áföst- um útihúsum. Vöruskiptajöfnuður óhagslæður SAMKVÆMT skýrslu frá Hag- stofu íslands var vöruskiptajöfn uðurinn í desembermánuði sl.l. óhagstæður um nær 152 millj. kr. Var flutt inn fyrir 270 millj., þar af skip fyrir 87 millj., en út fyrir 117 millj. Á öllu árinu 1959 var verð- mæti útflutnings 1.059 millj.; en innflutnings 1.546 millj., þar af skip fyrir 110 millj. og vöru- skiptajöfnuður því óhagstæður um 487 millj. kr. Arið 1958 var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæð- ur um 340 millj. kr. LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 Litaðu þessa mynd þannig: R = rautt, B = blátt, G = grænt, O = appelsínugult, Y = gult, Br = brúnt, Bk = svart og P = ljósrautt. ar. Annarri stöng var ýtt niður, gufan aftur sett á, og glamrandi hélt vagn- inn af stað og Tómas gat ekki betur séð, en hann stefndi nú aftur í áttma að skúrnum. Fullan gufuþrýsting! — Eldglæringar og gufu- hvæs og aftur er hraðinn orðinn hættulega mikill í beygjunum. Gott og vei, þá er ekki annað en að minnka súginn. Svona! Þetta var nú aðeins gaman. Það var notaleg tilfinhíng að geta stjórn- að þessu sterka, hvæs- andi stáldýri, með því að hreyfa nokkur handföng og hjól. Nóttin var koldimm. Tómas skimaði fram á leið. Hvar var skúrinn? Líklega væri rett að fara varlega og draga svolítið úr hraðanum. En einmitt í sömu svif- um heyrðust aftpr ær- andi brak og brestir og trotunum rigndi niður í kring um hann. Ilann nafði ekið irin um hinn gaflinn, gegn um skúr- inn. — Jæja, það er þó að minnsta kosti hindrunar- ,aus gegnumakstur núna, hugsaði Tómas með sér, um leið og hann ók hægt aftur á bak og kom far- köstinum fyrir á sínum stað. Eimvagninn leit ekki sem bezt út. þegar Tómas skildi við hann inni í opnum skúrnum. Allt var þakið ösku, ketillinn næstum tómur og eldstæðið fullt af sindri. Tómasi þótti því ráðlegast að bíða ekki eftir komu lestarstjórans, heldur leitaði hann sér náttstaðar í heystakki þar í grenndinni. Þar dreymdi hann við- burðaríka drauma um eimvagna í næturævin- týrum, árekstra, og reiða lestarstjóra, unz morgun- sólin vakti hann. Tómas komst þá að raun um, að ævintýri næturinnar höfðu líka sett spor sín á bann sjálf- an, svo að haijn varð að standa í stórþvotti við læk nokkurn. Þaðan hélt hann síðan beint til næstu stöðvar, þar sem hann fékk vinnu vegna þess, að loftskeytamaðurinn var veikur. Fyrsta skeytið sem hann sendi, var tilkynn- ing til aðalskrifstofu járn brautanna um „skammar- legt skemmdarverk, sem Á Samóaeyjunum í Kyrrahafinu dáist full- orðna fólkið að öllu því, sem bömin gera. f hvert skipti, sem lítil stúlka eða drengur, læra eitt- hvað nýtt, er haldin hátið. Það er efnt til stórrar veizlu, þegar yngsti með- limur fjölskyldunnar get- ur setið, skriðið, eða stað- ið uppréttur. Þó er mest um dýrðir, þegar börnin fara að ganga. Öllum þorpsbúum unnið hafði verið á eim- vagni og skúr“. Þessi loftskeytamaður varð skömmu síðar heims frægur. Það var hann, sem fann upp rafiriagnsperuna, tal- símann og grammof ón- inn. Hann fékk einkaleyfi fyrir hvorki meira né minna en um fimmtán hundruð uppfinningum. Maðurinn var frægasti uppfinningamaður heims- ins fyrr og síðar: Tórnas Alva Edison. er boðið, og dansað er og sungið alla nóttina. Það hlýtur að vera gaman hjá börnu.ium á Samóaeyjunum. Samt á það aðeins við um þau börn, sem eru heilbrigð og eðlilega gefin. Veikl- uð, vangefin eða van- sköpuð börn eru borin út, til þess að deyja, á sama hátt og forfeður okkar gerðu, áður en þeir tóku kristna trú. Krossgátc Krossgáta: Lárétt: 1. ekki falleg. ■ 3. veiki. Lóðrétt: 1. loka. 2. hræðsla. Viltu skrita mér óska að skrifast á við pilta eða itúlkur á þeim aldri, sem tiltekinn er í svigunum: Einar Sigurðsson, Upp- salavegi 3, Sandgerði (9 —11 ára), Margrét Jóna Jónsdóttir (10—12 ára) og Lúðvík Valgeir Jóns- son (12—14 ára), bæði í Höfn, Melasveit, Borg. •— Ragnhildur Húnbogadótt ir (9—11 ára) og Hann- veig Valtýsdóttir (14—15 ára), báðar að Uppsala- vegi 5, Sandgerði, — Kristín Thorberg, Skóla- braut 15, Seltjarnarnesi, Reykjavík (11—12 ára), Finnbogi Bjarnason, Fremri-Hvesstu, Arnar- firði, Bíldudal, V.-Barð. (12—14 ára), Edda Guð- mundsdóttir, Vallargötu 23, Keflavík (13—15 ára) — Vallý Sverrisdóttir, Holtsgötu 35, Ytri-Njarð- vík (13—15 ára), — Elín Sigurðardóttir, Vatnsnes- vegi 15, Keflavík (13—15 ára). Skrítla Afi (heldur á Sveini litla fyrir framan spegil): — Sérðu litla apann? Sveinn: Já, loðinn í framan með gleraugu og heldur á dreng á hand- leggnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.