Morgunblaðið - 17.02.1960, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.02.1960, Blaðsíða 19
Miðvöcudagur 17. feíjr. 1960 MORCVNBLAB1B 19 Ekki eiturlyfja- salar TVEIR erlendir menn urðu fyrúr skömmu fyrir árás í Miðbænum og var í því sambandi borin á þá eiturlyfjasala, eins og skýrt var frá í blöðunum. Báðust þeir rannsóknar á málinu. Hinn 5. febr. sl. sendi sakadómari báð- um útlendingunum svohljóðandi bréf: „Hér með tilkynnist yður, að hið háa dómsmálaráðuneyti hef- ur hinn 2. þ. m. ritað mér á þessa leið: „ „Eftir móttöku bréfs yðar herra sakadómari, dags. 1. þ. m., sem fylgdi bréfi Salvatore Tola, Barmahlíð 31, og Juan Casades- ús, Mímisvegi 2 A, dags. 14. f. m., þar sem þeir heiðast rannsóknar um það, hvort ásakanir á hend- ur þeim um eiturlyfjasölu hafi við rök að styðjast, tekur ráðu- neytið fram, að það fyrirskipar ekki frekari aðgjörðir í máli þessu“. Valdimar Stefánsson (sign)””. Hinn 10. febrúar sl. ritar saka- dómari svohljóðandi bréf til lög- manns útlendinganna, Guðlaugs Einarssonar: „Sem umboðsmaður þeirra Salvatore Tola, Barmahlíð 31, og Juan Casadesús, Mímisvegi 2 A, hafið þér, herra héraðsdómlög- maður, beiðst upplýsingar um, hvort þeir hafi orðið uppvísir að eiturlyfasölu hér í bæ. Skal yður tjáð, að svo er ekki. Valdimar Stefánsson (sign)“. Kaupstefnan í Leipzig FORSTJÓRAR Kaupstefnunnar í Reykjavík, sem umboð hafa fyrir Kaupstefnuna í Leipzig, sögðu fréttamönnum nýlega frá ýmsu, sem viðkemur kaupstefn- unni í vor. Kaupstefnan í Leipzig er hald- in tvisvar á ári, í byrjun marz- mánaðar og byrjun september. Á vorkaupstefnunni í marz eru sýndar bæði neyzluvörur og tæknivörur, en á hauststefnunni einkum neyzluvörur, auk smærri véla, svo sem búsáhalda, heimil- istækja, ljósmyndavéla o.s.frv. Sýningarvörur greinast í 55 flokka á vorin en í 30 flokka á haustin. Húsakynni stefnunnar eru að flatarmáli samtals 290.000 ferm. í vor verður kaupstefnan haldin á tímabilinu 28. febrúar til 8. marz. 9500 firmu frá 50 löndum sýna framleiðsluvörur sínar. Þriðji hluti sýningarsvæð- isins er leigður erlendum aðil- um. Kommúnistaríkin hafa öll aukið sýningarsvæði sitt frá fyrra ári. Kemur nú frá þeim fjöldi nýrra framleiðslugreina. Þá hafa Vestur-Evrópulöndin aukið þátttöku sína svo og lönd annarra heimsálfa. í Leipzig er sérstakur staður, sem nefnist „Auslandertreff- punkt“. Þangað snúa erlendir gestir sér og geta fengið þar alla fyrirgreíðslu. Eru sérstök salar- kynni þar fyrir viðtöl og fyrir fréttamenn blaða og útvarps eru hentug salarkynni. Samtímis kaupstefnunni eru í borginni ýmiss konar skemmtiatriði, svo sem íþróttasýningar, leiksýning- ar og hljómleikar. HERR4IMÓTT 1960 Ovænt úrslit Gamanleikur eftir Wilíiam Douglas Home. Leikstjóri: Helgi Skúlason. Þýðandi: Hjörtur Halldórsson. 5. sýning föstudagskvöld kl. 20. Aðgöngumiðasala frá kl. 2 í Iðnó. — Aðgöngumiðasala frá kL 2—4 miðvikudag og fimmtudag. Aðeins fá&r sýningar. Húnvetningar Félagsvist5-. heldur áfram í Tjarnarcafé 18. febr. kl. 8,30 s.d. Verið með öll kvöldin og mætið stund- víslega. — Verðlaun hvert kvöld auk heildcurverð- launa. — Dansað til kl. 1 e.m. Skemmtinefndin. Félag Suðurnesjamanna Kútmagakvöldið verður sunnudaginn 21. þ.m. í Tjamarcafé og hefst kl. 6,30 síðd. Aðgöngumiðar í Aðalstræti 4 h.f. og í Hafnarfirði hjá Þorbimi Klemenssyni. Skemmtinefndin. IVámskeið í Nýtt námsskeið í gömlu dönsun- um hefst í kvöld (miðvikud. 17. þ.m.) kl. 8 í Skátaheimilinu. Síðasta námskeið vetrarins. Innritun við innganginn. Þjóðdan safélag Reykjnvíknr. Jorð til sölu Heiðarbót í Reykjahverfi Suður-Þingeyjarsýslu er laus til sölu og ábúðar í næstu fardögum.Jörðin er mjög hentug fyrir kúabú og tugir hektara full- þurrkaðir af mýrum og mólendi. Lítil útborgun. Góðir skilmálar. Allar upplýsingar gefur ÓLAFUR FRIÐBJARNARSON Hávallagötu 32 Reykjavík — Sími 11853. Þórscnfé Dansleikur í kvold kL 9 KK - sextettinn Söngvarar: ELLÝ og ÖÐINN SKEMMIIKVÖLD SJálfsbjargar í Reykjavík verður í Tjarnarkaffi í kvöld kl. 8,30. Góð skemmtiatriði og Bingó. cSi keflavík Dansað á hverju kvöldi frá kl. 9. Vík - Kefíavík Vetrargarðurinn Söngvarar Stefán Jónsson. Harald. G. Haralds og Berti Möller Dansleikur í kvöld kl. 9 Disko kvintett og Plútó kvintett leika E1 Paso Running Bear Big Hurt Way Down yonder in N.O. Hound Dog Man Lucky Devil One way ticket to the Blues Sími 16710.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.