Morgunblaðið - 17.02.1960, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.02.1960, Blaðsíða 24
V E Ð R I Ð Sjá veöurkort á bls. Z. „Havn44 — Sjá bls. 10 — Konu bjargað r mmm •«• • • ur Tjornmni ' f GÆRDAG féll kona niður um ís á Reykjavíkurtjörn, en var fljót- lega bjargað. Kom þar einkum víð sögu nemandi úr Menntaskólan- tm að Laugarvatni, Sigurgeir Ingvarsson, Eskihlíð 20, hér í bænum. * BRÁST SKJÓTT VIÐ Sigurgeir var á leið niður á Bifreiðastöð íslands, til þess að taka sér far austur með áætlunarbíl, sem lagði af stað héðan frá Reykjavík kl. 1. — Var Sigurgeir í leigubíl. Var bíllinn kominn á móts við Frí kirkjuna. — Þá leit ég út á Tjörnina og sá hvar kona veifaði. Sá ég óðara að ísinn hafði brotnað undan konunni, sagði Sigurgeir, í símtali að austan í gær við Mbl. Ég snar- aði mér út á ísinn, því konan var skammt frá landi. — Um leið og ég sté út á hann, heyrði ég að kallað var til mín að leggjast niður. Var ég kominn nokkra metra frá tjarnarbakkanum og um það hil að leggjast niður, er ísinn hafa orðið kalt við þetta snögga og óvænta bað í Tjörninni. Ég fékk að hafa fataskipti á BSÍ, og svo sem tveim mínútum fyrir brottfarartíma bílsins, stóð ég upp á búinn og tilbúinn að halda austur. Forstjóri BSÍ vildi endilega taka fötin mín og sja um að láta hreinsa þau, og bíl- stjórinn, sem ók mér í leigubíln- um, vildi ekki leyfa mér að borga. Lengri get ég ekki haft þessa frásögn, sagði Sigurgeir að lokum, en hann taldi sér ekki hafa orðið meint af volkinu. Lögreglan gat engar upplýsing ar gefið um þetta óhapp. Það var ekki komið í dagbók stöðvarinn- ar. Aftur á móti voru gerðar ráð- stafanir til þess að hindra frek- ari óhöpp og voru grindur settar upp kringum slysstaðinn. Sendiherra Dana, Bjarne Paulsen og Ólafur í Braut- arholti heilsast á flugvellin- um. — Sendiherrafrúin er á milli þeirra og að baki sendi- herrans sést Storr ræðismað- ur. (Ljósm. Mbl.. Ól. K. M.). Fór upp á þak leit yfir bœinn Hættusvæðið á Tjörninni „víggirt" síðdegis í gær, eftir að kon- an hafði farið niður úm ísinn. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) hrast undan mér og ég varð allur holdvotur. En mér tókst samt að brjótast til konunnar og hjálpa henni. * DREGIN í LAND Einhver hafði kastað til okk- ar kaðli. Konan, sem ég heyrði strax að talaði ensku, virtist svo óttaslegin þar sem hún stóð upp undir hendur í vatni og aurleðju, að hún virtist ekki ætla að grípa í kaðalinn. Greip ég þá til kon- unnar og dró hana með mér að landi og hélt í kaðalinn með ann- arri hendinni. Ekki veit ég nein deili á þess- ari konu, sagði Sigurgeir, en mér virtist maðurinn, sem kallaði til mín að leggjast niður á ísinn, koma konunni til hjálpar, er á land var komið. Hann var í grænum bíl, sennilega Chevrolet, og tók konuna upp í bíl sinn og ók í burtu. Ég veit ekki meira um þessa útlendu konu, en ég jheyrði hana segja um leið og hún hvarf inn í græna bílinn: „Var það fíflalegt af mér....“. * ÓVÆNT BAÐ Sigurgeir sagði, að sér hefði orðið mjög kalt. Og þá mun , yesallings konunni ekki síður Spilakvöld HAFNARFIRÐI. — Félags- vist Sjálfstæðisfélaganna í kvöld og hefst kl. 8,30. VerS- laun verSa veitt, eins og vant er, og síðar heildarverðlaun. í FEGURSTA veðri heilsaði Reykjavík hinum nýja, íslenzk ættaða sendiherra Dana, Bjarne Paulson og konu hans Agnete. Sendiherrahjónin komu hingað síðdegis í gær. Eitt fyrsta verk sendiherrahjónanna var, að fara upp á þak sendiráðsins danska og virða þaðan fyrir sér hið fagra útsýni yfir bæinn, út á Faxaflóa og fjallahringinn með snæviþöktum fjöllum, — áður en dimmt var orðið. Sendiherr- ann og kona hans höfðu líka haft orð á því hve þessi fyrstu sam- eiginlegu kynni þeirra af land- inu væru ánægjuleg, og sagði sendiherrann að þeim þætti gam an að vera komin hingað til starfa. Á Reykjavíkurflugvelli tóku á móti sendiherrahjónunum Hend rik Sv. Björnsson, ráðuneytis- stjóri, L. Storr .ræðismaður og kona hans, forstöðumaður danska sendiráðsins H. Ege og einnig var þar mættúr með hlýlega loð- húfu, Ólafur Bjarnason bóndi í Brautarholti, kominn ofan af Kjalarnesi. Var hann kominn til að fagna sendiherranum, en þeir eru frændur, bræðrasynir, og virtist kunningsskapur þeirra náinn. — Já, sendiherrann kom heim í Brautarholt fyrst er hann var 10 ára gamall, en síðast kom hann árið 1955, er hann var hér á ferð ásamt H. C. Hansen for- sætisráðherra, sagði Ólafur við Morgunblaðið. Bjarne Paulsen sendiherra á að baki sér um 20 ára starfsferil í dönsku utanríkisþjónustunni. Hann hefur verið við sendiráðið danska í London og París og verið deildarstjóri utanríkisráðu neytisins. Nú er hann tók við sendiherraembættinu hér var hann við danska sendiráðið í Bonn. Kom hann mjög við sögu í njósnamálinu kringum Blichen- berg sendiráðunaut við hið danska sendiráð. Lögfræðingur Bjarne er lögfræðingur að menntun. Kona hans er Agnete og er hún dóttir Boeg dómara í Kaupmannahöfn. Eiga þau tvö börn, uppkomin bæði, og munu þau flytjast hingað til foreldra sir.na innan skamms. Þegar sendiherrahjónin komu í gær í fyrsta skipti í danska sendiráðið, þar sem allt hefur verið málað, beið þeirra þar fjöldi blóma með árnaðaróskum frá Dönum og íslendingum. Stjórnmála- námskeið Heimdallar NÆSTI fundur er í kvöld kl. 8,30 í Valhöll. Á fundinum mæt- ir Magnús Jónsson, alþingismað- ur, og talar um fundarstjórn og fundareglur. Iðjufundur í kvöld Kjara- og félagsmál STJÓRN IÐJU, félags verksmiðjufólks, hefur boðað til almenns félagsfundar í Sjálfstæðishúsinu í kvöld kl. 8,30. Stjórnarkosningar standa fyrir dyrum í félaginu og eins og venja hefur verið undanfarin ár munu félagsmál í því sam- bandi verða til umræðu, en annars verða kjaramálin aðal- efni fundarins. Kommúnistar hafa undanfarið haldið uppi miklum áróðri meðal iðnverkafólks í því skyni að búa í haginn fyrir sig í væntanlegum stjórnarkosningum og reyna að endur- heimta völd sín í Iðju. Eru lýðræðissinnar í Iðju eindregið hvattir til að fjöl- menna á fundinn í kvöld til að koma i veg fyrir hvers kon- ar tilraunir kommúnista til að misnota félag þeirra í póli- tískum tilgangi. Efnahagsmólin í efri deild EFNAHAGSMÁLAFRUM- VARP ríkisstjórnarinnar kom til 1. umræðu í efri deild Al- þingis í gær. Forsætisráð- herra, Ólafur Thors, talaði fyrir því í fáum orðum. — Minntist hann á nokkur atriði þess sérstaklega, en kvað frv. að öðru leyti það mikið rætt af sinni hálfu að þar væri litlu við að bæta. Mæltist for- sætisráðherra til þess, að af- greiðslu frumvarpsins yrði hraðað svo sem kostur væri í. deildinni, en að sjálfsögðu mætti búast við því, að þing- menn deildarinnar vildu ræða það ítarlega. Fjórir næstu ræðumenn í efri deild í gær voru Jón Þorsteins- son, Hermann Jónasson, Alfreð Gíslason og Sigurvin Einarsson. Klukkan hálffjögur var gert hlé á fundi og sátu þingmenn síðdegisboð forseta íslands. — Fundi var fram haldið kl. 9 og stóð hann enn er blaðið fór í prentun. Þá var Ólafur Björns- son að tala. Áformað var að ljúka umræðunni. Verðgrundvöll- urinn í dng eða ó morgun? í DAG eða á morgun er lík- i legt að til tíðinda dragi á samningafundum sexmanna- nefndarinnar um verðlags- grundvöll landbúnaðarvara. Enn situr við sama og hefir samkomulag ekki náðst, en fundur átti að vera í gær- kvöldi «g nótt og er ekki ólíklegt að á honum hafi verið ákveðið hvort gengið skyldi til samkomulags eða málinu vísað til yfirnefndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.