Morgunblaðið - 28.02.1960, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 28.02.1960, Qupperneq 6
6 MORCVNBLAÐ1Ð Sunnudagur 28. febrúar 1960 Úr verinu Eftir Einar Sigurðsson Togararnir Fyrir vestan land, þar sem tog- ararnir hafa aðallega haldið sig undanfarið, hefur alltaf verið stormur og sama og ekkert hægt að toga. Flest skipin ef ekki öll munu nú vera komin suður á bóginn, á Eldeyjarbankann og Selvogs- bánkann, og eitthvað af þeim hef ur verið undir Jökli. Afli hefur verið mjög tregur, en samt misjafn eins og gerist. T. d. fékk Marz, sem eingöngu hefur verið á Selvogsbanka, rúm- ar 200 lestir af ufsa á rúmri viku. En aftur sem dæmi upp á afla- leysið má geta þess, að Hvalfellið kom inn í vikunni eftir 11 daga útivist með 60 lestir. Það má til tíðinda telja, að í vikunni kom togarinn Neptúnus með 56 lestir af síld, sem hann fékk í troll út af Portlandi, aðal- lega á tveimur nóttum. Auk þess var hann með 48 lestir af öðrum fiski. Þó nokkur skip, sem hafa ætl- að að sigla með aflann, hafa ekki getað lokið túr vegna aflaleysis- ins, og orðið að landa heima. Frétzt hefur, að Englendingar hafi verið að fá góðan þorskafla í janúar og febrúar við Nýfundna land og þar hafi verið góð tíð. Fisklandanir í sl. viku.: Pétur Halldórss. 126 t. 11 d. Neptúnus 48 - síld 56 - 6 — Hvalfell 60 - 11 — Marz 172 - 12 — saltfiskur 29 - Ingólfur Arnarson 151 - 11 — Sölur erlendis: Bjarni Ólafsson 159 t. 10.658 £ Karlsefni 125 - 8.810 - Reykjavík í sl .viku var stöðugur norðaust an þræsingur og stundum hvass- viðri á djúpmiðum, þó réru bátar flesta daga vikunnar.. Aflabrögð voru mjög léleg, 3—6 lestir í róðri. Á fimmtudag- inn réru állir með línuna beitta loðnu, en afli var ekki hótinu betri en á síldina. Nokkrir bátar eru byrjaðir með net og hafa fengið sáralítinn afla, 1—2 lestir í lögn. Þó kom einn útilegubátur, Guðmundur Þórðarson, á föstudaginn með 50 lestir af fiski eftir 4 daga útivist. Fékk hann aflann austur frá. Útilegubátar, sem eru yfirleitt enn með línu, voru með svipaðan afla og undanfarið, 5—6 lestir í lögn miðað við slægðan fisk. Nokkrir bátar hafa verið að skipta frá línunni yfir á netin, og aðrir, sem ekki hafa hafið neinn veiðiskap enn eru nú að steina niður. Keflavík. Norðaustan stormstrekkingur var alla sl. viku og aðeins al- mennt róið 4 daga vikunnar. Veð urspáin var oft mjög slæm, en svo rættist oft betur úr, og dró það úr sjósókn ásamt aflaleysinu. Afli hefur verið algengastur 4—6 lestir hjá bát. Er þetta ó- vanalega tregt og eins og enginn þorskur sé genginn á mið- in, því að hann fæst hvorki á iínu né í net. Uppistaðan í afianum hefur verið ýsa. Þó nokkrir bát- ar hafa farið með línuna beitta loðnu, en ekki verið neitt betra hjá þeim. Nokkrir bátar eru búnir að leggja net, en hafa ekkert fengið að undanteknum einum litlum bát, sem fékk á fimmtudaginn rúmar 7 lestir 2ja nátta. Akranes Leiðinda sjóveður var flesta daga sl. viku, norðan stormur og kuldi. Afli var mjög rýr, 3—6 lestir í róðri almennast. Þó fengu tveir bátar góðan sinn róðurinn hvor, annar 10 lestir og hinn 11 lestir. Um þriðjungurinn af bátunum er nú búinn að taka netin. Einn bátur hefur verið með net und- anfarinn hálfan mánuð, og var hann með hvað beztan afla á föstudaginn, 4 lestir 2ja nátta. Aflahæstu bátarnir frá áramót- um: Sigrún 239 t. ósl. Sv. Guðm. 227 - — Sigurvon 222 - — Böðvar 218 - — Skipaskagi 197 - — Vestmannaey jar Sjóveður voru ekki góð í sl. viku, þó var oftast logn um Eyj- ar, en stormur og sjór bæði fyrir austan og vestan þær. Vindur hef ur staðið þannig, að lognbelti myndaðist undan Eyjafjallajökli. Afli var lélegur á línu sl. viku. Loðna veiddist á þriðjudag og réru allir með loðnubeitt um kvöldið. Var búizt við mikluin afla, því að bátarnir réru yfir- leitt með 50—60 stampa af línu. En minna varð þó úr en við var búizt, yfirleitt 8—10 lestir hjá bát, aðeins nokkrir bátar fengu meira. Mestan afla hafði Gull- borg, 17 lestir. Nú er línuveiðinni að ljúka, eru þegar nokkrir bátar búnir að leggja þorskanetin og búizt við, Hún er ung, en hjálpar samt til við að setja upp línu. að flestir eða allir taki þau í næstu viku. Afli hjá netabátum hefur verið tregur, hafa þeir fengið bezt 8 lestir í 4 trossur. Handfærabátar hafa lítið feng ið. Virðist svo sem lítill þorskur hafi komið með loðnugöngunni. Þessir bátar hafa fengið yfir 200 lestir frá áramótum fram að laugardegi: Stígandi 316 t. ósl. Leó 258 - — Snæfugl SU 255 - — Gullborg 252 - — Dalaröst NK 251 - — Kári 240 - — Reynir 236 - — Eyjaberg 234 - — Gylfi 207 - — Ófeigur II. 206 - — Huginn 206 - — Glófaxi NK 206 - — Víðir SU 201 - — Fæðingarhríðir — nýir tímar Viðreisnarfrumvarp stjórnar- innar er nú orðið að lögum. Skoð- anir manna á þeim eru skiptar eins og gengur og gerist, þegar nýtt er á ferðinni, sem menn eiga erfitt með að ráða í, hvernig reynist. Margir eru bjartsýnir á árangur. Aðrir telja, að annað hafi ekki verið að gera, ef allt ætti ekki að . lenda í öngþveiti. Sumir segja, að hér sé ekkert nýtt á ferðinni, aðeins verið að taka upp fyrirkomulag, sem var í gildi, áður en höftunum var skrifor úr daglegq íífinu ] * Hvernig stendur á bolludeginum? Á morgun er bolludagurinn svokallaður. Þá fara krakk- arnir á fætur eldsnemma, til að ná fullorðna fólkinu í rúm inu, og geta aflað sér sem flestra gómsætra rjómabolla með því að slá með litfögrum bolluvendi á sængina hjá þvi. Þennan sið kannast flestir við. En hvernig ætli standi á honum? Og hvernig ætli að standi á bolludeginum yfir- leitt? Ég hefi gert það að gamni mínu að spyrja nokkra, gamla jafnt sem unga en held ur lítil svör fengið. Ætli bak- ararnir hafi ekki fundið hann upp, svara þeir yngri. Og eldra fólkið, sem ég hefi spurt, svarar: — Ekki gerðum við okkur neinn dagamun á bolludaginn í mínu ungdæmi, aðeins á sprengidaginn og öskudaginn. Siðurinn er eflaust ekki ís- lenzkur, heldur kominn frá nágrannalöndum okkar á sein ustu áratugum. Áður fyrr gerðu menn sér í kaþólskum löndum glaða tvo fyrstu dag- ana af föstunni eða þrjá og felldu svo niður alla vikudagsnóttina. Mér þykir gleði um lágnætti á mið- trúlegt að í þessum lönd- um hafi einhvers staðar verið siður að baka og borða, gott brauð eða bollur á mánudaginn og kjöt á þriðjudaginn, eins og hér, áður en fastan hófst. Og síð- an hafi þessi siður borizt hing að, án þess að hann hefði í rauninni sína upprunalegu merkingu. Ef einhver kann réttari skýringu, væri gaman að heyra hana. 9 Engar bollur íyrr en á bolludag Hvernig sem siðurinn að borða bollur á bolludaginn er tilkominn, þá finnst mér eig- inlega lítið nýnæmi að hon- um, ef krakkamir eru búnir að sjá og jafnvel borða bollur í marga daga á undan. Það er eins og að hafa jólagæsina í heila viku áður en jólin koma. Því vill Velvakandi gera það að sínum vígorðum í dag: Engar bollur fyrr en á bolludag. komið á fyrir 30 árum. Á þetta að vera til niðrunar efnahagstillög- unum. Minnugir mega þeir sömu menn vera þess, að þrjá fyrstu áratugi aldarinnar, fram að því að höftunum var steypt yfir þjóðina, var eitthvert mesta fram faratímabil í atvinnusögu henn- ar miðað við allar aðstæður. Þá komu vélbátarnir og togararnir til sögunnar, og j arðræktarfram- kvæmdir voru hafnar með mik- ilvirkum tækjum. En með komu haftanna upp úr 1930 hófst ára- tugur fátæktarinnar og atvinnu- leysisins, sem gengisbreytingin 1939 linaði, en afleiðingar stríðs- ins bundu þó loks enda á. Að vísu munu margir segja, að kreppa hafi gengið yfir heiminn um þetta leyti, og það er rétt, en sú kreppa stóð ekki nema 2—3 ár í nágrannalöndunum. Við skulum þó ekki gleyma, þegar rætt er um afnám haft- anna nú í sambandi við efna- hagsráðstafanirnar, að við erum ennþá engan veginn laus við marga fylgifiska þeirra, svo sem þó nokkur innflutningshöft, verð lagseftirlit, niðurgreiðslur, út- flutningsuppbætur (að manni skilst á landbúnaðarvörur), fjár- festingarhömlur og margháttaða aðra íhlutun þess opinbera af at- vinnurekstri, verzlim og daglegu lífi manna, sem allt var óþekkt fyrir 30 árum. En þetta á sjálf- sagt eftir að sigla sinn sjó, þeg- ar jafnvægi hefur komizt á. Það saknár enginn þessara hvimleiðu fyrirbrigða úr þjóðlífinu og þjóð arbúskapnum. Þegar nú er verið að miklu leyti að hverfa frá höftunum, er þjakað hafa þjóðina í þrjá ára- tugi, er það von manna, að hinu frjálsa fyrirkomulagi fylgi blóm legt atvinnulíf. íslendingar eiga líka mikið af góðum og mikil- virkum atvinnutækjum, til þess að svo megi verða, ef þeim er beitt til hins ýtrasta. En eins og fyrri daginn veltur hér mikið á skilningi þeirra, er með völdin fara. Það er þannig mjög mikið undir framkvæmd viðreisnarlag anna komið, hversu til tekst í þessum efnum. Með gengisbreyt- ingunni er búið að ákveða starfs- grundvöll útflutningsframleiðsl- unnar, og því verður sjálfsagt ekki breytt, en svo mikið er ó- hætt að segja, að enginn verður ofsæll af að gera út og verka fisk með því að fá 38 krónur fyrir dollarann. Margt hjálpast að til að valda erfiðleikum hjá útveginum. Fyrst og fremst stórkostlegt verðfall á fiskimjöli. Fæst nú fyrir það um fjórðungs minna verð en reikn- að var með, þegar gengið var á- kveðið. Þá eru miklir erfiðleik- ar í sambandi við sjómannaekl- una. Þetta tvennt eru ef til vill erfiðustu viðfangsefnin, sem mæta sjávarútveginum nú strax eftir breytinguna. Þá má geta þess, að afli hefur yfirleitt verið rýr, það sem af er vertíðinni, þótt, heildaraflamagnið, sé meira en á sama tíma í fyrra vegna hinna góðu gæfta. En því fylgir líka miklu meiri útgerðarkostn- aður. Það verður þó að vona I lengstu lög, að úr rakni með aflabrögðin. Það sem af er ver- tíðinni, hefur margur útgerðar- maðurinn, bæði togara og báta, orðið fyrir miklu tapi. Með einhverjum ráðum verður að reyna að koma í veg fyrir, að útflutningsframleiðslan dragist saman, því að það segir fljótt til sín með atvinnuleysi og versn- andi afkomu almennings. Hvað sjómannavandræðin áhrærir, er víst ekki margra kosta völ. En væri engin leið að bæta þar eitt- hvað úr með því að slaka eatt- hvað á skólahaldinu rétt í bili, og er þó ekki verið að mæla á móti sem mestri menntun lands- manna. Það er heldur engan veginn víst, að nokkrir fengjust úr skólunum á skipin. Hætt er við, að löng bið geti orðið á því, að menn hverfi úr öðrum atvinnu greinum, aðallega iðnaðinum, til þess að fara á skipin, á meðan alls konar gerviiðnaður er vevnd aður með fjallháum tollmúrum. Á meðan svo er, gæti þurft að leggja hálfum togaraflotanum og fjórðungnum af bátaflotanum, til þess að fá þaðan nokkurn mann á útveginn. Og þá kemur það, að ríkissjóður með sinni miklu yfir- byggingu má ekki missa hinar háu tolltekjur. 10—20% tollvernd ætti að vera forsvaranleg. Ríkisstjórn, lánsstofnanir og mörgum öðrum aðilum er hér mikill vandi á höndum, ekki sízt í sambandi við fyrstu fram- kvæmd hinna nýju efnahagslaga. Almenningur má ekki verða fyr- ir vonbrigðum í upphafi, það get- ur haft sín eftirköst síðar. Óvænt ir erfiðleikar kunna að steðja að eins og verðfall útflutningsafurð anna (fiskimjölið), sjómanna- vandamálið og lítill afli, en þá verður að yfirstíga. Ekkert er mikilvægara en gæta þess, að sjávarútvegurinn verði rekinn snuðru- og hallalaust. Þá vegnar öllum vel í landinu. ► SKÁK * HAFNARFJÖRÐUR ABCBEFGH ■ «■ iflti IHf má jmv ffutl M&M ABCDEFGH KEFLAVÍK 21..Ha8—c8 22. Bbl—c2 ★ KEFLAVÍK ABCDEFGH ABCDEFGH AKRANES 18. . . . Bd7—e8

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.