Morgunblaðið - 23.03.1960, Page 8

Morgunblaðið - 23.03.1960, Page 8
8 MORGUNBLAÐ1Ð Miðvik'udagur 23. marz 1960 . i ©;_ _ . rÚWCARO/N^1' — Það er nauðsynlegt að hefj- ast þegar handa um hreinræktun íslenzka hundsins, ef við eigum ekki að glata honum að fullu og öllu og tortíma þar með góðum og gagnsömum hundastofni. Nú er svo komið, að hundar, sem bera skýr einkenni hins gamla íslenzka fjárhunds, finnast aðeins á örfáum stöðum hér á landi og þá einkum hinum afskekktari byggðum austanlands og á Vestfjörðum. Það eru því að verða síðustu forvöð að bjarga honum frá algerri tortímingu. Þannig komst Páll Agnar Páls- son, yfirdýralæknir að orði, er við röbbuðum við hann nokkra stund í vinnustofu hans á Til- raunastöð Háskólans að Keldum í Mosfellssveit. Páll Agnar er áhugamaður um ræktun hunds- ins. Hann er raunar áhugasamur um ræktun fleiri íslenzkra dýra- stofna og er andvígur hömlulitl- um útflutningi úrvals dýra til undaneldis, hvort sem um er að ræða hunda eða hesta, eins og nú viðgengst. Á sl. ári ritaði Páll Agnar Páls- son yfirdýralæknir búnaðarþingi langt og ýtarlegt erindi, er fjall- aði um hreinræktun hins gamla íslenzka hundakyns. Þau urðu úr slit málsins á búnaðarþingi 1959. að það lét frá sér fara svofellda ályktun: „Búnaðarþing felur stjórn Bún aðarfélags íslands að fara þess á leit við Alþingi, að það veit: Ingimar Sigurðssyni krónur 50 þúsund til þess að hreinrækta íslenzka fjárhundinn. Hundaræktin verði fram- kvæmd í samræmi við tilrauna- ráð búfjárræktar og yfirdýra- lækni“. Er við spyrjum Pál, hvernig þessu máli sé komið nú í dag, segir hann, að því hafi lítið þok- að áleiðis. Að vísu sé svo komið, að Ingimar Sigurðsson í Fagra- hvammi í Hveragerði hafi þegar tilbúin hundahús og muni mega segja, að hann gaeti, hvenær sem er, byrjað á þeirri starfemi, sem ályktun búnaðarþings gerir ráð fyrir. Hins vegar hefur ekki enn verið útvegað það fé, sem til- skilið er svo hægt sé að hefjast handa um þetta verk, en hrein- ræktun hundakyns frá þeim ein- staklingum sem nú eru til í land- inu tekur alllangan tíma og verð- ur nokkuð kostnaðarsöm fyrst í stað. Páll yfirdýralæknir hefur bent á, að fleiri leiðir kunni að vera færar og æskilegar til þess að rækta gamla, íslenzka fjárhunda- kynið. Hann telur það t. d. hæfilegt verkefni fyrir búnaðarskólana í landinu og þau fjárræktarbú, sem eru í eigu íslenzka ríkisins og rekin af því. Segir hann, að á slíkum stöðum mundi verða heimilisprýði að fallegum, vel hirtum og vel' vöndum íslenzk- um hundum. Auk þess, sem Páll heldur því fram, að hreinræktaðir íslenzkir hundar geti verið hinir beztu fjár hundar, telur hann allar líkur á því, að hér megi koma upp skemmtilegum hundakeppnum, er beri svip af sams konar íþrótta iðkunum erlendis. Vinarþel og glaðværð íslenzka hundsins mun áreiðanlega gera hann að góðum vini unglinga, og gætu þeir haft ekki síður gaman af þeim en t. d. hestum. En það er ekki fyrst nú, að bent er á nauðsyn þess að bjarga íslenzka hundinum frá tortím- ingu. Páll tilfærir nokkur um- mæli ýmissa forystumanna þjóð- Bjarga verður íslenzka hundinum áður en hann tortímist Þetta er verðlaunahundurinn Vaskur, sem er í eigu hins brezka áhugamanns um hundarækt, Mark Watsons. Vaskur hlaut 1. verðlaun á hundasýningu í London hinn 6. febrúar síðastliðinn. félagsins, er vitað hafa um ís- lenzka hundinn undanfarna ára- tugi, en varnaðarorðum þeirra og gagnrýni hefur lítill gaumur verið gefinn. f ritgerð, er Hermann Jónas- son, fyrrum skólastjóri, ritaði um „íslenzkt hundahald“ segir: „Á síðustu árum hefur hunda- rækt hnignað hér á landi". „Þó að kostnaðurinn við hunda haldið sé mikill (hér er átt við hundaskattinn), þá er hann hverfandi í samanburði við það gagn, sem hefst af vænum hund- um. Það er því frámuhalegt að hugsa til þess, að í fjalllendi þar sem sauðfjárrækt er helzta at- vinnugreinin skuli meirihluti hunda vera lítt nýtir og óvandir, eða að varla skuli hittast menn, er hafa lag, eða öllu heldur vilja til þess að venja þá. Þetta er svo ótrúlegt, að enginn ókunnur mundi geta skilið slíkt! Þessi ummæli Hermanns eru tekin úr Búnaðarritinu 1891. Þá bendir Páll á ummæli Þor- valds Thoroddsens, er hann ræð- ir um íslenzka hunda: „Það er enginn efi á því, að hið íslenzka hundakyn er að upp- lagi mjög hentugt til smala- mennsku, ef því væri einhver sómi sýndur. En því fer fjarri að svo sé. Víðast á íslandi hefur verið farið frámunalega illa með hundana, þeir látnir tímgast og fjölga rétt eftir tilviljun og marg ir þeirra hafa orðið að þola hinar mestu píslir af hungri og kulda, sumir komizt á flæking og við hefur borið að þeir stundum hafa króknað úti á víðavangi. Hefir meðferð á hundum lengi verið viðbrugðið, og er orðin að orð- taki, hundalíf, hundameðferð, hundskamma o. s. frv.“ „Stafar þessi meðferð mest af kæruleysi og hirðuleysi manna og hundarnir hafa verið fyrir- litnir og álitnir einskis virði. Þó er góður og vel vaninn hundur eitt hið mesta búmannsþing og getur verið sannur dýrgripur á sveitaheimili. Eðlilega hefur hið íslenzka hundakyn úrættast í andlegu og líkamlegu tilliti aí hinni vondu meðferð, þó eru enn til á íslandi ágætir hundar, sem gætu orðið stofn til nýrra kyn- kvísla, að fyrirtaks smalahund- um, ef einhver rækt væri lögð við kynbætur þeirra og uppeldi. Christian Schierbeck, land- læknir, hafði mikinn áhuga á hundum, og var gagnkunnugur íslenzkum og erlendum hunda- kynjum. Hann átti íslenzka hunda og vann töluvert að því að kynna íslenzka hundinn í Danmörku á sínum tíma, og flutti íslenzka hunda til útlanda. I rit- gerð um íslenzka hundinn telur landlæknir, að hreinræktaðir ís- lenzkir hundar standi greindustu erlendum hundakynjum fyllilega á sporði, hvað greind og náms- fýsi snertir, auk þess sem þeir séu flestum hundakynjum fremri að trygglyndi, ratvisi og mein- leysi við menn og skepnur. Hreinræktaða íslenzka hunda telur landlæknir þó vera orðna mjög fátíða um síðustu aldamót. Jón H. Þorbergsson, er gagn- kunnugur var vegna ferðalaga um nær öll héruð landsins, gefur eftirfarandi lýsingu á hundunum og skiptum manna við þá: „Yfirleitt eru hundar hér illa vandir, þeir elta fugla, hlaupa í fé án þess að þeim sé sagt, gelta að gestum, fara inn í kirkjur og önnur samkomuhús o. s. frv. Það sem menn tala við hundana er mest arg og blótsyrði. Þetta þarf að lagfæra." Þetta ritar Jón í bækling um hirðingu sauðfjár 1912. Þá vitnar Páll í ummæli Hall- gríms Þorbergssonar á Halldórs- stöðum, en hann kynntist mjög vel skozkum fjárhundum, er hann dvaldi í Stóra-Bretlandi við fjárhirðingu og fékk hann þá hingað til lands skozkan fjárhund er hann notaði í mörg ár. Þann hund nefndi Hallgrímur Don og var hann víðfrægur. I ritverkinu „Göngur og réttir" segir Hall- grímur svo um hunda: „Mig langaði tii að eignast aft- ur skozkan fjárhund, þegar Don var fallinn frá, en mér er ljóst, að okkur henta ekki skozkir fjár- hundar. Það skortir nægilegt verkefni fyrir þá hér. Þeir þurfa. daglega vinnu og hana mikla, ef þeir eiga að njóta sín, annars verða þeir fyrirhafnarmiklir og viðsjálir, því þeir þurfa strangt eftirlit og nákvæma stjóm.“ Þá segir hann ennfremur: „Hunda hljótum við að hafa meðan við stundum hjarð- mennsku. Þeir eru misvitrir eins og aðrar skepnur, en um þá má oft segja hið fomkveðna: Því er fífl að fátt er kennt“. Páll yfirdýralæknir kveðst geta tilfært fleiri ummæli, bæði gömul og ný, um íslenzka hund- inn og meðferðina á honum, en við látum þetta nægja i bili. í niðurlagi greinar sinnar til Búnaðarfélags íslands í fyrra segir yfirdýralæknir á þessa leið: „Virðist eðlilegast og raunar sjálfsagt, að Búnaðarþing og Búnaðarfélag íslands beitti sér fyrir raunhæfum aðgerðum í þessum efnum, er miði að því að horfið verði þegar að skipulegri ræktun, kynbótum og úrvali á þeim hundum hér á landi, er sterkust bera einkenni hins gamla íslenzka fjárhunds, jafn- framt því sem veittar yrðu leið- beiningar um, hvernig venja skuli og þjálfa hunda til fjár- gæzlu. Eins og nú hagar til um geymslu og útvegun fóðurs, þarf ræktun og uppeldi hunda ekki að vera ýkja kostnaðarsamt, enda vitað að margir hefðu hug á að fá keypta hunda, er bera svip íslenzka fjráhundsins. Samkvæmt ummælum herra Mark Watson, sem manna bezt hefur kynnt sér sögu íslenzka hundsins, mun ennþá mega tak- ast að koma upp íslenzkum fjár- hundastofni, þótt nokkurn tíma kunni að taka (The Iceland Dog, 1956). Frekar væri ömurlegt til þess að hugsa, að íslenzki fjárhundur- inn yrði aldauða hér á íslandi vegna tómlætis okkar, en yrði samtímis bjargað frá tortímingu af erlendum manni í annarri heimsálfu. Ef sú saga gerðist, bæri hún búfjárræktarmenningu íslendinga á miðri 20. öldinni miður glæsilegt vitni, og mundi uia iengí á svipaðan hátt og sau- an um síðasta geirfuglinn.“ Með hinu ýtarlega erindi sínu til búnaðarþings, hefur Páll Agn ar Pálsson sýnt með gildum rök- um fram á nauðsyn þess að gamla íslenzka fjárhundakyninu verði bjargað frá tortímingu. Að sönnu má segja, að það hafi nú þegar verið gert, en það hefur bara ekki verið gert hér á landi. Breti, kunnur að hundarækt, Mark Watson hefur komið nokkr ar ferðir hingað til íslands og hefur fundið á nokkrum stöðum Framh. á bls. 22. im&m&v?.*:- ......................... .............. Hér getur að líta tík með nokkuð augljósum einkennum íslenzka hundsins, en þó er hún ai blönduðu kyni. Rætt við Pál Agnar Pálsson, yfirdýralækni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.