Morgunblaðið - 23.03.1960, Qupperneq 23
Miðvifcudagur 23. marz 1960
MORGUNBLAÐIÐ
23
Félagsheimili Kópa
vogs ársgamalt
F Y R I R ári var lokið við að
innrétta neðstu hæð Félags1-
heimilis Kópavogs og þá þeg-
ar teknir í notkun tveir salir,
kvikmyndasalur og veitinga-
salur. Hefur starfsemin stað-
ið í miklum blóma
Forráðamenn félagsheimilisins
hafa leitazt við að fá hingað sem
beztar kvikmyndir, ennfremur
hefur verið tekin upp sú nýjung
að fella íslenzkt tal inn í barna-
myndirnar og það orðið mjög
vinsælt meðal yngstu kynslóð-
arinnar. Leiklistarlíf hefur verið
mjög fjörugt á árinu, tvö leikrit
sýnd, Veðmál Mæru Lindar og
Músagildran, og standa sýning-
ar á því leikriti enn.
Bygging félagsheimilisins geng
ur mjög greitt. Er búið að
steypa tvær næstu hæðirnar.
Verður önnur hæðin ætluð fyrir
skrifstofur bæjarfélagsins og fé-
„Sögur Ijóð frá
Nýja-Englandi“
NÆSTA bókmenntakvöld í amer
ísk abókasafninu, Laugavegi 13,
verður haldið í kvöld og hefst
það kl. 8,45 síðdegis.
Viðfangsefni því, sem tekið
verður fyrir á þessu bókmennta
kvöldi, hefur verið valið heitið:
„Sögur og ljóð frá Nýja-Eng-
landi“
í þetta skipti verða valin ti:
upplesturs ljóð eftir Robert Frost
en hann hefur alið mestan aldur
sinn í Nýja-Englandi, og mun
Malcolm Hallidey annast upp-
lestur og val ljóðanna og flytja
skýringar með þeim.
I>á verður einnig lesið upp úr
verkum skáldkonunnar Söru
Oorne Jewett, en margar beztu
sögur hennar eru frá þessum
landshluta. Mun frú Mildred B.
Allport annast þann upplestur.
lagssali en þriðja hæðin fyrir
dans- og veitingasali. Er þá að-
eins ólokið efstu hæðinni, en þar
er gert ráð fyrir samkomusal og
stórum svölum, og er áætlað að
þar verði rekið nokkurs konar
úti-veitingahús.
Mikill áhugi ríkir meðal for-
ráðamannanna að húsið verði
sem fyrst fullbyggt, félagsstarf-
semi Kópavogskaupstaðar til
upplyftingar, sem mjög hefur
aukizt hin síðari ár.
—<S>
Björn Daníelsson, skólastjóri,
ritstjóri blaðsins.
'Tindastóll" — nýtt blað
gefið út á Sauðárkrók
— Utan úr heimi
Framhald á bls. 12.
ríkin hafa gert. Bandarísku gerfi-
hnettirnir eru smágerðari, en það
er skoðun margra sérfræðinga að
þeir hafi skilað meiri vísinda-
legum upplýsingum. Talið er að
Rússar séu tveim árum á undan
Bandaríkjamönnum um smíði
burðarmikilla eldflauga, og að
þoss vegna gætu þeir nú þegar
sent menn út í geiminn. En álitið
er að þá skorti enn ýmsar vísinda
legar upplýsingar.
Banctaríkin eru nú með burðar-
meiri eldflaugar í smíðum, og
verða þær tilbúnar eftir þrjú til
fjögur ár. En þangað til eru til-
raunir sem þessi með Frumherja
V. og þær upplýsingar, sem af
þe;m hljótast, ómetanlegar.
Hvort þetta er nægilegt til að
standast samkeppni Rússanna,
það er spurningin mikla.
HINN þjóðkunni gleðitími Skag-
firðinga, Sæluvikan, hófst 20.
þ. m. Sama dag kom út fyrsta
tölublað Tindastóls, sem telja má
að sé fyrsta tilraun til blaða-
útgáfu á Sauðárkróki. Er það
ungmennafélagið Tindastóll, sem
gefur blaðið út. Og í því tilefni
bauð Stefán Guðmundsson, for-
maður ungmennafélagsins, og í
umboði þess, fréttamönnum
blaða og útvarps til kaffi-
drykkju, þar sem mætt var
stjórn félagsins >g ritnefnd hins
nýja blaðs.
Skagfirzkur fróðleikur
Er Stefán hafði boðið gesti
velkomna, gaf hann Birni Daní-
elssyni skólastjóra orðið, en
hann er ritstjóri Tindastóls. —
Ræddi hann um tildrögin að
stofnun blaðsins og framtíðar
fyrirætlanir það varðandi. Það
er í sama broti og Heima er bezt
og er fyrst og fremst ætlað það
hlutverk að flytja skagfirzkan
fróðleik, ásamt sögum og ljóð-
um og greinum um almenn mál,
sem til framfara og menningar
benda. Tók ritstjórinn það sér-
staklega fram, að hér væri alls
ekki um gaman- eða glansblað
að ræða, heldur fyrst og fremst
tilraun í menningarátt, sem ætl-
að væri það hlutverk að ná til
sem flestra Skagfirðinga, bæði
heima og heiman. Blaðið er 16
síður auk tvöfaldrar kápu, og er
fyrirhugað að á yfirstandandi ári
komi út 4 blöð, en í framtíðinni
er ætlunin að þeim fjölgi í 6, það
— Betri áburður
Framh. af bls. 15.
hins vegar mundi það vera
hrein tilviljun, vegna þess
sem getið var í upphafi, að
jarðvegurinn er mismunandi
og veðrið er breytilegt eftir
því, hvar á landinu er. Af
þessum sökum hlýtur áburðar
þörfin á hverjum stað og á-
burðarblandan, sem mestum
arði getur skilað einnig að
vera breytileikanum háð.
er að út komi blað annan hvern
mánuð.
Ilamingjuóskir
Viðstaddir fréttamenn tóku all-
ir til máls og lofuðu þá fram-
taksemi ungmennafélagsins, sem
birtist í þessari blaðaútgáfu og
óskuðu félagi og ritstjórn til ham
ingju, og kváðust ekki öðru trúa
en að allir Skagfirðingar tækju
höndum saman um það að styrkja
þessa útgáfu með ráðum og dáð,
svo blaðinu yrði langra lífdaga
auðið, og til heiðurs fyrir sveit
sína og byggðarlagið.
Afgreiðslumaður blaðsins á
Sauðárkróki er Gísli Felixson. —
A Akureyri Bókabúð Jónasar Jó-
hannssonar og í Reykjavík vænt-
anlega Pétur Hannesson póst-
meistari í Kópavogi og formaður
Skagfirðingafélagsins. — jón.
— Macmillan
Framhald af bls. 17.
ið til með því að þegja yfir hon-
um.
En þó ósamkomulag sé á einu
sviði og jafnvel þó það sé mikil-
vægt mál, þá ætti það ekki að
spilla möguleikum okkar til að
vinna saman að mörgum öðrum
sameiginlegum hagsmunamálum.
Hinir sjálfstæðu meðlimir brezka
samveldisins eru ekki alltaf sam-
mála um alla hluti. Það er ekk-
ert skilyrði fyrir samstarfi þeirra,
að þeir séu alltaf sammála. Þvert
á móti er það mesti styrkur Sam-
veldis okkar, að það er bandalag
frjálsra ríkja, sem hvert um sig
ber ábyrgð á eigin málefnum en
leitar samstarfs við hin í þágu
sameiginlegra hagsmuna.
Auk þess getur ágreiningurinn
verið tímabundinn. Það getur
verið að hann leysist með tíman-
um. Það er skylda okkar að líta
ágreininginn í Ijósi langra sam-
skipta og samstarfs okkar.
Ég er að minnsta kosti viss um
það, að við sem förum nú með
völdin í nafni kjósendanna í mínu
landi og ykkar landi höfum ekk-
ert leyfi til að ryðja um koll
langri vináttu landa okkar, þótt
ágreiningur ríki um þetta mál
efni. Því að vinátta okkar er arf-
leifð sögunnar, sem við er nú lif-
um megum ekki kasta á glæ.
Við verðum að viðurkenna á-
greininginn. En við skulum líka
horfa fram í tímann. Ég vona, .—
já ég er sannfærður um það, að
eftir 50 ár þá verður þessi á-
greiningur aðeins sagnfræðilegt
viðfangsefni.
Því að eftir því sem tíminn líð-
ur og ein kynslóð leysir aðra af
hólmi, eftir því breytast vanda-
málin og mást út. Við skulum
hafa það í huga. Við skulum á-
kveða að byggja, en ekki að
brjóta niður. Og við skulum ætíð
muna að veikleiki fylgir sundr-
ungunni og styrkur sameining-
unni.
Söngskemmtun
í Hveragerði
LAUGARDAGINN 19. þ.m. hélt
kirkjukór Ölfusinga, sem raunar
einnig er kirkjukór Hvergerð-
inga, söngskemmtun í Hvera-
gerði. Hefur kórinn æft í vetur,
undir forystu Jóns H. J. Jóns-
sonar kennara á Hlíðardalsskóla,
en allar raddæfingar annaðist
Louise Ólafsdóttir organisti.
Undirbúning allan annaðist
stjórn kórsins, en formaður hans
er Svava A. Guðmundsson. Var
efnisskráin mjög fjölbreytt. Fyrst
söng blandaður kór nokkur lög.
Þá var stutt ræða; síðan söng
karlakór, ásamt einsöngvara sem
var Ingibjartur Bjarnason frá
Hlíðardalsskóla. Að síðustu söng
svo blandaði kórinn, en í honum
eru tuttugu og fimm manns, og
lauk söngskránni með þjóðsöngn-
um.
Húsfyllir var á skemmtuninni
og þótti öllum hún vel takast.
Varð kórinn að syngja nokkur
aukalög og var frammistöðu
hans fagnað með dynjandi lófa-
taki og blómagjöfum. Var söng-
stjórinn ákaft hylltur, enda hef-
ur hann unnið mikið og óeigin-
gjarnt starf fyrir kórinn fyrr og
nú. — Undirleikinn annaðist frú
hans, Sólveig, með hinni mestu
prýði.
Að lokum vár stiginn dans
Hljómsveit Svavars Gests kemur fram á miðnæturhljómleikum
í Austurbæjarbíói í kvöld ásamt sex ungum dægurlagasöngvur-
um. Kynnir á skcmmtuninni verður Svavar Gests.
— Skautasvell
Framh. af bls. 22.
svell í. Félagið hefir leitað til
ÍBR um að útvega sér land fyrir
starfsemi sína og er beðið eftir
svari skipulagsins. Rætt var um
aðstöðu manna við skautaiðkun
hér í Reykjavík og bent á hve
slæm hún væri.
Heiðursfélagar voru gerðir:
Fyrsti formaður félagsins Krist-
ján Einarsson, frantkv.stj., en
það var stofnað 31 okt. 1938, frú
Katrín Viðar, sem lengst hefir
verið formaður félagsins og frú
Júlíana ísebarn Guðlaugsson,
sem hefir verið í stjórn félagsins.
Áður hefir aðeins einn maður
verið gerður heiðursfélagi og var
það Sigurður Thoroddsen, yfir-
kennari, sem sýndi skautaiþrótt-
inni mikla velvild og sæmd. Það
var árið 1946.
Formaður baðst undan endur-
kjöri.
Kosnir voru: Ólafur M. Pálsson
formaður og meðstjórnendur Ól-
afur Jóhannesson og Eyjólfur
Jónsson. f varastjóm: Kristján
Árnason og Jón R. Einarsson.
Lárusi Salómonssyni voru
þökkuð með ræðum og af fund-
inum störf hans fyrir félagið.
Þakka hjartanlega alla þá vinsemd, sem mér var sýnd
4 70 ára afmæli mínu þann 8. marz sl.
HaUdóra Iialldórsdóttir, Sóleyjartungu, Akranesl
Þakka hjartanlega alla þá, vinsemd sem mér hefur
verið sýnd á áttræðis afmæli mínu 20. marz, með gjöf-
um, blómum og skeytum. — Guð blessi ykkur öll nær
og fjær.
Sveinbjörg Ssemundsdóttir, Njálsgötu 12
Eiginmaður minn,
ÞORGEIR JÓNSSON
Blönduhlíð 11
hér í bæ, sem andaðist hinn 18. þ.m. verður jarðsunginn
frá Fossvogskirkju, föstudaginn 25. marz n.k. kl. 1,30 e.h.
Guðrún Eiríksdóttir
I MINNINGARGREIN um Guð-
rúnu Blöndal í þessu blaði hefur
undirskriftin brenzlazt. A að vera
Páll Erlendsson (ekki Einarsson).
Konan mín
FRIÐGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR
Höfðaborg 35
verður jarðsett írá Fossvogskirkju fimmtudaglnn 24.
marz kl. 13,30. — Blóm vinsamlega afþökkuð.
Fyrir mína hönd, barna, tengdabama og bamabarna:
Eiríkur Magnússon, bókbindari
Kveðjuathöfn
BENEDIKTS SNORRASONAR
fyrrv. bónda á Erpsstöðum í Dölum,
sem andaðist á Landakotsspítala 20. þ.m., fer fram frá
Dómkirkjunni fimmtudaginn 24. þ.m. kl. 10,30.
Athöfninni verður útvarpað. Blóm og kransar afbeðnir.
Jarðarförin fer fram frá Erpsstöðum laugard. 26. þ.m.
kl. 14.00.
Aðstandendur
Bróðir minn,
ARNI SVEINSSON
frá Mælifellsá,
sem andaðist að heimili sínu, Keflavík 15. þ.m. verður
jarðsunginn frá Skagastrandarkirkju, laugardaginn 26.
þ.m. kl. 2 e.h.
Fyrir mína hönd og annara vandamanna:
Ólafur Sveinsson
Þökkum innilega öllum þeim, er heiðruðu minningu
JÓHANNS HJALTASONAR
vélstjóra
Guðný S. Guðjónsdóttir, börn og barnabörn