Morgunblaðið - 08.04.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.04.1960, Blaðsíða 1
24 siður 47. árgangur 83. tbl. — Föstudagur 8. apríl 1960 Prentsmiðja Morgunblaðsins IJrslitin nálgast í Genf: andaríkin m Kanada samein st um 10 ára ,söguiegan rétt íslendingar fylgja sennilega nyrri tillögu Asíu- ou Afríkuríkja um 12 mílna fiskveiðilögsögu Hæpið, að nokkur tillaga fái 2h atkvæða Frá fréttaritara, Mbl., Þorsteini Thorarensen. GENF, 7. apríl. — Nú má segja, að draga taki til úrslita í heildarnefnd landhelgisráðstefnunnar. — í morgun kom fram íslenzka tillagan, sem skýrt hefir verið frá, um for- réttindi strandríkis, sem að mestu er háð fiskveiðum, til veiða utan hinnar viðurkenndu fiskilögsögu. — Einnig kom fram tillaga nokkurra Asíu- og Afríkuríkja um 12 mílna landhelgi. — Þá er það vitað með vissu, að Bandaríkin og Kanada hafa komið sér saman um málamiðlunartillögu um tímabundinn „sögurétt" er falli úr gildi eftir 10 ár — og verður hún lögð fram á morgun. Hins vegar er óvíst, að það verði Bandaríkin og Kanada, sem formlega bera fram tillöguna — og allt eins víst er, að það geri einhver smá- ríki. — Bretar hafa þegar lýst stuðningi við hina nýju mála- miðlunartillögu. að bæði Mexíkó og Rússland falli frá sínum tillögum og lýsi í staðinn stuðningi við fyrrnefnda ur réttur yrði virtur. — Ríkin, sem bera tillöguna fram, eru þessi: Persía, Indónesíu, Filipps- eyjar, Irak, Saudi-Arabía, Jórd- anía, Líbanon, Arabíska sam- bandslýðveldið, Líbýa, Túnis, Marokkó, Ghana, Gínea, Súdan, Eþíópía og Jemen. (Hér er talað um 16 ríki. — í Reutersfréttum eru þessi ríki talin 12 — og Guðmundur I. Guðmundsson, utanríkisráðherra talar um 15. Sjá útdrátt úr ræðu hans á öðrum stað í blaðinu. — Ekki er kunnugt, af hverju þetta misræmi stafar). • ÞRÖSKULDUR Tillagan er í sjö greinum, og er aðalefni hennar, að sér- hvert ríki hafi rétt til að ákveða landhelgi sína allt að 12 mílna hámarki. Ef eitthvert ríki kæri sig ekki um svo breiða land- helgi, megi það taka sér einka- rétt til fiskveiða út að 12 mílna Framhald á bls. 2. Námuslys AACHEN, V.-Þýzkalandi, 7. apríl. (Reuter). — í morgun varð hrun í Gouley-kolanám- unni við Wiirselen hér í grenndinni — og fórust a. m. k. fjórir námumenn, en 2ja er enn saknað. — Slysið varð um 600 metra undir yfirborði jarðar. Asgeir Asgeirsson í framboði við forsetakjör SAMKVÆMT upplýsingum, sem Morgunblaðið hefir fengið mun Asgeir Asgeirsson, forseti Islands, verða í framboði við forsetakosn ingarnar í sumar. Eins og kunnugt er hafa forsetakosning- ar verið boðaðar 26. júní n.k. Áskriftarlistar fyrir meðmæl- endur með framboði Ásgeirs As- geirssonar liggja frammi hjá bæj arfógetum og sýslumönnum utan Reykjavíkur' til aprílloka. Ásgeir Ásgeirsson hefir gegnt forsetaembættinu í tvö kjörtíma- bil, eða frá árinu 1952. • TVÆR AÐAUTILLOGUR Bæði ríkin munu hins veg- ar draga fyrri tillögur sínar til baka, og einnig er nú búizt við, Eilefto sknkin biðskók MOSKVA, 7. apríl: — Ellefta einvígisskákin um heims- meistaratitilinn var tefld hér í dag. f fyrsta sinn í einvíg- inu brá Tal út af vana sínum og lék ekki e2—e4 í fyrsta leik. Skákin fór í bið eftir 41. leik og var staðan þá mjög flókin. Biðskákin verður tefld á morgun. tillögu Asíu- og Afríkuríkj anna. — Væru þá fyririiggjandi tvær aðaltillögur, og að öilu óbreyttu myndi þá fsland styðja tillögu Asíu- og Afríkuríkjanna, vegna þess að það getur alls ekki fall- izt á ákvæðið um tíu ára sögu- rétt, eins og gert mun ráð fyrir i hinni nýju málamiðlunartil- lögu. • KOM Á ÓVART Tillaga Asíu- og Afríkuríkj- anna virtist koma „sex mílna blokkinni" á óvart. Ekki sízt það, að Ghana er meðal flytj- enda hennar, en fulltrúi Ghana hafði áður í ræðu lýst sig fylgj- andi því, að svonefndur söguleg- M/ðum allt við að tryggja 12 mílna fiskilögsögu sagði Gubmundur /. Guðmundsson j utanríkisráðherra i útvarpsræðu frá Genf i gær | 1 GÆRVÖLDI sagði Guð- mundur I. Guðmundsson, ut- anríkisráðherra, nokkuð frá gangi mála og horfum á land- helgisráðstefnunni, í stuttri ræðu, sem hann flutti í frétta Ráðizt á vígi blökkumanna — Lögregla og herlið réðst inn i Nyanga i S-Afriku og handtók 200» manns Höföaborg, Suöur-Afríku, 7. apríl. —• Reuter). — HERLIÐ og vopnuð lögregla réðst í dag inn í bæinn Ny- anga, sem er hér í grennd- inni, en hann hefir verið um- kringdur undanfarna daga og algerlega einangraður. I’arna er eitt helzta „vígi“ hlökkumanna í baráttunni fyrir rétti sínum. — Ráðizt var inn í hús blökkunianna og þeir reknir út harðri hendi og hótað hinu versta ef þeir ekki hlýddu umsvifalaust. Ekki er vitað um átök eða manntjón, en lögreglan hand- tók um 200 blökkumenn, tróð þeim inn í jeppa og vörubíla 1 og flutti til Philippi-lögreglu- stöðvarinnar í uijaðri Höfða- borgar. — ★ — Þegar til lögreglustöðvar- innar kom, sást einn lögreglu mannanna berja harkalega nokkra fanganna, sem honum þóttu ekki nógu snarir í snún- ingum að koma sér út úr vögnunum. ★ Síðasta vígið Um það bil 25 þús. blökku- menn búa í Nyanga. Aðeins rúm lega 600 þeirra hafa komið til vinnu sinnar undanfarna daga Framh. á bls. 23. auka Ríkisútvarpsins beint frá Genf. — Sagði hann í upphafi, að það hefði strax komið í ljós. að engar veru- legar breytingar hefðu orðið á afstöðu ríkjanna síðan fyrri sjóréttarráðstefnunni lauk. — Fulltrúarnir stóðu í raun- inni í sömu sporum og við fundarlok 1958, sagði ráð- herrann. Engin samstaða hafði myndazt um lausn, sem nægur meirihluti væri fyrir. -★ — Ráðherrann sagði, að á alls- herjarfundi ráðstefnunnar, sem hefst eftir páska og ekki getur staðið lengur en út þá viku, væri ekki aðeins hægt að taka til meðferðar þær tillögur, sem heildarnefndin hefði samþykkt, heldur mætti þar bera fram aft- ur tillögur, sem felldar hefðu verið í nefndinni, og enn fremur leggja fram nýjar tillögur. — ★ — Síðan fórust utanríkisráðherra orð á þessa leið: Tvær meginstefnur Sýnt er af þeim 5 tillögum, sem fram eru komnar, að hér eru átök um tvær meginstefnur — sex mílna landhelgi og tólf mílna landhelgi. En í þetta bland ast svo deilan um stærð fisk- veiðilögsögu. Austur-Evrópurík- in, arabísku ríkin og fleiri halda fast fram 12 mílna landhelgi. Við höfum rætt ýtarlega við fulltrúa þessara þjóða, hvort þeir myndu ekki fóanlegir til að fall- ast á 12 míina fiskveiðilögsögu, þótt ekkert yrði ákveðið um landhelgina. Þeir telja að það myndi frem- ur verða til óþurftar en gagns. í framkvæmd séu 12 mílurnar þegar svo traustar, að fái þeir ekki samþykki fyrir 12 mílna landhelgi, þá kjósi þeir heldur enga niðurstöðu og telja æski- Framhald á bls. 2. Föstudagur 8. apríl Efni blaösins m.a.: Bls. 3: Rætt við Árna Erasmusson átt- ræðan. — 6: Gjaldeyrisviðskipti Eimskips. — 8: Starfsfræðsla, tillaga á Alþingi. — 10: Frá Alþingi og Bæjarstjórn. — 12: Ritstjórnargreinar: Verðhækk- anir — Skattalækkanir — Bóta- hækkanir. — 13: Þjóðhátíð Grikkja, eftir Sig. A. Magnússon. — 14: SUS-síða. — 22: íþróttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.