Morgunblaðið - 08.04.1960, Side 1
24 siður
47. árgangur
83. tbl. — Föstudagur 8. apríl 1960
Prentsmiðja Morgunblaðsins
IJrslitin nálgast í Genf:
andaríkin m Kanada samein
st um 10 ára ,söguiegan rétt
íslendingar fylgja sennilega nyrri tillögu Asíu-
ou Afríkuríkja um 12 mílna fiskveiðilögsögu
Hæpið, að nokkur
tillaga fái 2h atkvæða
Frá fréttaritara, Mbl., Þorsteini Thorarensen.
GENF, 7. apríl. — Nú má segja, að draga taki til úrslita í
heildarnefnd landhelgisráðstefnunnar. — í morgun kom
fram íslenzka tillagan, sem skýrt hefir verið frá, um for-
réttindi strandríkis, sem að mestu er háð fiskveiðum, til
veiða utan hinnar viðurkenndu fiskilögsögu. — Einnig kom
fram tillaga nokkurra Asíu- og Afríkuríkja um 12 mílna
landhelgi. — Þá er það vitað með vissu, að Bandaríkin og
Kanada hafa komið sér saman um málamiðlunartillögu um
tímabundinn „sögurétt" er falli úr gildi eftir 10 ár — og
verður hún lögð fram á morgun. Hins vegar er óvíst, að
það verði Bandaríkin og Kanada, sem formlega bera fram
tillöguna — og allt eins víst er, að það geri einhver smá-
ríki. — Bretar hafa þegar lýst stuðningi við hina nýju mála-
miðlunartillögu.
að bæði Mexíkó og Rússland
falli frá sínum tillögum og lýsi
í staðinn stuðningi við fyrrnefnda
ur réttur yrði virtur. — Ríkin,
sem bera tillöguna fram, eru
þessi: Persía, Indónesíu, Filipps-
eyjar, Irak, Saudi-Arabía, Jórd-
anía, Líbanon, Arabíska sam-
bandslýðveldið, Líbýa, Túnis,
Marokkó, Ghana, Gínea, Súdan,
Eþíópía og Jemen.
(Hér er talað um 16 ríki. —
í Reutersfréttum eru þessi ríki
talin 12 — og Guðmundur I.
Guðmundsson, utanríkisráðherra
talar um 15. Sjá útdrátt úr ræðu
hans á öðrum stað í blaðinu. —
Ekki er kunnugt, af hverju þetta
misræmi stafar).
• ÞRÖSKULDUR
Tillagan er í sjö greinum,
og er aðalefni hennar, að sér-
hvert ríki hafi rétt til að ákveða
landhelgi sína allt að 12 mílna
hámarki. Ef eitthvert ríki kæri
sig ekki um svo breiða land-
helgi, megi það taka sér einka-
rétt til fiskveiða út að 12 mílna
Framhald á bls. 2.
Námuslys
AACHEN, V.-Þýzkalandi, 7.
apríl. (Reuter). — í morgun
varð hrun í Gouley-kolanám-
unni við Wiirselen hér í
grenndinni — og fórust a. m.
k. fjórir námumenn, en 2ja
er enn saknað. — Slysið varð
um 600 metra undir yfirborði
jarðar.
Asgeir Asgeirsson
í framboði
við forsetakjör
SAMKVÆMT upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefir fengið mun
Asgeir Asgeirsson, forseti Islands,
verða í framboði við forsetakosn
ingarnar í sumar. Eins og
kunnugt er hafa forsetakosning-
ar verið boðaðar 26. júní n.k.
Áskriftarlistar fyrir meðmæl-
endur með framboði Ásgeirs As-
geirssonar liggja frammi hjá bæj
arfógetum og sýslumönnum utan
Reykjavíkur' til aprílloka.
Ásgeir Ásgeirsson hefir gegnt
forsetaembættinu í tvö kjörtíma-
bil, eða frá árinu 1952.
• TVÆR AÐAUTILLOGUR
Bæði ríkin munu hins veg-
ar draga fyrri tillögur sínar til
baka, og einnig er nú búizt við,
Eilefto sknkin
biðskók
MOSKVA, 7. apríl: — Ellefta
einvígisskákin um heims-
meistaratitilinn var tefld hér
í dag. f fyrsta sinn í einvíg-
inu brá Tal út af vana sínum
og lék ekki e2—e4 í fyrsta
leik. Skákin fór í bið eftir 41.
leik og var staðan þá mjög
flókin. Biðskákin verður tefld
á morgun.
tillögu Asíu- og Afríkuríkj anna.
— Væru þá fyririiggjandi tvær
aðaltillögur, og að öilu óbreyttu
myndi þá fsland styðja tillögu
Asíu- og Afríkuríkjanna, vegna
þess að það getur alls ekki fall-
izt á ákvæðið um tíu ára sögu-
rétt, eins og gert mun ráð fyrir
i hinni nýju málamiðlunartil-
lögu.
• KOM Á ÓVART
Tillaga Asíu- og Afríkuríkj-
anna virtist koma „sex mílna
blokkinni" á óvart. Ekki sízt
það, að Ghana er meðal flytj-
enda hennar, en fulltrúi Ghana
hafði áður í ræðu lýst sig fylgj-
andi því, að svonefndur söguleg-
M/ðum allt við að tryggja
12 mílna fiskilögsögu
sagði Gubmundur /. Guðmundsson j
utanríkisráðherra i útvarpsræðu
frá Genf i gær |
1 GÆRVÖLDI sagði Guð-
mundur I. Guðmundsson, ut-
anríkisráðherra, nokkuð frá
gangi mála og horfum á land-
helgisráðstefnunni, í stuttri
ræðu, sem hann flutti í frétta
Ráðizt á vígi blökkumanna
— Lögregla og herlið réðst inn i
Nyanga i S-Afriku og handtók
200» manns
Höföaborg, Suöur-Afríku,
7. apríl. —• Reuter). —
HERLIÐ og vopnuð lögregla
réðst í dag inn í bæinn Ny-
anga, sem er hér í grennd-
inni, en hann hefir verið um-
kringdur undanfarna daga
og algerlega einangraður.
I’arna er eitt helzta „vígi“
hlökkumanna í baráttunni
fyrir rétti sínum. — Ráðizt
var inn í hús blökkunianna
og þeir reknir út harðri hendi
og hótað hinu versta ef þeir
ekki hlýddu umsvifalaust.
Ekki er vitað um átök eða
manntjón, en lögreglan hand-
tók um 200 blökkumenn, tróð
þeim inn í jeppa og vörubíla
1 og flutti til Philippi-lögreglu-
stöðvarinnar í uijaðri Höfða-
borgar.
— ★ —
Þegar til lögreglustöðvar-
innar kom, sást einn lögreglu
mannanna berja harkalega
nokkra fanganna, sem honum
þóttu ekki nógu snarir í snún-
ingum að koma sér út úr
vögnunum.
★ Síðasta vígið
Um það bil 25 þús. blökku-
menn búa í Nyanga. Aðeins rúm
lega 600 þeirra hafa komið til
vinnu sinnar undanfarna daga
Framh. á bls. 23.
auka Ríkisútvarpsins beint
frá Genf. — Sagði hann í
upphafi, að það hefði strax
komið í ljós. að engar veru-
legar breytingar hefðu orðið
á afstöðu ríkjanna síðan fyrri
sjóréttarráðstefnunni lauk.
— Fulltrúarnir stóðu í raun-
inni í sömu sporum og við
fundarlok 1958, sagði ráð-
herrann. Engin samstaða
hafði myndazt um lausn, sem
nægur meirihluti væri fyrir.
-★ —
Ráðherrann sagði, að á alls-
herjarfundi ráðstefnunnar, sem
hefst eftir páska og ekki getur
staðið lengur en út þá viku, væri
ekki aðeins hægt að taka til
meðferðar þær tillögur, sem
heildarnefndin hefði samþykkt,
heldur mætti þar bera fram aft-
ur tillögur, sem felldar hefðu
verið í nefndinni, og enn fremur
leggja fram nýjar tillögur.
— ★ —
Síðan fórust utanríkisráðherra
orð á þessa leið:
Tvær meginstefnur
Sýnt er af þeim 5 tillögum,
sem fram eru komnar, að hér
eru átök um tvær meginstefnur
— sex mílna landhelgi og tólf
mílna landhelgi. En í þetta bland
ast svo deilan um stærð fisk-
veiðilögsögu. Austur-Evrópurík-
in, arabísku ríkin og fleiri halda
fast fram 12 mílna landhelgi.
Við höfum rætt ýtarlega við
fulltrúa þessara þjóða, hvort þeir
myndu ekki fóanlegir til að fall-
ast á 12 míina fiskveiðilögsögu,
þótt ekkert yrði ákveðið um
landhelgina.
Þeir telja að það myndi frem-
ur verða til óþurftar en gagns.
í framkvæmd séu 12 mílurnar
þegar svo traustar, að fái þeir
ekki samþykki fyrir 12 mílna
landhelgi, þá kjósi þeir heldur
enga niðurstöðu og telja æski-
Framhald á bls. 2.
Föstudagur 8. apríl
Efni blaösins m.a.:
Bls. 3: Rætt við Árna Erasmusson átt-
ræðan.
— 6: Gjaldeyrisviðskipti Eimskips.
— 8: Starfsfræðsla, tillaga á Alþingi.
— 10: Frá Alþingi og Bæjarstjórn.
— 12: Ritstjórnargreinar: Verðhækk-
anir — Skattalækkanir — Bóta-
hækkanir.
— 13: Þjóðhátíð Grikkja, eftir Sig. A.
Magnússon.
— 14: SUS-síða.
— 22: íþróttir.