Morgunblaðið - 08.04.1960, Blaðsíða 22
22
JfrtPrnw n » ini0
Fostudagur 8. aprll 1960
I aí 1Hmf fVL'ÁM'l (iii'l í/4 'A
Körfuknattleiksmótinu lokið:
l £
I.R. vann verðskuldaðan sigur
17 ára piltur átti glæsilegasta
og bezta leikinn
\
ÍSLANDSMÓTINU í körfuknattleik lauk sl. miðvikudagskvöld, en
þá fóru fram úrslitaleikir í II. flokki kvenna og meistaraflokki
karla. ÍR sigraði KFR með yfirburðum, 69:48, en staðan var 31:17
í hálfleik. Hinn 17 ára ÍR-ingur, Þorsteinn Hallgrímsson, vann
stóran persónulegan sigur í þessum leik. Hann skoraði 25 stig eða
rúmlega þriðjung þess sem liðið skoraði í heild og leikur hans var
einhver sá bezti sem hér hefur sézt í körfuknattleikskeppni.
* Kvenfólkið
Fyrri ieikur kvöldsins var
úrslitaleikur í II. fl. kvenna. Ef
E. Ó. P. hefði verið enn á lífi,
þá hefði hann sjálfsagt horft
með ánægju á þennan leik. KR
gat nefnilega ekki tapað, hvern-
ig svo sem úrslitin urðu því það.
voru A og B lið KR sem kepptu
hér til úrslita.
Þessar ungu blómarósir, sem
hættu sér alla leið að Háloga-
landi til að keppa þennan úrslita
leik, voru Vesturbænum og KR
til sóma. Leikur þeirra var létt-
ur og lipur og það vár barizt
af dugnaði leikinn á enda. B-
liðið sigraði með nokkrum yfir-
burðum, eða 20 stigum gegn 12,
en staðar var 14:6 í hálfleik og
gefa þessar tölur til kynna að
ekki hafði verið samið um úr-
slitin fyrirfram.
Að vísu eiga þessar ungu
stúlkur margt eftir ólært af
leyndardómum körfuknattleiks-
ins, en þær hafa náð undraverð-
um árangri á skömmum tíma
undir handleiðslu Þóris Arin-
bjarnarsonar og haldi þær áfram
af sama krafti þá eiga þær sjálf-
sagt eftir að ná langt. Annars
mega KR-ingar gæta sín í fram-
tíðinni og fjölmenna betur að
Hálogalandi þegar þessar stúlkur
eru að keppa, því eg er ekki frá
því að körfuknattleiksstrákar úr
Austurbænum hafi verið farnir
að gefa blómarósunum hýrt
auga.
Sigurvegarar KR í II. fl. eru
Hrafnhildur Skúladóttir, sem
skoraði 13 stig, Guðrún Svavars-
dóttir, Margrét Snorradóttir,
Málfríður Skúladóttir, Erla
Björnsdóttir og Þóra Ásgtirs-
dA»ti-
* ÍR—KFR 69:48
Úrslitaleikurinn milli ÍR og
Reykjavikurmeistaranna KFR
var harður og spennandi eins og
vera ber á Islandsmóti. Um 400
áhorfendur voru mættir að Há-
logalandi til að horfa á þessa
ibaráttu og eftir ópunum og
hvatningarorðunum að dæma þá
hafa verið þar minnst 300 ÍR-
ingar. Að „eiga húsið", er hverju
liði mikill styrkur og ÍR-ingar
gerðu sitt til þess að hinir radd-
sterku áhorfendur yrðu ekki
fyrir vonbrigðum.
Þetta er í fjórða skiptið
sem ÍR vinnur íslandsmeist-
aratitilinn í meistaraflokki
karla og líklega hefir félagið
aldrei verið jafn sterkt og
jafn vel að sigrinum komið
og einmitt nú.
Leikurinn hófst með því að
Sigurður Helgason, hinn risa-
vaxni (2,08 m) miðherji KFR gat
blakað knettinum úr uppkasti til
Gunnars Sigurðssonar, sem skor-
aði leiftursnöggt fyrir KFR. —
Skömmu síðar skoraði Hólm-
steinn 1 stig fyrir ÍR úr víta-
kasti og Helgi Jóhannesson bætti
körfu við. Staðan er 3:2 þegar
Þorsteinn fær knöttinn úr inn-
varpi og skorar viðstöðulaust.
Það var einmitt þessi karfa sem
mér fannst gott dæmi upp á veil-
urnar hjá KRF og hinar góðu
staðsetningar ÍR-inga og hvað
þeir voru fljótir að notfæra sér
hverja smugu sem opnaðist í
vörn KFR.
• Gott úthald
ÍR-ingar beittu varnarað-
ferðinni maður gegn manni
og með hinum mikia hraða
c«"n Hðifí wwWtif vfir «•; út
íslandsmeistarar ÍR í karlaflokki. — í miðju í fremri röð er
Helgi Jóhannesson, fyrirliði og þjálfari. Yzt til hægri í aftari
röð er Þorsteinn Hallgrímsson, sem sýndi beztan leik i fyrra-
kvöld og vakti mesta athygli.
M«Wam Ármanns í kvennaflo'1"'". — Myndirnar tók
ÞormóOðoun.
S\ _««
haldi, sem virðist meira held-
ur en hjá hinum meistara-
flokksliðunum, þá tókst þeim
fljótlega að ná yfirhöndinni.
Að vísu verður vörn þeirra
oft nokkuð gróf, en þeim
tekst líka oft að pressa and-
stæðingana svo að þeir eru í
vandræðum með að koma
knettinum frá sér.
Eins og áður hefir verið
sagt þá átti Þorsteinn Hall-
grímsson afburða góðan leik
að þessu sinni. Þorsteinn var
valinn í landsliðið í fyrra, þá
aðeins 16 ára að aldri. Hann
var þá einn af okkar efnilegri
ungu körfuknattleiksmönn-
um, en framför hans í vetur
hefir verið ótrúlega mikil.
Hann ræður yfir gífurlegum
stökkkrafti, er jafnvígur á
flestar tegundir körfuskota og
hefir mjög gott auga fyrir
samleik og veilum í vörn
móther.ja.
Helgi Jóhannesson er þjálf-
ari ÍR-iiðsins og hefir leikið
með því um margra ára bil.
Hann hefir lengi verið einn af
okkar beztu körfuknattleiks-
mönnum og hefir nú sannað
að hann er einnig afburða
þjálfari, enda er hann svo
lánsamur að hafa góðan efni-
við til að vinna úr.
•fc Vonbrigði
KFR-liðið olli nokkrum von-
brigðum. Leikur þess var staðari
heldur en maður hafði búizt við.
Ég held líka að það hafi verið
taktísk skekkja hjá liðinu að
hafa Sigurð Helgason jafn lengi
inn á og gert var. Lengd hans
kemur ekkí að notum gegn liði,
sem hefir bæði jafn stóra ein-
staklinga og býr yfir jafn mikl-
um stökkkrafti og ÍR-liðið. Og
Sigurður er ennþá of svifaseinn
í svona hröðum leik. Ágúst Ósk-
arsson var ólíkt sneggri og sterk-
ari maður fyrir liðið eftir að
hann kom inn á enda skoraði
hann 7 stig. Mér fannst að Ein-
ar Matthíasson, Ölafur Thorlaci-
us og Ágúst vera beztu menn
KFR. Ingi Þorsteinsson er bar-
dagamaður, sem aldrei gefst upp
enda skoraði hann 14 stig, en
ekki er hann samt skemmtileg-
ur leikmaður.
Úrslit fyrri hálfleiks voru
31:17 en síðari hálfleik vann ÍR
ekki nema 38::31. Helgi Jóhann-
esson varð aS yfirgefa leikvöll
í miðjum síðari hálfleik með
fimm víti og komu þá ýmsir
varamenn ínn á enda var sigur
ÍR þegar tryggður.
íslandsmeistarar ÍR eru Þor-
steinn Hallgrímsson sem skor-
aði 25 stig í þessum leik, Hólm-
steinn Sigurðsson 17 stig, Helgi
Jóhannesson 12 stig, Guðmund-
ur Þorsteinsson 9 stig, Einar
Ólafsson, Haukur Hannesson og
Ingi Þór Stefánsson með 2 stig
hvor og Ragnar Jónsson.
Stigahæstir hjá KFR voru Ein-
ar Matthíasson með 16 stig, Ingi
Þorsteinsson 14 stig, Ólafur
Thorlacius 8 stig og Gunnar
Sigurðsson og Ágúst Óskarsson
með 7 stig hvor.
Dómarar voru Viðar Hjartar-
son og Þórir Arinbjarnarson og
höfðu þeir nóg að gera.
BÞ.
HINN
fyrrverandi danski
landsliðsmaður Axel Pilmark
sem nú er þjálfari hjá ítalska
atvinnumannafélaginu Bol-
ogna, hefir dvalið í Kaup-
mannahöfn að undanförnu.
Hann hefur notað tímann til
að fylgjast með dönsku knatt-
Danskurinn
ekki ndgu
góiur
s
spyrnunni, með það fyrir aug
um að kaupa danskan knatt
spyrnumann til ftalíu. Bol
ogna vill
250.000
greiða leikmanni
danskar krónur fyrir
tveggja ára samning.
En leit Axels Pilmark hef-
ur borið lítinn árangur, því að
einn danskur knattspyrnumað
ur myndi koma til með að geta
uppfyllt kröfur hins ítalska
félags, að dómi Axel Pil-
marks, en það er AB fram-
vörðurinn Flemming Nielsen.
Því miður
Nielsen,
fyrir Flemming
er það framherji,
sem hið ítalska atvinnumanna
lið er að leita eftir, og því
eru allar líkur til þess að
sænskur knattspyrnumaður
fái hið gullna tækifæri.
Innunhúsmót
í frjálsum
•A Frjálsíþróttadeild KR efnir til
innanfélagsmóts í íþróttahúsi Há-
skólans á sunnudaginn kemur kl.
3 e.h. Á mótinu verður keppt í
langstökki og þrístökki án at-
rennu og ennfremur í hástökki
með atrennu. Deildin býður öll-
um til þátttöku í þessu móti.
Irland vann Chile
LANDSLEIKUR í knattspyrnu
fór nýlega fram í Dublin milli
írlands og Chile og vann írland
2:0, eftir að leikar stóðu 1:0 fyr-
ir írland við leikhlé.
Enska knattspyrnan
STAÐAN í ensku deildarkeppn-
inni er nú þessi:
1. deild (efstu og neðstu liðin)
Tottenham 36 18 11 7 75:43
Wolverhampton 36 21 5 10 92:60
Burnley 34 19 5 10 57.:46
Everton 36 10 9 17 63:69 29
Manchester City 35 13 3 19 71:77 2!)
Birmingham 35 9 9 17 52:69 27
Leeds 35 9 9 17 58:83 27
Luton 36 7 11 18 42:63 25
2. deild (efstu og neðstu liðin)
Aston ViJlf 37 22 9 6 83:37 53
Cardifí 37 21 10 6 85:58 52
Rotherham 36 16 11 9 55:49 43
Sunderland
Bristol City
Hull
36
35
36
9 10 17
9 5 21
8 6 22
46:60
46:79
38:73
Eins og sést á yfirlitinu er
mikill munur á I. og II. deild
hvað spenning snertir. Telja má
næstum öruggt að Aston Villa og
Cardriff leiki í I. deild næsta ár.
Einnig er nokkurn veginn öruggt
að Bristol City og Hull falli nið-
ur í III. deild.
í I. deild er aftur á móti mikill
spenningur bæði í toppinum og
botninum. Þrjú efstu liðin geta
öll sigrað, en staða Burnley er
þó mun verri bæði hvað snertir
marktatolu svo og, að liðið þarf
að leika tvo leiki í miðri viku
auk leikja á venjulegum leikdög-
um. Er almennt reiknað með að
úrslitin fáist þann 23. apríl, en
þá heimsækja Tottenham Wolw-
erhampton. Bæði liðin eiga eftir
6 ieiki og á Tottenham eftir að
]eika við Manohester City, Chel-
sea og Blackpool heima en úllana
Che.isea og Everton úti.
Wolwerhampton á eftir að
leika við Tottenham, West Ham
og N. Forest heima, en Newcastie,
N. Forest og Chelsea úti.
Burnley á eftir að leika við
Leicester, Blackburn, Luton og
Fulham heima en N. Forest, Leic-
ester, Blackpool og Mancnester
City úti.
í botninum í I. deild er einnig
mikill spenningur. Almennt er
reiknað með að Luton falli niður
í II. deild, en mikil óvissa er um
^2! hvaða lið fylgi Luton. Fjögur
neðstu liðin eiga ekki eftir að
leika saman svo erfitt er að spá
fyrir um hvaða lið falli niður
með Luton, en má búast við að
hin hafi mikið að segja í lokin.
í þriðju deild er Southampton
efst með 53 stig og Norwich nr.
2 með 51 stig. Er reiknað með að
þessi lið leiki í II. deild næsta
keppnistímabil, en allt getur þó
kormð fyrir og er t.d. Bury í
þriðja sæti með 47 stig og hefur
leikið einum leik færra en Nor-
wich.
4 lið flytjast upp úr IV. deild
og má segja að Valsaee, Notts
County og Torquay séu örugg
með að komast í III. deild, en
mikil barátta er milli MillwalL
sem hefur 46 stig eftir 40 leiki,
og Watford, sem hefur 43 stig
eftir 38 leiki.