Morgunblaðið - 08.04.1960, Page 24
Þjóðhátíð Grikkja Sjá bls. 13. JVtorg iiáWíP N ámslán , Sjá bls. 10.
83. tbl. — Föstudagur 8. apríl 1960
Þýxkur pilfur bjargaði ölvuðum manni
úr höfninni
„Nú veit ég hvab
sjórinn er kaldur'‘
í FYRRAKVÖLD bjargaði 17
ára gamall þýzkur drengur
íslendingi úr höfninni í
Reykjavík. Maðurinn var
drukkinn - og hefir sennilega
ætlað að fá sér meira að
drekka.
Lögreglunni var þegar til—
kynnt, að maður hefði dottið
í höfnina og fór þegar á stað-
inn, en þá hafði þýzki piltur-
inn, sem er af saltskipinu
Margarethe Bishchoff, stungið
sér eftir manninum, synt til
hans og komið utan um hann
björgunarhring. Lögreglan
dró þá svo báða á þurrt land.
Pilturinn, sem sýndi þetta
snarræði, heitir Holger Wolff
og er frá Hamborg. í viðtali
við blaðamann Morgunbl. í
gær, sagðist hann áður hafa
bjargað manni frá drukknun,
en þá með hjálp annarra
drengja heima í Þýzkalandi.
— Fannst þér sjórinn ekki
kaldur, spurði blaðamaður-
inn?
— Jú, hann var hræðilega
kaldur, en ég gleymdi því,
þegar ég fann lyktina af mann
aumingjanum, hún var erin
verri.
— Datt þér ekki í hug, að
sjórinn væri kaldur, áður en
þú stakkst þér?
— Nei, ég stakk mér bara
af éinhvers konar eðlishvöt.
— Heldurðu að þú fáir ekki
lungnabólgu?
— Nei, ér er hress eins og
eftir bezta bað.
— Ertu trúlofaður?
— Já.
— Bjargaðir þú henni líka
frá drukknun?
— Nei, hún bjargaði mér.
— Megum við birta mynd af
þér í Morgunblaðinu?
— Velkomið, en ég vildi
gjarna fá eina með mér til að
sýna kærustunni minni.
— Vildir þú kasta þér út
aftur, svo myndin verði raun-
verulegri?
Njasslendingar albún-
ir til sjálfstjórnar -
— sagði dr. Banda í sjónvarpsviðtali
LONDON, 7. apríl (Reuter). —
Dr. Hastings Banda, leiðtogi
þjóðfrelsishreyfingar Njasslend-
inga, sem nýlega var sleppt úr
fangelsi í Suður-Ródesíu, kom
hingað flugleiðis í dag til við-
ræðna við ýmsa embættismenn
brezku stjórnarinnar. — Ekki
hefnr verið látið uppi, hvert er-
indi hans raunverulega er, en við
brottför sína frá Afríku lét hann
ákveðið í það skína, að Njassa-
land mundi hverfa úr Mið-Af-
rikusambandinu, en fyrir því
hafa dr. Banda og fylgismenn
hans lengi harizt.
fe' ' WÍMi 1 /
Holger Wolff eftir baðið
— Nei takk, nú veit ég, hvað
sjórinn hér er kaldur.
Þess skal að lokum getið,
að fslendingnum var stungið
í kjallarann til að láta renna
af honum, eftir að hann hafði
verið færður úr fötunum og
vafinn í teppi.
Skipulag Breiðholts-
hverfis fyrir bcejarráði
GEIR Hallgrímsson borgarstjóri,
greindj frá því á fundi bæjar-
stjórnar í gær, að skipulagsupp-
dráttur yfir Breiðholtshverfi lægi
nú fyrir bæjarráði. Hér væri um
•að ræða svæði, sem tæki yfir 8
hektara lands.
Borgarstjóri sagði frá þessu í
sambandi við framkoman tillögu
írá kommúnistum um að bæjar
stjórn skyldi fela bæjarráði og
skipulagsnefnd að ganga frá
skipulagsuppdræíti yfir Breið-
tiolthverfi.
Koma til móts við óskir
húseigenda
Sagði borgarstjóri, að afstöðu
þyrfti að taka til ýmissa atriða
áður en gengið yrði endanlega
frá skipulagsuppdrættinum.
Á umræddu svæði hafa marg-
ir byggt án þess að haaf fengið
lóðarréttindi. Fyrir nokkrum ár-
um hefðu kommúnistar borið
fram tillögu um að húseigendum
á umræddu svæði yrði tryggður
lóðaréttur til 10 ára, en Fram-
Nýtt fæðingar-
heimili
Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í
gær upplýsti borgarstjóri, Geir
Hallgrímsson, að ráðgert væri, að
fæðingarheimilið við Þorfinns-
götu yrði fullbúið í júní í sumar.
— Mun þar verða rúm fyrir 26
sængurkonur.
KEFLAVÍK
BINGÓ verður spilað að Vík
(uppi) í kvöld kl. 9. Góð verð-
lauí.. Aðgangur ókeypis. Heimir,
félag ungra Sjálfstæðismanna.
farafélag íbúanna féllst ekki á
þá tímatakmörkun og hefur rann
sókn málsins byggst á viðleitn-
inni til þess að koma svo langt
til móts við óskir húseigendanna
sjálflra, sem heildarskipulag
bæjarins leyfði, sagði Geir.
Bæjarráð tekur málið fyrir
Sannleikurinn væri sá, að sam
þykkt skipulagsuppdrátta út af
fyrir sig væri ekki fullnægjandi
afgreiðsla málsins, heldur yrðu
bæjaryfirvöldin um leið að gera
sér grein fyrir og ákveða tíma-
lengd lóðarréttinda, hvernig lóða
réttindum skuli háttað, þegar
fleiri en eitt hús lenda inn á
sömu lóð og hvaða meðferð þær
eigriir skyldu sæta, sem væru í
götustæðum, eða utan skipulags-
ins.
Fischer vann
Friðrik
ÞÆR fréttir bárust frá skák-
mótinu í Argentínu í gær, að
Friðrik Ólafsson hafi tapað í 7.
umferð fyrir Fischer. í sömu um-
ferð gerði Spassky jafntefli við
Bronstein.
Eftir 7 umferðir eru þeir efst-
ir Spassky með 6(4 vinning og
Fischer með 6 vinninga.
Stúdentaráð
sendir skeyti
til Cenf
STÚDENTARÁÐ Háskóla ís-
lands sendi í gær svoihljóðandi
skeyti til íslenzku sendinefndar-
innar á sjóréttarráðstefnunni
í Genf.
„Styðjum heilshugar baráttu
ykkar fyrir óskertri 12 mílna
fiskveiðilögsögu og gegn hvers
konar takmörkunum hennar“.
Væri unnið að ákveðnum til-
lögum í þessum málum og mundi
bæjarráð taka málið til meðferð-
ar svo fljótt sem unnt yrði. Væri
því rétt að vísa framkominni til-
lögu til bæjarráðs — og var það
samþykkt.
Ný bók Laxness
a morgum
tungumálum
KAUPMANNAHÖFN, 7. apríl.
(Einkaskeyti til Morgunblaðsins).
— Dagblaðið Politiken skýrir frá
því í dag, að Halldór Kiljan Lax-
ness hafi þegar afhent nokkrum
bókaútgefendum í ýmsum lönd-
um mestan hluta af handriti hinn
ar nýju skáldsögu sinnar, sem
gerizt í Utah á tímum hinna
miklu flutninga Mormónanna frá
íslandi.
Martin Larsen, lektor, hefur
þegar tekið til við að þýða bók-
ina á dönsku og mun hún koma
út í haust hiá bókaforlagi Gylden
dals.
Barnamúsikskólinn flytur
söngleik fyrir börn
BARNAMÚSÍKSKÓLINN í
Reykjavík efnir til skemmtunar
fyrir almenning næstkomandi
sunnudag, 10. apríl.
í maíbyrjun lýkur áttunda
starfsári Barnamúsíkskólans. —
Nemendur skólans eru nú á 3.
hundrað að tölu. í lok skólaárs-
ins hafa nemendur oftast efnt til
skemmtunar og sýnt ýmis atriði
úr skólastarfinu, sungið og leikið
á hljóðfæri, ein og í smáhópum.
Það telst til nýlundu í starfi
skólans í vetur, að nemendur
hafa æft stuttan söngleik eftir
Hindemith, „Wir bauen eine
Stadt“, sem á íslenzku hefur
hlotið nafnið „Við reisum nýja
Reykjavík“. Þorsteinn Valdi-
marsson hefur þýtt og staðfært
textann. Nemendur skólans sjá
einir um flutninginn, syngja og
skipa hljómsveitina, sem leikur
undir, en Baldvin Halldórsson
leikari hefur annazt leikstjórn.
Auk þessa stutta söngleiks
verða ýmis önnur skemmti-
atriði, kórsöngur, einleikur og
samleikur á ýmis hljóðfæri.
Skemmtun þessi verður hald-
in aðeins einu sinni fyrir al-
menning, n. k. sunnudag kl. 4
síðdegis í samkomusal Haga-
skóla við Hagatorg. Börn innan
10 ára aldurs fá ekki aðgang
nema í fylgd fullorðinna. Að-
göngumiðar fást í Hljóðfærahús-
inu, Bankastræti og í hljóðfæra-
verzlun Siguríðar Helgadóttur,
Vesturveri.
Um 70 Afríkubúar komu til
flugvallarins til móts hann. Þeir
sungu og báru veifur og spjöld,
sem á var letrað: „Lengi lifi
Banda, hinn ókrýndi konungur
Njassalands!" — En Afríkumenn
imir og margir fréttamenn, sem
hugðust ræða við dr. Banda, urðu
að snúa frá við svo búið, því að
lögreglulífvörður fylgdi honum
þegar til bifreiðar, sem ók á brott
með hann á miklum hraða.
★
Talið er, að dr. Banda muni
hafa aðalaðsetur í London næsta
mánuðinn, en í næstu viku mun
hann fara til New York sem gest.
ur hinnar svonefndu „Amerísku
Afríkunefndar“, sem vinnur að
auknum skilningi á málefnum
Afríkubúa vestanhafs.
★
Fréttamenn áttu sjónvarpsviff-
tal viff dr. Banda 4 kvöld, og
sagffi hann þá m. a., aff stjórnar-
skrármál Njassalands yrffu rædd
í júní nk. á ráðstefnu í London
— en síðar verffur haldin ráff-
stefna um framtíff Miff-Afríku-
sambandsins. — Dr. Banda full-
yrti, aff Njasslendingar væru
reiðubúnir aff taka stjórn mála
sinna í eigin hendur. — Hann
kvaffst vilja ræffa mál þeirra viff
nýlendumálaráðherrann, sem
væri „sannkristinn heiðursmaff-
ur“ — ekki viff Welensky, forsæt-
isráffherra Miff-Afríkubandalags-
ins, sem hann fór hinum hörff-
ustu orðum um.
í póst-
húsinu
Aldrei hefur þröngin veriff
jafn mikil og nú, er pósthús-
iff í Reykjavík hóf sölu á flótta
mannafrímerkjunum er út
komu í gær. Langar biðraðir
mynduðust af fólki sem var
meff umslög álímd þessum
nýju frímerkjum og beiff eftir
að fá þau stimpluð meff út-
gáfudagsstimpli Reykjavíkur
og mátti þarna sjá marga
þekkta frímerkjasafnara bæj-
arins. Ef til vill seinkaði þaff
afgreiffslunni, aff of fáir póst-
stimplar voru í notkun en þaff
er nauðsynlegt á slíkum degi
sem þesstum, aff fleirri stimpl-
ar séu tiltækilegir þótt vitaff
sé, að sérlega afkastamiklir og
vandvirkir póstmenn voru að
verki í allri ösinni í gær. —
Myndin var tekin í pósthús-
inu í gær. — Ljósm. Ól. K. M.