Morgunblaðið - 26.04.1960, Qupperneq 6
6
MORCVNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 26. apríl 1960
Piltur hrennist er
neyharblys sprakk
KLUKKAN rúmlega 8 í gær-
kvöldi lenti sjúkraflugvél Björns
Pálssonar hér á Heykjavíkur
flugvelli og var í sjúkrakörfu
hennar ungur piltur norðan af
Ströndum, Sveinbjörn Svein-
björnsson, frá Stóru-Ávík. Hann
hafði slasazt í andliti er hylki,
sem hann far.n rekið í fjörunni
sprakk í andiit honum. Á flug-
vellinum beið sjúkrabifreið og
var pilturinn fluttur í Lands-
spítalann.
Fréttaritari Mbl. að Finnboga-
stöðum á Stróndum símaði blað-
inu um þetta slys í gær:
Síðdegis á sunnudaginn hafði
Sveinbjörn, sem er 15 ára að
aldri, farið með félaga sínum,
Guðmundi Jónssyni (14 ára) frá
Litlu-Ávík á rekafjörur. í leið-
angri þessum höfðu þeir fundið
rautt hylki, sem var alveg ný-
rekið. Þeir tóku það upp og
hugðust opna það. Þetta var
járnhylki, rauð plasthúð utan
um það, og a því var lok. Svein-
björn hugðist reyna að opna
þetta lok og þá var það, sem ó-
happið vildi til, því hylkið
sprakk í höndum hans, en við
sprenginguna brenndist hann í
andliti og á enni, og gat hann
ekki opnað augun Hann tók
brátt að bólgna mjög í andliti.
Hann hafði ætlað að draga úr
sviðanum með köldu vatni, er. er
hann strauk hendinni yfir ennið,
fór skinnið af
Bogi Melsted, læknir á Djúpu-
vík, var kallaður, og kom hann
heim að Stóru-Ávík kl. 10 á
sunnudagskvöld. Taldi læknir-
inn rétt að drengurinn kæmist
í sjúkrahús í hendur augnlækna,
og var því ákveðið að leita til
Björns Pálssonar flugmanns um
að flytja Sveinbjörn suður.
í morgun (mánudag) klukkan
rúmlega hálfellefu lagði Björn
Pálsson af stað í flugvél sinni.
Var hann mjög óheppinn með
flugveður vegna þoku og mikill-
ar snjókomu. 1 nokkur hundruð
metra skyggni lenti hann á
Garðamelum í Kolbeinsstaða-
hreppi. Og eftir nokkra viðdvöl
þar hélt hann förinni áfram, en
varð enn að ienda vegna dimm-
viðris, að Tindum í Geiradal.
Hér lenti Björn svo heilu og
höldnu kl. 4 í gærdag.
Pilturinn var fluttur á traktor
að flugvélinni. Um skeið var
tvísýnt um það hvort Björn
myndi komast héðan með pilt-
inn. Snjókoma var á Akureyri
og mjög iágskýjað í Reykjavík.
Klukkan var 5 þegar Bjöm
renndi til flugs og tók stefnu á
Reykjavík. Hann hafði viðkomu
í Stykkishóimi, þar sem flugvél-
Huiidruð manna og
hesta við Hlégarð
MIKIÐ fjölmenni var að Hlé-
garði í Mosfellssveit á sunnu-
daginn. Gizkað er á að þangað
hafi komið alls um 300 manns.
Þessi mikli mannsöfnuður stóð
í sambandi við fjölmenna hóp-
reið Fáksfélaga úr Reykjavík.
Höfðu 160 Fáksfélagar komið, en
til móts við þá að Hlégarði komu
allmargir hestamenn úr sveit-
inni, svo og af Kjalamesi og
úr Kjós.
Allur hópurinn reið í hlað um
klukkan 3,30. Þá stóð rjúkandi
kaffi á borðum í Hlégarði og
borpin svignuðu undan heima-
bökuðum icökum húsmæðra í
sveitinni, pví hér voru konur í
Kvenfélagi Lágafellssóknar að
verki. Meðan hestamennirnir
sátu að kaffidrykkjunni töldu
menn 300 hesta við Hlégarð.
En það /ar fleira sem dró
fólkið í sveitinni og víðar að, því
kvenfélagsKonur efndu til baz-
ars. Seldist þar hvert tangur og
tetur, aðallega prjónles, heima-
vinna kvenfé'agskvenna, en ágóð
inn rennur til félagsstarfsins.
in lenti á aihvítri jörð. Læknir-
inn þar hafði borið smyrsl á
andlit og enm piltsins.
Til Reykjavíkur kom Bjöm
Pálsson kl. rúmlega 8 í gær-
kvöldi og hafði þá verið 9)4
klst. í sjúkraflugi þessu, en í
venjulegu veðri hefði hann
komizt þetta á 3 klst.
Sérfræðingar í Landsspítalan-
um munu að sjálfsögðu rann-
saka Sveinbjörn, en fyrsta athug
un lækna a augum hans þykja
benda til þe;.s að þau muni ekki
vera alvarlega sködduð.
Menn hafa verið að velta því
fyrir sér hvers konar hylki það
hafi verið, sem pilturnir fundu.
Er helzt ha.xast að þeirri skoðun
að þetta haíi verið neyðarblys.
Frum-
sýning
NÝTT leikhús frumsýnir í
kvöld í Framsóknarhúsinu
gamanleikinn „Astir í sótt-
kví“ eftir Harold Brooke
og Kay Banrierman.
Leikstjori er Flosi Ólafs-
son, en leikendur Elín
Ingvarsdóttir, Nína Sveins-
dóttir, Jón Kjartansson,
Baldur Hólmgeirsson og
Jakob Möller.
Nýtt xeikhús sýndi sl.
haust og vetur söngleikinn^
„Rjúkandi ráð“ við ágæta
aðsókn, bæði í Framsókn-
arhúsinu og í Austurbæjar-
bíói. Sýningar voru milli
50 og 30.
„Ástir í sóttkví“ er að
sögn leikstjórans skopleik-
ur (farsi) um hlaupabólu-
faraldur í frönsku Ölpun-
um, ástir og afbrýði.
Meðfylgjandi mynd sýn-
ir leikstjórann á æfingu.
Rannsóknarnetnd kosin
á bœjarstjóra Akraness
ÞAÐ er talið fullvíst að bæjar-
stjórinn á Akranesi, Daníel
Ágústínusson, hafi svikið vist-
fólk á Elliheimilinu þar, um
lögboðið framlag bæjarsjóðs um
uppbót á ellilífeyri samkvæmt
lögum um Almannatryggingar
frá 1956.
Ég undirritaður er fjárhalds-
maður gamallar ekkju, sem nú
um tíma hefur verið til vistar
á Elliheimilinu á Akranesi. Með
tilliti til þess, kallaði bæjarstjór-
inn mig á sinn fund þann 19.
febr. sl. og krafðist þéss, að ég
gerði skil á viðskiptaskuld skjól-
stæðings míns, sem ég og gerði.
Við nánari athugun á reiknings-
uppgjörinu, kom í ljós, að bæj-
arstjórinn hafði krafið þann
hluta ellilífeyris-uppbótanna,
sem bæjarstjóra bar að greiða,
þ. e. 2/5 hluta. Ég krafðist þess,
að bæjarstjóri skilaði aftur þess-
ari upphæð, sem ég álít að hann
hafi ranglega krafið. En hann
hefur allt til þessa neitað að
verða við beiðni minni, og talið
sig vera í fullum rétti.
Samkvæmt lögum um Al-
mannatryggingar frá 1956 hef-
ur uppbót verið greidd á elli-
og örorkulífeyri. Skal uppbótin
samkv. 23. gr. laganna greiðast
Fyrirtœkinu ekki heimilf
að reikna sér þóknun
I GÆR var kveðinn upp dómur
í Hæstarétti í máli, sem Júpiter
hf. hér í Reykjavík höfðaði gegn
borgarstjóranum fyrir hönd bæj-
arsjóðs. 1 undirrétti hafði hf.
Júpiter tapað málinu og þau urðu
einnig úrslit þess fyrir Hæsta-
rétti.
Mál þetta reis út af því, að hf
Júpiter tilkynnti skrifstofu borg-
arstjórans að félagið myndi halda
eftir „sem ómakslaun" vegna inn-
heimtu af útsvarsfjárhæð 2%.
Hafði Júpiter og hf. Marz sent
borgarstjóraskrifstofunni lista
um fé, sem haldið hafði verið
eftir af kaupi starfsfólks félag-
anna. Nam það fé em þannig
hafði verið haldið eftir kr.
20.200. Fyrrnefnd ómakslaun, 2%,
eða kr. 404.00 voru dregnar frá.
Vantaði þar af leiðandi þá fjár-
hæð á að fyrirtækið stæði skil á
umræddum útsvarsgreiðslum
starfsfólksins.
Borgarstjóri leit svo á, að
Júpiter hf. væri ekki heimilt að
reikna sér innheimtuþóknun þá,
sem hér um ræðir. Það var úr
að borgarstjórinn krafðist að lög-
tak yrði látið fram fara í eignum
h f. Júpiters til tryggingar þess-
ari kröfu ásamt dráttarvöxtum.
skrifar ur
dagSegq lifinu
]
• Boðsgestir í stað
fastagesta.
Margir fagna því, að 10 ára
afmælis Þjóðleikhússins skuli
minnzt með svo veglegum
hætti senr fyrirhugað er. Af-
. mælishátíðahöldin byrjuðu
sem kunnugt er í síðustu viku
með sýningu á leikriti Kamb-
ans, „í Skálholti", og síðan
rekur hvar viðburðurinn ann-
an alllang't fram á sumarið.
Ekki eru þó allir sammála
um þessi hátíðarhöld, frekar
en vænta mátti. Og „Velvak-
anda“ hefur þegar borizt bréf
frá einum óánægðum „Leik-
húsgesti", sem m. a. gagnrýnir
það harðlega, að afmæli skuli
vera haldið „hátíðlegtmeðþví
að reka alla fasta frumsýn-
ingargesti úr sætum sínum og
bjóða í þeirra stað um 200
manns, íslenzkum og útlend-
um“. En þetta segir bréfritari,
að gert hafi verið á áður-
nefndri hátíðasýningu.
• List, sem kostar
húsið sýni árlega tvo eða þrjá
óskapnaði, sem fáir eða engir
fást til að horfa á með því
að borga aðgangseyri, aðrir en
hinir föstu frumsýningargest-
ir. Þeir eru því helztu fjár-
hagslegir máttarstólpar Þjóð-
leikhússins, næst skattgreið-
endum, sem greiða hin árlegu
milljónatöp leikhússins, og
hefði verið maklegast, að
frumsýningargestum hefði ver
ið boðið ókeypis á þessa fyrir-
huguðu hátíðarsýningu, í stað
jjeninga
Og hann heldur áfram um
þetta og kostnaðinn við há-
tíðina: „Hvers eiga frum-
sýningargestir að gjalda, að
vera gerðir að hornrekum?
Þeir sækja hverja leiksýningu,
hvaða hrelling sem sýnd er, og
það er algengt orðið, að leik-
þess að reka þá á dyr, úr því
verið er með þá dæmalausu
fordild að verja hundruðum
þúsunda króna í afmælisfagn-
að .... Það gegnir furðu, að
stjórn Þjóðleikhússins skuli
hafa leyft sér að ákveða þetta
afmælisbruðl á kostnað skatt-
greiðenda landsins. Af eigin
rammleik getur leikhúsið ekki
staðið straum af þessu.“
Þarna hafa lesendur „Vel-
vakanda" sem sé heyrt hljóð-
ið í einum bæjarbúa, sem óá-
nægður er með hátíðahöldin
í tilefni af 10 ára afmæli Þjóð-
leikhússins, sem við eigum þó
vonandi sem flest eftir að hafa
einhverja ánægju af.
•^Önnur^jniki^hátíð
Það eru fleiri en við, sem
undirbúa hátíðarhöld um þess
ar mundir. í Englandi starfar
nú fjöldi manns við marghátt-
aðan undirbúning að brúð-
kaupi Margrétar Rósu prins-
essu og Antons elskhuga
hennar. Og sennilega blöskrar
„Leikhúsgesti" og * reyndar
fleirum kostnaðurinn við þá
hátíð, sem áætlað er að nema
muni andvirði a. m. k. 2!4
milljón íslenzkra króna í
brezkri mynt. Er það um 5
sinnum hærri upphæð en var-
ið var til brúðkaups Elísabetar
og Filippusar árið 1947, enda
var þá hagur brezkra þrengri.
En í hvað fara öll þessi ósköp?
spyr kannske einhver. Jú,
svona t. d. má nefna nær
1.000.000 rósir, sem í virðingar
skyni við síðara nafn brúðar
skreyta munu spölin milli
Buckingham konungshallar-
innar og Clarence House, bú-
staðar prinsessunnar í Lund-
únum. — Þó að kostnaðurinn
verði mikill, mun áreiðanlega
einhverjum finnast, að ekki sé
hann of mikill, eftir allt það
sem Margrét Rósa hefur orðið
að ganga í gegnum á langri
og strangri leið sinni í „það
heilaga".
að 2/5. af hlutaðeigendi sveit-
arsjóði, og að 3/5. af Trygging-
arstofnun ríkisins. Tryggingar-
stofnunin ákveður upphæðina,
að fengnum tillögurr.sveitarstjórn
ar. Það er íkilyrði fyrir því, að
Tryggingarstofnunin greiði sinn
hluta, að hlutaðeigandi sveitar-
sjóður greiði jafnframt sinn hluta
uppbótarinnar. Þessi ákvæði
tryggingarlaganna eru mjög
skýr, og taka af öll tvímæli í
þessu efni.
Nú er svo komið að bæjar-
stjórnin hefur látið mál þetta
til sín taka. Var einróma sam-
þykkt á síðasta fundi bæjar-
stjórnar Akraness, að kjósa 3
manna nefndð og skal henni falið
að rannsaka störf bæjarstjórans,
er að þessu lýtur. í nefndina
voru kjörnir Þórhallur Sæmunds
son, bæjarfógeti, Guðmundur
’Sveinbjörnsson forstjóri, og Jón
Guðmundsson sjúkrasamlags-
gjaldkeri.
Það er langt gengið í nirfils-
hætti opinbers embættismanns,
þegar hann reynir á þennan hátt
að níðast á gömlu fólki og hafa
ranglega af því réttmætar bæt-
ur. Það verður fróðlegt að fylgj-
ast með störfum rannsóknarinn-
ar, og að hvaða niðurstöðu hún
kemst, undir forsæti bæjarfóget-
ans. Læt ég svo útrætt um mál
þetta að sinni.
Akranesi, 12. apríl 1960.
Jón Bjarnason.
Sem fyrr segir urðu úrslit í hér
aði þau, að lögtaksgjörð skyldi
fram fara. Hæstiréttur staðfesti
dóminn, sem fyrr segir, og segir
m. a. í forsendum hans:
„Með atvinnurekstri sínum og
ráðningu starfsmanna, er kaup
hljóta, til hans hefur áfrýjandi
gengizt undir kvöð samkvæmt
29. gr. laga nr. 66/1945 um út-
svör að halda eftir af kaupi starfs
mannanna upp í útsvarsskuldir
og felst hvorki í nefndri 29. gr.
né öðrum réttarreglum heimild,
er veiti áfrýjanda rétt til ómaks-
launa af hinu innheimta útsivarL
Með þessari athugasemd ber að
staðfsta hinn áfrýjaða úrskurð.
Eftir þessum úrslitum ber að
dæma áfrýjanda til áð greiða
stefnda málskostnað fyrir Hæsta-
rétti, sem ákveðst kr. 4000.00.“
Ingólfi Arnarsyni
ekki brevtt
, •/
BÆJARUTGERÐ Reykjavíkur
hefur nú horfið frá fyrri ákvörð-
un sinni um að láta breyta tog-
aranum Ingólfi Arnarsyni í diesel
skip. Áformað var að sú breyting
yrði framkvæmd um leið og skip-
ið færi í 12 ára flokkunarviðgerð.
Við gengisbreytinguna í vetur
hefur viðhorfið til slíkra breyt-
inga á skipinu gerbreytzt vegna
kostnaðar. Aftur á móti hefur
verið ákveðið og samið við Lands
smiðjuna, að hún framkvæmi
flokkunarviðgerðina á togaran-
um. Hefur bæjarráð fallizt á til-
boð smiðjunnar til verksins, sem
hljóðar upp á 2,3 milljónir kr.
Athugasemd varð-
andi blóðsega-
varnir
TIL þess að fyrirbyggja mis-
skilning vil ég taka fram að sega
vörnum er að sjálfsögðu beitt við
sjúklinga á Bæjarspítala Reykja-
víkur og á ýmsum sjúkrahúsum
úti á landsbyggðinni, en í viðtali
okkar Theodórs Skúlasonar lækn
is við fréttamenn blaða og út-
varps þ. 12. þ. m. var eingöngu
rætt um framhaldsmeðferð fólks
með kransæðasjúkdóma eða blóð
sega í útlimaæðum.
Sig. Samúelsson.