Morgunblaðið - 27.04.1960, Síða 10

Morgunblaðið - 27.04.1960, Síða 10
10 MORCVNBLAÐIÐ Miðvik'udagur 27. apríl 1960 Æviskrár Dala- manna „GAMALL Dalamaður", ónafn- greindur, fer á flot í Tímanum 30. marz sl. og ritar greinarstúf, er hann nefnir: Hver verður hlutur Dalamanna? Ræðir hann um væntanlega útgáfu bókar eftir sr. Jón Guðnason, fyrrv. skjalavörð, þ. e. æviskrár Dala- manna frá 1703—1960. Greinarhöfundur virðist bera mikinn kvíðboga fyrir því, að hlutur Dalamanna verði smár til styrktar hinni kostnaðarsömu út- gáfu. Er helzt á honum að skilja, að hann telji allt menningalíf í Dalasýslu vera að því komið að kulna út, væntanlega eftir að hann sjálfur fluttist suður „á mölina“. Kveðst hann hafa heyrt, að Dalamenn hafi ákveðið að styrkja þetta fyrirtæki með 5.000,00 kr. framlagi. Muni þó láta segja sér þetta tvisvar áður en hann trúi. (Njáll gamli á Berg þórshvoli lét þó segja sér þrisv- ar, áður en hann trúið frásögn af óvæntum atburði.) — Umræddur greinarhöfundur ber saman hið rausnarlega fram- lag Strandamanna til útgáfu sr. Jóns Guðnasonar að Stranda- mannabók árið 1955, kr. 30.000,00 og hlut Dalamanna, kr. 5.000,00 er um getur í heimildum hans. ftrekar í greinarlok, að nú reyni á menninguna í Dölum vestur. Þar sem áðurnefndur greinar- stúfur gefur efni til villandi hug- mynda, verður ekki hjá því kom izt að gera örstutta grein fyrir þessu máli. Vorið 1958 var 3 manna nefnd kosin á aðalfundi sýslunefndar Dalasýslu til að ræða við sr. Jón Guðnason, skjalavörð, og kynna sér, hvort vænta mætti bókar frá honum um Dalamenn í svipuðu formi og bókar þeirrar er hann hafði áður samið og gefið út um Strandamenn. Skyldi nefndin vinna að því, að hugmynd þessi kæmist í framkvæmd. í nefnd þessa voru kjörnir Geir Sigurðs- son, bóndi, Skerðingsstöðum, Ein ar Kristjánsson, skólcistjóri, Laugarfelli, og undirritaður. Nefnd þessi lagði athuganir sínar fyrir sýslufund 1959. Var þar ákveðið, að hún skyldi starfa áfram. Jafnframt var samþykkt, að veita fjárhæð, er samtals nem ur röskum 10 þúsundum króna sem fyrsta framlag af hálfu sýsl- unnar til þessa verks. Það skal ekki dregið í efa, að Stranda- menn hafa styrkt sr. Jón mynd- arlega, þegar hann bjó æviskrár þeirra undir prentun. Hitt er mér kunnugt um, að til heildarfram- lags þeirra var safnað á mörgum árum og nokkur hluti þess ekki greiddur fyrr en eftir að bókin kom út, enda hafa sýslusjóðir yfirleitt lítið fé til ráðstöfunar fram yfir árleg útgjöld. Nefndarmenn hafa oftsinnis rætt við sr. Jón Guðnason um þetta mál. Þeim er vel ljóst, eins og raunar Dalamönnum má öll- um ljóst vera, að hann hefur unnið geysimikið og óeigingjarnt starf í þágu þeirra allra, for- feðra þeirra og niðja, með söfn- un sinni. Starf, sem í sjálfu sér er alveg ómetanlegt, og fáir eða engir væru færir um að taka að sér í dag. Veldur þar mestu um náinn kunnugleiki sr. Jóns af Bjarni Helgason: Jarö- vegur ÍSLENDINGAR hafa sjaldan sýnt skógunum mikinn sóma, frekar en svo mörgum nátt- úrunnar stöðum, sem í alfara- braut hafa lent. Stundum hef- ur verið skákað í skjóli dag- legra þarfa eða þá þekking- arleysis, eins og landnáms- menn fyrr á tímum gerðu þegar þeir ruddu skógana, rifu hrís og gerðu til kola. Og merkin sýna líka verkin, því að óvíða finnst lengur nema lágvaxið og kyrkings- legt birkikjarrið þar, sem bezt er, en annars staðar hef ur því verið eytt með öllu. En jafnframt eyðingu skóg- anna hófst sú landeyðing, sem víða stendur enn í dag, þótt hún annars virðist hafa náð hámarki á stöku stað. Svo er nú komið, að gróið land á íslandi er í dag aðeins talið nema um 16.000—18.000 fer- kílómetrum, en á landnáms- öld er talið, að það hafi num ið a. m. k. 40.000—50.000 fer- kílómetrum. Þetta land var einnig að miklu leyti talið trjágróðlri vaxið þótt sá gróð- ur hafi nú rýrnað svo, að ekkx mun hann þekja meira en um 1000 ferkílómetra lands. En það, sem landnámsmönn unum sást yfir, var hið nána °g þýðingarmikla samband milli skógargróðursins og jarðvegsins. Eftir athöfnum þeirra að dæma virðist þeim alls ekki hafa verið ljóst, hví- líkum spjöllum óhófsgræðgin gat valdið á öllum gróðri. — Að vísu sýnast skógar ekki skipta miklu máli á íslandi í dag og er þar sannarlega af, sem áður var. En hvort hér hafa verið stórskógar í venju- legum skilningi, skal ósagt látið, enda skiptii það í sjálfu sér ekki miklu máli. Kjarx-- gróður hefur þó verið hér mikill. Um það eru flestir sammála, en hins vegar hafa skoðanir verið æði ólíkar um mikilvægi þessa kjarrs. Þrátt fyrir það, að skoðanir hafi verið ólíkar í þessum efnum, er engum blöðum um það að fletta, að fátt veitir jarðveginium betri vernd Birkikjarrið verður kyrkingslegt og venjulega lágvaxið, þar sem nýgræðingurinn fær ekki tækifæri til að njóta sín vegna óhóflegrar fjárbeitar. — Við Þingvallavatn t. d. var áður fyrr mikill kjarrgróður en leifum hans er nú búin sömu örlög og birkitrjánna á þessari mynd, og í Grafningi dregur sauðfé margra fram lifið á hrörnandi birkikjarri og lynggróðri. og skógargröður gegn hinum eyðandi öflum en einhvers konar trjágróður. Það er staðreynd, hvar sem er á jörðu, að hafi trjágróðr- inurh verið eytt og landinu breytt í svokölluð ræktarlönd eða beitarlönd, þá hefur fljót- lega stefnt til ófarnaðar. Fyrr á tímum var sú venja að taka frá jarðveginum, en láta ekk- ert í staðinn. Svipað á sér stað enn í dag, þegar bextar- löndin eru annars vegar, því að alls staðar þar sem hjarð- mennska í einjhverri mynd ræður ríkjum, er stefnan eða stefnuleysið hið sama. Hjarð- mennirnir taka það, sem hægt er, frá jörðinni og flytja sig svo um set og þannig getur það gengið koll af kolli, svo að til örtraðar horfir. Reynsx- an hefur þess vegna kennt mörgum, að frjósemi jarðar- innar minnkar og hverfur með öllu, ef ekki er að gætt. Skefjalaus átroðningur og beit koma í veg fyrir, að jarð- vegurinn nái sér nokxturn tíma og nýgræðingurinn er bitinn jafnóðum og hann birt- ist. Síðan fær landið sár, sem ekki gróa, og jarðvegurinn eyðist smátt og smátt. 1000 ár hafa liðið og hið furðulega skeður, að enn eru til og kveðja sér hljóðs menn, sem sýnast virða þessar stað- reyndir alveg að vettugi. Meira að segja dreifa þeir fáránlegum fullyrðingum út yfir landslýðinn, þegar þeir gefa í skyn, að heillaráðxð tii að bæta gróðurástand bithag- anna sé bara að hafa nðgu margt og líklega líka nógu soltið sauðfé, og nota hag- lendin þannig meira en nokkru sinni fyrr. — Jafnvel hefur einhverjum dottið í hug, að samsetn- ing andrúmsloftsins hér á ís- landi væri allt önnur en í gróðurmeiri löndum, og þetta á að vera orsökin að gróður- leysi landsins. Hér við er það að athuga, að engar rann- sóknir eru til um andrúms- loftið á íslandi auk þess, sem ekkert bendir til, að samsetn- ing andrúmsloftsins hér sé eitthvað stórlega frábrugðin því, sem víðast er annars stað- ar. Allt tal í þessa átt verð- ur því að teljast ímyndun ein. En svona geta verið, þótt. ótrúlegt sýnist, bollalegging ar og heillaráð þeirra manna, sem sýnast loka augunum fyrir staðreyndum — bar* bíta meira, þá mun betur gróa! Það er staðfeynd, sem eng- inn fær breytt, hve viljugur sem hann reynist, að hrörnun trjálendanna er talin eitt mesta böl allra landa, nema vel sé verið á verði. En fáir hafa skeytt því á Islandi og enn færri verið á verði. Að- eins sárafáir menn og það rétt síðustu árin. En þar er við ramman reip að draga, því að til eru þeir menn, sem einskis virða viðleitni ann- arra til að bæta það, sem ílla er farið og sem einskis virða verðmæti þeirra manna, sem gert hafa skógrækt og land- vernd alla að sínu áhugamáli. Ástæðan í dag er auðvitað sú, að löggjafinn hefur sett hina síðarnefndu skör lægra en hina, sem aðeins hugsa um sitt daglega brauð. — I næstu grein verður gerð nánari grein fyrir þeim vandamál- um, er að steðja hjá peim, sem leggja stund á aðra en styrkhæfa ræktun. Pólýíónkórinn heldur tónleika mönnum og málefnum þessa hér- aðs á langri ævi, rík hneigð til fróðleiks af þessu tagi og þrot- laus heimildasöfnun um áratugi. Dalamönnum er og áreiðanlega full ljóst, að slík bók verður ekki gefin út nema með ærnum kostn aði. Þess vegna hafa þeir ákveðið að veita höfundi allan þann stuðning, sem unnt er, til þess að hrinda þessu áformi í fram- kvæmd. Hver sá styrkur verður að krónutölu er ómögulegt að segja um á þessu stigi málsins. Undanfarna mánuði hefur ver- ið unnið að söfnun mynda heima í héraði, svo og áskrifenda. Hef- ur hvorttveggja gengið vel. Svo er til ætlazt, að greiðsla fylgi hverri mynd upp í kostnað við gerð myndamóta. Hefur þegar safnazt veruleg fjárhæð í þessu skyni. Þá hafa nefndarmenn og haft samband við Dalamenn ut- an héraðs, svo sem á Snæfells- nesi, um Borgarfjörð og Breið- firðingafélagið í Reykjavík. — Og það eru einmitt menn eins og hinn „gamli Dalamaður", höf- undur greinarstúfsins í Tíman- um, sem geta og eiga að leggja þessu málefni gott liðsinni, ekki síður en þeir, sem enn byggja Dali. Menn sem nú orna sér i höfuðstað landsins og víðar við arineld minninga um „Þá and- legu reisn, sem jafnan hefur þótt einkenna Dalamenn frá fyrstu tímum“, eins og greinarhöfundur kemst að orði. Með þátttöku sinni og stuðningi geta þess- ir menn lagt fram drjúgan skerf til að halda uppi minningu for- feðra sinna, sem áður fyrri gerðu garðinn frægan hér um slóðir. Eitt geta Dalamenn vonandi allir gert, hvar sem þeir eru nú bú- settir, en það er að kaupa bók- ina, þegar hún kemur út. Það eitt yrði útgáfunni áreiðanlega drjúgur styrkur. Ef Dalamenn heima og heiman taka höndum saman og veita sr. Jóni Guðna- syni allan þarin stuðning, er þeir mega, til að framkvæma þetta verk, efast ég ekki um, að ævi- skrár Dalamanna verði gefnar út innan skamms, höfundi til sóma og ungum og öldnum Dalamönn- um til gagns og gleði um kom- andi ár og aldir. Friðjón Þórðarson f DAG, morgun og föstudag held ur Pólýfónkórinn í Reykjavík hljómleika í Kristskirkju. Á efmsskrá kórsins eru nú ein- göngu trúarleg verk, Einar Sturluson syngur einsöng og Árni Arinbjarnarson leikur einleik á orgel. Þá er fyrirhugað að kór- inn haldi sérstaka skólat'ónleika, fyrir nemendur framhaldsskól- anna, en ekki ákveðið hvenær þeir verða. Efnisskránni má skipta í þrjá hluta. í fyrsta lagi verður flutt tónlist frá 16. og 17. öld Kórinn flytur verk eftir Heinrich Schútz, Hans Leo Hassless, Josquin des Prés, Giovanni P. Palestrina, Al- essandro Scarlatti og Árni Arin- bjarnarson leikur prelúdíu og fúgu í G-moll eftir Dietrich Bux- tehude. í öðru lagi verða fluttir þætfir úr kantötum og óratoríum eftir Bach og Hándel, og syngur Einar Sturluson m.a. tvö lög eftir Bach. í þriðja lagi eru nútímaverk, Mótetta eftir Hugo Distler og þýzk messa eftir Jóhan Nepomuk David. Messan, sem er samin 1952 er veigamesta verkið, sem flutt verður. Er hún mjög nýstárleg, byggð á miðaldastefjum og unnin í tólftóna kerfi. Tónleikar þessir eru hinir fjórðu, sem Pólýfónkórinn held- ur opinberlega, en þeir hafa jafn an þótt viðburður í tónlistarlífi bæjarins og fengið sérlega góða dóma gagnrýnenda. Söngfélagar kórsins eru nú 44. Pólýfónkórinn var stofnaður árið 1957. Markmið hans er að iðka og kynna fagra tónlist, kirkjulega og veraldlega, gömul verk og ný. Raddþjálfun hefur farið fram á vegum kórsins, sem að mestu leyti er skipaður ungu fólki. Söngstjóri kórsins er Ingólfur Guðbrandsson og stjórn hans skipa Stefán Þengill Jónsson, Ás- geir Guðjónsson og Kristín Ólafs- dóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.