Morgunblaðið - 05.05.1960, Side 1
24 siöur
47. árgangur 101. tbl. — Fimmtudagur 5. maí 1960 Prentsmiðia Morgunblaðsins J
Vildu fara inn fyrir 12 mílna mörkin —
lerskipið neitaði vernd
Landhelgisdeilan rædd í brezka þinginu í gær
Brezkur blaðamaður spurði:
Ætlið þið oð toko togorono ?
í GÆR dró til tíðinda á miðunum við ísland, þegar
brezkir togaraskipstjórar hugðust gera tilraun til
að toga inn fyrir 12 mílna fiskveiðitakmörkin út af
Vestfjörðum og Hvalbak, sem er undan suðaustur
ströndinni, eins og kunnugt er. í fréttastofuskeyt-
um til Morgunblaðsins í gær segir, að rétt muni, að
brezkir togarar haii farið inn fyrir 12 mílna tak-
mörkin.
Þegar Morgunbiaðið spurðist fyrir um þetta mál
hjá Pétri Sigurðssvni í gærkvöldi, sagðist hann vera
nýbúinn að fá skeyti frá varðskipinu Þór, sem gætti
landhelginnar fyrir austan: — Það er augljóst, sagði
forstjóri landhelgisgæzlunnar, að togararnir hafa
verið að reyna að koma af stað illindum. Þeir toguðu
við og rétt innan við-12 mílna takmörkin, en brezka
herskipið ,sem þarna var statt neitaði að vernda þá
innan markanna. Við verðum að bíða átekta og sjá,
hvort dregur til frekari tíðinda í nótt.
í fréttastofuskeytunum segir:
Margir þingmenn neðri deildar
brezka þingsins gagnrýndu í dag
þá ákvörðun stjórnarinnar að
láta ekki herskip vernda brezka
togara við veiðar innan 12 mílna
fiskveiðimarkanna við ísland. —
Um sama leyti bárust þær fréttir
frá Grimsby, að allmargir brezkir
togarar hefðu þegar farið inn iyr-
ir 12 mílna línuna.
★ HEIMTAÐI VERND INN
AÐ 4 MÍLUM
Ihaldsþingmaðurinn Patrick
Wall hélt því fram, að stjórnin
verði að taka af öll tvímæli um
það, að brezkir togarar skuli njóta
herskipaverndar allt inn að 4
míina línunni við ísland. — For
mælandi stjórnarinnar sagðist
hins vegar ekki geta gefið neitt
endanlegt svar í því máli. — Ef
það sést frá herskipunum ,að fiski
skip okkar verða fyrir áreitni ís-
lenzkra varðskipa, þá verður það
að sjálfsögðu á valdi skipherr-
anna á herskipunum að gera við-
eigandi ráðstafnir, sagði formæl-
andinn.
★ EKKI SVIPT NEINUM
RÉTTI
Einn af þingmönnum Verka-
mannaflokksins lagði áherzlu á,
að öll brezk skip á leið um höfin
ættu kröfu til verndar af hendi
herskipaflota Stóra-Bretlands. —
Annar Verkamannaflokksþing-
maður, Tom Fraser, sagði, að skip
stjórar herskipanna ættu kröfu
til ótvíræðra fyrirmæla frá ríkis
stjórninni í þessu máli. — For-
mæiandi flotamálaráðuneytisins
andmælti því að stjórnin hefði
svipt brezk skip nokkrum þejm
rétti til verndunar, sem þau ættu
kröfu til samkvæmt stjórnar-
skránni. — Kvað hann stjórnar-
völdin vera að reyna að efla anda
góðvilja í þessu máli og leysa
vandann, eftir að Genfarráðstefn
an endaði án árangurs.
★ FRÉTTIN TALIN RÉTT
Fregnir þær, sem bárust til
Grimsby í dag, um að all-
margir brezkir togarar hefðu
farið inn fyrir 12 mílna mörk-
in við Island, eru taldar rétt-
ar — og sömuleiðis það, sem
henni fylgdi, að herskipin,
sem eru þar togurunum til
verndar, hafi ekkert vald til
þess að stöðva þá, segir loks
í fréttastofufregnum.
BLAÐAMAÐUR UM BORÐ
Þegar Morgunblaðið spurð-
ist fyrir um þessa frétt í gær-
kvöldi hjá Pétri Sigurðssyni
og Kristjáni Júlíussyni, yfir-
loftskeytamanni Landhelgis-
gæzlunnar, sögðu þeir,
að tveir brezkir togarar
hefðu snúið sér til brezka
herskipsins við Hvalbak og
spurt, hvort þeir mættu fara
inn fyrir 12 mílna takmörk-
in. Herskipið svaraði því til,
að það hefði ákveðin fyrir-
mæli um að veita togurunum
enga vernd innan 12 mílna
markanna.
Eftir þessi orðaskipti milli
Bretanna tóku nokkrir togar-
ar sig út úr og sigldu upp að
mörkunum, en Þór fór í hum-
átt á eftir og benti þeim á,
að þeir skyldu færa sig utar,
þar sem þeir væru að toga um
og rétt innan við íslenzku
fiskveiðitakmörkin. Höfðu
Framh. á bls. 2.
Að vísu í lögreglubíl, en ekki á leið í „Steininn'*
Ungbarn í óskilum
I GÆRMORG-
UN var tekinn
vagn með 10
mán. gamalli
telpu við heim-
ili hennar á
Stýrimannastíg
7, og hann skil-
inn et'tir við
verzl. Krónan á
Vesturg. Svaf
telpan hin ró-
legasta á þessu
ferðalagi og
vaknaði ekki
fyrr en lögregl-
an var búin að
taka hana í sín
ar hendur og
setja auglýs-
ingu um að hún
hefði óskila-
barn í útvarp-
ið. Ekki er vit-
að hver valdur
var að þessu
„barnsráni".
Telpan litla
var að venj u
látin út í vagn-
inn sinn um kl.
hálf tólf eftir
að hún hafði
fengið s í n a
morgunhress-
ingu.og stóð vagninn í garðin
um bak við húsið á Stýri-
mannastíg 7. Þar er hún vön
að sofa langan miðdegisblund.
Enginn kannaðist við barnið
Um kl. hálf eitt var hringt
til' Sigríðar Sum'arliðadóttur,
lögreglukonu, og henni til-
kynnt að barn mundi vera í
óskilum við verzlunina Krón-
an á Vesturgötu. Höfðu kaup-
mennirnir veitt því athygli að
barnavagn var búinn að
standa í þrjá stundarfjórð-
unga fyrir utan búðina og
höfðu árangurslaust grennsl-
azt fyrir um hver ætti hann.
Hringdu þeir á lögregluna og
fóru lögregluþjónar í húsin í
kring, en enginn kannaðist við
barnið.
Sigríður Sumarliðadóttir
kom þá og sótti barnið og fór
með það niður á lögreglustöð.
Var síðan skotið tveimur aug
lýsingum um bgrn í óskilum
inn í þáttinn „Við vinnuna“ í
útvarpinu.
Amma barnsins heyrði aug-
lýsinguna og fór að gæta að
litlu telpunni, sem átti að sofa
úti í garðinum, en hún var á
bak og burt. Lögreglan ók svo
telpunni heim til hennar.
— Þetta er yndisleg telpa,
sagði Sigríður er við leituðum
hjá henni upplýsinga um þetta
í gær. Hún vaknaði á lögreglu
stöðinni og var hin bezta.
Gert af óvitaskap?
Ekki kvað hún vitað hver
hefði tekið vagninn og flutt
hann, en sagði að amma telp-
unnar teldi að börn hefðu gert
það í óvitaskap. Þó getur tæp-
lega hafa verið um mjög litla
krakka að ræða, því bremsan
var á vagninum í garðinum og
hún hafði verið sett aftur á
hann þar sem hann var skilinn
eftir við verzlunina.