Morgunblaðið - 05.05.1960, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimíntudagur 5. maí 1960
Hefur rekstur M8F
versnaö?
Skorað á Framsóknarmenn að gefa
skýringar
1 FYRRADAG ritaði Mbl. um
hinn slæma rekstur Mjólkur-
bús Flóamanna, sem það hafði
áður getið um. Nú var beinlín-
is skorað á Framsóknarmenn
að skýra í hverju hin slæma
afkoma væri fólgin og þá um
leið að hrekja þá staðhæfingu,
að Mjólkurbúið hefði um 9
þús. krónur af hverjum bónda
árlega fram yfir það, sem eðli
legt gæti talizt.
Að frátöldum venjulegum
skætingi svarar Tíminn því
einu til, að Mbl. birti „alls kon
ar tölulega útúrsnúninga".
Gefur það tilefni til að skora
á Tímann að skýra í hverju
þeir útúrsnúningar séu fólgn-
ir, svo að hægt sé að brjóta
mál þetta til mergjar í mál-
efnalegum umræðum, og skal
ekki standa á Mbl. að fallast á
þær skýringar, sem réttmætar
geta talizt, því að það hefur
engan á'huga á að haila réttu
máli.
Tíminn minnist heldur ekki
á þann skilning Mbl. á ummæl
um stjórnarformanns MBF og
kaupfélagsstjóra K.Á., að til-
gangur stjórnenda þessara
fyrirtækja sé að gera bændum
erfitt fyrir að verzla, þar sem
viðskiptakjör eru bezt, og
hins vegar, að K.Á. dragi sér
vísvitandi fjármuni frá MBF.
Væri fróðlegt, að fá einnig
skýringar Tímans á þessum
ummælum kaupfélagsstjórans.
„En við gerum þetta til þess
að það sé verra að „konku-
rera“ við þau“.
Um leið og Tíminn í gær
hliðrar sér hjá að ræða þessi
mál, þá segir blaðið:
„Mbl. er í gær steinhljótt
um þessa bergmálun „verka-
lýðsleiðtoga síns“,“ og er þar
átt við ummæli formanns
Iðju um það, að bændur
byggju við góðan hag.
Þessum ummælum mót-
mælti Mbl. þó á tveim stöðum,
svo að ekki er ofsagt, að blaða
mennska Tímans sé hreystileg,
þó að hún sé ekki að sama
skapi heiðarleg fremur en
fyrri daginn.
Mbl. mun, nema sérstakt til
efni gefist, láta þetta mál
kyrrt liggja í nokkra daga til
að gefa stjórnendum Mjólkur
búsins enn gott tækifæri til að
koma skýringum á framfæri.
Forysfumenn svert-
ingja fangelsaðir
JÓHANNESARBORG, S-Afríku,
4. maí (Reuter). — Robert So-
bukwe, Íeiðtogi Al-afríska sam-
bandsins (samb. blökkumanna),
sem stjórn Verwoerds bannaði
fyrir nokkru, var í dag dæmdur
í 3 ára fangelsi. Honum var gef-
ið að sök að hafa hvatt blökku-
menn til að brenna vegabréf sín
og æst til andstöðu við stjórnar-
völdin á ýmsan hátt. — Fjórir
aðrir stjórnarmenn sambandsins
voru dæmdir til 2 ára fangavistar
— og 14 hlutu 18 mánaða fanga-
vist. — Nokkrar ryskingar urðu
úti fyrir dómhúsinu milli þel-
dökkra manna og lögreglu í sam
bandi við réttarhöldin, en engan
sakaði.
★
A meðan þessu fór fram var
Eining á NATO-fundinum
— Honum lauk í gœr
Miklagaröi, Tyrklandi,
lf. maí. — (Reuter). —
RÁÐHERRAFUNDI Atlants-
hafsbandalagsins lauk form-
lega í dag, en afgreiðslu mála
varð að mestu lokið í gær. —
Eftir fundinn var gefin út
sameiginleg yfirlýsing, þar
sem m. a. er lýst einróma
stuðningi við sameiginlega
afstöðu vesturveldanna fyrir
fund æðstu manna austurs og
vesturs í París — en segja
má, að sú ráðstefna og undir-
búningur hennar hafi verið
meginumræðuefni NATO-
fundarins.
— :k —
í yfirlýsingunni segir enn
fremur, að Þjóðverjar sjálfir
verði að fá tækifæri til að segja
til um það, hvort þeir vilji að
land þeirra sameinist og með
hverjum hætti. Enn fremur er
lögð áherzla á rétt vesturveld-
anna til þess að hafa her í Vest-
ur-Berlín og verja frelsi borg-
arinnar.
Fundurinn lýsti yfir fullum
stuðningi við afvopnunartillög-
ur þær, ^sem fimm af meðlima-
þjóðum bandalagsins hafa lagt
fyrir afvopnunarráðstefnu aust-
urs og vesturs í Genf, en henni
hefir nú verið frestað þar til
eftir fund æðstu manna — án
4fli Akranesbáta
mun mein en
í fyrra
AKRANESI, 4. maí. — Sigrún
er aflahæst Akranesbáta á vetr-
arvertíðinni frá janúarbyrjun til
aprílloka með 1054,3 lestir. Heild
arafli bátanna á þessum tíma er
13765 lestir, en á sama tíma í
fyrra var heildaraflinn 10212
Aflinn er því nú yfir hálft fjórða
þúsund lestir meiri en í fyrra.
10 bátar eru á sjó i dag. 5 bát-
ar lönduðu í gær. Rýr afli 3—4
lestir á bát. 8 bátar hér eru hætt-
ir á þorskanetjunum. Asbjörn var
a reknetjum í nótt suður í Mið-
ressjó, en fékk ekkert, því síldin
stóð of djúpt. Afli trillubátanna
er sáratregur enn sem komið er.
Versta veðar, er Hanne S. hvorf
L EIT IN að danska skipinu
Hanne S., sem saknað hefur ver-
ið síðan sl. fimmtudagskvöld,
heldur áfram. í gær barst blað-
inu svohljóðandi skeyti frá loft-
skeytamanninum á Úranusi:
Grænlenzka útvarpið sagði frá
„Sókn44 í Keflavík
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn
í Kefiavík, heldur aðalfund
Sjálfstæðishúsinu, í Keflavík
kvöld kl. 9 síðd.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Að fundi loknum verður sam-
Ciginleg kaffidrykkja og spiluð
féiagsvist.
Sjálfstæðiskonur eru bcðnar að
fjölmenna a fundinu.
því í gærkvöldi, að fundizt hefði
brak úr björgunarbát með til-
heyrandi varahlutakassa, dýpt-
armæli og planka og dóti, m. m,,
tveim óáteknum kössum af Carls
berg. Talið er að þetta tilheyri
Hanne S.
Norskur bátur, sem kom til
Færeyingahafnar í dag, var stadd
ur út af Hvarfi um líkt leyti og
síðast heyrðist í Hanne S. Skip
stjórinn kvaðst hafa séð tvö
siglingaljós á skipi, er gætu
hafa verið á Hanne S. Hann
kvaðst ekki hafa komið í verra
veður. Sama sögðu skipstjór-
ar á fleiri ndrskum bátum, sem
voru á vesturleið.
Flugvélar og varðbáturinn
Thesis leita ásamt veðurskipinu
Alpha. Einnig verður gengið á
fjörur. —O.B .
Flugvélar af Keflavíkurflug-
vélli gátu ekki tekið þátt í leit-
inni í gær vegna veðurs, austan
stoims.
þess nokkuð hafi þokazt í sam-
komulagsátt. Lýsti fundurinn
vonbrigðum sínum vegna af-
stöðu Sovétríkjanna og banda-
manna þeirra á afvopnunarráð-
stefnunni til þessa.
— ★ —
Fulltrúar lýstu vonum sínum
um, að fundurinn í París leiddi
til bættrar sambúðar þjóða
heimsins, en keppa yrði að „frið-
samlegri sambúð" um allan heim
— ekki aðeins á takmörkuðum
svæðum.
Loks segir í yfirlýsingu fund-
arins, að „tilraunir Sovétríkj-
anna til þess að sverta með
áróðri vestur-þýzka lýðveidið O"
ríkisstjórnir nokkurra annarra
NATO-þjóða séu óvinsamlegar
í garð bandalagsins í heild — og
— Landhelgin
Frh. af bls. 1.
þeir þá góð orð um að færa
sig utar, enda engrar vernd-
ar að vænta.
Þegar hér var komið sögu, bað
blaðamaður frá „Daily Skétch“,
sem var um borð í einum togar-
anna, um viðtal við skipherrann á
Þór og spurði, hvort rétt væri
að varðskipsmenn teldu togar-
ana of nærri landi og var því svar
að til, að svo væri. Blaðamaður-
inn spurði þá, hvort Þór mundi
taka togarana og svaraði skip-
herrann því til, að hér hefði ver-
ið um aðvörun að ræða, en ann-
að mál væri, hvað síðar vrði
gert. Þess má geta, sagði Pétur
Sigurðsson ennfremur, að brezka
herskipið hafði engin afskipti af
þessum orðræðum.
* ÚT AF VESTFJÖRÐUM
Aðspurður skýrði Pétur Sig-
urðsson Morgunblaðinu ennfrem
ur frá því, að hann hefði heyrt
að tveir brezkir togarar hefðu
siglt alveg upp að 12 mílna lín-
unni út af Vestfjörðum, en ekki
farið inn fyrir. Hefði brezka her-
skipið á þeim slóðum rætt mál-
ið við togaraskpstjórann og skild
ist á þeim viðræðum, að herskips
í andstöðu viff tilraunir til aff bæta ástandiff í heiminum“. L menn vildu ekki að togararnir færu nær landi.
NA /5 hnúiar y/ SV 50 hnútar ¥: Snjókoma y 06/ S/ S/rúrír IC Þrumur KuUasht Hitaskit H H*» | L Latq» 1
stjórnin í Höfðaborg að rannsaka
eindregin tilmæli, sem henni
höfðu borizt frá forystumönnum
iðaðar og verzlunar- um að breytt
verði stefnunni í kynþáttamálum
— en efnahagur landsins hefir
orðið fyrir miklum skakkaföllum
udanfarið í sambandi við átökin
í landinu, og margir iðnaðar-
menn eru mjög áhyggjufullir
vegna ástandsins.
Kuldi frá Grænlandi
HITASKILIN og regnsvæðið nótt, en allhvass SA á morgun,
suður af íslandi hreyfast norð rigning með köflum.
ur á bóginn og verða sennilega SV-land til Breiðafj., Faxa-
yfir norðanverðu landinu um fl.mið og Breiðafj.mið: All-
hádegið í dag. hvass austan í nótt, en hægari
Ennþá er kalt á Grænlandi; SA á morgun .rigning með
t. d. 14 stiga frost á Tobin- köflum.
höfða. Það er því ekkert undar Vestf., Norðurl., Vestfj.mið
legt þótt norðanvindurinn sé og Norðurmið: Austan stinn-
kaldur þegar hann blæs þaðan. ingskaldi í nótt, en SA-kaldi
í dag er gert ráð fyrir suð- á morgun, sums staðar rigning.
austan átt og hlýrra veðri en NA-land, Austf. Norðaustur
verið hefir. — í Vestur mið c.g Austfj.mið: Allhvass
Evrópu eru komin vorhlýindi, austan og rigning í nótt, en
eins og sjá má af kortinu. 17 batnai.li veður á morgun.
stiga hiti er í París og 16 stig SAland og Suðausturmið:
í London og Hamborg. Austan hvassviðri og rigning í
Vcðurhorfur kl. 10 í gærkvöldi nótt, en sunnan kaldi og skúr-
SV-mið: Austan stormur í ir á morgun.
Heimta þeir:
Herskipavernd
on löndunar-
bann?
London, h- rnaí.
— (NTB/Reuter). —
I DAG var haldinn fund-
ur yfirmanna á togurum
í Grimsby — fyrir lukt-
am dyrum. —• Sagði tals-
maður yfirmannafélags-
ins, að samþykktir fund-
arins yrðu ekki kunn-
gerðar fyrr en haft hefði
verið samband við félög
háseta og vélamanna —
en yfirmennirnir hefðu
orðið á eitt sáttir um
stefnu sína framvegis.
Góðar heimildir segja
hins vegar, að á fundin-
um hafi verið ákveðið
að biðja ríkisstjórnina
um herskipavernd fyrir
togarana allt inn að 4
mílna línunni gömlu við
ísland — og auk þess
farið fram á, að sett
verði löndunarbann á
erlend fiskiskip í brezk-
um höfnum — og þá
fyrst og fremst íslenzk.
Flufélag íslands
eykur innanlands-
flug sitt
SUMARÁÆTLUN innanlands-
flugs Flugfélags íslands h.f. gekk
í gildi 1. maí sl.
Samkvæmt hinni nýju áætlun,
fjölgar ferðum verulega frá því
sem var í vetur og er gert ráð
fyrir örari flugferðum til ýmissa
staða en sl. sumar. Þannig eru
þrjár ferðir á dag milli Reykja-
víkur og Akureyrar mánudaga,
þriðjudaga, fimmtudaga og föstu
daga en tvær ferðir aðra daga.
Til Vestmannaeyja verða tvær
ferðir á dag nema sunnudaga og
mánudaga, þá ein ferð. Til Isa-
fjarðar og Egilsstaða verða flug-
ferðir alla virka daga og eftir
9. júní hefjast einnig sunnudaga
ferðir til ísafjarðar. Til Horna-
fjarðar verð a þrjár ferðir í
viku. Tvær ferðir á viku verða
til eftirtalinna staða: Fagurhóls-
mýrar, Flateyrar, Húsavikur,
Kópaskers, Patreksfjarðar, Sauð-
árkróks, Siglufjarðar, Þingeyr-
ar og Þórshafnar. Ein ferð á viku
verður til Hólmavíkur og Kirkju
bæjarklausturs og frá Vest-
mannaeyjum til Hellu og Skóga-
sands.
Eftir að Isafjarðarflugvöllur
verður fullgerður og tekinn í
notkun, leggst flug til Flateyrar
niður. Þá er ekki gert ráð fyrir
flugi til Blönduóss í sumaráætl-
un félagsins.