Morgunblaðið - 25.05.1960, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.05.1960, Blaðsíða 1
24 síður 47 árgangur 118. tbl. — MiSvikudagur 25. maí 1960 PrentsmiSia Mo.gtmblaSsins yðilegging og dauði — Flóðbylgjur æða um þvert Kyrrahaf og mola allt, sem fyrir verður Tókíó, Japan og Santiago, Chile, 2Jf. maí — (NTB-Reuter) NÁTTÚRUHAMFARIR þær, sem hófust í Chile sl. laugar- dag, eru nú orðnar svo óskaplegar, að varla eru dæmi slíks á síðari tímum. — í allan dag hafa risavaxnar flóðbylgjur, vaktar af landskjálftunum í Chile, ætt með ógnarhraða um þvert Kyrrahaf og valdið þar slíkri eyðileggingu og dauða. að ógerningur er að gera sér nokkra verulega grein fyrir öllum þeim hörmungum enn. Harðast hafa Japanseyjar orðið úti í þessum hamförum. t birtingu í morgun tóku 10 og allt upp í 15 metra háar flóð bylgjur, sem komu yfir þvert Kyrrahaf, um 14.500 km vega- lengd, með 600—700 km hraða á klst., að æða inn yfir austur- strönd Japans — og eyddu þær öllu, sem fyrir varð. Talið er að þúsundir manna hafi beðið bana og slasazt — og sennilega hundruðu þúsunda misst heimili sín. Fregnir eru þó mjög á reiki, sem fyrr segir. • HIÐ VERSTA AFSTAÐIÐ í CHILE Á Hawaii hefir orðið mjög mikið manntjón og eigna, og fregnir hafa borizt frá Nýja- Sjálandi, Ástralíu, Filippseyj- um og víðar um tjón af völd- um flóðbylgjanna. — Frá Chile herma fregnir hins veg- ar, að hið versta virðist þar af- staðið, þó búast megi við frek- ari jarðhræringum. Fregnir um manntjón tala um allt frá 400 til 900 látna, 15.000 slasaða og hundruð þús. heimilislausra en engan veginn eru öll kurl kominn til grafar enn. — Fróð- ir menn telja þetta ofsalegasta landskjálfta allt frá 1906 — San Francisco-landskjálftinn — aðrir tala hér jafnvel um Gaitskell hrósar sigri London, 24. maí (Reuter). — HUGH Gaitskell ,leiðtogi Verkamannaflokksins, hrós- aði í dag tvöföldum sigri yfir vinstri-armi flokksins, sem vll, að Bretar afsali sér öll- um kjarnorkuvopnum, hvað sem hin stórveldin gera, og segi sig úr NATO — en sú stefna hefir áður hlotið stuðn ing tveggja stærstu verka- lýðsfélaga landsins. Þriðja stærsta félagið, félag bæjarstarfsmanna, hafnaði í dag ályktunartillögu til stuðn ings þessari vinstri-stefnu. Einnig hlaut Gaitskell í dag stuðning meirihluta þing- manna Verkamannaflokksins á fundi, sem haldinn var í London. — Þykir hann nú mjög hafa styrkt aðstöðu sína innan flokksins, en hún hefir verið nokkuð á hverfanda hveli að undanförnu. Á þingi fyrrgreinds verka- lýðsfélags, sem telur um 800 þús. meðlimi, var samþykkt ályktun, þar sem lögð er á- herzla á, að Bretar tryggi bezt öryggi sitt með því að standa við hlið bandamanna sinna innan Sameinuðu þjóð- anna og Atlantshafsbanda- lagsins. harðasta landskjálfta, sem sög- ur fari af. — Stöðugur straum- ur flugvéla hefir verið í dag til þeirra svæða, sem verst eru leikin, og hafa vélarnar flutt hvers konar hjálpargögn til Framh. á bls. 23 Ræða um 12 mílurnar Ósló, 24. maí — (NTB) UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ upplýsir, að hinn 27. þ. m. muni fulltrúar Noregs og Stóra-Bretlands koma saman til fundar til þess að ræða vandamál, sem upp munu koma í sambandi við fyrir- hugaða útfærslu norsku fisk- veiðitakmarkanna í 12 mílur. l> . . /flSendai 'd^JAPAN JSusaki ILuzon HAWAll Hilo Jáy vrah. aj- V"V nýja n J>SfAlAN0 Ay*LyUlelon Vðldivi a<-^ Puerto Mont-t* Cliiloe- A ÞESSU korti efu merktir þeir staðir við Kyrrahaf, sem einna harðast hafa orðið úti í hinum geigvæn- legu náttúruhamförum und anfarinna daga. — Aðal- landskjálftasvæðið í Mið- Chile nær frá hafnarborg- inni Concepcion suður til Chiloeeyjar. Mest tjón hef- ur orðið á þeim stöðum á svæðinu, sem merktir eru. — Vegalengdin frá land- skjálftasvæðinu til Japans er um 14.500 km og bjugg- ust menn ekki við, að flóð- bylgjan færi alla þá leið með slíkum krafti sem raun varð á. Rússum ferst ekki að tala um njósnir Ummæli bandariska og brezka full- trúans í Öryggisrábinu NEW York, 24. maí NTB-Reuter: Öryggisráðið hélt í kvöld áfram umræðu sinni um kæru Rússa út af njósnaflugi Bandaríkjamanna 1. maí sl. — Þar talaði m. a. Sir Pierson T)ixo>i, fulltrúi Breta, og hvatti hann Sovétríkin til að Rússnesk hernaðaryfirvÖld tilkynna: Skilum flugvélinni - sem neydd var til að lenda í A.-Þýzkalandi sl. fösiudag Berlín, 2). maí — (Reuter) RÚSSNESKU hernaðaryfir- völdin í Austur-Þýzkalandi féllust í dag á að skila aftur bandarísku flugvélinni, sem neydd var til að lenda innan landamæra A-Þýzkalands sl. föstudag, og láta lausa alla þá níu, sem í vélinni voru. — „Ahöfnin, farþegarnir og flugvélin afhendast yður á lendingarstaðnum, þegar yð- ur hentar“, sagði í bréfi, und- irskrifuðu af Yakubovsky, yfirmanni herafla Rússa í A- Þýzkalandi, sem afhent var í morgun. Scndinefnd bandarísku hcrnaðaryfirvaldanna í Vest- ur-Þýzkalandi er þegar lögð af stað austur á bóginn til að hitta áhöfn og farþega flug- vélarinnar og athuga, hvort hægt er að fljúga henni á brott. ★ MÓTMÆLI I bréfi rússneska hershöfð- ingjans segir, að flugvélin hafi verið neydd til að lenda, er hún hafði flogið 21 mílu inn yfir aust- ur-þýzkt landsvæði. 1 bréfinu eru borin fram mótmæli vegna þessa atburðar og þess krafizt, að slíkt komi ekki aftur fyrir. 1 flugvél þessari, sem var á leið frá Kaupmannahöfn til Ham borgar, voru 8 bandarískir her- menn og eiginkona eins þeirra. ★ ÁNÆGJA f WASHINGTON AFP-fréttastofan hermir frá Washington, eftir heimildum, sem standa stjórnarvöldunum mjög nærri, að ánægja sé ríkj- andi vegna þessara málaloka. — Er það skoðun manna, að sú staðreynd, að það eru sovézku hernaðaryfirvöldin, en ekki stjórn A-Þýzkalands (sem Banda ríkin viðurkenna ekki), sem hafa afgreitt málið, sýni það, að Krúsjeff leggi áherzlu á að halda fast við yfirlýsingu sína um, að hann vilji ekki breyta núverandi ástandi í Þýzkalands- málunum fyrr en að loknum nýjum leiðtogafundi austurs og vesturs. — Einnig er bent á þau ummæli Heinrichs Raus, vara- forsætisráðherra A-Þýzkalands, fyrr í dag, að hann vonaði, að þetta flugvélarmál reyndist „meinlaust“. Héldu, uð styrj- öldin stæði enn! TOKÍÓ, 24. maí. (Reuter,: — í gær fannst japanskur hermaður á eyjunni Guam — en annar fyrir tveim dögum á reiki um frumskóginn. — Hinn fyrrnefndi kvaðst hafa gengið í herinn 1944 og fljótlega verið sendur til Gu- am — og hefir hann dvalizt þar síðan. — Hvorugur mannanna vissi, að heimsstyrjöldinni væri lokið! reyna enn á ný, áisamt Vestur- veldunum ,að leita varanlegrar lausnar á alþjóðlegum vandamál- um með samningum. Kvað hann brezku stjórnina mundu gera allt. sem í hennar valdi stæði, til að taka upp þráðinn, þar sem hann slitnaði þ. e. flýta tilraunum til að bæta sambúð þjóðanna. • 350 rússneskir njósnarar A fundinum í gærkvöldi svar- aði Cabot Lodge, fulltrúi Banda- ríkjanna, ásökunum Gromykos í upphafi fundarins. Neitaði hann því, að framdar hefðu verið árás- araðgerðir með „þessari einu flug vél“, sem hefði valdið öllum bægslaganginum í París. — Síðan minnti Lodge á það að um 350 rússneskir njósnarar hefðu verið handteknir í ýmsum löndum síð an Stalín lézt 1953 — og kvað Rússum ekki farast að gera veð- ur út af njósnum. Einnig drap hann á Kóreu og Ungverjaland og sagði, að þau dæmi sýndu Ijóst nauðsyn frjálsra þjóða að gæta öryggis síns með öllum ráðum.— Loks kvað Lodge Bandaríkja- menn reiðubúna að semja við Rússa um alþjóðlegt eftirlit úr lofti sem gera mundi allt njósna- flug ónauðsynlegt. • Ályktunartillaga Um það bil sem fundinum var frestað, lögðu Ceylon, Argentína, Ekvador og Túnis fram ályktun- artillögu til málamiðlunar, þar sem m. a. er skorað á stjórnir stórveldanna að halda áfram til- raunum til samkomulags um af- vopnun og bann við kjarnavopna- tilraunum — og að boða til „topp fundar“ á ný sem allra fyrst. Framh. á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.