Morgunblaðið - 25.05.1960, Blaðsíða 4
4
MORCUNBf. AÐIÐ
Miðvikudagur 25. maí 1960
Vinnupallar
í kringum 150 ferm. hús
eru til sölu. Uppl. í síma
34799 á milli 10 og 2.
Vanur sendill
14 ára drengur óskar eftir
vinnu. — Upplýsingar í
síma 10643. —
Gott herbergi
til leigu. — Uppiýsingar í
sima 50233.
2ja—3ja herb. íbúð
óskast til leigu, fyrir ung-
an verkfræðing með konu
og eitt barn. Tilboð sendist
Mbl., merkt: „3812“.
Bamava/n
Silver-Cross, grár að lit,
vel með farinn, til sölu —
Skesseyrarveg 5, Hafnar-
firði. —
Stúlka
rösk stúika 18 ára eða eldri
óskast í efnagerð. Upplýs-
ingar í síma 35313.
Keflavík
1 herbergi og eldhús ósk-
ast. — Uppl. í síma 1992.
Góð varphænsni
150 stk. til sölu strax végha
. flutnings. Uppl. 11257.
Til sölu
lítill sumarbústaður, um 17
Km. frá bænum. — Verð
kr. 12 þúsund. Upplýsingar
í Breiðagerði 19.
Óska eftir ráðskonustöðu
í sveit, yfir sumarmánuð-
ina. Tilb. óskast sent afgr.
Mbl., fyrir 4. júní, merkt:
„Ráðskona — 3931“.
Til leigu
2—3 herb. og eldhús frá 1.
júní til 1. okt. — Upplýs-
ingar í síma 17513.
Unglingsstúlka óskast
til að gæta barna. — Upp-
lýsingar í síma 35485.
3ja til 4ra herb. íbúð
óskast, helzt í Laugarnes-
hverfi. Algjör reglusemi.
Fyrirframgreiðsla. Upplýs-
ingar í síma 35616.
15 ára piltur
óskar eftir atvinnu í sum-
ar. (Hefur skeliinöðru). —
Uppl. i síma 14-7-21.
Af sérstökum ástæðum
er til sölu ný, svört, ainer-
:isk dragt. Suðurgötu 31,
uppi. — Sími 22794.
í dag er miðvikudagurinn, 25. maí,
145. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 05:17.
Síðdegisflæði kl. 17:37.
Vikuna 21.—27. maí er næturvörður
í Lyfjabúðinni Iðunni.
Sömu viku verður næturlæknir í
Hafnarfirði Kristján Jóhannsson, sími
50056.
Holtsapótek og Garðsapótek eru opin
alla virka daga kl. 9—7 og á sunnudög-
um kl. l—4.
Ljósaslofa Hvítabandsins Fornhaga
8 er opin fyrir börn og fullorðna alla
virka daga kl. 2—5 e.h.
Stysavarðstofan er opin allan sólar-
hrlngmn. — Læknavörður L.R. (fyrir
vitjanlr). er á sama stað kl. 18—8. —
Sími 15030.
I.O.O.F. 9 = 1415258 V2 3= Lokaf.
I.O.O.F. 7 = 1415258 V2 s
- M E SS U R -
MESSUR Á MORGUN
Dómkirkjan: — Messa kl. 11 f.h. upp
stigningardag. — Séra Jón Auðuns.
Elliheimilið: —- Guðsþjónusta með
altarisgöngu kl. 10 árd. — Séra Þor-
steinn Björnsson Fríkirkjuprestur og
heimilisprestur annast guðsþjónustuna.
Hallgrímskirkja: — Messa á upp-
stigningardag kl. 11 f.h. — Séra Lárus
Halldórsson.
Neskirkja: — Messa á uppstigningar-
dag kl. 11 f.h. — Séra Jón Thorarensen.
Laugarneskirkja: Messa á Upp-
stigningardag kl. 2 e.h. — Séra Jóhann
Hannesson prófessor prédikar. — Kaffi
sala kvenfélagsins í kirkjukjallaranum
hefst að guðsþjónustunni lokinni, Séra
Garðar Svavarsson.
Fríkirkjan: — Messa á uppstigning-
ardag kl. 2 e.h. — Séra Þorsteinn
Björnsson.
Messa í Saurbæ kl. 2 e.h. á uppstign
ingardag. Ferming. — Sóknarprestur.
Útskálaprestakall: — Messa að Hvals
nesi kl. 2 e.h. á uppstigning$irdag. —
Séra Bjarni Sigurðsson, Mosfelli pré-
dikar og kirkjukór Lágafellssóknar
annast söng. — Sóknarprestur.
Minningarkort Kirkjubyggingarsjóðs
Langholtssóknar fást á eftirtöldum stöð
um: Langholtsveg 20; Sólheimum 17;
Vöggustofunni Hlíðarenda; Verzl. Anna
Gunnlaugsson, Laugaveg 37.
Hafnfirðingar: — Mænusóttarbólu-
setningin heldur áfram þessa viku á
skrifstofu héraðslæknis kl. 5—7 síðd.
Kvenfélag Laugarnessóknar: Kaffi-
sala verður 1 kirkjukjallaranum á
uppstigningardag eftir messu. Konur,
sem ætla að gefa kökur, komi þeim
í kirkjukjallarann fyrir hádegi á upp-
stigningardag.
Kvenfélag Neskirkju: — Aðalfundur
félagsins er í kvöld kl. 8,30 í félags-
heimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf,
kaffidrykkja og myndataka. Félagskon
ur fjölmennið.
Listamannaklúbburinn er opinn í
baðstofu Naustsins í kvöld.
Frá Árnesingafélaginu í Reykjavík:
Gróðursetningarferð verður farin að
Ashildarmýri og Þingvöllum n.k. laug-
ardag. Lagt verður af stað frá Bún-
aðarfélagshúsinu í Lækjargötu kl. 2 eh.
Frá Breiðfirðingafélaginu: — Sem
undanfarin ár hefir Breiðfirðingafélag-
ið boð inni fyrir Breiðfirðinga 65 ára
og eldri í Breiðfirðingabúð á uppstign-
ingardag kl. 2 e.h.
Leiðrétting. Það er síldarlýsi, sem
lækkað hefur síðan í fyrra úr £-68 í
£-58 cif., en ekki síldarmjöl, eins og
misritaðist 1 forsíðufregn í gær. Lækk-
unin á mjölinu var sú, sem fyrr í sömu
frétt segir.
Liggur fagurt lík á börum,
lífs í broddi dáinn sveinn;
ennþá blaktir bros á vörum,
bjartur svipur er og hreinn,
eins óg lokað engill hefði
augum hans með léttri hönd,
og í nánd við náinn tefði
nauðug við hann skilin önd.
Mærin Ijós hjá líki stendur —
laugar náinn tárafoss —
leggur sveini um hálsinn hendur,
hinztan gefur ástarkoss. —
Sjá, hins liðna opnast aftur
auga, varir bærast hægt, —
ofsa dauðans æðri kraftur
ástarinnar getur lægt.
Grímur Thomsen: Kossinn.
ÁHEIT og GJAFIR
Rafnkelssöfnunin: — Fulltrúaráð Sjó
mannadagsins í Reykjavík og Hafnar-
firði hefir sent söfnuninni kr. 4.800,00.
— Rósa og Magnús á Geirlandi kr.
300,00. — Hjartans þakkir, f.h. söfn-
unarnefndar, Björn Dúason.
SÍÐASTLIÐINN sunnudag hóf
ust hvalveiSarnar í ár. Fjögur
skip héldu út, mönnuð hinurn
hraustustu mönnum og einni
konu, Guðrúnu Vilmundardótt
ur, sem verið hefur kokkur í
sex sumur á einum bátanna,
Hval III, eða þristinum, eins
og hann er oft kallaður.
Áður en þau héldu út á
sunnudaginn hitlum við Guð-
rúnu að máli á heimili hennar.
— Af hverju fórstu á Hval-
inn í upphafi?
— Ég vann þá á tannlækn-
ingastofu, hafði gert það í f jög
ur ár og langaði í einhverja
tilbreytingu.
— Hafði nokkur kona gert
þetta áður?
— Nei, aldrei.
— Hvernig leizt Lofti á
uppátækið?
— Ekki allt of vel, hann
hafði enga trú á því að þetta
væri kvenmannsverk. Þó féllst
hann á að lofa mér að reyna.
En strax eftir fyrsta túrinn
var Loftur mættur í Hvalfirð-
inum til að taka kokkinn í
land, en það varð nú ekki af
því þá.
— Og síðan eru sex sumur?
— Já, þetta er sjöunda sum-
arið, sem ég fer með.
— Hefurðu alltaf verið á
Hval III?
— Nei, fyrsta sumarið var
ég á Hval I, en síðan fór Ing-
ilfur Þórðarson, skipstjóri yf-
ir á Hval III og ég fylgdi með.
— Hvernig gengur þér að
;era þeim til hæfis, piltunum,
sru þeir ekkert matvandir?
— Nei, alveg afskaplega
fóðir. Það eru engin vandræði,
enda alltaf nægur og góður
matur.
— Varstu ekkert sjóveik
fyrst?
— Nei, veit ekkert hvað það
er. —
— Og ekkert orðin þreytt
á sjómennskunni?
— Ja, — alltaf ætla ég i
síðasta sinn, en síðan er freist-
ingin ár eftir ár. Það er svo
gaman að vera á sjónum i
góðu veðri.
— Þarftu að vaka á nótt-
unni, þegar þeir eru í veiði?
— Nei, aldrei, þeir fá sér
bita sjálfir.
— Ert þú ekki heilmikil
draumakona, Guðrún?
— Mgð dreymir oft fyrir
daglábum, eo við skuium ekki
tala um það.
— Það sagði mér eitt sínn
kunningi úr flotanum, að það
væri fyrir brælu að dreyma
kvenfólk. Ertu sammála?
— Þetta segja allir karl-
menn. Ég er ekki sammála —
en við skulum ekki tala um
drauma.
— Hefurðu skotið hval?
— Nei, það gerir aðeins
skipstjórinn.
— ViII ekkert kastast í
kekki milli ykkar um borð.
— Nei, alls ekki. Samkomu-
lagið er ágætt — við erum
eins og ein fjölskylda, Ing-
ólfur eins og pabbinn og pilt-
arnir eins og bræður.
JÚMBÓ — Á ævmtýraeyjurmi — Teikningar eftir J. Mora
Á sunnudagsmorguninn var glaða-
sólskin, og Mikkí greip sólhlífina og
hélt heim til Júmbós. Hún ætlaði að
reyna að fá hann til að koma í göngu-
ferð. — Það vill hann áreiðanlega,
hugsaði Mikkí, sem var svo fín í nýja
kjólnum sínum.
Júmbó sat við að lesa lexíurnar
sínar, en þegar hann sá Mikkí, varð
hann strax óður og uppvægur. —
Hvert eigum við að fara, Mikkí?
spurði hann. — Tja, sagði hún, — við
getum t. d. farið að heimsækja Karó-
línu!
— Góð hugmynd, sagði Júmbó. —
Þá er bezt að ég hafi árina mína með,
ef okkur skyldi langa til að róa út á
ána. Mikkí tók með sér körfu til þess
að tína í ber — og svo lögðu þau af
stað. —-
Jakob blaðamaður Eftir Peter Hoffman
WADDAYA KNOW/
ITS COBB/...THE
Á!I* REPORTER
WHO PUT ME
BEHIND
BARSI
Maggi morðingi!
Nei, hvað er þetta! Kobbi! B'íT! ..
bl- ' - Turinn, sem koffi mér í tukt- Mér líkar ekki hláturinn-!
huÁ *;-' há, há.'ha. : • Hvernig heldur þú að mér líði?