Morgunblaðið - 25.05.1960, Side 10
10
MORCUHBLAÐIÐ
Miðvikudagur 25. maí 1960
A söguslóðum
SAGT er, að ekkert vatn á
Ítalíu sé eins blátt og Garda-
vatnið. Hvort sem þetta er
rétt eða ekki, þá er það víst,
að Lagó di Garda, er stærsta
ítalska vatnið og eitt af hin-
um fallegustu. Norðurhluti
þess er umkringdur háum
Alpafjöllum á þrjá vegu, en
suðuroddinn nær alla leið nið-
ur á Pósléttuna.
Alpafjöllin veita þarna skjól
gegn norðanvindunum. Gróð-
urinn er því mjög fjölbreyttur
og suðrænn. Sítrónugarðar og
olíuviðarlundar skiptast á í
fjallshlíðunum. Fíkjutré,
ferskjutré, • lárberjatré og
pálmar vaxa á bökkum vatns
ins.
Náttúrufegurðin við Garda-
vatnið hefur frá fornöld og
fram á þenna dag, dregið
fjölda fólks til sín. Virgil,
Horats og CatullUs lofsungu
þetta vatn, sem í fornöld hét
Lacus Benacus. Júlíus Cæsar
var tíður gestur á þessum
slóðum. Margir listamenn og
skáld seinni tíma hafa dvaiið
þarna um stundar sakir eða
tekið sér þarna varanlegan bú
stað, m. a. Dante. Goethe og
Gabrielé d’Annunzio.
Mussolini lét gera akbraut,
sem nefnist „Gardesana Occi-
dentale", meðfram vatninu
vestanverðu. Var henni lokið
árið 1931. Er þarna um mikið
mannvirki að ræða, sem kost-
aði ógrynni fjár, vafalaust
mörg hundruð milljónir mælt
í íslenzkum krónum.
Akbrautin er víða höggvin
inn í klettana, og á nálega 80
stöðum er ekið gegnum jarð-
göng. Þetta er emn af feg-
urstu bílvegunum á Ítalíu,
minnir sums staðar á hinn
víðkunna veg, Axenstrasse,
meðfram Vierwaldstatter-
vatninu í Sviss.
Ferffamannastaðir.
Margir fjölsóttir ferðmanna
staðir eru beggja megin vatns
ins, bæði glæsilegir „riviera"
bæir og lítil fiskiver.
Gardone Riviera vestan við
vatnið er einn fjölsóttasti og
að mörgu leyti skemmtilegasti
staðurinn. Meðfram breiðgöt-
unni á vatnsbakkanum vaxa
pálmar og líbanonskur sedrus-
viður. Monte Baldo með hvít-
an koll gnæfir við himin
hinum megin vatnsins.
d’Annunzio átti iengi heima
í Gardone. Eftir fyrri heims-
styrjöldina settist hann þar
að í glæsilegu húsi, sem hafði
verið eign austurríks vísinda-
manns, Henry Thode. ftalska
ríkið gerði það upptækt, þeg-
ar Ítalía fór í styrjöldina á
móti Austurríki. Sagt var að
Mussolini hefði seinna selt d’
Annunzio húsið fyrir eina
líru.
Eftir andlát Thodes skip-
ust ríkisstjórnirnar í Dan-
mörku og Ítalíu á orðsending-
um út af þessu máli. Danska
stjórnin taldi sér skylt að
veita frú Thode hjálp.
d’Annunzio barðist sem
kunnugt er ötullega fyrir því,
að ítalir fengu hafnarborgina
Fiume norðan við Adríahafið
eftir fyrri heimsstyrjöldina.
ítalir, undir forystu hans her
námu hana. Margir minnast
þess ennþá, þegar d’Annun-
zio stóð kjólklæddur með
hvíta hanzka á leiksviðinu
í aðalleikhúsi borgarinnar og
hélt þrumuræðu um nauðsyn
þess, að ítalir fengju Fiume.
Hin fræga leikkona, Eleonora
Duse, sem hafði leikið aðal-
hlutverkið í mörgum leikrit-
um hans, sat í veglegustu stúk
unni og klappaði ákaft.
d’Annunzio mundi ekki
liggja rólegur í gröf sinni, ef
hann vissi, að ekki aðeins
Fiume, sem nú heitir Rijeka,
heldur líka svo að segja all-
ur Istriaskaginn er nú í hönd
um Júgóslava.
Eftir að d’Annunzio andað-
ist árið 1938 var bústaður hans
í Gardone gerður að minnis-
merki um hann, ekki aðeins
til að minnast hans sem skálds
heldur líka sem herforingja,
sem vann að því að gera ítal-
íu stærri. Þarna hvílir hann
í moldu ásamt nokkrum ítöl-
um, sem létu lífið í baráttunni
um Fiume. Þetta er eins kon-
ar sigurminnismerki. ítalir
kalla staðinn: „Vittoriale
degli Italiani". Þarna er líka
varðveitt hið mikla bóka- og
listasafn, sem d’Annunzio átti.
Fjársjóður Mussolinis.
Mussolini bjó við Garda-
vatnið vestanvert síðustu ár
ævi sinnar.Hin svokallaða lýð
veldisstjórn, sem hann mynd-
aði, eftir að Þjóðverjar björg
uðu honum úr fangavist hjá
Vesturveldunum, hafði aðset-
ur sitt í Salo, smábæ skammt
fyrir sunnan Gardone. 'Sjálfur
átti Mussolini heima i skraut-
hýsi í Tignale nokkra km fyr-
ir norðan Gardone. í öðru
húsi í Tignale bjó hjákona
hans, Claretta Petacci. Þetta
vaf síðasti dvalarstaður þeirra
áður en þau reyndu að flýja
til Sviss í lok apríl 1945, en
þá voru þau bæði tekin föst
í Dango við Comovatnið og
skotin.
Ennþá tala menn á þessum
slóðum um fjársjóðinn, sem
Mussolini hafði með sér á flótt
anum. Enginn veit með vissu,
hvað af honum varð. En hús
kommúnistaflokksins í Róma-
borg er kallað „Palazzo
Dongo“, af því að sagt er að
það hafi verið reist fyrir fé,
sem kommúnistar komust yf-
ir, þegar Mussolini var hand-
samaður.
Gamlir kastalar og kastala
rústir í smábæjunum við
Gardavatnið, bera vott um
valdabaráttuna milli norður-
ítölsku börganna, Feneyja,
Veronu og Milano, fyrr á tím-
um.
í Malsecine austan við vatnið
stendur kastali mikill, sem
reistur var seint á miðöldun-
um. Goethe segir frá því í
ferðaminningum sínum, að
hann var svo hrifinn af þess-
um kastala, að hann teiknaði
mynd af honum. En á meðan
hann var að því, var hann
tekinn fastur, grunaður um
njósnir. Honum tókst þó að
sannfæra yfirvöldin um sak-
leysi sitt.
Einn skemmtilegasti staður
inn við Gardavatnið er Sir-
mione. Þessi litli bær stendur
á örmjóum skaga, sem gengur
út í vatnið sunnanvert. Göt-
urnar eru svo þröngar, að
tvær bifreiðir geta ekki farið
samhliða um þær, og hvergi
á þessum slóðum er götulífið
eins suðrænt og þarna.
Fornrómverska skáldið Ca-
tullus dvaldist oft í Sirmione
og skrifaði þar ástakvæði sín
til Lesbia. Yzt úti á skaganum
eru leifar af fornrómversku
húsi. Nefnast þær „Grotta di
Catullo". Sumir halda, að
þetta séu rústirnar af íbúðar-
húsi Catullusar.
Það sem öðru fremur setur
svip sinn á Sirmione er hinn
voldugi og tilkomumikli Scali
gero- kastali, sem gnæfir yfir
bæinn. Hann var reistur fyrir
rúmlega 500 árum af della
Scala, sem sat við völd í Ver-
onu. Það voru menn af hans
ætt, Scaliger-ættinni, sem
stjórnuðu Veronu á 13. og 14.
öld og sköpuðu þessari glæsi-
legu borg nýtt blómaskeið.
Páll Jónsson.
við Gardavatn
X-I5 í
32.600 km
hœð
SL. FIMMTHDAG tókst banda »
ríska tilraunaflugmanninum
Bob White að komast upp i
32.600 metra hæð í rakettu-
flugvélinni X-15 — og hefir
hún aldrei áður komizt jafn-
hátt. f 14.000 metra hæð var
X-15 sleppt frá „móðurskip-
inu“, jötunstórri sprengjuflug
vél af gerðinni B-52. — White
setti þegar eldflaugarhreyfl-
ana í gang, og eftir 4 mínút-
ur náði hann hápunktinum —
á 2.160 km. hraða á klst.
Veður var bjart, og White
tilkynnti, að hann sæi San-
Francisco úti við sjóndeildar-
hring — en borgin var þá í
560 km. fjarlægð frá honum.
— Eftir WVi mínútu lenti
White síðan heilu og höldnu á
eyðimerkurflugveliinum Ed-
wards.
BrunakaU
í nvtt skip
í GÆRKVÖLDI stukku bruna-
verðir um borð í nýjan fær-
eyskan togara, Jogvan á Görð-
um. Hafði brunkall komið. — í
eldhúsi skipsins hafði kviknað í
einhverjum pokadruslum, en
skipuverjum hafði tekizt að kæfa
eldinn, áður en brunaverðirnir
komu.
Mikil gleði virtist ríkjandi
meðal hinna færeysku sjó-
manna, eh þeir eru að fara til
saltfiskveiða á Nýfundalands-
mið og er Reykjavík síðasta
höfn,
Leiksýníngar
í Hellubíói
HVOLSVELLI, 21. maí. — Sunnu
daginn 15. maí heimsótti Nýtt
leikhús Rangæinga með gaman-
leikinn Ástir í Sóttkví undir
stjórn Flosa Ólafssonar. Gaman-
leikur þessi var mjög fjölsóttur
og var honum ákaft fagnað, leik-
endum klappað lof í lófa hvað eft
ir annað að leiksýningunni lok-
inni.
í gærkvöldi kom annar leik-
flokkur og sýndi Deleríum Búbón
is á vegum Leikfélags Reykjavík-
ur. Sýndi það sig í annað sinn,
þótt ekki væri full vika milli
sýninganna, að Rangæingar fagna
slíkum gestum, og yfirfylltist
Hellubíó að þessu sinni. Bæði
leik og leikendum var forkunnar
vel tekið. Mætti L.R. samt athuga
að hljóðfæri, er spila skal á
hverju sinni í þessari „langreisu“
sé boðlegt og ekki til hneisu höf-
undi laganna. Eins að meðfylgj-
andi hljóðfæraleikari sé fullkom-
lega æfður. — Fréttaritari.
Fréttabréf frá B'ilcfudal:
Vertíðarbátar hœttir
- rækjuveiði treg — vegir slæmir
131 Jbús. fjár slátrað
hjá S.S. á s.l. ári
BÍLDUDAL, 5. maí: — Frekar
kalt hefur verið hér undanfarna
daga, en alveg snjólaust nema til
fjaJla.
Tveir vetrarvertíðarbátar eru
Syndið 200 mefrana
nú hættir Reynir og Geysir. Var
hendarafli þeirra sem hér segir:
M.s. Reynir 320.400 kg. i 56 sjó-
ferðum, Geysir 300.315 kg í 60
sjóferðum. Þriðji báturinn, Jör-
undur Bjarnason, var kominn
með um mánaðarmót apríl—maí
509.260 kg. í 70 sjóferðum.
Rækjuveiði treg
Rækjuveiði hefur verið frekar
treg undanfarna daga, en rækj-
an er stór og feit. Rækjan er öll
hraðfryst í 4 lbs. pakka. Mark-
aður er mjög lélegur sem' stend-
ur. Síðan á áramótum mun vera
búið að vinna um 30 tonn af
pihaðri rækju. Rækjuveiði mun
sennilega vera fram í miðjan
mánuðinn.
Einn bátur hefur róið héðan á
nandfæri og hefur afli verið sæmi
legur, þegar gefið hefur á sjó.
B.v. Pétur Thorsteinsson kom
inn sl. sunnudag og landaði 76
lestum af fiski eftir 10 daga úti-
veru.
Vegir hér í hreppi eru í mjög
slæmu ástandi, og er lítið byrjað
að laga þá. Vegurinn yfir Hálfan
milli Bíldudals og Tálknafjarðar,
má heita ófær, nema jeppum. A
þessu ári mun hafa verið veitt
í þennan veg aðeins 30 þúsund
kr., svo að búast má við að hann
verði illfær í sumar, og er það
n jög slæmt.
Flugferðir hafa nú verið lagð-
ar niður hingað, og væri mjög
slæmt ástand í samgöngumálum,
ef Sigrún kæmi ekki vikulega,
en hún flytur aðeins fragt og
póst. — Hannes.
FULLTRÚAFUNDUR og aðal-
fundur Sláturfélags Suðurlands
voru haldnir í Reykjavík sl.
miðvikudag og fimmtudag. — Á
fulltrúafundinum voru mættir
63 af 65 fulltrúum úr deildum
félagsins.
Formaður félagsins, Pétur
Ottesen, fyrrv. alþm., var kjör-
inn fundarstjóri, en fundarritari
var Þorsteinn Sigurðsson, form.
Búnaðarfélags Islands. Forstjóri
félagsins, Jón H. Bergs, flutti
skýrslu um starfsemina og lagði
fram ársreikninga félagsins fyrir
árið 1959.
I sláturhúsum S.S. var slátrað
alls 131.000 fjár á árinu 1959, og
nautgripa- og svínaslátrun var
mikil, eins og áður. Mikil fram-
leiðsluaukning varð á árinu, og
var heildarvörusala starfsgreina
félagsins um 118 milljónir
króna. Nemur söluaukning frá
árinu á undan um 22 milljónum
króna.
Félagsmenn í árslok 1959 voru
2.957, og árið 1959 störfuðu hjá
félaginu um lengri eða skemmri
tíma um 880 manns, þar af 230
manns allt árið.
Á aðalfundi áttu að þessu
sinni að ganga úr stjórn formað-
ur félagsins, Pétur Ottesen, og
Siggeir Lárusson, Kirkjubæjar-
klaustri, og voru þeir báðir
endurkosnir.