Morgunblaðið - 25.05.1960, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 25.05.1960, Qupperneq 17
Miðvikudagur 25. maí 1950 MORCVTSBl ÁBlh 17 Kristín Halldórsdóltir sjötug GRÍMSNESIÐ góða hefir frá upp hafi átt góða sonu og dætur, sem hafa haldið uppi sóma þessarar fögru sveitar. Ein af slíkum dætrum hennar, Kristín Hall- dórsdóttir frá Öndverðarnesi, er sjötug í dag. Hún var aðeins 10 ára er hún fluttist með foreldrum sínum að Öndverðarnesi og dvaldist þar að mestu til haustsins 1955, er hún seldi jörð og bú og hefir átt hér heimili síðan. Foreldrar hennar voru sæmdar hjónin Halldór Stígsson og Þór- unn ísleifsdóttir, er lengi voru góðir búendur í Öndverðarnesi. Ólst Kristín upp hjá foreldrum sínum og átti góða og bjarta aesku. Um tvítugt gekk hún að eiga Bjarna Jónsson frá Alviðru og nokkrum árum síðar tóku þau við jörð og búi í Öndverðarnesi. Þau hjón eignuðust 9 börn, 5 sonu og 4 dætur. Tvö þeirra eru dáin, Jón er dó ógiftur og barn- laus og var stoð og stytta móður innar og Þórunn gift Valdimar Pálssyni kennara. Hin eru: Ragn ar kvæntur Guðrúnu Guðjóns- dóttur frá Hrygg í Hraungerðis- hr., Halldóra gift Jóni Helgasyni á Selfossi, Anna gift Guðm. Jóns syni búsettt í Kópavogi, Hjalti kvæntur Kristínu Jónsd. frá Eyr arbakka, Gunnar kvæntur Guð- rúnu Jónsd. frá Akureyri, Bjarni íulltrúi hjá borgardómaxanum í Reykjavík kvæntur Ölöfu Pálsd. frá Búrfelli og Unnur gift Jóni Brynjólfssyni verkfr. Óll börnin sem gift hafa verið hafa átt börn og eru barnabörnin yfir tuttugu. Arið 1926 varð Kristín fyrir því þunga áfalli og djúpu sorg að missa eiginmann sinn af slys- förum. Hafði hann verið hinn mesti dugnaðarmaður og var því missirinn mikill.. Þegar af því, sýndi Kristín þá hvert þrek henni var gefið, er hún varð ein að taka í sínar hendur uppeldi og farsjá heimilis og barna. Stóðst hún með ágætum þá þrek- raun, kom börnunum vel til manns og menntaði þau og búið efldist sí og æ undir handleiðsiu hennar og jörðin jafnframt stór- um bætt að ræktun og húsakosti. Foreldrar hennar dvöldu alla tíð hjá henni í góðu yfirlæti. Móðir hennar andaðist árið 1929. en fað ir hennar lifði við góða heilsu til hárrar elli. Mér er það minnisstætt frá æsku, að brátt tókst góð vinátta milli heimilanna, Öndverðarness og Kiðjabergs. Hélst sú vinátta óslitið og ágerðist með árunum milli móður minnar og Kristín- ar, enda áttu þær óslitið og Margrét Auðunsdóttir Minningaroró TÖLFTA maí, á sólfögrum sum- armorgni, þegar vorþeyrinn strýk ur mjúklega um kinn móður jörðu og döggin glitrar eins og perlur, en leysist síðan upp í hitamóðu, kveður ung og glæsileg hafnfirzk húsmóðir og móðir þessa jarð- nesku tilveru eftir miklar og sár- ar þrautir um margra mánaða skeið. Þessi hafnfirzka húsfreyja hét Níelsína Margrét Auðunsdóttir fædd í Hafnarfirði 11. ágúst 1911. Föreldrar hennar voru Auðurin Níelsson, þekktur hafnfirzkur borgari, sem látinn er fyrir nokkr um árum, og Guðrún Hinriksdótt ir kona hans er bjuggu að Austur- götu 7, og býr Guðrún þar enn. Æska „Möggu Auðuns“, eins og hún var ávallt kölluð af þeim, er hana þekktu, er mér ekki kunn, því ég þekkti hana fyrst sem glæsilega, gjafvaxta stúlku, frán- eyga og bjarta yfirlitum, bros- milda og aðlaðandi, og mun marg ur sveinnirvn hafa litið hana hýru auga. Þegar hún hafði aldur til, lagði hún stund á ljósmynda- smíði og lauk námi í þeirri grein. Ekki starfaði hún nema stutt við þá iðn, því þnn 9. nóv. 1935 gift- ist hún eftirlifandi manni sínum, Oddi Hannessyni rafvirkjameist- ara. Byggðu þau sér hús að Hellis götu 1 og hafa búið þar síðan, og ól hún manni sínum 3 manii- vænlega sonu. Það fer ekki á milli mála að hennar hugstæðustu eiginleikar voru að fegra og prýða, ekki einungis heimili sitt að innan, heldur garðinn í kring um það, svo að fegurð hans bar af. Eins og Hafnfirðingum er kunnugt, voru þau hjónin bæði samhent í því verki sem og öðru, enda var hún gædd ríkum aðlög- unarhæfileikum og lagði ávallt eitthvað gott til allra mála, og sóttust konur til vínfengis við hana, og átti hún mrgar tryggar vinkonur alla ævi, allt frá því, er æska hennar stóð í fullum blóma. Þessu ber ljósast vitni hin sérstæða og eftirtektarverða sam heldni systkina og venzlafólks, maður kom vart svo á heimili hennar, að ekki væri þar fyrir e.tthvert systkinanna eða hennar kæra móðir, sem með veikum burðum annaðist heimili hennar, þegar dóttirin gat ekki lengur að staðið. Þegar við nú kveðjum þessa góðu konu, dáum við þrek henn- ar og léttlyndi til hinztu stundar. Það er táknrænt fyrir skapgerð hennar, að þegar konan mín heim sótti hana á spítalann nokkrum dögum áður en hún dó, sagði hún með sínu venjulega, aðlaðandi við móti: ,En hvað það var sætt af þér að heimsækja mig segðu mér nú eitthvað skemmtilegt”. Svo var gestrisni henni í blóð borin, að jafnvel þegar mesti skaðvald- ur þessa mannkyns gerði henni ókleift að lifa með okkur, bauð hún gesti sína velkomna. Mikill er tregi eiginmanns, sona, aldraðrar móður og allra, er henni kynntust, en við getum öll huggað okkur við þá stað- reynd er hér er góð kona gengin. Magnús Hannesson. happadrjúgt samstarf í kvenfé- lagi sveitarinnar. Komu þær mörgu til leiðar og voru samtaka í stóru og smáu. Mat móðir mín því Kristínu mikið og hennar staðföstu vináttu og tryggð, sem aldrei brást. Þiátt fyrir mótlæti og erfiði hefur Kristín haldið sér vel og er við beztu heilsu og sí glöð. Hún getur með ánægju litið yfir farin veg og glaðst yfir því, að nafa orðið mörgum til góðs, það er hið æðsta og bezta. sem nokkr um getur fallið í skaut. Ég veit að Grímsnesið góða, fagnar þessari góðu dóttur á 70 ára afmæli hennar og árnar henni allra heilla. Við vinir hennar, óskum henni — Utan úr heimi Framh. af bls. 12. líti mjög til hafsins, þegar vatn er orðið af skornum skammti, og reyni að finna leiðir til þess að breyta saltvatninu í ferskt vatn. Ýmsar tilraunir hafa verið gerð- ar í þessu efni, en allar þær að- ferðir, sem enn eru kunnar — því að þetta er hægt með ýmsu móti — hafa reynzt allt of kostn- aðarsamar. — Áfram er þó hald- ið með tilraunir á þessu sviði — og frá ísrael hafa borizt fregnir um, að þar séu menn á góðum vegi með að finna hagkvæma að ferð og ódýra til þess að vinna ferskt vatn úr sjó. Ekki hefur enn verið upplýst, í hverju þessi aðferð er fólgin, en fyrirhugað mun að beita henni til þess að nýta hið salta vatn Miðjarðar- hasins til að veita á hina sól- Vatnsskorturinn mun væntan- lega verða æ viðameira og al- mennara vandamál á næstu ár- um. Og á því verður að finna full nægjandi lausn til frambúðar, því að annars mun skorturinn á þessum „hversdagslega" vökva, sem okkur finnst mörgum svo sjálfsagður, smám saman kyrkja iðnaðarþjóðfélag .íútímans I greip sinni. Má með nokkrum rétti segja að hér sé teflt um líf og dauða........ Hriitu í réttar- salnum WEWAK, Nýju Guineu, 20. maí. —■ Sextán innfæddir menn hafa verið leiddir fyrir rétt, sakaðir um mannát. Á fjórða degi rétt- arhaldanna urðu truflanir í rétt allra heilla og biðjum henni I heitu Negev-eyðimörk, sem I arsalnum vegna þess að nokkr- blessunar Guðs, um ókomin ár. ísraelsmenn eru staðráðnir í að ir hinna ákærðu sofnuðu oghrutu Steindór Gunnlaugsson. | breyta í gróðursælt land. | hátt. NYTT Toni veitir yður fullkomið permanent og greiðslu að eigin vali—og það er Even-Flo hárliSunarvökvinn, sem leysir allan vandann Hið dásamlega nýja Toni gerir yður ennþá auðveldara en yður gat áður grunað, að setja permanent í hárið heima og leggja það síð- an að eigin vild, — en það er Even-Flo- hárliðunarvökvinn, sem leysir allan vanda: — því hann hæfir öllu hári og gerir það létt og lifandi, sem í raun og veru er aðal- atriði fagurrar hárgreiðslu, varanleg og endingargóðs permanents. HVAÐ ER AUÐVELDARA? F.vlgið aðeins hinum einföldu leiðbeining- um, sem eru í íslenzku og permanent yðar mun vekja aðdáun, vegna þess hve vei hef- ur tekizt að gera bylgjurnar léttar og lifandi GENTLE fyrir auðliðað hár SURER fyrir erfitt hár REGULAR fyrir venjulegt hár VELJIÐ TONI VIÐ YÐAR HÆFI. ■■■; I ' %

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.