Morgunblaðið - 25.05.1960, Page 24
Ibróttasíðan
er á bls. 18.
Verzlunarbanki
Sjá bls. 13.
118. tbl. — Miðvikudagur 25. maí 1960
30 lestir fengnar
á Dynskógafjöru
JÁRNIÐ á Dynskógafjöru, sem
búið er að liggja þar grafið í
sandinn síðan 1943, er járnflutn-
ingaskipið Persier strandaði þar,
er nú að koma upp á yfirborðið
aftur. Um 8 leytið í gærkvöldi,
er þeir sem verkið vinna höfðu
samband vestur í sveitirnar í
talstöð sinni, skýrðu þeir frá því
að búið væri að ná upp um 30
lestum.
Verkið gekk erfiðlega í fyrstu
vegna þess að sandur og vatn
Nær 200 togarar
við Vestfirði
— fsafirði 24. maí.
SÓLBORG landaði í dag um
200 tonnum eftir 10 daga úti-
vist. Var togarinn að veiðum
undan Vestfjörðum og hafa
togarar aflað vél þar að und-
anförnu. Skipverjar á Sól-
borgu segja, að á miðunum
fyrir Vestfjörðum séu nú á að
gizka 150—200 togarar og
mest ber þar á íslenzkum,
brezkum og þýzkum. — J. P..
vildi fylla gryfjurnar jafnóðum.
Járnið er talið vera á 5—6 m.
dýpi. En eftir að búið var að reka
járnhlið niður með gryfjubörm-
unum gekk það vel. í fyrradag
náðist fyrsta járnið.
Að verkinu vinna 10 manns.
Þeir hafa tilbúna trukka, til að
flytja járnið vestur yfir Múla-
kvísl og af sandinum og síðan
til Reykjavíkur. Járnstykkin
munu vera um 35 kg. að þyngd.
Áður hefur verið bjargað um 500
lestum af járni þessu, en það sem
eftir er mun skipta þúsundum
lesta.
Konungshjónin
fengu gæruteppi
að gjöf
í TILEFNI af silfurbrúðkaupi
Friðriks 9. Danakonungs og Ingi-
ríðar drottningar í gær, sendu
íslenzku forsetahjónin konungs-
hjónunum heillaóskaskeyti og
að gjöf gólfábreiðu gerða úr ís-
lenzkum skinnum (gærum).
Sendiherra íslands í Kaup-
mannahöfn, Stefán Jóhann Stef-
ánsson afhenti gjöfina.
Talbrú milli síldveiði-
bátanna og lands
um Raufarhafnarradió
Á RAUFARHÖFN er í bygg-
Ingu nýtt símstöðvarhús, sem
reiknað er með að verði tilbúið
fyrir síldarvertíð. Mun það bæta
mjög símaþjónustuna norður þar.
Einnig er verið að reisa þar möst
ur og smíða tæki hér fyrir sunn-
an fyrir radíóþjónustu. Verður
því í sumar í fyrsta skipti talbrú
milli síldveiðibátanna og símnot
enda í landi..
Undanfarið hefur síldarleitin á
Raufarhöfn annazt margt fyrir
bátana á miðunum og flutt skila-
boð á milli þeirra og aðila í
landi. Léttir það mikið á síldar-
leitinni að bátarnir skuli nú geta
Sló íslandsmel
í mjólkurnyt
NYTHÆSTA kýr á Iandinu
árið 1959 verður sennilega
Huppa IV frá Vetleifsholti
í Ásahreppi í Rangárvalla-
sýslu. Hún mjólkaði 6821
kg. yfir árið og var fitu-
magn mjólkurinnar 4,78%.
Afurðirnar eru því 32.604
fitueiningar og er það ís-
lenzkt met. Eigandi Huppu
er Sigurður Þorsteinsson,
bóndi í Vetleifsholti.
Skýrslugerð um afurða-
verð kúa í landinu fyrir ár-
ið 1959 er ekki að fullu lok-
ið, en talið er þó nokkurn
veginn víst að Huppa sé nyt
hæsta kýrin.
Huppa er 10 vetra gömul
og hefur ekki verið nein
sérstök mjólkurkýr fyrr.
Nokkra skýringu má gefa á
þessari háu nyt. Það mun
stuðla að henni að Huppa
bar í janúar núna, en i
byrjun ágúst 1958 og fékk
því að hvíla sig í nokkra
mánuðl.
farið með allar sínar útréttingar
gegnum Raufarhafnarradíó, og
hún getur þá einbeitt betur sér
að veiðihorfum, síldarleit. og
þeim verkefnum, sem henni er
raunverulega ætlað að vinna.
Starfsmenn síldarleitarinnar á
Raufarhöfn hafa undanfarin
sumur leyst margan vanda fyrir
bátana, og haft af því mikla fyr-
irhöfn.
Borgarstjóri í Hull
KOMA Geirs Hallgrimsson-
ar, borgarstjóra, til Hull
vakti mikla athygli þar um
slóðir. Brezk blöð fluttu
ýtarlegar fréttir af heim-
sókn borgarstjórans og
vígslu Iceland Close.
Yorkshire Post greinir
meðal annars frá því, að
Geir Hallgrímsson hafi
skoðað St. Andrews togara-
höfnina í fylgd með borg-
arstjóra Hull og fleiri for-
ystumönnum borgarinnar.
Rómar blaðið mjög fram-
komu borgarstjóra.
Blaðamenn fylgdu fast á
eftir og vildu fá Geir til að
gefa yfirlýsingu um land-
helgismálið, en borgarstjóri
sagði:
„Ég er hér sem bæjar-
starfsmaður, ekki á vegum
ríkisstjórnarinnar“, en hann
kvaðst vona, að landhelgis-
deilan yrði ekki til að
spilla vináttutengslum Hull
»g Reykjavíkur.
Geir Hallgrímsson heim-
sótti einnig hið stóra fisk-
iðjuver Eskimo Foods, Hull
Fish Meal and Oil Comp-
any og vísindarannsóknar-
stöðina í borginni — og
snæddi að því loknu í boði
borgarstjóra Hull.
Meðfylgjandi mynd birt-
ist í einu brezku blaðanna
og var tekin í ráðhúsi Hull,
er borgarstjóri skrifaði
nafn sitt í gestabók ráðhúss
ins. Eiginkona hans, frú
Erna Finnsdóttir, stendur
við hlið honum.
JT
I
Elzta steinhús
Axarfirði brann
SL. sunnudag brann elzta
steinhús í Axarfirði, gamli
bærinn á Þverá, til kaldra
kola. I húsinu, sem var notað
sem fjós og geymsla, voru
tvær kýr og tókst að bjarga
þeim. Um 40 manns frá
Kópaskeri og úr sveitinni i
kring tóku þátt í slökkvi-
starfinu, að því er fréttarit-
arar blaðsins á Kópaskeri og
í Ærlæk síma.
Eldsins varð vart um kl. 4.
Drifu þá að allir liðtækir menn
úr sveitinni og frá Kópasken
komu menn með slökkvitæki. —
Var norðvestan gola og stóð eld-
urinn af nýja íbúðarhúsinu, sem
byggt var fyrir tveimur árum.
Tókst að verja það, en rífa
þurfti af því járnplötur til að
stöðva eldinn. Aðrar skemmdir
urðu ekki á húsinu.
Gamla húsið, sem brann til
ösku, var byggt á árunum fyrir
AÐALFUNDUR fulltrúaráðs
Sjálfstæðismanna í Árnessýslu
verður haldinn í Iðnaðarmanna-
húsinu á Selfossi næstkomandi
sunnudagskvöld kl. 9 síðdegis.
Auk venjulegra aðalfundar
starfa mun landbúnaðarráðherra
Ingóifur Jónsson hafa framsögu
um stjómmálaviðhorfið.
Allt Sjálfstæðisfólk
a fundinn.
velkomið
Fóstbræður
simgu í Oslo
OSLÖ, 24. maí: — Fóstbræður
sátu sérlega ánægjulegt heimboð
hjá íslenzku sendiiherrahjónunum
hér í Osló.
Sungum hér í ráðhúsinu fyrir
miklum fjölda áheyrenda og var
almenn hrifning. — Ágúst.
1920, af þáverandi oddvita,
Benedikt Kristjánssyni, og var
búið í því þangað til fyrir tveim-
ur árum.
Á Þverá býr ungur bóndi,
Kristján Benediktsson, með
konu sinni og 6 böraum. Hefur
hann beðið mikið tjón við missi
gamla bæjarins.
Eldsupptök eru ókunn. Engin
eldfæri voru í gamla húsinu.
Verða að lóga
öllu fé
Isafirði, 24. maí.
BÆJARSTJÓRN Isafjarð-
ar hefur nú ákveðið, að
öllum fjáreigendum í lög-
sagnarumdæmi bæjarins
skuli skylt að lóga öllu fé
sínu hinn 20. október í
haust. Samþykktin var gerð
með þeirri undantekningu,
að Seljalandsbúinu er
heimilað að hafa sauðfé
áfram. Allmargir ísfirðing-
ar hafa stundað búskap í
hjáverkum á undanförnum
árum og munu Um 5—600
ær hafa verið aldar í vetur
á bæjarlandinu. Erfitt hef-
ur reynzt að halda sauð-
kindum með öllu frá bæn-
um og hafa þær oft á tíð-
um verið þar til óþrifa og
mun sú ástæðan fyrir
ákvörðun bæjarstjórnar. —
— J. P.
Coribou-vélin
kom í gær
I GÆRKVÖLDI kom hingað
kanadíska flugvélin de Haviland
Caribou, sem verið hefur á sýn-
ingarferð í Evrópu, og kemur
hér við svo að forráðamönnum
flugmála gefist kostur á að skoða
hana, en hún mun vera sérstak-
lega byggð fyrir stuttar flugbraut
ir.
Flugvélin kom til Reykjavíkur-
flugvallar kl. 19.45 eftix 5 klst.
og 8 min. flug frá Prestwick og
var 39 mínútum fljótari í förum
en áætlað hafði verið.
Á flugvélinni er 4 manna á-
höfn. Flugstjóri kanadískur að
nafni Fairbanks.
Verður flugvélin til sýnis for-
ystumönnum íslenzkra flugmála
í dag.
13 hvalir
AKRANESI, 24. maí — Fyrsta
veiðiförin á hvalvertíðinni hefur
gengið að óskum. Allir hvalbát-
arnir fjórir eru nú á leið til
lands með 13 hvali í eftirdragi.
Er nú búið að setja allt á hreyf
ingu í hvalstöðinni til undirbún-
ings til að taka á móti þessari
miklu veiði, því að hvalbátarnir
eru væntanlegir til hvalstöðvar-
innar í nótt.
Reknetjabáturinn Ásbjörn fékk
40 tunnur síldar í nótt. Oddur
Styrr stendur
um stigatöfluna
SIGLUFIRÐI, 24. maí. — Síð-
asta umferð sveitarkeppninnar á
íslandsmótinu í bridge var spiluð
í gærkvöldi. Þar áttust við sveit
Halls og Gísla og sigraði Hallur
með 60 punktum gegn 33, sveit
Brands og Steingríms og sigraði
sveit Brands með 67:41, sveit Ár-
manns Jakobssonar og sveit Ástu
Flygenring. Fyrir þessa umferð
stóðu leikar þannig að Ármann
hafði ekkert tap og sveit Ástu
engan vinning, en leikar fóru
þannig að jafntefli varð, 45 hjá
frúnum gegn 44 hjá Ármanni.
Samkvæmt þeirri stigatöflu,
sem gilt hefur til þessa, ætti sveit
Halls Símonarsonar að verða ís-
landsmeistari, enda þótt hún og
sveit Ármanns séu jafnar að stig-
um, 7 stig hvor, þar eð punkta-
hlutföll sveitanna voru Halli í vil
skv. gömlu stigatöflunni. Hins-
vegar var samþykkt ný stigatafla
á bridgeþingi í gær, og skv. nýju
töflunni er vinningurinn Ár-
manns. Einhver styrr mun um
það standa hvor stigataflan skuli
gilda við útreikninga á þessu
móti og verður sennilega leitað
úrskurðar þar um.
Stigin eru þá þannig að Hallur
og Ármann hafa 7 stig hvor,
Brandur 6 stig, Gísli 5 stig, Stein
grím-ur 4 stig og Ásta 1 stig.
Tvímenningskeppni hefst í
kvöld og lýkur annað kvöld.